Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 25
Sjónlestur
MYNPLIST
Slöðlakot
ÞRÍVÍÐAR TEIKNINGAR
SIGRÍÐUR ÁSGEIRS-
DÓTTIR
Opið alla daga frá kl. 14-18. Til 4.
maí. Aðgangur ókeypis.
MARGUR mun að óathuguðu
máli mótmæla því hástöfum að
blindraletur geti kallast sjónlestur.
En sé litið nánar á alla fleti stað-
hæfingarinnar, má vera ljóst að
blindir skynja og „sjá“ með fingur-
gómunum og heyrninni, eitthvað
líkt og heyrnarlausir skynja, upp-
lifa og „heyra“ með augunum.
Þannig er mögulegt að yfirfæra
hljóðbylgjur í línur og liti og hefur
verið gert, og það fyrir áratugum.
Og þegar allt kemur til alls, sjá
menn með höfðinu og skynfærun-
um, því án þeirra væru augun
gagnslaus. Skynfærin eru þannig
engan veginn úr ieik, þótt ytri
byrði augnanna séu óvirk, og með
því að þjálfa þau og virkja geta
blindir upplifað form. Þetta varð
ég meira en vel var við á menning-
arferðalagi í Leningrad sumarið
1978. Aldinn maður í hópnum,
Alfred Manns að nafni, sýndist
gera sér góða grein fyrir formum
þótt blindur væri. Var með passa
upp á vasann, sem heimilaði hon-
um að þreifa á myndastyttum á
söfnum og virtist hafa ofurnæma
rýmistilfinningu í fingrum og lóf-
um. Hann hafði þó þau ákveðnu
forréttindi yfir aðra blinda að vera
ekki fæddur blindur, missti sjónina
af völdum „grænu stjörnunnar" á
yngri árum. Blindan hindraði hann
þó ekki í að ferðast með Ernu
konu sinni milli safna Evrópu og
þreifa á myndastyttum og jafn-
framt hlýða andagtugur og ljóm-
andi á lýsingu konu sinnar á mál-
verkum snillinganna.
Nær okkur í tímanum er svo
hin heyrnarlausa tónlistarkona
Evelyn Glennie, en bæði hafa þau
sameiginlegt að hafa virkjað innri
móttökutæki. Glennie skynjar með
innra eyranu og öllum líkamanum
rafmagnaðan titring tónlistarinnar
og ásláttarhljóðfærisins. Þessi titr-
ingur eða vibrasjón mun svo einnig
hafa verið yfirfærður í sérhannaða
stóla fyrir heyrnarlausa og
heyrnarskerta.
Það er svo ekki út í bláinn að
álykta, að er fingurgómar hins
sjónskerta eða blinda nema letrið,
taki skynstöðvar innra augans við
sér og beri boð til heilastöðvanna
og því er hér sannanlega um sjón-
lestur að ræða. Skal minnt á, að
eitt er að horfa, annað að sjá. Eins
og til er áþreifanleg kyrrð, í merk-
ingunni að einhver hafi skilið eftir
MYND af sýningu Sigríðar
Ásgeirsdóttur, Einhliða upp.
sig heyranlega þögn, er til innri
sjónleiftur, skynhrif og minning,
birta sem lýsir í myrkri.
Verk Sigríðar Ásgeirsdóttur eru
þrívíðar teikningar sem, eins og
hún sjáif skilgreinir, „eiga sér
rætur í vangaveltum um tjáningu
og skilnmg, óljós skil orðs og
myndar. Ólæs maður skynjar skrif-
aðan texta sem ákveðið form án
þeirrar merkingar sem læs maður
skilur; ólæs maður á blindraletur
skynjar texta sem ritaður er með
því letri á sama hátt sem ákveðið
form, en ekki ritaðan texta“.
Það eru þessir tveir pólar, tján-
ing og skilningur, sem ber að stað-
næmast við, því menn hnjóta of
oft um þá sem orsakar dtjúgan
rugling í samskiptum manna og
daglegu lífi. Ekkert öðlast rétta
merkingu nema móttökutækið sé
starfandi og á jafnt við um hinn
sjáandi sem blinda. Þannig getur
sjáandi verið blindur á umheiminn
en blindur læs.
Hinar aflöngu hvítu myndheildir
á veggjum Stöðlakots sýnast í
fyrstu óvirkar fyrir augað, jafnvel
hljóðlausar. Fela þó í sér mjög
djúpar og nærtækar skírskotanir,
sem magna upp kröfuna um að
innri ratsjá skoðandans sé í lagi.
Þær segja okkur nákvæmlega jafn
mikið við nánari athugun og rök-
ræna samræðu og iítið í fyrstu,
því hér er um mikilvæg skilaboð
að ræða um virkni hins óvirka.
Bragi Ásgeirsson
Sýning í
Galleríi
Nema hvað
FJÓRIR nemendur við grafíkdeild
Myndlista- handíðaskóla íslands
opna sýningu í dag í Galleríi Nema
hvað kl. 18. Gallerí Nema hvað er
nýr sýningarsalur við Þingholts-
stræti 6 rekinn af nemendum MHÍ.
Á sýningunni verða sýnd verk
sem unnin hafa verið undir leiðsögn
finnsku grafíklistakonunnar Eevu-
Liisu Isomaa sem hefur undanfarið
verið gestakennari við skólann.
Þeir nemendur sem sýna eru á
öðru ári grafíkdeildar og eru: Arn-
ar Geir Ómarsson, Fríða María
Harðardóttir, Marjaterttu Harri og
Sigrún Þorsteinsdóttir.
Sýningin stendur yfir til 7. maí
og er opin mánudaga til föstudaga
frá kl. 16-20 og laugardaga og
sunnudag frá kl. 14-18.
á sumarfrístunda-
fatnaði
Imyndir
MYNPLIST
Listasafn A SI,
Ásnmndarsalur
MÁLVERK
Aðalsteinn Svanur Sigfússon. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 14-18
til 4. mai. Aðgangur ókeypis.
ÍMYNDIR standa fyrir myndir
og á það við um málverkin sem
hér um ræðir. Þau sýna níu stakar
sviðsetningar þar sem persónu-
gervingar í líkneski kvenna leika
hlutverkin. Vísað er í grísku goð-
sögnina um Sírenur, sjávardísir úr
Ódysseifskviðu Hómers, er seiddu
svo sæfara með söng sínum að
þeim var glötun ein vís. Bæði eru
fyrirmyndir verkanna sóttar í forn-
menningu Grikkja og á inntak
þeirra að vera fegurð í formi mynd-
byggingar, líkt og í endurreisninni
á 16. öld.
Aðalsteinn leitar í þessum verk-
um til eldri hefða án gagnrýninnar
endurskoðunar. Goðsagnir sem
hann styðst við öðlast ekki nýja
merkingu og hann fer engar nýjar
leiðir í vinnubrögðum. í sýningar-
skrá koma viðhorf hans glögglega
fram í ummælum um eigin verk.
„Myndunum á þessari sýningu er
ekki ætlað að brjóta nýtt land
undir listina, ryðja nýja vegi eða
leggja brýr, heldur vera.“
Framsetning verkanna er átaka-
laus og byggir á fyrirframgefnum
táknmyndum, eða eins og segir í
sýningarskrá,. .. „nái þessar sýnir
að gleðja auga einhverra er einum
áfanga náð“.
í stuttu máli er hér um yfir-
borðslega skreytilist að ræða sem
erfitt er að taka alvarlega.
Hulda Ágústsdóttir
c
Q Þeir eru mjúkif
© Þeír eru léttir
0: Þeir hafa „höggdeyfa"'
©; Peír paesa fuilkomlega
0 Fæturnir geta „andaó '