Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 29
MEIMNTUN
Tölvubylting með-
al kennara(nema)
Notkun tölva í grunnskólanum hefur að
mestu faríð eftir þekkingu og áhuga
einstakra kennara fremur en að sérhver
skóli hafí gert áætlun um tölvunotkun í
námi. Nemendum hefur því verið mjög
mismunað eftir skólum. í samtali við Hildi
Friðriksdóttur segir Salvör Gissurardóttir
að möguleikar til menntunar á þessu sviði
séu að batna. Þar með sé þó ekki
allur vandinn leystur.
NÁM í upplýsingatækni eða tölvu-
notkun verður frá og með næsta
skólaári fært inn í kjarnagreinar
Kennaraháskóla íslands. Salvör
Gissurardóttir, lektor við skólann,
segir að hér sé stigið stórt framfara-
spor, nánast. sé um byltingu að ræða,
þar sem nú náist til allra nemenda,
einnig þeirra sem hefðu aldrei valið
tölvunámskeið. „Tölvunotkun kemur
inn strax í upphafi námsins en upp-
lýsingatækni kemur síðan víða inn
og samþættist við aðrar námsgrein-
ar.“
Hún segir að skortur á vélbúnaði
sé ekki það sem hamli aðallega notk-
un tölva í grunnskólum nú heldur
séu ástæðurnar aðrar og margvís-
legar. í fyrsta lagi hafi
framboð endurmenntun-
arnámskeiða á þessu sviði
verið af skornum
skammti. Það standi þó til
bóta, því boðið verði upp
á ellefu mismunandi nám-
skeið í tölvu- eða upplýsingatækni í
sumar. Þrátt fyrir þessa fjölgun ann-
ar Kennaraháskólinn ekki öllum
þeim sem vilja komast að. Auk þess-
ara námskeiða koma tölvur við sögu
í mun fleiri námskeiðum.
Annað sem hún nefnir í þessu
sambandi er að kennarastéttin sé
ekki mjög tæknivædd og ekki sé
vilji hjá öllum kennurum til að nota
tölvu til kennslu. „Sumir kennarar
hafa jafnvel ekki notað ritvélar, aðr-
ir nota ekki glærur, svo dæmi séu
nefnd.“
Lítið úrval forrita
í þriðja lagi nefnir hún skort á
íslenskum kennsluforritum sem
flöskuháls á notkun tölva í skóla-
starfi. „Þó svo að um nokkra tugi
forrita sé að ræða eru þau alltof fá
miðað við allar námsgreinarnar. Þar
fyrir utan eru þau aðallega innan
ákveðinna námsgreina eins og
stærðfræði og tungumála. Einnig
er nokkuð mikið úrval fyrir yngri
börnin en aftur á móti er lítið til
fyrir eldri nemendur og unglinga-
stig. Forritin verða einnig
fljótt úrelt, ekki kannski
efnislega, heldur eru
mörg þeirra skrifuð í
DOS, en nú vinna allir í
Windows-umhverfi."
Hún tekur einnig fram
að erfitt sé að nota nýjustu forritin
nema hafa hljóðkort og geisladrif.
Slíkur búnaður sé ekki nema á hluta
þeirra tölva sem eru í skólum.
Hver sér um tæknimálin?
Síðast en ekki síst segir hún það
hafa verið vandamál í grunnskóium
að enginn einn starfsmaður hafi
verið ráðinn til að sjá um tæknimál
í sambandi við tölvurnar. „Sjáðu
fyrir þér kennara sem langar til að
byija að nota tölvu sem kennslu-
tæki. Jafnvel þótt skólinn hafi keypt
forrit og glænýjar tölvur er iðulega
enginn, sem sér um að setja þær
upp. Kennarar hafa sjálfir verið að
lesa leiðbeiningar og reyna að setja
tölvurnar upp en það hefur tekið
gífurlegan tíma og oft ekki tekist.
I venjulegum fyrirtækjum þurfa not-
endur ekki annað en að kunna á
notendaumhverfið. í skólum hefur
verið eilíf barátta að fá aðgang að
tæknifólki."
Salvör segir einnig að húsnæðis-
skortur hafi háð mörgum skólum og
kveðst hafa komið víða þar sem fram
fari bekkjarkennsla í tölvustofunni.
„Vilji einhveijir fá að nota tölvurnar
utan síns bekkjartíma er það ekki
hægt vegna þess að þar fer fram
hefðbundin bekkjarkennsla," segir
hún. Hún bætir við að flestir vilji
sjá tölvur inni í hverri stofu þar sem
þær séu notaðar eins og hvert annað
kennslutæki. „Þá vigtar ekki mikið
að hafa eina tölvu í stórum bekk og
það leggur mikið skipulagsvandamál
á kennarann. Þetta er auðveldara í
þeim skólum þar sem fyrirkomulagið
er þannig að nemendur eru ekki all-
ir að vinna nákvæmlega það sama
á hveijum tíma.“
Tölva sem kennslutæki
Með nýrri stefnumótun KHÍ munu
kennaranemar læra meira um hvern-
ig má nota tölvuna sem kennslutæki
og þar með að nýta kennsluforrit.
„Fram til þessa hafa nemendur aðal-
lega valið nám í upplýsingatækni sem
lýtur að glærugerð og gerir þá hæf-
ari til að búa til eigin námsgögn.
Þeir hafa ekki sótt eins mikið í nám-
skeið í notkun kennsluforrita eða að
læra að vinna með nemendum."
Salvör hefur kennt við KHÍ frá
árinu 1990 og segir viðhorf nemenda
hafa gjörbreyst á þessum tíma. „Ég
kenndi áður í tækniskóla og í tölvu-
deildum fjölbrautaskóla. Þegar ég
byijaði hér kom mér á óvart afstaða
nemenda. Þeim nægði að kunna rit-
vinnslu, en einungis brot af þeim vildi
læra meira um tölvur. Til dæmis var
öll forritun feiknaóvinsæl, a.m.k. í
Kennara-
stéttin er ekki
mjög tækni-
vædd
Sumarskóli HÍ starf-
ræktur í fyrsta sinn
SUMARSKÓLI Háskóla íslands,
sem er á vegum ýmissa stofnana
innan HÍ auk annarra, verður starf-
ræktur í sumar í fyrsta sinn. Um
tilraunaverkefni er að ræða, en
fram til þessa hafa nokkrar þessara
stofnana haldið námskeið á eigin
vegum.
Að sögn Guðrúnar Pétursdóttur,
forstöðumanns Sjávarútvegsstofn-
unar og eins af frumkvöðjum Sum-
arskólans, eru kennarar HÍ oft beðn-
ir um að skipuleggja sumarnámskeið
fyrir erlenda stúdenta. „Það ræðst
af aðstæðum hvers og eins hvort
menn sjá sér fært að taka þau að
sér. Þau hafa jafnvel fallið niður
vegna anna viðkomandi kennara.
Sumarskólanum er ætlað að auð-
velda mönnum að halda slík nám-
skeið, sækja um alþjóðlega styrki,
leysa hagnýt vandamál og standa
að sameiginlegri kynningu."
Nokkur námskeið hafa þegar ver-
ið ákveðin, s.s. sex vikna námskeið
í líffræði heimskautasvæða sem er
í samvinnu við Kaupmannahafnar-
háskóla, jarðfræði og landafræði
íslands, námskeið í íslenskum mið-
Námskeiðahald í
samvinnu við
Kaupmannahafn-
arháskóla og MHÍ
aldarfræðum, námskeið um ísleskt
mál og menningu ætlað útlending-
um. Auk þess myndlistarnámskeið í
samvinnu við Myndlista- og handíða-
skóla Islands. „Samstarfið er ekki
bundið við háskólann einan og við
fögnum samstarfi við aðra,“ sagði
Guðrún.
Námskeið í tengsluin við
fjölþjóðlega sýningu
Myndlistarmennirnir Helgi Þor-
gils Friðjónsson, Hannes Lárusson
og Óiafur Gíslason standa að undir-
búningi myndlistarnámskeiðsins,
sem verður haldið í ágúst. Ólafur
sagði í samtali við Morgunblaðið að
hugmyndina að þessu námskeiði eða
málþingi mætti rekja til þess að
myndlistarmönnum hefði þótt vanta
lifandi umræðuvettvang um mynd-
list í tengslum við það sem væri að
gerast erlendis. „Námskeiðið er
hugsað sem sameiginlegur vettvang-
ur fyrir nemendur á lokastigi í mynd-
listarnámi og starfandi myndlistar-
og fræðimenn."
Hann tók einnig fram að til stæði
að hafa námskeiðið á alþjóðlegum
grunni þannig að meirihluti þátttak-
enda væru útlendingar. Nú þegar
hafa fimm kennarar boðað komu
sína. „Þetta eru Liborio Termine,
prófessor við háskólann í Torino,
sem fjallar um Ijósmyndun, Thomas
Húber, einn af þekktari myndlistar-
mönnum Þjóðveija um þessar mund-
ir, Robin Peck, kanadískur mynd-
höggvari, Jóhann Eyfells, prófessor
í höggmyndalist í Flórída, auk Eija-
Liisa Ahtila, finnskrar vídeólista-
konu. Sumir þeirrá sýna verk sín
samhliða á fjölþjóðlegri listasýningu
sem verður haldin hér á sama tíma.
Aðrir munu koma með verk sín á
kennslustaðinn," sagði Ólafur.
Námskeiðið fer fram í samvinnu
við nokkra erlenda háskóla og munu
þátttakendur fá námið metið til ein-
inga.
Morgunblaðið/Halldór
SALVÖR Gissurardóttir lektor fagnar því að kennsla í upplýs-
ingatækni og tölvunotkun verður inni í
kjarnagreinum KHI næsta vetur.
skyldunáminu. Undanfarin 2-3 ár
hefur orðið mikil breyting á og sum-
ir nemenda dveljast í tölvustofunni
hálfu og heilu sólarhringana. Jafnvel
er áhugi sumra þannig að þeir munu
ekki fara beint í kennslu eftir út-
skrift heldur fara í önnur störf.“
Aðspurð um framboð á kennslu-
efni á margmiðlunardiskum, segir
hún verulegan skort á íslensku efni
og hún muni einungis eftir þremur
diskum, þ.e. um jarðfræði, Islands-
handbókinni og íslendingasögum.
„íslendingasögur á geisladiski kosta
á almennum markaði 70.000 krónur
en verðið er eitthvað lægra fyrir
skóla. Það er af og frá að grunn-
skóli geti eignast slíkt verk. Þetta
er hins vegar efni sem mér
fmnst að ætti að vera öll-
um aðgengilegt.“
Veraldarvefurinn
í sókn
Salvör segir að nokkuð
sé um íslenskt efni á veraldarvefnum
og það hafi aukist verulega á undan-
förnum mánuðum. Sjálf hefur hún
útbúið vefsíður sem tengjast jólum
og páskum auk vefsíðna fyrir kenn-
ara og kennaranema. „Verulegar
breytingar eru að verða á veraldar-
vefnum og ég held að hann verði
miklu meira notaður til kennslu en
nú er. Þetta er byltingarkennt tæki
til að koma upplýsingum á fram-
færi. Ég sé fyrir mér að skólar geti
notað veraldarvefinn á innanhús-
neti. Þannig gætu ýmsar handbækur
eða ítarefni legið í einni tölvu, sem
aðrar tölvur víðs vegar um skólann
gætu nálgast. Með því móti þyrfti
ekki að fara í gegnum símalínur til
að sækja gögnin og samskiptin yrðu
mun hagkvæmari."
Hún segir að kennarar í unglinga-
deildum vinni nú þegar töluvert með
nemendum á veraldaivefnum og
bendir á að samkvæmt nýlegri könn-
un Þorbjarnar Broddasonar prófess-
ors séu 7% barna á aldrinum 10-15
ára með eigin heimasíðu.
Sjálfvirkni og
tölvustýringar
Salvör segir að næsta
skref innan skólakerfisins
sé að huga að tölvustýr-
ingum og sjálfvirkni.
„Þegar fólk talar nú orðið
um upplýsingatækni horfir það alltaf
til miðlunar gagna og þekkingar.
Við megum ekki gleyma því að
hægt er að nota tölvur til að stýra
vélum og búa til sjálfvirkni. Það er
mikilvægt að kenna nemendum að
nota tölvustýrðar saumavélar eða
vélar í smíði, að hanna framleiðslu-
ferli eða vélar í eðlisfræði. Það er
framtíðin."
Alltof fá
forrit til miðað
við fjölda
námsgreina
tölvur
ýmislegt j
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
■ Upplýsingatækni — 72 kennslust
Windows 95, Word 97, Excel 97 og Inter-
retið frá a til ö.
Bæði morgun- og kvöldnámskeið.
Væstu námskeið byija 6. maí.
áuglýsingagerð með CorelDraw/7
Sæstu námskeið byija 20. maí.
Excel 97 — framhald 7. maí
• Öll námsgögn innifalin.
• Fyrsta flokks aðstaða.
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - sími 555 4980
tungumál
■ Vornámskeið
Námskeið hcfjast í byrjun maí.
Hraðnámskeið í tungumálum.
Enska 12 st. Danska 12 st.
Sænska 12 st. Norska 12 st.
Þýska 20 st. Franska 20 st.
Spænska 20 st. ítaiska 20 st.
Rússneska 20 st.
íslenska fyrir útlendinga 20 st.
Ljúsmyndataka 17 st.
Nuddnámskeið 16 st.
Teikning og máiun 20 st.
Njáluferð með Júni Böðvarssyni.
Stflnámskeið - fataval og snyrting 10 st.
Myndlistar-, ensku- og frönskunámskeið
fýrir börn.
Lk!ii U\\ TH
Grensásvegi 16a, sími 588 7222.
■ Enskunám í Engiandi
Enskunám allt árið við virtan enskuskóla.
Bama-, unglinga- og fjölskyldunámskeið í
sumar. Vettvangsferðir og íþróttir í lok
hvers skóladags og um helgar. Fæði og
húsnæði hjá enskri fjölskyldu.
Upplýsingar veitir Marteinn M. Júhann-
sson í síma 581 1652 eftir kl. 19.00.
myndmennt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein pláss laus í maí nk.
Innritun f síma 554 0123.
Hannes Flosason.