Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 35
AÐSENDAR GREINAR
Vald og vænhæfi
Hver leiðir skottísinn?
HÁVAR Sigurjóns-
son, leiklistarráðunaut-
ur Þjóðleikhússins, for-
maður Leikiistarráðs
og framkvæmdastjórn-
ar þess, snýst í Mbl.
h. 26.4. sl. enn til varn-
ar gegn þeirri gagnrýni
minni að Þjóðleikhúsið
hafi óeðlilega mikil tök
á úthlutun styrkja til
þeirrar leiklistarstarf-
semi sem er í sam-
keppni við þá stofnun.
Fyrirsögnin og tónninn
í varnargrein Hávars
að þessu sinni eru á
lágu plani, sem fyrr, í
takt við ummæli hús-
bónda hans, Stefáns
Brynja
Benediktsdóttir
þjóðleikhús-
stjóra, sem sagði m.a. í útvarpið að
ég hefði ofsótt sig sl. sex ár!
Megininntak skrifa Hávars geng-
ur útá það að hann og félagar hans
hafi hyglað mér árið 1996 og ég
ætti því ekki að voga mér að opna
munninn. Þetta er athyglisverð ráð-
legging frá manni sem íslenskt leik-
listarfólk hefur kosið til að gæta
sameiginlegra hagsmuna sinna.
Leikiistarráðunautur Þjóðleik-
hússins kallar það rangfærslur frá
minni hendi að segja að hann og
Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri við
Þjóðleikhúsið, tveir af þremur með-
limum framkvæmdastjórnar Leik-
listarráðs, hafi haft þau völd sem
þeir voru til kosnir. Hann fullyrðir
að Þórhallur hafi dæmt sjálfan sig
vanhæfan við úthlutanir fjár í fyrra
og Hávar frá því að hann hætti að
vera annar tveggja fastráðinna leik-
stjóra Þjóðleikhúss og tók við stöðu
leiklistarráðunautar sömu stofnunar
1995 (meiri breytingin!). Mér var
ekki kunnugt um að meðlimir fram-
kvæmdastjórnarinnar hefðu dæmt
sig vanhæfa til helstu trúnaðarstarfa
sem þeir voru kosnir til fyrr en nú
fyrir skemmstu.
Hins vegar stendur skýrum stöf-
um í viðtalinu við mig í Aþbl. 15.
apríl sl., sem kom af stað öllu þessu
fjaðrafoki: „Hávar gekk úr nefndinni
þar sem honum fannst hann vera
of náinn samstarfsmaður Stefáns."
Þó hefur þessi æðsti hagsmuna-
gæslumaður okkar leiklistarfólks í
tvígang haldið því fram opinberlega
að ég hafi sig fyrir
rangri sök. Kostulegt
er reyndar að Hávar
skuli upplýsa í sömu
grein og hann nuddar
mér uppúr því að bæði
leikhópur minn og leik-
hópur sonar míns hafi
fengið verkefnastyrk
árið 1996, að hvorugur
Þjóðleikhússmannanna
hafi að hans sögn tekið
þátt í tillögugerðinni til
ráðuneytisins það árið!
En það eru kannske
fleiri en ég sem ekki
vita nákvæmlega hvað
gerist innanbúðar í
Leiklistarráði því að í
fréttatilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu 24. mars 1997 stend-
ur: „Menntamálaráðuneytið hefur,
að fengnum tillögum frá fram-
kvæmdastjórn Leiklistarráðs út-
hlutað framlögum af fjárlagaliðnum
Það er erfitt að standa
í blaðadeilum við menn,
segir Brynja Bene-
diktsdóttir, sem vilja
hvorki gangast við hlut-
verki sem þeir eru kjörn-
ir til af starfsfélögum
sínum og eru skipaðir
til af stjórnvöldum, né
viðurkenna að erfitt sé
að þjóna tveim herrum.
„starfsemi atvinnuleikhópa" 1997.“
Sömuleiðis segir Mbl. 18. apríl í
„yfirlýsingu" þremenninganna í
framkvæmdastjórn: „Til upplýs-
ingar fylgir hér yfirlit yfir þá leik-
hópa og einstaklinga sem fengið
hafa styrki frá Menntamálaráðu-
neytinu að fengnum tillögum núver-
andi framkvæmdastjórnar Leiklist-
arráðs.“
Nú spyr ég Hávar Sigurjónsson:
Sjoðheit afmælistilboð
t tileini aí tveggja ára aimæli BT verða ýmsar tölvuvörur á sérstöku abnælisverði út vikuna. Á laugardaginn nk.
nær aimælisgleðin hámarki þar scm ahnæliakarnival verður haldið i verslun okkar.
Canon prentarar
Fróhœrir litaprantarar á góðu verði. Canan
prentaramir geta auðveldlega prentað á giæntr,
umslög, linuniða, boli og ljbsmyndapappír.
Canon 240
Canon 4200
17.990
24.990
Laugardaginn 3. mai verður háð
raSýkeppni í BT töhmm. Keppmin
fer fram milli 13-15 og munu
keppovlur jzayta kapp viö kunnan
rallkappa. Gefðu í og skráðu þig
strax i síma 5885900.
Pentium 133
133 mhz Intel argjarvi 1G mb innra minni
Intel TVitnn II430VX kubbaa 2 mb skjáknrt
PT200G FIC móðurbarð 12 hraða geteladrif
1280 mb harður diskur 25 watta hátalarar
16 bita hljóðknrt Lyklabarð og mús
14' hágsoða btaskjár Windowa 35 fyigir mað
99.990 kr
HttpJ/wwwlHtoMirJs
_K.
Tölvur
Grensásvegur 3 -108 RBykjavík
Síirn : 5B8 5300 - Fax : 5BB 5905
Opnunartími virka daga : 10:00 -19:00
Opnunartimi taugardaga : 10:00 -16:00
Hverjir sitja í framkvæmdastjórn
Leiklistarráðs? Árásargrein fram-
kvæmdastjórnarinnar á mig í Mbl.
18. apríl sl. er undirrituð af Hávari
Sigutjónssyni, Þórhalli Sigurðssyni
og Vilborgu Valgarðsdóttur. Ef það
kynni að verða kallað rangfærsla
leyfi ég mér að benda á að undir
persónuníðgrein Hávars í Mbl. 26.
apríl sl. undir fyrirsögninni „Starfs-
launin og styrkirnir" stendur: „Höf-
undur er formaður Leiklistarráðs."
Hávar Siguijónsson talar í grein
sinni um „krossferð Brynju Bene-
diktsdóttur gegn Stefáni Baldurs-
syni og kemur undirrituðum satt að
segja ekkert við“. Það kynni nú að
vera að málsvarnarmennirnir vösku,
Hávar og Þórhallur, séu haukar í
horni fyrir húsbóndann víðar en í
blöðunum. Þessir embættismenn til-
greina í Mbl. 18. apríl mig persónu-
lega og son minn í sambandi við
umsóknir verkefna sem við áttum
aðild að 1996 en nefna í langri upp-
talningu þriggja ára enga aðra
manneskju. (Mikið má vera ef það
telst ekki trúnaðarbrot í opinberu
starfi.) En einhveijum kynni að
þykja skemmtilegt að vita að t.d.
„Tunglskinseyjan" sem hlaut 1,2
milljónir í styrk 1997, að tillögu
Leiklistarráðs, er samstarfsverkefni
atvinnuleikhóps við Þjóðleikhúsið og
ef til vill í krafti þess fór Stefán
leikhússtjóri til Kína með hópnum
þar sem óperan var frumsýnd, en
verður svo tekin til sýningar í Þjóð-
leikhúsinu nú innan skamms.
Hvað sem musterisriddarar Þjóð-
leikhússins segja þá stend ég jafn
hörð á því og áður að ýmislegt í
afskiptum Þjóðleikhússins og þjóð-
leikhússtjóra af fjárveitingum til
starfsemi samkeppnisaðila þarfnist
athugunar. Það er t.d. ósanngjarnt
að ætlast til að frjálsir leikhópar
sendi gögn um fyrirætlanir sínar og
hugmyndir til helstu ráðgjafa aðals-
amkeppnisaðila síns. Einhveijum
mundi nú ofbjóða það á öðrum svið-
um atvinnulífsins. Hávari verður tíð-
rætt um hvenær hann og Þórhallur
víki sæti fram og til baka (vegna
vanhæfi!) en þeim virðist ekki hafa
komið til hugar að segja í þess stað
af sér. Þessi dans milli valds og
vanhæfni er víða stiginn. Þegar Stef-
án varð formaður Leiklistarsam-
bands íslands 1996 „skipti hann útá
við“, ef svo mætti segja, við Sigrúnu
Valbergsdóttur, sem í staðinn tók
við af honum í úthlutunarnefnd Te-
ater og Dans i Norden. (Norræna
leiklistarsjóðnum). Stefán dansar þó
enn skottís í a.m.k. einum öðrum
norrænum sjóði.
Það er erfitt að standa í blaðadeil-
um við menn sem vilja hvorki gang-
ast við því hlutverki sem þeir eru
kjörnir til af starfsfélögum sínum
og skipaðir til af stjórnvöldum, né
viðurkenna að erfitt sé að þjóna
tveimur herrum. Ef áframhald verð-
ur á þessari umræðu vonast ég til
að hún snúist um kjarna málsins,
þ.e.a.s., að óheilbrigt er að nokkur
sé látinn skammta samkeppnisaðil-
um sínum af opinberu fé.
Höfundur er leikstjóri.
BLAÐAUKI
HÚSIÐ
&GARÐURINN
í blaðaukanum Húsinu og garðinum verðiu- að þesstx simii lögð
áhersla á nýjungar og hugmyndir fyrir hús- og garðeigendxir. Þar
verður því að fínxia ýmsan fróðleik um garðrækt og viðliald húsa,
jafht fyrir leikmerm sem fagmemi.
Meðal efiiis:
• almanak hús- og
garðelgandans
• sólpallar og -skýli
• grillaðstaða
• gangstígar, liellirr og
bílasteeði
• lieitirpottar
• gróðiuhús og fitiglahús
• ve rkfæraskú rar og
ruslageymslur
• tól og tæki garðeigandans
• gluggar og hljóðemangrun
• lýsing og liúsamerkingar
• þakefni og máhiing
• girðingar og fíiavöm
• leiltaðsfaða fyrir bömin
• ldipping tijáa
• matjurtir og lífrænar
, skordýravamir
• o.m.fl.
Simnudagiim 11. maí
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12.00
mánudaginn 5. mai.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar
í síma 569 1111 eða í bréfsíma 569 1110.
kjarni málsins!