Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 60

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1. 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, l’OSTHÓLF 3040, NETFANG MBLtfVENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK, ■wm Iðnaðarráðherra segir ísland vænlegan kost í málmvinnslu Besta afkoma Lands- virkjunar til þessa HAGNAÐUR Landsvirkjunar nam 1.740 milljónum króna á síðasta ári og er þetta besta rekstrarafkoma í sögu fyrirtækisins. Þetta kom fram í ársskýrslu sem lögð var fram á ársfundi fyrirtækisins í gær. Á samráðsfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var að loknum ársfund- inum, sagði Finnur Ingólfsson iðn- aðarráðherra, að tilkynnt hefði ver- ið um fimmtán nýjar fjárfestingar í málmvinnslu í Evrópu á síðustu tólf mánuðum. Þrjú verkefni á þessu sviði hefðu skilað sér til ís- lands síðustu 18 mánuði. Hann seg- ir að ekki komi til fjárfestinga á þessu sviði í Evrópu nema ísland sé skoðað sem vænlegur valkostur. Á þessu ári er áætlað að veija 8.101 milljón kr. án vaxta til fjár- festinga vegna virkjana, þar af 2.675 milljónum vegna Sultar- tangavirkjunar, 1.383 milljónum vegna Búrfellslínu og 1.060 milljón- um kr. vegna Kröflu. í fyrra var 1.778 milljónum kr. varið til fjár- festinga. Viðræður við Statkraft um raforkuútflutning Á samráðsfundinum kom fram að Landsvirkjun hefur átt viðræður við norska fyrirtækið Statkraft um útflutning raforku frá íslandi. Þá hefur iðnaðarráðuneytið haft frum- kvæði að því að efnt verður til sam- ráðs meðal innlendra og erlendra aðila sem sinnt hafa athugunum á útflutningi á raforku á undanförn- um árum. Jóhannes Geir Sigurgeirsson var skipaður formaður stjórnar Lands- virkjunar á ársfundi fyrirtækisins í gær. Hann sagði að með tengingu við raforkukerfi í Evrópu um sæ- streng ykist öryggi raforkuafhend- ingar á Islandi til muna. Jóhannes Geir telur að unnt yrði að ganga þannig frá samningum um raforku- sölu um sæstreng að íslendingar hefðu heimild til að skerða raforku- afhendinguna tímabundið og nota þá raforku sem þannig losnaði til þess að mæta þörfum nýs orkufreks iðnaðar meðan unnið væri að nauð- synlegri virkjanagerð. ■ Uppstokkun/6 ■ Hagnaður/16 ■ Orkusamningarnir/31 Bridssigur í norrænni keppni ÍSLAND vann Bikarkeppni Norður- landa í brids í Svíþjóð um helgina. Íslenska liðið endaði með 101 stig og næstir komu Danir með 91 stig. íslenska liðið var skipað Sævari Þor- björnssyni, Sverri Ármannssyni, Sig- urði Sverrissyni og Þorláki Jónssyni. ■ íslenskur/43 -----♦ ♦ ♦---- 120 maríhú- anaplöntur LÖGREGLAN á Selfossi lagði hald á 120 maríhúanaplöntur síðdegis í gær í gróðurhúsi í Hveragerði, eftir að lögreglumaður hafði orðið var við að þær væru í ræktun þar. Um gróðurhús í einkaeigu var að ræða og enn sem komið er hafa ekki komið fram vísbendingar um að afrakstur ræktunarinnar hafi verið seldur utanaðkomandi aðilum. Æfð við- brögð við stórslysi NOKKUR hundruð manns tóku þátt í björgunaræfingu á Reykjavíkurflugvelli í gær, þeirri stærstu sem þar hefur farið fram. Æfð voru viðbrögð við því að flugvél í flugtaki rækist á rútubifreið og gert ráð fyrir því að 75 manns lentu í slysinu. Eldar voru kveiktir víða um Reykjavíkurflugvöll og ýmiskonar braki komið þar fyrir. Um 50 „slasaðir" voru fluttir forgangsflutningi á sjúkrahús og hér sést þegar verið er búa einn þeirra undir flutning. Hallgrímur Sigurðs- son, sem sljórnaði æfingunni fyrir hönd Flugmálastjórnar, segir að hún hafi í aðalatriðum tekist vel. Margt gott hafi kom- ið fram en einnig að slípa þurfi ýmsa hluti frekar. Morgunblaðið/Júlíus „Kapphlaup“ um síldina að hefjast ÞAU íslensku skip, sem taka munu þátt í „kapphlaupinu" um veiðarnar á norsk-íslensku síldinni, munu flest ætla að halda úr höfn fyrir miðnætti annað kvöld þar sem þau ætla sér að verða komin á miðin þegar veiðar mega hefjast á miðnætti 3. maí, að- faranótt laugardags. Að sögn Freysteins Bjarnasonar, útgerðarstjóra hjá Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað, væri í sjálfu sér nóg að fara út einhvern tímann á fimmtudag þar sem ekki væri meira en sólarhringsstím á miðin, en þar sem fimmtudaginn bæri upp á verka- lýðsfrídaginn 1. maí, væri óheimilt að halda úr höfn þann dag. Menn vildu hinsvegar vera komnir á staðinn og lagstir yfir væna torfu þegar veið- arnar mættu formlega heijast. Mætti því segja að kapphlaupið um afla- reynslu hefjist fyrr en ella. Hlutur íslendinga í norsk-íslenska síldarstofninum að þessu sinni er 233 þúsund tonn og ákvað sjávarútvegs- ráðherra að veiðarnar yrðu fijálsar upp að því marki. Búast má við þröng á þingi á síldarmiðunum næstu daga þar sem 64 nótaskip og 28 togarar hafa sótt um leyfi Fiskistofu til veið- anna. Síldin mun vera komin inn í fær- eysku lögsöguna. Færeyingar og Norðmenn eru þegar byijaðir veiðar, en síldin er átumikil, fitulítil og fer öll í bræðslu. Veiðarnar hafa sömu- leiðis gengið fremur treglega það sem af er og hafa skipin verið að fá um 200 tonn á sólarhring. SVEINN BJÖRNSSON LISTMÁLARILÁTINN ____ EINN helsti myndlist- armaður landsins, Sveinn Bjömsson list- málari, lést á Landspít- alanum í gærkvöldi, 72 ára að aldri. Sveinn fæddist 19. febrúar 1925 á Skálum á Langanesi og voru foreldrar hans Sigur- veig Guðrún Sveins- dóttir húsmóðir og Björn Sæmundsson Brimar farandsali. Hann lauk stýrimanns- prófi frá Sjómanna- skóla íslands árið 1947 og var lögreglumaður í Hafnarfirði á árunum 1954 til 1985, yfirrann- sóknarlögreglumaður þar frá 1965. Sveinn Björnsson stundaði myndlistarnám við Det kongelige akademi í Kaupmannahöfn '■» 1956-57. Frá því hann hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1954 hef- ur hann haidið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum, bæði hérlendis og erlendis. Síðasta listsýning Sveins hefur staðið yfir í Gerðarsafni í Kópavogi og lauk nú um helgina. Hún þótti sýna að Sveinn var á hátindi listferils síns. Bókin Veröld þín með ljóðum Matthíasar Johannessen og lista- verkum Sveins kom út hjá forlagi Iðunnar 1989. Kona Sveins var Sólveig Er- lendsdóttir húsmóðir en hún lést árið 1982. Börn þeirra eru Erlend- ur kvikmyndagerðarmaður, Sveinn Magnús læknir og Þórður Heirnir lögfræðingur. Birgitta Engilberts hefur verið lífsförunautur Sveins hin síðari ár. Kvartað yfir samræmdu prófi í stærðfræði Dæmi um grátandi nemendur í lok prófsins KVARTAÐ var við Rann- sóknastofnun uppeldis- og menntamála vegna samræmda prófsins í stærðfræði sem fram fór í grunnskólum landsins í gær. Prófið þótti of langt og komust nemendur í tíma- þröng. Dæmi er um að þegar próftíma lauk hafi 60% nem- enda enn setið yfir úrlausn- unum og dæmi er um að nem- endur hafi verið grátandi við prófborðin. „Við höfum það sem fasta starfsreglu að taka allar at- hugasemdir alvarlega og það verður gert, sagði Einar Guð- mundsson, deildarstjóri prófa- deildar Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála. „Spurningin er hversu al- mennt þetta hefur verið. I svona stórum hópi eru sumir óánægðir en aðrir ánægðir. Það er auðvitað ekki ætlunin að hafa próftímann of skamm- an. Það var okkar fyrsta verk þegar við tókum við þessu verkefni á sínum tíma að lengja próftímann þannig að öruggt væri að nemendur hefðu nægan tíma til að leysa verkefnið," sagði Einar. Jóhanna Axelsdóttir, stærð- fræðikennari í Víðistaðaskóla, sagði að þar hefði þurft að biðja 60% nemenda að fara úr prófstofunni kl. 12 þegar próf- tímanum lauk en prófið hófst kl. 9. „Það er ófyrirgefanlegt að prófið skuli vera svo langt að nemendur fái ekki lokið við það,“ sagði hún. Ekki væri nóg með að nemendur neyddust til að skilja eftir dæmi sem þeir kæmust ekki yfir heldur væru þeir löngu áður búnir að gera sér grein fyrir tímaþrönginni með þeim afleiðingum að þeir færu að gera ýmsar villur. „Það var mikill fjöldi nemenda okkar sem grét í orðsins fyllstu merkingu að prófi loknu,“ sagði Jóhanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.