Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 44
-v 44 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUIM
Guðspjall dagsins:
Jesús kennir af skipi
__ t (Lúk. 5.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Jakob A. Hjálmars-
son. Kammerkór Dómkirkjunnar
syngur. Organleikari Kjartan Sig-
urjónsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.15.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Guðný Hallgrímsdótt-
ir. Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson,
prófastur, setur sr. Sigurð Páls-
son í starf aðstoðarprests við
Hallgrímskirkju. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti Douglas A. Brotchie.
Tónleikar kl. 17. EinarSt. Jónsson
trompetleikari og Douglas A.
Brotchie organisti.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
- LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Messa kl.
11. Prestur sr. Jón Helgi Þóarins-
son. Organisti Jón Stefánsson.
Kór Langholtskirkju (hópur II)
syngur.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna
sumarleyfa er minnt á guðsþjón-
ustu í Áskirkju.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Reynir Jónasson.
Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
*■ Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKjA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organleikari Kristín
G. Jónsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Samkoma ungs fólks
með hlutverk kl. 20. Gísli Jónas-
son.
DIGRANESKIRKJA: Sumarferð
Kirkjufélags Digraneskirkju á
sunnanvert Snæfellsnes. Brottför
sunnudagsmorgun kl. 8.30 frá
kirkjunni. Helgistund ÍBúðakirkju.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Organisti Peter Maté. Prestarnir.
- GRAFARVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Hörður
Bragason, Vigfús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Vegna fram-
kvæmda í Hjallakirkju og sumar-
leyfa starfsfólks kirkjunnar er fólki
bent á helgihald og þjónustu í
Breiðholtskirkju eða öðrum kirkj-
um í Kópavogi.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Kópavogskirkju
Fríkirkjan
í Reykjavík
Starf, staða og
framtíðarsýn.
Málþing verður haldið í
safnaðarheimilinu, Laufásvegi
13, mánudaginn 30. júní
kl. 19.00 um starf, stöðu og
framtíðarsýn Fríkirkjunnar.
Málshefjendur:
sr. Bryndís Malla Elídóttir,
sr. Cecil Haraldsson og
Sigurður E. Guðmundsson,
formaður
safnaðarstjórnar.
Léttur kvöldverður
í boði.
É i =L pla
-Jij 4 ð æ $ts ig æs ÉS @9 68 III 1 lii
syngur. Organisti Örn Falkner.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Sr. Valgeir Ástráðsson pred-
ikar. Húnakórinn flytur tónlist
undir stjórn Sesselju Guðmunds-
dóttur. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sóknarprestur.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur sunnudaga kl. 10.30, 14
og 20 (á ensku). Laugardaga og
virka daga messa kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87:
Messa sunnudag kl. 10 á þýsku.
Laugardag og virka daga messa
á þýsku kl. 7.15.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30.
Messa laugardaga kl. 18. Engin
messa virka daga í júlí.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa sunnudaga kl. 8.30.
Messa laugardaga og virka daga
k| q
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu
7: Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
HVITASUNNUKIRKJAN Filadelf-
fa: Almenn samkoma kl. 20.
Ræðumaður Indriði Kristjánsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam-
koma sunnudag kl. 16.30. Jón Þór
Eyjólfsson prédikar. Barnastarf á
meðan á samkomu stendur. Allir
velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag
kl. 20. Altarisganga öll sunnu-
dagskvöld. Prestur sr. Guðmund-
ur Örn Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dag kl. 19.30 bænastund, kl. 20
hjálpræðissamkoma. Elsabet
Daníelsdóttir talar.
MOSFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Jón Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Vídalínskirkju syngur.
Organisti Guðmundur Sigurðs-
son. Hans Markús Hafsteinsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Helgistund kl. 11. Þórhallur
Heimisson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Kvöld-
messa sunnudag kl. 20.30.
Prestur sr. Sigfús B. Ingvason.
Organisti Einar Örn Einarsson.
Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Kirkjan verður lokuð í júlí og ág-
úst vegna framkvæmda og þjón-
usta fer fram frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju meðan á framkvæmdum
stendur.
HVALSNESKIRKJA: Fermingar-
messa sunnudag kl. 11. Önundur
Björnsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl.
10.30. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSPRESTAKALL:
Messa í Skálholtsdómkirkju kl.
11. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestm.eyjum:
Göngumessa kl. 11. Þess minnst
að 24 ár eru liðin frá lokum elds-
umbrota á Heimaey. Messan
hefst við krossinn í gíg Eldfells.
Þaðan er gengið niður á Skans,
þar sem guðsþjónustunni er
framhaldið. Kór Landakirkju
syngur við undirleik Gísla Brynj-
ólfssonar á harmonikku.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Hátíðar-
messa kl. 10.30.
REYKHOLTSPRESTAKALL:
Messa verður í Reykholti sunnu-
dag kl. 11.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 14. Messa í
Borgarkirkju kl. 16. Þorbjörn
Hlynur Árnason.
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Opnum
Aniarholt
NÚ ER NÓG komið. Það
er nauðsynlegt að opna
deild nr. 35 í Arnarholti.
Deild sem er ætluð fyrir
ungt fólk sem er búið að
vera veikt árum saman og
kemst ekki út í lífið. Það
var algjör plága fyrir mig
að þurfa að vera innan um
fullorðið fólk, sumt mjög
fullorðið t.d. á áttræðis-
aldri, flest í hjólastólum
og mjög krónískt. Er ekki
nóg fyrir okkur unga fólk-
ið að þurfa að vera á þann-
ig deild þegar árin færast
yfir okkur? Gallinn við að
vera á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur, sem áður hét Borg-
arspítalinn, er að þar eru
neyðarinnlagnir, fólk sem
er oftast að lenda inn á
geðdeiid í fyrsta skipti,
mjög veikt, oftast í fylgd
lögreglu. Oft er því gefin
sprauta til þess að róa það
niður. í einstaka tilfeilum
þarf lögreglu til yfirsetu
yfir þessu fóiki. Ég er sem
betur fer ekki óvirkur
sjúklingur, ég mála gull-,
silfur- og koparmyndir,
sem vekja mikla lukku, en
í mörg ár var ég óvirk,
gerði ekki neitt, sökum
þess hve mikið ég var veik.
I örvæntingu minni sem
minnimáttar bið ég um að
deildin verði opnuð á ný.
Gígja Thoroddsen.
King Kong
ómögulegur
þáttur
GUÐRÚN hringdi og vildi
hún lýsa yfir óánægju sinni
með útvarpsþáttinn „King
Kong“ sem er morgunþátt-
ur á Bylgjunni. Stjórnend-
ur eru gjörsamlega
ómögulegir og blaðra tóma
vitleysu, þátturinn virðist
ganga út á það að setja
út á alls konar fólk. Það
er eins og þáttastjómendur
séu alltaf í vondu skapi og
sjái aðeins dökku hliðarnar
á öllum málum.
Stjarnan góð
útvarpsstöð
SIGRÚN hafði samband
við Velvakanda og vildi
hún lýsa yfir ánægju sinni
með nýju útvarpsstöðina
„Stjörnuna". Segir hún
lagaval gott og ekki sé sí-
fellt verið að masa um allt
og ekkert. Hún sendi þeim
á Stjömunni sínar bestu
þakkir.
Hildir óskast
TRYGGVI Gunnar hringdi
og er hann að smíða skjá-
glugga í gömlum stíl. Hon-
um bráðvantar hildir eftir
kálfsburð til að nota við
verkið. Ennfremur vantar
á sama stað langspil fyrir
þjóðlega tónlist til leigu
eða kaups. Uppl. hjá
Tryggva eða Völu í síma
562-9232.
Tapað/fundið
Lyklahringur
tapaðist
FYRIR nokkm tapaðist
lyklahringur með mörgum
lyklum á, sennilega í Laug-
arneshverfi. Ef einhver
hefur orðið var við lyklana
er hann beðinn að hringja
í síma 553-4359.
Dýrahald
Kettlingar
óska eftir heimili
ÞRÍR sérstaklega fallegir
og kassavanir kettlingar
óska eftir góðu heimili.
Uppl. í síma 565-1034.
Með morgunkaffinu
Pennavinir
SEXTÁN ára áströlsk
stúlka með mikinn Is-
landsáhuga:
Kathryn Myles,
2 Macquarie PL,
Umina Beach,
New South Wales,
2257 Australia.
NÍTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á kött-
um og Madonnu:
Noriko Kitamura,
2509-1 Shimomachi,
Iwate Tarui-cho,
Fuwa-gun,
Gifu-ken,
503-21 Japan.
TUTTUGU og átta ára
Ghanakona með áhuga á
ferðalögum, tónlist og
skokki:
Jessica Quansah,
Box 366,
Tantri,
Cape Coast,
Ghana.
SAUTJÁN ára króatísk
stúlka með áhuga tónlist,
íþróttum, ferðalögum,
tungumálum o.fl.:
Mira Sladovic,
Kavranic 11,
51262 Kraljevica,
Croatia.
SEXTÁN ára finnsk
stúlka með áhuga dýmm,
menningu, tónlist, leikur
á finnskt hljóðfæri sem
heitir kantele:
Eveliina Kontio,
Riihitie 9 as 1,
74200 Vierema,
Finland.
TÓLF ára bandarískur
piltur með margvísleg
áhugamál:
Philip Pisanchyn,
424 S.Turnpilse Rd.,
Daltopn,
PA 18414,
USA.
TUTTUGU og átta ára
Ghanakona með áhuga á
kvikmyndum og tónlist:
Irene Jackson,
Box 459,
Russel Street,
Cape Coast,
Ghana.
ÁTJÁN ára spænskur
námsmaður vill auka
þekkingju sína á íslenskri
menningu og tungu:
Jordi Garcia
Vermeulen,
Urb. Jardin del Soto 14,
28791 Soto del Real,
Madrid,
Spain.
EFTIR því sem ég kemst
næst á hann fimm dætur,
en er bara með eitt bað-
herbergi í húsinu.
MANNINUM minum
finnst svo gott að borða í
rúminu.
HVER segir að völd skipti
karlmenn mestu máli?
Víkveiji skrifar...
AÐ er bjartara yfir efnahags-
málum þjóðarinnar nú en ver-
ið hefur um árabil og ánægjulegt
að kjarasamningar skuli að mestu
vera frágengnir við stærstan hluta
launþegahreyfingarinnar í landinu
allt til aldamóta. Að mati samn-
ingsaðila hafa samningarnir verið
gerðir á raunhæfum forsendum og
efnahagsþróunin síðustu mánuði
bendir ekki til annars en að nokkuð
gott jafnvægi ríki í þjóðarbúinu.
Verðlag hefur hækkað minna en
spár gerðu ráð fyrir við gerð kjara-
samninga. Það er þó alltof snemmt
að fagna, því skammt er um liðið
frá samningum og ýmis hættu-
merki á lofti, sem nauðsynlegt er
að taka fullt tillit til.
Það er í sjálfu sér ekkert einfalt
mál að halda jafnvægi í efnahags-
lífinu þegar kaupmáttur vex jafn
hratt og á síðustu árum og útlit er
fyrir að hann muni gera fram til
aldamóta að minnsta kosti. Hingað
til hefur það tekist farsællega en
full ástæða er til að vera á varð-
bergi áfram og bregðast af hörku
við sérhvetju merki um ójafnvægi
í efnahagslífinu. Sá árangur sem
náðst hefur er allt of mikils virði
til að hann megi glatast vegna
skammsýni og vona um stundar-
gróða.
xxx
EGAR litið er til baka til þróun-
ar efnahagslífsins síðasta ára-
tuginn er ljóst að erfiðleikaárin í
kringum 1990 og gerð þjóðar-
sáttarsamninganna í kjölfarið hafa
orðið okkur til góðs. Þau fyrirtæki
sem komust í gegnum erfiðleikana
eru sterkari eftir en áður og eflaust
erum við enn að njóta góðs af þeim
frækornum sem þá var sáð. Fyrir-
tækin hafa getað tekið á sig veru-
legar launahækkanir án þess að
velta þeim út í verðlagið. Kaup-
máttur hefur vaxið jafnt og þétt
og stefnir í að verða í sögulegu
hámarki eftir tvö ár eða hærri en
hann varð hæstur á veltiárunum
1986-88 þegar kaupmáttur óx um
tugi prósenta á hveiju ári. Það
sannar kannski máltækið að síg-
andi lukka sé best. Það hefur hins
vegar viljað loða við okkur íslend-
inga að sýna óþolinmæði í þessum
efnum. Biðlund hefur ekki verið
okkar sterka hlið, en vonandi hefur
nú orðið breyting á. Árangurinn
undanfarin ár ætti að kenna okkur
það.
xxx
NATTSPYRNUVERTÍÐIN
stendur nú sem hæst. Knatt-
spyrnan hefur oft verið betri en nú,
ef marka má þá leiki sem búnir
eru. Meðalmennskan hefur verið
ríkjandi og óvænt úrslit iðulega lit-
ið dagsins ljós. Knattspyrnan hefur
þó farið batnandi í undanförnum
umferðum. Baráttan er mjög hörð
á botni og toppi efstu deildarinnar
og eflaust á það eftir að haldast
allt til loka mótsins.