Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 11
FRETTIR
Greiðslur bankanna fyrir setu í stjórnum fyrirtækja
Stjórnarseta kann að
brjóta gegn lögum
í SKRIFLEGU svari Finns Ingólfs-
sonar viðskiptaráðherra við spurn-
ingum Jóhönnu Sigurðardóttur al-
þingismanns um hagsmunatengsl,
stjórnargreiðslur, lífeyrisgreiðslur
og ferða- og bílahlunnindi stjórn-
enda ríkisbankanna sem lagt var
fram á Alþingi í liðinni viku kemur
fram að skoða megi hvort seta
bankastjóra í stjómum fyrirtækja á
samkeppnismarkaði kunni að bijóta
í bága við samkeppnislög.
í svari ráðherrans segir um hags-
munatengsl vegna setu í stjórnum,
ráðum og nefndum að samkvæmt
42. gr. laga nr. 113/1996 sé banka-
stjórum óheimilt nema að fengnu
leyfi bankaráðs, að sitja í stjórn
stofnana og atvinnufyrirtækja utan
viðskiptabanka eða taka þátt í at-
vinnurekstri að öðru leyti nema lög
kveði á um annað eða um sé að
ræða stofnun eða atvinnufyrirtæki
sem hlutaðeigandi stofnun á aðild
að.
Fram kemur í svari viðskiptaráð-
herra um þetta efni að ráðuneytið
hafi óskað eftir áliti samkeppnis-
stofnunar á því hvort um óeðlileg
hagsmunatengsl kynni að vera að
ræða við stjórnarsetu í þeim tilvik-
um sem greind eru í fyrirspurninni
og sjá má í meðfylgjandi töflum.
Samkeppnisráð hefur ekki gripið til
aðgerða gagnvart þessum stofnun-
um vegna þessa og treystir sér ekki
til þess að gefa álit á þessum tengsl-
um án nákvæmrar skoðunar sem
fylgt yrði eftir með aðgerðum sam-
keppnisráðs.
Viðskiptaráðherra byggir svar
sitt á upplýsingum frá viðkomandi
bönkum og segir að ekki þyki fært
að veita upplýsingar um einstakl-
ingsbundin kjör einstakra stjórn-
enda bankanna heldur um almenn
launakjör sem fylgi þessum störfum.
Hér fara á eftir kaflar úr svari ráð-
herra.
Ýmiss konar stjórnarseta
Landsbanki íslands.
í stjórn Landsbréfa hf., Hamla
hf., Regins hf., Kirkjusands hf. og
Rekstrarfélagsins hf. hafa setið þrír
bankastjórar á árunum 1994-96.
Einn hefur gegnt formennsku. Ekki
er greitt fyrir stjórnarsetu í dóttur-
fyrirtækjunum, en það eru Reginn
hf., Kirkjusandur hf. og Rekstrarfé-
lagið hf.
Tveir bankastjórar hafa setið í
stjórn Sambands íslenskra við-
skiptabanka á árunum 1994-96.
Einn bankastjóri hefur setið í stjórn
Lýsingar hf. (formaður), Kredit-
korta hf., Fiskveiðasjóðs íslands
(formaður) og Samninganefndar
bankanna (formaður).
Á árinu 1994 átti einn banka-
stjóri sæti í stjóm Lindar hf. og
RÁS-nefndar og gegndi þar for-
mennsku.
Einn aðstoðarbankastjóri hefur
átt sæti í stjórn Lýsingar hf.,
Greiðslumiðlunar hf. (formaður),
Landsbréfa hf., Reiknistofu bank-
anna (formaður), auk þriggja sjóða
á vegum Landsbréfa hf. (formaður)
og Lindar hf. (1994).
Bankastjórar Landsbanka íslands
sitja ekki í stjórnum Landssjóðsins
hf., íslenska hlutabréfasjóðsins hf.
og íslenska lífeyrissjóðsins hf.
Bankinn hefur ekki átt stjórnar-
mann í Þróunarfélagi íslands hf. á
þessu tímabili og eignarhlutur
Landsbankans í Utflutningslána-
sjóði hefur verið seldur.
Alls greiddi Landsbankinn árið
1994 rúmar 5,6 milljónir króna fyr-
ir ofangreind stjórnarstörf, tæpar 6
milljónir árið 1995 og 5,3 milljónir
í fyrra.
Búnaðarbanki íslands.
Þrír bankastjórar sitja stjórnar-
LÍFEYRISGREIÐSLUR
Meðal- Hæstu
Landsbanki lífeyrisgr. lifeyrisgr.
1995 3.828.858 5.337.666
1996 3.827.631 5.337.666
Búnaðarbanki
1995 3.171.161 5.415.000
1996 3.551.448 5.415.000
Seðlabanki
1995 4.227.194 5.454.888
1996 4.780.278 6.121.699
FERÐAKOSTNAÐUR LANDSBANKA fargjöld, gistikostn. og dagpeningar
Erlendis Innanlands
1994 11.514.540 203.058
1995 12.561.950 589.774
1996 12.389.970 386.772
fundi Stofnlánadeildar landbúnað-
arins. Einn bankastjóri situr í stjórn
Greiðslumiðiunar hf., Kreditkorta
hf., Reiknistofu bankanna, samn-
inganefndar bankanna, Trygging-
arsjóðs viðskiptabanka og Þróunar-
félags Islands hf.
Tveir bankastjórar sitja í stjórn
Lýsingar hf., Sambands íslenskra
viðskiptabanka og Kaupþings hf.
Formennsku gegndi bankastjóri
í Lýsingu hf. 1994, í Sambandi ís-
lenskra viðskiptabanka 1994 og
1995 og er greidd tvöföld þóknun
þau árin.
Aðstoðarbankastjórar sátu fundi
Stofnlánadeildar þessi ár og höfðu
stjórnarlaun öll árin, en sitja ekki
fundi lengur.
Búnaðarbankinn greiddi árið
1994 4,7 milljónir króna fyrir þessi
stjórnarstörf, tæpar 4,8 milljónir
árið 1995 og 4,6 í fyrra.
Seðlabanki íslands.
Bankastjórar Seðlabankans eru í
eftirfarandi stjórnum og nefndum á
vegum bankans: Samkvæmt lögum
tilnefnir Seðlabanki íslands fulltrúa
í stjórn Fiskveiðasjóðs íslands og
er einn bankastjóranna varaformað-
ur í stjóm sjóðsins og var einnig í
stjórn Tryggingarsjóðs viðskipta-
banka til júlí 1994.
Samkvæmt lögum tilnefnir Seðla-
bankinn formann stjórnar Verð-
bréfaþings íslands og er annar
bankastjóri formaður hennar og var
í stjórn Tryggingarsjóðs viðskipta-
banka frá ágúst 1994 til júní 1996.
(Samkvæmt lögum skipaði Seðla-
bankinn fulltrúa í stjórn Trygging-
arsjóðsins, en lögunum var breytt á
síðasta ári og á bankinn ekki lengur
fulltrúa í stjórn hans.) Þriðji banka-
stjórinn er í stjórn Reiknistofu bank-
anna, samstarfsnefnd um bankaeft-
irlit frá maí 1994, samninganefnd
bankanna og í stjórn Tryggingar-
sjóðs innlánsdeilda kaupfélaga sem
Seðlabankinn tilnefnir fulltrúa i
samkvæmt lögum.
Aðstoðarbankastjóri situr ekki í
neinni launaðri nefnd eða stjórn á
vegum bankans, en er ritari banka-
ráðs.
Seðlabankinn greiddi rúmar 2,2
milljónir króna fyrir stjórnarstörf
árið 1994, tæpar 2,7 milljónir árið
1995 og 2,7 milljónir í fyrra.
Bílafríðindi bankastjóra
Ríkisviðskiptabankarnir og
Seðlabankinn taka ekki þátt í kostn-
aði vegna eigin bifreiða bankastjóra.
Að öðru leyti vísast til svars ráð-
herra á þskj. 590 við fyrirspurn
Jóhönnu Sigurðardóttur um sama
málefni.
Ferða- og dvalarkostnaður
Landsbanki íslands.
Bankastjórar fá greiddan ferða-
og dvalarkostnað erlendis á sama
hátt og ráðherra, sbr. 10. gr. reglna
fjármálaráðuneytisins nr. 39/1992,
um greiðslu ferðakostnaðar vegna
ferðalaga á vegum ríkisins. Sam-
kvæmt ákvæðinu skulu ráðherra
greiddir fullir dagpeningar auk
ferða- og gistikostnaðar, risnu-
FERÐAKOSTNAÐUR BÚNAÐARBANKA fargjöld, gistikostn. og dagpeningar
Erlendis Innanlands
1994 4.527.189 0
1995 5.465.282 0
1996 6.503.338 0
FERÐAKOSTNAÐUR
SEÐLABANKA
fargjöld, gistikostn. og dagpeningar
Erlendis Innanlands
1994
7.337.000 13.000
1995
7.944.000 34.000
1996
10.199.000 31.000
ÞESSAR töflur sýna annars
vegar ferðakostnað bank-
anna og hins vegar lífeyris-
greiðslur.
ÞÓKNANIR LANDSBANKA 1994 1995 1996
Lind hf. krónur 484.800 0 0
Fiskveiðasjóður íslands 461.400 461.400 503.496
Landsbréf hf. 419.575 419.575 524.459
Kreditkort hf. 525.072 525.072 548.700
Samninganefnd bankanna 498.672 486.384 569.472
Samband íslenskra viðskiptabanka 488.892 488.892 536.544
Hömlur hf. 523.939 523.939 523.939
Fteiknistofa bankanna 429.876 446.124 471.024
Lýsing hf. 469.020 469.021 469.020
FIÁS-nefnd 484.116 484.116 0
Greiðslumiðlun hf. 565.500 566.150 566.150
Landssjóður hf. 335.010 393.341 393.341
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf. 335.010 335.010 335.010
íslenski lífevrissjóðurinn hf. 0 0 195.000
—
ÞÓKNANIR BÚNAÐARBANKA 1994 1995 1996
Stofnlánadeild landbúnaðarins krónur 516.720 641.160 664.560
Greiðslumiðlun hf. 565.500 566.150 566.150
Kreditkort hf. 525.072 525.072 548.700
Reiknistofa bankanna 429.876 446.124 471.024
Lýsing hf. 469.020 469.020 469.020
Samband íslenskra viðskiptabanka 488.892 488.892 536.544
Samninganefnd bankanna 498.672 486.384 569.472
Tryggingarsjóður viðskiptabanka 258.375 267.815 282.919
Þróunarfélag íslands hf. 396.000 396.000 459.000
Kaupþing hf. 506.272 506.272 126.568
_ _
ÞÓKNANIR SEÐLABANKA 1994 1995 1996
Fiskveiðasjóður íslands krónur 461.400 461.400 503.506
Verðbréfaþing íslands 409.140 409.140 409.140
Reiknistofa bankanna 307.590 478.243 505.219
Samstarfsnefnd um bankaeftirlit 318.000 492.104 522.312
Samninganefnd bankanna 497.800 500.000 563.250
Tryggingarsjóður viðskiptabanka 272.590 267.815 130.578
Tryggingarsj. inniánsdeilda kaupfél. 75.000 75.000
TAFLAN sýnir greiðslur fyrir stjórnarstörf stjórnenda ríkis-
bankanna í hinum ýmsu stofnunum og fyrirtækjum þar sem
stjórnarmenn þeirra sitja.
Formaður bankaráðs Landsbanka um ferðakostnað og dagpeninga
Sömu reglur og hjá ráðherrum
KJARTAN Gunnarsson, formaður
bankaráðs Landsbankans, sagði að
sú regla hefði gilt í áratugi að
greiðsla á ferðakostnaði og dagpen-
ingum lyti sömu reglum og hjá ráð-
herrum sem einnig hefðu giit í ráð-
herratíð Jóhönnu Sigurðardóttur.
Kjartan Gunnarsson sagði að
bankinn greiddi í ákveðnum tilvik-
um ferðakostnað og dagpeninga
fyrir maka en það væri óveruleg
hlutdeild í heildarferðakostnaði
bankans. Þá sagði hann sjálfsagt,
og taldi ekki bijóta í bága við sam-
keppnislög, að stjórnendur bankans
sætu í stjórnum þeirra fyrirtækja
sem bankinn ætti hlut í. Aðspurður
um greiðslur fyrir setu í slíkum
stjórnum sagði hann hafa verið
rætt um að sameina þær mánaðar-
launum. Rætt hefði verið um það
fyrirkomulag að stjórnarlaun fyrir-
tækja sem bankinn ætti hlut í rynnu
til bankans en tekið yrði tillit til
þess við ákvörðun launa viðkomandi
starfsmanna bankans.
„Þetta er mjög gömul regla en
rökin eru þau að á ákveðnum sam-
komum seðlabankanna er gert ráð
fyrir þátttöku maka í dagskrá fund-
anna, til dæmis ársfundum, heim-
sóknum milli seðlabanka vegna af-
mæla eða slíks,“ sagði Birgir ísleif-
ur Gunnarsson seðlabankastjóri
aðspurður um ástæður þess að
Seðlabanki íslands greiðir fargjald
og gistingu fyrir maka vegna utan-
landsferða alit að tvisvar á ári.
Varðandi aðild Seðlabanka ís-
lands að stjórnum sagði Birgir
ísleifur að hún væri í flestum tilvik-
um lögbundin. „Við höfum hins
vegar fyrir löngu, einum þremur
árum, lagt til að Fiskveiðasjóði yrði
breytt í hlutafélag og að aðild Seðla-
bankans að stjórn dytti þar með
út. Við höfum líka lagt til að lögin
um Verðbréfaþing yrðu endurskoð-
uð og það stendur nú yfir,“ sagði
bankastjórinn ennfremur. Birgir
ísleifur sagði það umhugsunarefni
hvort sameina mætti mánaðarlaun-
um greiðslur fyrir setu í stjórnum.
Pálmi Jónsson formaður banka-
ráðs Búnaðarbankans sagði varð-
andi setu bankastjóra og aðstoðar-
bankastjóra í stjórnum að þar skip-
aði bankinn sambærilega stjórnend-
ur og einkabankar. Með væntanleg-
um breytingum á rekstrarformi
bankanna sagði hann líklegt að
breyting yrði á þessari stjórnskipan
og þvi væri lítið um málið að segja
að svo stöddu. Þá sagði hann að-
spurður að bankinn sæi ekki ástæðu
til að taka þátt í greiðslu ferða- eða
gistikostnaðar maka eins og gerist
í ákveðnum tilvikum í Seðlabanka
og Landsbanka.
kostnaðar og símtala. Þá gilda til-
vitnaðar reglur einnig um maka
bankastjóra, en samkvæmt 2. mgr.
10. gr. reglnanna fá makar ráð-
herra greitt fargjald og gistingu auk
50% dagpeninga ráðherra.
Sömur reglur gilda um aðstoðar-
bankastjóra, en þeir fá 80% af dag-
peningum bankastjóra. Ferðakostn-
aður innanlands greiðist samkvæmt
framlögðum reiknjngum.
Búnaðarbanki íslands.
Bankastjórar Búnaðarbankans fá
greiddan ferða- og dvalarkostnað
með sama hætti og bankastjórar
Landsbankans. Aðstoðarbanka-
stjórar Búnaðarbankans fá fulla
dagpeninga greidda fyrir ferðir er-
lendis, en ekki hótelkostnað. Ferða-
kostnaður innanlands greiðist sam-
kvæmt framlögðum reikningum en
hann hefur enginn verið. Ekki er
greiddur ferðakostnaður fyrir maka
bankastjóra.
Seðlabanki íslands.
Reglur um gi-eiðslu kostnaðar
vegna ferðalaga bankastjóra Seðla-
bankans á vegum bankans eru sett-
ar af bankaráði.
Reglur um ferðalög bankastjóra
erlendis eru eftirfarandi:
1. Fargjöld á ferðalögum erlendis
skulu greiðast eftir reikningi. Far
með flugvélum miðast við betra far-
rými flugvéla. Far með skipum, lest-
um eða langferðabifreiðum miðast
við 1. farrými ef við á.
2. Bankastjórar fá greiddan
kostnað við gistingu (með morgun-
mat), risnukostnað og símtöl eftir
framlögðum reikningum og dagpen-
inga, sem skulu vera 80% af dagpen-
ingum bankastarfsmanna. Tvisvar
á ári er bankastjóra heimilt að fá
greitt fargjald og gistingu fyrir
maka, sem þá skulu jafnframt
greiddir dagpeningar sem svara til
helmings dagpeninga bankastjóra,
þ.e. 40% af dagpeningum banka-
starfsmanna. Ef sérstaklega stend-
ur á er bankastjóra þó leyfilegt að
fá oftar greitt fargjald og gistingu
fyrir maka en ekki dagpeninga.
3. Af dagpeningum ber að greiða
allan venjulegan ferðakostnað, ann-
an en fargjöld og þann kostnað sem
greinir í 2. lið.
4. Á þriggja mánaða fresti skal
bankastjóri gera formanni banka-
ráðs grein fyrir utanferðum banka-
stjóra á vegum bankans við gist-
ingu, símtöl eftir framlögðum reikn-
ingum svo og 65% af dagpeningum
bankastarfsmanna.
Kostnaður við ferðalög innan-
lands greiðist eftir reikningi, enda
fylgi fullnægjandi frumgögn, svo
sem farmiðar, gistihúsareikningar
og kvittanir frá hlutaðeigandi
greiðasölum.
Af dagpeningum eru greiddir
skattar í samræmi við reglur ríkis-
skattstjóra.
1 Rétt er að taka fram að á árunum
1994-95 fóru fram bankastjóraskipti í bank-
anum og voru bankastjórar færri en þrír á
tímabili.
Lífeyrisgreiðslur
Ekki liggja fyrir í umræddum
stofnunum upplýsingar um hve
margir eftirlaunaþega nutu
greiðslna úr öðrum lífeyrissjóðum,
hvaða lífeyrissjóðum og hve háar
lífeyrisgreiðslur eru til hvers og eins.
Að öðru leyti vísast til sjónarmiða
í inngangi um framsetningu per-
sónuupplýsinga.