Morgunblaðið - 29.04.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 13
FRÉTTIR
Vatnsrennslið frá Gjálp heldur áfram
Fer í Skeiðará
um Grímsvötn
VÍSINDAMENN voru á ferð á sum-
ardaginn fyrsta við eldstöðvarnar
undir Vatnajökli þar sem gaus í
haust og á Skeiðarársandi við
margs konar mælingar og athugan-
ir. Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur hjá Raunvís-
indastofnun Háskólans segir að nú
hafi í fyrsta sinn gefið til mælinga
frá 30. janúar og fari vatnsborð
Grímsvatna greinilega lækkandi.
Athygli vekur að vatnsborð
Grímsvatna hefur lækkað um 24
metra frá því seint í desember og
hefur ekki verið lægra síðan um
miðjan nóvember. Fyrst eftir hlaup-
ið safnaðist vatn fyrir í Grímsvötn-
um en síðan í janúar hefur leki nið-
ur til Skeiðarár verið það mikill að
vatnsborð hefur lækkað. Meðan
þetta ástand varir verða ekki
Grímsvatnahlaup. Vatnið frá Gjálp
virðist renna um Grímsvötn og
áfram í Skeiðará.
Dregið hefur úr bráðnun íss en
hún hefur verið töluverð allt frá því
gosi lauk. Sprungusvæðið í jöklin-
um umhverfis gosstöðvamar hefur
víkkað stöðugt frá goslokum þar
sem ís skríður inn að fjallinu og
bráðnar. Sprungusvæðið er 9 km á
lengd og 7 km á breidd þar sem
mest er. Fyrstu þrjá mánuðina eftir
að gosi lauk bráðnaði utan af fjall-
inu eins til tveggja metra þykkt lag
af ís á dag. Ekki er búið að vinna
úr mælingum síðustu mánaða en
líklegt er að eitthvað hafi dregið
úr ísbráðnuninni. Segir Magnús að
meðan svo mikið bráðni sé ljóst að
talsverður hiti sé í Gjálp en spurn-
ing sé hvað verði um vatnið.
„Það sem er áhugavert að fylgj-
ast með nú er hvernig öskulagið
breytist í móberg," segir Magnús
Tumi. „Við vitum ekki hvort það
tekur fimm mánuði eða fimm ár
en framundan er að fylgjast með
ísbráðnuninni en með því að mæla
hana getum við áætlað hvernig
þessi ferill er.“
Nafnið Gjálp kemur
úr Snorra-Eddu
Um nafnið Gjálp sagði Magnús
að vísindamenn hefðu ekki notað
annað þótt formlega hefði sú nafn-
gift ekki verið staðfest af réttum
aðilum. Hugmyndin er komin frá
Guðrúnu Larsen jarðfræðingi.
Nafnið kemur fyrir í Snorra-Eddu
þar sem segir frá ferð Þórs „... til
ár þeirrar er Vimur heitir, allra áa
mest,“ og hvernig áin óx svo mjög
þegar hann var í henni miðri að
„uppi braut á öxl honum“. Kvað
hann þar vísu til árinnar og segir
að sér vaxi ásmegin jafnhátt upp
sem himinn. Síðar segir m.a. „Þá
sér Þór uppi í gljúfrum nokkrum
að Gjálp, dóttir Geirröðar, stóð þar
tveim megin árinnar. Og gerði hún
árvöxtinn. Þá tók Þór upp úr ánni
stein mikinn og kastaði að henni
og mælti svo: „Að ósi skal á
stemma!
Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson
HORFT norður eftir gosgjánni sem er nú alveg lögst saman nema smápollur að norðanverðu.
Myndin er tekin sumardaginn fyrsta.
Stakir Jakkar
7950
Stakar Buxur
2490,-
Skór frá
2490,-
Ath Sendum í póstkröfu.
Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730.
Fax 562-9731