Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 21

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 21 Kosning- um flýtt í Kanada JEAN Chrétien, forsætisráð- herra Kanada, boðaði á sunnu- dag til þingkosninga 2. júní næstkomandi, 17 mánuðum áður en kjörtímabilið rennur út. Flokkur Chrétiens, Fijáls- lyndi flokkurinn, á um þessar mundir mjög góðu fylgi að fagna í skoðanakönnunum, og hyggst hann nýta sér meðbyr- inn með því að flýta kosning- um. Tsjetsjenar grunaðir um sprengjuárás AÐ minnsta kosti einn maður beið bana og 17 særðust í öflugri sprengingu í lestastöð í suðurhiuta Rússlands í gær og rússneskir embættismenn töldu að tsjetsjenskir að- skiinaðarsinnar hefðu komið fyrir sprengju í stöðinni. Leið- togar Tsjetsjena vísuðu því á bug. Tveir biðu bana í svipaðri sprengingu í annarri lestastöð í Rússlandi fimm dögum áður. Læknar virð- ingarverðastir LÆKNAR, vísindamenn, kennarar, verkfræðingar og prestar eru þær starfsstéttir sem njóta mestrar virðingar í Bandaríkjunum samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem birt var á sunnudag. Minnstrar virðingar njóta verkalýðsleiðtogar, fólk í skemmtanabransanum, lista- menn og endurskoðendur. Sljórnarand- staðan ofaná FRELSISBANDALAGIÐ, kosningabandalag miðju- hægri flokka, sem er uppistað- an í stjórnarandstöðunni á ítal- íu, vann um helgina sigur í almennum sveitarstjórnar- kosningum yfir miðju- og vinstriflokkunum, sem standa að Ólífutrésbandalaginu, sem Romano Prodi forsætisráð- herra fer fyrir. Samkvæmt bráðabirgðatölum sem birtar voru í gær stefndi í að fram- bjóðandi Frelsisbandalagsins næði kjöri til borgarstjóra bæði í Mílanó og Torino. Vatnsskortur í V-Evrópu RIGNING sem féll á þurrka- svæði Vestur-Evrópu um helg- ina hleypti vexti í gróður en var ekki nægileg til að bæta úr vatnsskorti þeim sem lengsta þurrkatímabil síðustu tveggja alda veldur. Einkum er vandamálið stórt í Frakk- landi og Englandi, þar sem grunnvatnsstaða er ískyggi- lega lág. Menn skotnir í Xinjiang KÍNVERSKIR herlögreglu- menn skutu fyrir helgi tvo menn til bana úr hundrað manna hópi, sem gerði tilraun til að frelsa dæmda óeirða- seggi, sem bíða aftöku í Yining í Xinjiang-héraði. Frá þessu greindu kínverskir embættis- menn i gær. ERLEIMT Rauðárflóðin í Manitoba Vindur eykur hættu á tjóni Flóðvatnið 29 km breitt Winnipeg. Reuter. MIKILL vindur jók í gær enn á áhyggjur íbúa flóðasvæðanna í suðurhluta Manitoba-fylkis í Kanada, þar sem hann gæti valdið öldugangi á flóðvatnsyfirborðinu og aukið þannig hættuna á að flóð- varnargarðar brystu. Flóðið í Rauðá heldur stöðugt áfram að þekja meira land í land- búnaðarhéraðinu milli landamæra Bandaríkjanna og fylkishöfuð- borgarinnar Winnipeg. Þaðan hafa 17.000 manns þegar þurft að yfir- gefa heimili sín vegna flóðanna. Iþróttahúsum í Winnipeg hefur verið breytt í neyðarskýli, þar sem 3.000 manns hefur þegar verið komið fyrir til bráðabirgða. Flóðvatnið hafði í gær náð 29 km breidd þar sem það var breið- ast syðst í Manitoba. Þar sem land er flatt á þessum slóðum breiðist flóðið yfir mikið iandsvæði og fær- ist hægt norður á við eins og leið liggur eftir farvegi árinnar, en hún rennur í Winnipeg-vatn. Flóðvarnargarðar á þiðnandijörð Allt að fjórðungur sandpoka- varnargarða, sem íbúar húsa sem lentu í flóðinu reistu í kringum þau, hefur brostið, jafnvel áður en vindhraði jókst. „Þriggja metra háir varnargarðar voru byggðir á frosinni jörð og þiðnandi snjó,“ sagði Greg Arason, sem á hús í flóðahættu syðst í Winnipeg, en honum hefur verið gert að yfirgefa hús sitt ásamt öðrum íbúum göt- unnar sem hann býr við_ fyrir há- degi í dag, þriðjudag. íbúar 600 húsa í Winnipeg hafa fram að þessu þurft að rýma hús sín. Varn- argörðum, sem byggðir voru á ís og snjó er kennt um að nærri allir hinna 50.000 íbúa Grand Forks í Norður-Dakóta neyddust til að yf- irgefa bæinn er Rauðárflóðið fór þar hjá fyrir rúmri viku. Rétt suðvestan við Winnipeg héldu hundruð hermanna og sjálf- boðaliða áfram vinnu við að ryðja upp 40 km langri framlengingu á flóðvarnargörðum með _ aðstoð stóivirkra vinnuvéla. Álætluð lengd framlengingarinnar var auk- in um helgina úr 27 km í 40, þeg- ar flóðvatnið var komið í sjónmál. Ef hið fljótbyggða mannvirki bregzt stefnir í að 10.000 íbúar borgarinnar neyðist til að yfirgefa heimili sín. Flestir hinna 630.000 íbúa Winnipeg munu þó hafa lítið að óttast þar sem flóðbrautin svo- kallaða, sem byggð var 1968 til að veita Rauðá um í miklum vatna- vöxtum. Jean Chrétien, forsætisráðherra Kanada, skoðaði flóðahættusvæðið í gær, með skara lífvarða og fjöl- miðlafólks í eftirdragi. Þrátt fyrir hættuástandið vegna flóðanna boðaði Chrétien á sunnudag til þingkosninga í bytjun júní, 17 mánuðum áður en kjörtímabilið rennur út. Reuter LÁÐS- og lagarfarartæki kanadíska hersins flytur hér sjálfboða- liða til að byggja flóðvarnargarða úr sandpokum í kringum hús nærri Ile des Chenes í Suður-Manitoba. Búizt er við að flóðið nái hámarki við Winnipeg 5. maí. Fornleifafundur við Kóngsins nýja torg Elstu mannvistarleif- ar Kaupmannahafnar Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ELSTU mannvistarleifar Kaup- mannahafnar eru smátt og smátt að koma í ljós í fornleifaupp- greftri við Kóngsins nýja torg, en þær komu í ljós þegar farið var að grafa fyrir neðanjarðar- lestarstöð fram við vöruhúsið Magasin. Beðið er eftir leyfi til að halda greftrinum áfram undir vöruhúsinu, þar sem búist er við að enn stórfengiegri minjar kunni að leynast. Þegar kemur að byggingu neðanjarðarstöðvar- innar verða settir gluggar yfir uppgröftinn, sem þá mun blasa við vegfarendum. Fornleifafræðingar álíta að þeir hafa rekist á forgarð hallar frá því um 1000. Kaupstaðarins Hafnar er fyrst getið í jarðabók frá 1193, en álitið er að byggð hafi verið á þessum slóðum frá því á steinöld hinni fyrri, 10 þús- und fyrir Krist. Þar sem álitið er að höllin sjálf liggi undir Magasin verður grafið þar í framtíðinni. Neðanjarðarlestin, sem verið er að grafa fyrir, á að liggja út á Kastrup-flugvöll og tengjast þar Eyrarsundsbrúnni yfir til Málmeyjar. Ö R U G G U R Með Swijt verður aksturinn áreynslulaus. Og líttu á verðið: Ótrúlegt verð: frá 980.000 kr. 3-dyra. Áreiðanlegur og ódýr í rekstri. Greiðslukjör sniðin að þínum þörfum. Öryggi í fyrirrúmi. þægindi upphituð framsæti rafstýrðar rúðuvindur tvískipt fellanlegt aftursætisbak samlæsingar rafstýrðir útispeglar útvarp/segulband öryggi tveir öryggisloftpúðar hemlaljós f afturglugga styrktarbitar í hurðum krumpsvæði framan og aftan skolsprautur fyrir framljós þurrka oq skoísprauta á afturrúðu dagljósabúnaður i SWIFT1997 Prufukeyrðu Suzuki í dag. SUZUKI BÍLAR HF Taktu nokkrar beygjur, finndu þœgilegan gír. skeifunni 17,108 Reykjavík. Mjúkur og léttur - eins og akstur á ao vera. Sími 568 51 oo. SUZUKISÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19, sími 471 2011. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. SUZUKI AFL OG ÖRYGGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.