Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 39

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 39 + Kristín Ilalla Haraldsdóttir fæddist í Reykjavík 9. apríl 1981. Hún lést 20. apríl síðast- liðinn. Kristín var nemandi í 10. bekk Réttarholtsskóla. Foreldrar hennar eru Helga Sigríður Bachmann kennari og Haraldur Hjart- arson bifreiðastjóri frá Eyri í Kjós. Syst- ur Kristínar eru dr. Sigríður Sóley Krisljánsdóttir efnafræðingur, búsett í Banda- ríkjunum, og Ragnheiður Helga, nemi í Réttarholtsskóla. Útför Kristínar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kristín var falleg stúlka, há og grönn með tígulegt yfirbragð. Hún var glaðlynd og í góðu jafnvægi, en úr svip hennar mátti lesa rósemd gagnvart lífinu. Hún var heppin. Hún átti yndislega fjölskyldu. Foreldra sem voru ávallt stoltir af henni, veittu henni einstaka hlýju og öryggi og tvær systur sem voru um leið vinkon- ur hennar. Elsku Helga, Halli, Sigga og Ragna, það hlýtur að vera ykkur huggun í sorginni hversu samheldin þið voruð alla tíð. Þið áttuð fögur ár saman og minningin um þau mun ylja þegar fram líða stundir. Alltaf þegar við hittum Helgu, Halla og stelpurnar voru þær þegar komnar í leik með strákunum okkar og alveg óþreytandi að hafa ofan af fyrir þeim þó aldursmunur væri nokkur. Þannig minnumst við henn- ar, fullrar af orku og lífi, úti í fót- bolta, spilandi á píanó, eða I skemmtilegum innileikjum. Við mannfólkið höfum svo tak- markaðan skilning á lífinu og dauð- anum og sérstaklega er erfitt að sætta sig við dauðann þegar hann tekur frá okkur heilbrigðan ungling með bjarta framtíð. Þannig líður mér nú þegar Kristín frænka mín er dáin. Ég skil ekki af hveiju, en ég treysti því að henni hafi verið ætlað annað hlutverk. Við Jón og strákarnir kveðjum Kristínu með hlýju og þakklæti fyrir samfylgdina. Líf hennar hér á jörð- inni var bæði fallegt og gefandi. Megi góður Guð umvefja hana Ijósi sínu. Sigríður Bachmann. Elsku Kristín mín. Ég trúi varla að þú sért farin. Að við munum ekki hittast aftur í þessu lífi. Það er svo stutt síðan þú varst að segja mér hvað þú værir spennt að mega byija að fara í öku- tíma. Og að þú værir byijuð að búa þig undir samræmdu prófin. Ég dáð- ist alltaf að því hvað þú varst dug- leg og áhugasöm um námið. Og þú ætlaðir þér stóra hluti í framtíðinni. Ég dáist líka að því hvað þú varst alltaf góð við Rögnu. Þú varst alltaf að hjálpa henni við eitthvað. Missir hennar er mikill. Ég minnist þess þegar þú varst að líma saman strokleðrið mitt, og þú festir á það hvíta pappírsvængi. Nú hefur þú fengið þína eigin vængi, því að núna ertu engill á himnum. Það var svo gaman hjá okkur þegar við vorum að vinna saman, og við töluðum dönsku, bara af því að okk- Erfidrykkjur «él HÓTEIy REYKJAVÍK Sigtúni 38 Upplýsingar í síma 568 9000 ur þótti það skemmti- legt. Nú munum við aldrei gera það framar. Síðasta vor fórum við upp í turninn á Haligrímskirkju og þú sýndir mér útsýnið yfir borgina. Það næsta sem þú sýnir mér verð- ur himnaríki. Og þá muntu líka ljúka við að sýna mér stjörnumerk- in á himinhvolfinu. Þangað til mun ég horfa á stjörnuna þína, sem skín skærust allra á himninum. Elsku Kristín. Þakka þér fyrir allar stundirnar, ég gleymi þér aldrei. Ég mun geyma þig í hjarta mínu þar til við hittumst á ný. Hve sárt ég sakna þín ég sit við legstein þinn og hugsa um horfna tíð hjartans vinur minn. Sú staðreynd sturlar mig að við sjáumst aldrei meir þú gafst mér hlýja sál sál sem eitt sinn deyr. Ó, hve sárt ég sakna þín þú varst eini vinur minn einn ég stari í sortann inn með sorgardögg á kinn. (Sverrir Stormsker) Elsku Helga, Halli, Ragna og Sigga Sóley, megi Guð styrkja ykk- ur i þessari miklu sorg. Kristín Asta. Mig langar með fáum orðum að minnast vinkonu minnar, Kristínar Höllu. Haustið 1994, á fyrsta skóladeg- inum í Réttarholtsskóla, kynntist ég Kristínu. Höfum við verið góðar vin- konur frá þeim degi. Ég var svo lánsöm að lenda í sama bekk og hún og sátum við alltaf hlið við hlið í öllum kennslustundum. Betri námsmann en Kristínu er erfitt að ímynda sér. Hún var alltaf svo samviskusöm, skapgóð og jákvæð og hafði einstaklega góð áhrif á umhverfi sitt. Mér er það einnig mjög minnisstætt hvað hún var alltaf reiðu- búin að hjálpa mér við þau heima- verkefni sem ég skildi ekki, sérstak- lega við stærðfræðina. Dáðist ég þá oft að því hvað hún gat verið þolin- móð og skilningsrík og hætti ekki fyrr en ég skildi dæmið fullkomlega. Nú er Kristín farin frá okkur svo snemma og skyndilega. Hún sem var svo skynsöm og hæfileikarík stúlka. Kristín ætlaði næsta vetur í MR og hún átti svo sannarlega framtíðina fyrir sér, en lífið getur oft verið svo óskiljanlegt. Ég er Guði svo þakklát fyrir þessi dýrmætu ár sem ég fékk að kynnast Kristínu og eiga hana sem nána og góða vinkonu. Ég trúi því að nú sé Kristín í faðmi Guðs, þar sem er himnesk friðsæld og gleði. Það er mikil huggun að hugsa til þess. Elsku Helga, Haraldur, Ragna og Sigga Sóley. Eg votta ykkur mína dýpstu samúð. Bið Guð að gefa ykk- ur huggun og styrk í þessari miklu sorg. MINIMIIMGAR Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.“ (Jóh. 11:25). Margrét Árnadóttir. Mánudagurinn 21. apríl sl. hófst á hefðbundinn hátt í Réttarholts- skóla, nemendur og kennarar gengu til starfa sinna í kennslustofum og allt virtist í föstum skorðum. En svo var ekki. Nemendur voru kallaðir á sal, einn árgangur af öðrum, fyrst 10. bekkur. Sóknarpresturinn okkar, hann séra Pálmi, sagði að einn úr hópnum, Kristín Halla Haraldsdótt- ir, hefði látist daginn áður. Kristín Halla hafði verið eins og hún átti að sér í skólanum föstudeg- inum áður. Á iaugardag veiktist hún skyndilega og þrátt fyrir að allt væri gert sem í mannlegu valdi stóð varð örlögum ekki breytt. Hún lést í flugvél á leið til Kaupmannahafnar. Á skammri stundu breyttist allt í skólanum, gleðin yfir vorinu sem var að brjóta veturinn á bak aftur, spennan vegna yfirvofandi prófa var gleymd. Glöð ungmenni á vori lífsins stóðu frammi fyrir köldum gusti dauðans, fundu skyndilega hve allt er í heiminum fallvalt. Allt vék fyrir sorginni. Kristín Halla hóf nám í Réttar- holtsskóla haustið 1994 og var á leið að ljúka grunnskólanámi í vor. Við í Réttarholtsskóla höfðum þó þekkt hana lengur því Helga móðir hennar hefur kennt við skólann í meir en aldarfjórðung. Kristín og Ragnheiður systir hennar sem er árinu yngri höfðu komið með móður sinni hingað í skólann frá því þær voru litlar tátur og við höfðum fylgst með þeim vaxa og dafna. Kristín Halla var einstak- lega vel gerð stúlka, yfirburðanáms- maður, en um leið sérlega prúð og stillt í framgöngu. Vinnubrögð hennar og samvisku- semi voru einstök og öðrum til fyrir- myndar. Þar gilti einu hvort um var að ræða bóklegar greinar eða list- greinar og handmenntir, allt var unnið af einstakri natni og færni. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kenna Kristínu smávegis í vetur. Kennsla er erfitt en um leið gefandi starf. Kristín var ein af þeim nem- endum sem gera kennslu að forrétt- indum en ekki ánauð. Kæra Helga, Halli, Ragna og Sigga Sóley og aðrir aðstandendur. Missir ykkar er mikill, meiri en hægt er að lýsa í orðum, en minning- in um elskulega stúlku lifir og hverf- ur ekki. Hún er verðmæti sem ekki verða frá okkur tekin. Megi góður guð styrkja ykkur og styðja nú og um alla framtíð. Fyrir hönd starfsfólks og kennara Réttarholtsskóla, Haraldur Finnsson. Kveðja frá Tónlistarskóla Mosfellsbæjar Kær vinkona mín, Kristín Halla Haraldsdóttir, er látin, nýlega orðin 16 ára gömul. Hún hafði sl. sjö ár verið nemandi minn í píanóleik og hafði hug á að halda áfram námi. Kristín Halla ávann sér virðingu og vinsældir allra sem henni kynntust með sinni ljúfu framkomu og glað- værð. Við hjá Tónlistarskóla Mos- fellsbæjar þökkum samverustund- irnar og sendum foreldrum, systrum og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Valdemar Jónsson. Minnismerki úr steini Steinn ér kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki. Áralöng reynsla. BiS. HELGAS0NHF ISTEINSMIDJA KRISTÍN HALLA HARALDSDÓTTIR t Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, tengdamóðir, amma og systir, JÓNÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR, Fögruhlíð 5, Hafnarfirði, andaðist í Salgranska sjúkrahúsinu í Gautaborg föstudaginn 25. apríl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 2. maí kl. 13.30. Kristján Garðarsson, Aðalheiður Árnadóttir, Valborg H. Kristjánsdóttir, Örn Rúnarsson, barnabörn og systkini. V t Elskuleg eiginkona mln, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Litluvöllum 9, Grindavík, lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur föstudaginn 25. apríl síðastliðinn. Ólafur Ágústsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurþór Ólafsson, Hallfríður Traustadóttir, Ágústa Hildur Ólafsdóttir, Hjálmar Hallgrímsson, fris Ólafsdóttir, Garðar Páll Vignisson og barnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, HÁKON HAFLIÐASON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvkudaginn 30. aprll kl. 15.00. Guðrún Birta Hákonardóttir, Trausti Valsson, Magnús Óskar Hákonarson, Jórunn Ella Þórðardóttir, Gíslína Hákonardóttir, Ólafur Þór Erlendsson, Guðfinna Hákonardóttir, Sigurður H. Ólafsson, barnabörn, Ásta Kristný Guðlaugsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGFRÍÐ SIGURJÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Kleppsvegi 120, Reykjavík, lést á Landakotsspítala föstudaginn 25. apríl. Ásiaug Sverrisdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Jón Torfason, barnabörnog barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, ÓSKAR SÖEBECK prentarl, Dalbraut 27, Reykjavfk, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar- daginn 26. apríl sl. Lllja Söebeck. * t Elskuleg systir okkar, HULDA RAGNA MAGNÚSDÓTTIR, til heimilis I Starrahólum 4, Reykjavfk, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 26. apríl. Gyða Magnúsdóttir og Guðmundfna Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.