Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 56

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYIMDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIMVARP Mjólkurböm NELLY’S Café er skrifstofa kvikmyndafyrirtækisins Bob & John Movies, í eigu Róberts Douglas og Jóns Sæmundar Auðarsonar. Þeir hefja tökur á sinni fyrstu bíómynd, Mjólkurbörn, í sumar. Þar sem nafn fyrir- tækisins er á útlensku, spurði blaðamaður hvort ætl- unin væri að heija á erlendan markað í framtíðinni. KAPPLEIKIR í SJÓNVARPI Kl. 18.45 áSKY England - Georgía (u-21) MIÐVIKUDAGUR 30. apríl Kl. 17.30áARD Þýskaland - Úkrafna Kl. 18.00 áNRK Noregur- Finnland Kl. 18.00 áTV3-D Grikkland - Króatfa Kl. 18.30 áSUPER Þýski handboltinn Kl. 18.45 á SKY Ítalía - Pólland Kl._ 18.45 á RAIUNO Ítalía - Pólland Kl. 19.00 áSKY England - Georgía LAUGARDAGUR 3. maí Kl. 10.15 á RÚV Leicester - Manchester United Kl. 10.15 áSKY Leicester - Manchester United kl. 17.15 áRÚV Liverpool - Tottenham kl. 17.15 áSKY Liverpool - Tottenham SUNNUDAGUR 4. maí Kl. 14.00 á Stöð 2 Juventus - Sampdoria MÁNUDAGUR 5. maí Kl. 14.00 áSKY Glasgow Rangers - Motherwell JSA: Já, í útlöndum er markaðs- verð miklu hærra en hér. Það er samt ekki vegna peninganna sem við stefnum á erlendan markað, við eigum nóg af þeim, heldur viljum við bara að sem flestir sjái myndirn- ar okkar. RD: Við byrjum sem sagt á að heimsfrumsýna í Grænlandi og Færeyjum. Við verður að kynna þessum þjóðum íslenska menningu. JSA: Já, það þarf að styrkja tengslin á milli landanna í kvik- myndageiranum. Svo hafa þeir alltaf orðið útundan. Heyrðu, er kvikmyndahús á Grænlandi, veistu það? Spunamynd JSA: Mjólkurbörn verður fyrsta íslenska myndin í fullri lengd sem tekin verður á stafrænt myndband. RD: Hún fjallar um drauma og líf ungs manns sem hefur áhuga á garðyrkju, og er að finna sig í líf- inu. Hann á kærustu sem heitir Súsí, sem hættir með honum. BLM: En hvað verður það við þessa mynd sem gerir hana ólíka öðrum íslenskum kvikmyndum? JSA: Það er stíllinn. Hún verður gerð undir áhrifum John Cassavet- es. Hún verður spunnin. RD: Við fjöllum um aðalpersón- una á venjulegan hátt, en við fylgj- umst með Súsí á þann hátt að hún talar beint til áhorfenda og segir hvað hún er að gera og pæla. Mamma er mjög stolt af mér BLM: Hafið þið menntun eða reynslu í kvikmyndagerð? RD: Ég lærði fjölmiðlun á ír- landi í tvö ár, og hef gert 4-5 stutt- myndir. JSA: Ég er búinn með tvö ár í Myndlista- og handíðaskólanum. Mamma er mjög stolt af mér. Ég hef líka gert nokkrar stuttmyndir. RD: Það er reyndar margt úr stuttmyndunum okkar sem mun birtast aftur í þessari mynd, og við notum þær eins og skissublokkir. Vanmetnir leikarar BLM: Eruð þið búnir að fá ein- hveija góða leikara til liðs við ykk- ur? RD: Já, Jón Sæmundur leikur aðalhlutverkið, að sjálfsögðu. Að mínu mati er hann einn af þremur bestu leikurum íslands. Hann hefur bara verið vanmetinn hingað til. JSA: Ég mun vinna undir styrkri stjórn Róberts, sem er með hlutina á hreinu. Það er ekkert fimm dimmalimm hér. RD: Við erum ekki búnir að finna stelpu í hlutverk Súsíar, en Ragn- heiður Axel leikur Rut, sem er ann- að stærsta kvenhlutverkið. Jón er LIAR LIAR FRUMSÝND Á M0RGUN F0RSALA HAFIN Morgunblaðið/Golli RÓBERT Douglas og Jón Sæmundur Auðarson. samt líka leikstjóri, þetta er fiftí, fiftí. JSA: Tvöföld áhætta. ívar reddar öllu JSA: ívar Kristjánsson er fram- kvæmdastjóri, og hann reddar öllu. Annars þurfum við lítið fjármagn til að byija með. Við þurfum t.d. ekki að kaupa okkur filmu, þar sem myndin er tekin á stafrænt mynd- band. RD: Þetta eru þijú skref. Fyrst tökum við myndina, svo reddum við okkur klippigræjum, og síðan þarf að gera sýningareintak í fullri stærð. Þá fyrst þurfum við að fara að hugsa um peninga, því það er dýrast. Við einbeitum okkur að hveiju skrefi fyrir sig. JSA: Þetta verður ódýrasta bíó- mynd sem hefur verið gerð, nema framköllunarfyrirtækið svíki okkur og selji okkur stækkun sýningarein- taksins á 20 milljónir. BLM: En hvað eru Mjólkurbörn? RD: Fólk sem sýgur kerfið eins og bijóstið á mömmu sinni. BLM: Eitthvað að lokum? JSA: Við erum ekki hræddir við neitt. Við komum í þennan heim allsberir og förum úr honum allsber- ir, það sem við gerum á milli, það er bara lífið. Mynd Francescos Rosis verðlaunuð ÍTALSKA kvikmyndin „La Tregua“, nýjasta verk Francescos Rosis, vann sem besta mynd þegar David di Donatello kvikmyndaverð- laununum var úthlutað í ár. Þetta var í 41. skipti sem þessi ítalska verðlaunahátíð var haldin. „La Tregua" er talin líkleg til að keppa á Cannes-kvikmyndahátíðinni. Auk þess að vinna sem besta mynd fékk „La Tregua" verðlaun fyrir klippingu, og leikstjórinn Francesco Rosi, og framleiðendurn- ir Leo Pescarolo og Guido De Laur- entiis voru einnig verðlaunaðir. „La Tregua", sem er sextánda mynd Rosis, er byggð á bók Primo Levis og segir frá ferð höfundar frá útrýmingarbúðum nasista til heimkynna sinna í Iok seinni heimsstyijaldar. Það er John Turt- urro sem fer með hlutverk Levis í myndinni. V ísindaskáldsögukvikmynd Gabriel Salvatores „Nirvana" hlaut 12 útnefningar en fékk ein- göngu di Donatello-verðlaunin fyr- ir bestu hljóðrásina. „Nirvana" verður líklega einnig meðal mynda sem verða sýndar á Cannes í maí. Líoílj skautar U L T R A W H E E L S Opið laugardaga kl. 10-16 Margar gerðir og stærðir. Mikið úrlval af varahlutum og hlífum. USA ® tíWNNP*' Skeifunni 11, sími 588 9890

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.