Morgunblaðið - 28.06.1997, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1997 53
myndbönd
SÍÐUSTU VIKU
Draugurinn Susie
(Susie Q)k 'h
Jólin koma
(Jingle All the Way)k k
Leyndarmál Roan Inlsh
(The Secret ofRoan Inish)* k ‘/2
Elgi skal skaða
(First Do No Harm)-k ★ ★
Óttl
(Fear)k -k'h
Jack
(Jack)k k
Vondir menn í vfgahug
(Marshall Law)k 'h
Helgi í sveltinnl
(A Weekendin the Country)
kkk
Köld eru kvennaráð
(The First Wives Club)k k k
Ofbeldishefð
(Violent Tradition)k k'h
Ovæntir fjölskyldu-
meðllmlr
(An Unexpected Family) ★ ★ ★
Flagð undlr fögru skinni
(Pretty Poison)k 'h
Eiglnkona efnamanns
(TheRichMan’s Wife)k'h
Djöflaeyjan
(Djöflaeyjan) kkk'h
Plágan
(ThePest)kkk
Krákan: Borg englanna
(The Crow: City ofAngels)k
Allt fyrlr aurana
(IfLooks Could Kill)'h
Nornaklíkan
(The Craft)k k
Óskastund
(Blue Rodeojk
Qllllan
(To Gillian on Her37th Birthda-
y)kk'h
MYNPBÖNP/KVIKMYNPIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
E'
Landkönnun í austurvegi
|G HEF oft furðað mig á
því, að ekki skuli koma
meira af landa- og borga-
þáttum í sjónvarpinu en raun ber
vitni. Auglýstar eru sólarlanda-
ferðir og heimsferðir og karabískar
ferðir og Flórída-
ferðir, þar sem lagt
er í langt ferðalag
til að sjá Disney eða
til að deyja. Ekki
komast allir í ferðalag allan tímann
eða hafa löngun til þess, þótt þeir
hafi gaman af að virða fyrir sér
ókunn lönd. Erlendar stöðvar eru
alltaf öðru hveiju með sjónvarps-
þætti frá löndum og borgum úr
mikilli fjarlægð. Frægir eru t.d.
þættir Discovery frá Afríku og eru
þeir þó aðeins um dýr.
En einstaka sinnum rekur
svona ferðaþátt á fjörumar,
þar sem tilkynnt er að rak-
in verði menning og saga. Sýndur
var fyrsti þáttur gleðipinnans mikla
Hermanns Gunnarssonar (Hemma-
gunn) úr austurvegi, nánar tiltekið
Thailandi, sem mig minnir að héti
einu sinni Siam. Ahorfandinn var
litlu nær um menningu Thailend-
inga, nema hvað þeir ferðast á
fljótaprömmum og hafa gullskeiðar
á hallarþökum. Sögulega atriðið var
tengt kvikmyndinni yfir Kwai-fljót-
ið, sem David McLean gerði hér
um árið við mikið lof og frægð.
Við fengum smásögubút um kvik-
myndina.
Þetta er nú kannski ekki alveg
sanngjarnt vegna þess að þarna
voru sýndir að minnsta kosti tveir
gullbúddar, og hafði annar þeirra
komið til sögu með sama hætti og
rolla missir reifið á sumardögum.
Búdda lenti í flutningum, en þá
vildi ekki betur til en svo, að hann
fékk högg á sig og hrundi þá gips-
ið utan af honum. Eftir stóð lík-
neski úr skíra gulli. Þar voru Thai-
lendingar heppnir og sýnu gæfu-
legri en íslendingar, sem virðast
hafa tapað gulli Egils fyrir fullt og
allt.
rjit
þailendingar virðast ekki
hafa orðið fyrir stórvægi-
legum vestrænum áhrif-
um, þótt áhrifafólk hafi,
ásamt túristum, sótt þá heim. Mér
er efst í huga af frægðarfólki
enska kennslukonan,
SJÓNVARP Á sem siðvæddi kóng-
inn’ David McLean’
LAUGARDEGI sem sagði sögu frá
fljótinu og Hemmig-
unn, sem synti í því sama fljóti
þótt það væri kolmórautt eins og
klóak skógarmanna. Honum hefur
kannski orðið við eins 0g Stanley
þegar hann hitti Livingstone inni
í svörtustu Afríku: „Dr. Livings-
tone, I presume", og sagt er hann
kom upp úr kafinu eftir að hafa
stungið sér í Kwai: „Culture, I
presume“.
En þátturinn var forvitnilegur
og sjálfsagt sjónvarpsefni. Um
menninguna er áhorfandinn jafn-
nær utan hvað þetta var allt saman
gyllt, blautt og grænt. Næst stefnir
Hemmigunn inn til landsins og hót-
ar að heimsækja Gyllta þríhyrning-
inn. Það er heitt á þessum slóðum
enda var leiðtoginn fáklæddur. Það
verða því ekki fötin sem íþyngja
honum í Gyllta þríhymingnum.
Þaðan kemur stórhættuleg land-
búnaðarafurð eins og kunnugt er.
Vonandi sleppur Hemmigunn við
þá afurð, enda framleiða bændur
þar ekki nema hráefnið í hana, svo
hún er varla annað en jarðargróði
í þeirra augum.
Þótt Hemmigunn hafi spjarað
sig „im fehrnen land“, eins og
Lohengrin, spjara sjónvörpin sig
ekki nema rétt svona mátulega.
Dagskráin er svolítið daufleg alla
jafna. Alveg er eins og dagskrár-
stjórum finnist að þeir fái uppreisn
æru, þegar til skotbardaga kemur.
Nú kom Rambo í hasarmynd á
fimmtudaginn og skaut allt í mél
að venju börnum að leik.
Fréttirnar eru sérstaklega
daufingjalegar enda mitt
sumar. Og heldur tala þeir
í fréttum um þorsk og loðnu en
eyða tímanum í heimsviðburði.
Nýlega mættust átta stórhöfðingj-
ar í niður í Denver í BNA. Litlar
fréttir eða skýringar hafa farið af
því mannamóti. Aftur á móti var
einhver ráðherra gripinn i gufu-
baði austur í Moskvu og missti við
það embættið. Ekki fyrir það að
baða sig heldur vegna þess að
hann hafði tvær naktar konur til
fulltingis sér.
Indriði G. Þorsteinsson.