Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 4

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ______________________FRÉTTIR Samningur um efna- vopn fullgiltur á þingi Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson SVALBAKUR EA 2 hefur nú fengið einkennisstafina ROS 810 og mun sigla undir þýskum fána næstu mánuði. Svalbakur EA undir þýskan fána ALÞINGI ályktaði í gær á auka- fundi að heimila ríkisstjórninni að fullgilda samning um bann við þró- un, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og eyðingu þeirra. Þing- ið samþykkti samninginn með 43 samhljóða atkvæðum, fáeinum klukkustundum áður en hann gekk í gildi í nótt. Utanríkismálanefnd flutti þings- ályktunartillöguna, að beiðni utan- ríkisráðherra. Geir H. Haarde, for- maður nefndarinnar, mælti fyrir málinu og sagði að íslandi væri rétt og skylt að vera í hópi stofn- ríkja samningsins, enda væri hann einhver merkilegasti samningur í afvopnunarmálum á seinni árum. Bæði væru það hagsmunir ís- lenzkra fyrirtækja að ísland yrði stofnríki samningsins, en ekki bæri íslandi síður siðferðileg skylda til að taka þátt í alþjóðlegri samstöðu um afvopnun. Ýmsir þingmenn minntust á hversu seint málið væri fram kom- ið, en það barst Alþingi frá utanrík- isráðuneytinu síðastliðinn föstudag Afgreiðslu málsins hrað- að sérstaklega á Alþingi og var afgreiðslu þess hraðað sér- staklega í þinginu. Geir H. Haarde benti á að málið hefði verið for- gangsmál hjá bandamönnum ís- lands í NATO, svo og hjá Evrópu- sambandinu. Ráðuneytið undirmannað og vanbúið Svavar Gestsson, fulltrúi Al- þýðubandalags í utanríkismála- nefnd, sagði að fram hefði komið á fundi nefndarinnar að ráðuneyt- ið væri undirmannað og vanbúið til að sinna undirbúningi að stað- festingu alþjóðasamninga. Svavar hvatti til að fjárveitingar til ráðu- neytisins yrðu skoðaðar fyrir næstu fjárlagaafgreiðslu og tóku fleiri þingmenn undir með honum. Össur Skai-phéðinsson, fulltrúi jafnaðarmanna í utanríkismála- nefnd, sagði að það kynni að vera rétt að fé og mannafia skorti. „Þetta er auðvitað alltaf spurning um forgang. Það getur jafnvel gerzt á beztu bæjum að mistök verða. Það getur gerzt í ráðuneyt- um eins og annars staðar,“ sagði Össur. Hlutverk Hollustuverndar kom forstöðumanni á óvart Fram kom í máli Geirs H. Ha- arde að Hollustuvernd ríkisins yrði að öllum líkindum falið eftirlit með framkvæmd samningsins hér á landi. Össur Skarphéðinsson sagði að fram hefði komið á fundi utan- ríkismálanefndar að forstöðumað- ur Hollustuverndar hefði aldrei heyrt það fyrr. Efla þyrfti Holl- ustuvernd, sem væri önnum kafin fyrir, ætti hún að geta tekið þetta verkefni að sér. Tóku fleiri þing- menn undir þetta. ÚTGERÐARFÉLAG Akur- eyringa hf. hefur leigt Mecklen- burger Hochseefischerei, dóttur- félagi sínu í Þýskalandi, frystitog- arann Svalbak EA næsta hálfa árið. Ráðgert er að togarinn haldi til veiða á Reykjaneshrygg fyrir MHF á morgun og verði þar við karfaveiðar næstu mánuði. AIls verða 32 skipverjar í áhöfn Svalbaks og þar af 21 íslenskur en skipstjórinn verður þýskur. Svalbakur hefur verið á rækju- veiðum undanfarið með 20 i áhöfn og er ekki gert ráð fyrir mikilli breytingu hjá henni að sögn Sæ- mundar Friðrikssonar, fram- _ kvæmdastjóra útgerðarsviðs ÚA. MHF gerir út fimm togara sömu stærðar og hafa þeir stund- að karfaveiðar á Reykjaneshrygg stóran hluta ársins. Svalbakur er mun öflugra skip og segir Sæ- mundur að þýsku útgerðaraðil- arnir hafi viljað prófa þannig skip við veiðarnar á hryggnum. Kjaradeila símsmiða hjá Pósti og síma hf. Strandar á röðun í launaflokka Árni Sigfússon og Vilhjálmur Vilhjálmsson telja yfirlýsingar varðandi prófkjör vera ótímabærar Inga Jóna hyggst gefa kost á sér í efsta sætið Inga Jóna Árni Vilhjálmur Þ. ^ Þórðardóttir Sigfússon Vilhjálmsson SEINT í fyrrakvöld slitnaði upp úr samningaviðræðum í kjaradeilu Rafiðnaðarsasmbands íslands og Pósts og síma hf. og er óvíst hve- nær viðræður hefjast að nýju. Að sögn Valgeirs Jónassonar, sem sæti á í samninganefnd rafiðnaðar- manna, höfðu samningar tekist um öll mál nema röðun símsmiða í launaflokka. Valgeir sagði að í fyrrakvöld hefðu legið fyrir tilboð frá báðum aðilum um röðun símsmiða í launa- flokka og hefðu rafiðnaðarmenn talið tilboð Pósts og síma hf. með öliu óviðunandi og því slitið viðræð- unum með samþykki viðsemjanda. „Við erum raunverulega að bíða eftir að Póstur og sími standi við stóru orðin gagnvart þessum mönnum. Þeir eru nú að verða iðn- aðarmenn og tóku allir sveinspróf síðastliðið haust, en það eru tíu ára gömul loforð til þeirra að þeir myndu þá hækka. Þá eru þeir að fara úr opinbera launakerfinu yfir í launakerfi almenna markaðarins, og þá minnkar það að okkar áliti atvinnuöryggi þeirra þar sem Póst- ur og sími er orðið hlutafélag. Allt þetta teljum við að kalli á ástæður til að hækka kaupið þeirra. Við rafeindavirkjar fórum þessa sömu leið úr opinbera kerfinu yfir á almenna markaðinn og fengum þá verulegar kauphækkanir en misstum að vísu réttindi í staðinn. Þetta er því bara endurtekning á því sem gerðist fyrir tíu árum og við erum ekkert að gera meiri kröf- ur fyrir símsmiði núna en við gerð- um fyrir rafeindavirkja á sínum tíma,“ sagði Valgeir. Reynt að gæta fyllsta öryggis Engar bilanir urðu á símakerf- inu í gær og sagði Valgeir að ef frekari bilanir yrðu á símkerfinu á meðan á verkfallinu stæði yrði reynt að meta það í hveiju tilviki hvort undanþága til viðgerða yrði veitt, en reynt yrði að gæta fyilsta öryggis. INGA Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst gefa kost á sér í fyrsta sæti D-listans fyrir næstu borgar- stjórnarkosningar komi til próf- kjörs vegna kosninganna. Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson segist ekki hafa ákveðið hvernig hann muni beita sér komi til prófkjörs og að slíkar yfirlýsingar séu ótímabærar. Árni Sigfússon segir einnig að umræða um þetta sé ótímabær þar sem eftir eigi að ræða hvort menn vilji hafa prófkjör fyrir kosningarn- ar. Inga Jóna segist ekki hafa þreif- að mikið fyrir sér um stuðning flokkssystkina, en hún leggi áherslu á að flokksmenn hennar og kjósendur hafi möguleika á að velja milli manna í prófkjöri. „Ég er þess reiðubúin að axla þá ábyrgð sem flokkssystkini og kjósendur Sjálfstæðisflokksins vilja fela mér.“ Hún telur að ekki stefni í átök innan flokksins og segist ekki ótt- ast óeiningu um frambjóðanda í fyrsta sæti komi til prófkjörs. Þurfum öflugan og sterkan framboðslista Aðspurð hvort hún telji nauð- synlegt að hafa konu í efsta sæti listans til þess að skáka núverandi borgarstjóra, segist Inga Jóna ekki ætla að leggja mat á það á þessu stigi. „Fyrst og fremst þurfum við öflugan og sterkan framboðslista og mitt markmið er að vinna að því að öllum mætti að tryggja Sjálfstæðisflokknum meirihluta í Reykjavík á nýjan leik.“ Jafnframt segir hún aðspurð hvort hún sé að segja einhveijum stríð á hendur að svo sé alls ekki. Mikilvægt að velja leiðtogaefni í prófkjöri Árni Sigfússon segir að hann telji mikilvægt að sjálfstæðismenn fái tækifæri til að velja leiðtoga- efni í prófkjöri. Það hafi verið gert fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1982 þegar flokkurinn var í svip- aðri stöðu og nú, og hann segir að það væri til lítils að hafa próf- kjör ef það byði sig aðeins einn fram í 1. sætið. „í síðasta prófkjöri má segja að 1. sætið hafi nánast verið frátekið fyrir borgarstjórann, en nú erum við ekki í slíkri stöðu. Þá snerist baráttan um 2. sætið og fímm sótt- ust eftir því, og ég hlaut þar örugg- an meirihluta. Hins vegar tel ég að þetta sé ótímabær umræða. Það á eftir að ræða hvort menn vilja prófkjör og það eru ekki borgar- fulltrúarnir serm ákveða það,“ seg- ir Árni. Helmingur vill ekki prófkjör Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson seg- ist ekki hafa ákveðið hvernig hann ætli að beita sér, komi til prófkjörs. „Ég bendi á að ég var eini fram- bjóðandinn sem ekki nefndi tiltekið sætisnúmer í síðasta prófkjöri, heldur eitt af efstu sætunum. Ég hef verið í forystusveit sjálfstæðis- manna undanfarin ár og vænti þess að fá stuðning til þess áfram. Hins vegar ætla ég ekki að gefa yfirlýsingar um það, verði númerað prófkjör, hvernig ég ætla að haga minni kosningabaráttu. Mér finnst það ótímabært. Þegar ég tek ákvörðun mun ég fyrst tilkynna hana nánustu stuðningsmönnum og samstarfsmönnum í borgar- stjórnarflokki sjálfstæðismanna ekki fjölmiðlum." Vilhjálmur segir ekki mikla umræðu hafa farið fram um þetta málefni innan Sjálfstæðisflokksins. , „Mér fínnst slagur um tiltekin sæti hálfógeðfelldur og stundum svolítið ómarkviss," segir hann. Vilhjálmur segir það hafa komið sér á óvart hversu skiptar skoðan- ir séu innan flokksins um það hvort eigi að halda prófkjör eða ekki. Segja megi að helmingur sé því fylgjandi og helmingur á móti af ýmsum ástæðum. Vilhjálmur segist aðspurður ekki treysta sér til að fullyrða hvort 1 hann ógni stöðu Árna Sigfússonar, oddvita flokksins í borgarstjórn. Það verði aðrir að meta. „Við Árni höfum átt ágætt samstarf. Það á enginn neitt í stjórnmálum en mér fínnst neikvætt að líta svo á að ég ógni honum. Pólitík er list hins mögulega og maður verður að átta sig á staðreyndum og haga sér í » samræmi við það. En sjálfstæðis- ) menn eru íhaldssamir og ekki í því k daglega að fella sína oddvita," seg- ir Vilhjálmur loks. Þessi bíll & Nissan Primera kostar frá kr. 1.525.000,- §= 2= I iTjJVAf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.