Morgunblaðið - 29.04.1997, Síða 34

Morgunblaðið - 29.04.1997, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Mistök R-listans í umferðarmálum ÞAU góðu tíðindi hafa nú gerst í sam- göngumálum höfuð- borgarsvæðisins, að rík- isstjórnin hefur tekið ákvörðun um að veita fé til að ljúka þjóðvega- framkvæmdum í Art- únsbrekku. Með þessu er komið á móts við kröfur sveitarstjórnar- manna á höfuðborgar- svæðinu um að nauð- synlegum og þjóðhags- lega hagkvæmum um- ferðarbótum á höf- uðborgarsvæðinu verði ekki slegið á frest. Stefnt er að því að breikkun þjóðvegarins um Ártúnsbrekku og Miklubraut frá Elliðaám að Skeiðarvogi verði lokið í haust. Einstakt sóknarfæri Á þessu kjörtímabili hefur mun meira fé verið veitt til þjóðvegafram- . •kvæmda í Reykjavík en á síðasta í stað þess að nýta ein- stakt sóknarfæri í sam- göngumálum höfuð- borgarsvæðisins, segir Olafur F. Magnússon, hyggst R-listinn hverfa - frá mislægum gatna- mótum á mótum Miklu- brautar og Kringlumýr- arbrautar. kjörtímabili. Mislæg gatnamót á mótum Höfðabakka og Vesturlands- vegar hafa þegar sannað gildi sitt með verulegri fækkun slysa á þess- um stað. Breikkun Ártúnsbrekkunn- ar frá Höfðabakka að Elliðaám á sl. ári og Miklubrautarinnar áfram að Skeiðarvoginum nú mun vafalítið skila sama góða árangri. Þessum góða árangri þarf að fylgja eftir með því að tryggja enn frekar greiða og örugga umferð eftir mikilvægustu umferða- ræð höfuðborgarsvæð- isins frá austri til vest- urs, þ.e. Vesturlands- vegi og Miklubraut. Áætlanir borgarstjórn- armeirihluta R-listans í umferðarmálum ganga því_ miður í öfuga átt. í stað þess að nýta einstakt sóknarfæri í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins hyggst R-listinn hverfa frá mislægum gatna- mótum á mótum Miklu- brautar og Kringlu- mýrarbrautar. Að mínu mati er þessi áætlun R-listans með öllu óraunhæf. Ljósa- stýrð gatnamót geta ekki dugað þar sem 70.000 bílar aka um daglega. Sjái R-listinn ekki að sér í þessu máli er markmið listans um 20% fækkun umferðarslysa á höfuðborg- arsvæðinu til aldamóta enn fjarlæg- ara en það er nú þegar. Mistök í almennings- samgöngum R-listinn setti sér einnig það markmið að stórefla almennings- samgöngur og draga úr einkabíla- umferð. Undirritaður er alfarið sam- mála þessu markmiði en telur að það sé röng leið að markmiðinu að hindra greiða og örugga umferð um mikil- vægustu stofnbrautir höfuðborgar- svæðisins. Heppilegra er t.d. að lækka fargjöld í strætisvagna borg- arinnar, en R-listinn hefur hækkað þessi fargjöld og staðið fyrir afar umdeildum breytingum á leiðakerfi SVR. Árið 1994 studdu borgarfull- trúar vinstri flokkanna tillögu undir- ritaðs í borgarstjórn um lækkun unglingafargjalda. 20 miða farmiða- spjöld fyrir unglinga lækkuðu þá úr 900 kr. í 500 kr. Aðeins 16 mánuð- um síðar hækkuðu vinstrimenn í borgarstjórn 20 miða farmiðaspjöld unglinga í 1000 kr. eða um 100%! Fyrirheit vinstri manna í þessu máli sem svo mörgum öðrum reyndust orðin tóm. Röng forgangsröðun Borgarstjórnarmeirihluti R-list- ans hefur lagt áherslu á aðra for- gangsröðun í framtíðarskipulagi Miklubrautar en sjálfstæðismenn. Þannig vill R-listinn láta grafa Miklubrautina niður í stokk á Mikla- túnssvæðinu. Þessi aðge''ð er síður en svo til þess fallinn að greiða fyr- ir umferð og ekki er gert ráð fyrir nema tveimur akreinum í hvora átt. Kostnaður við gerð neðanjarðar- stokks við Miklatún ásamt nauðsyn- legum fylgiaðgerðum er líklega tals- vert meiri en við gerð mislægra gatnamóta á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Sjálfstæð- ismenn leggja mikla áherslu á þessi mislægu gatnamót en hafna um leið neðanjarðarstokk R-listans við Miklatún. Sjálfstæðismenn vilja finna aðrar og hagkvæmari leiðir til þess að leysa þann mikla umhverfis- vanda, sem er til staðar vegna há- vaða- og loftmengunar við Miklu- braut frá Snorrabraut að Stakkahlíð. Umferðarbótum við Gullinbrú verði flýtt Á borgarstjórnarfundi þann 6. mars sl. vék undirritaður að nauð- synlegum umferðarbótum vegna umferðarvanda í Grafaivogshverfi með eftirfarandi orðum: „í mínum huga eru það einhver brýnustu verkefni í umferðarmálum Reykvíkinga að tryggja íbúum út- hverfa Reykjavíkur örugga og greiða leið til og frá vinnu. Þar ber að sjálf- sögðu að hafa í huga öflugar og góðar almenningssamgöngur, en þær einar og sér duga ekki til. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar nýlega um að ljúka framkvæmdum við Ártúnsbrekku á þessu ári er til mikilla bóta fyrir umferðaröryggi á höfuðborgarsvæð- inu. Þeim merka áfanga í umferðar- málum, sem þá næst, þarf að fylgja eftir með því að yfirvinna tregðu R-listans vegna nauðsynlegra fram- kvæmda við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Forgangs- röðun R-listans er einfaldlega röng í þessu máli. Ég vil að lokum minna aftur á nauðsyn þess að gerðar verði úrbætur fyrir íbúa Grafarvogs vegna umferðar úr hverfmu, en umferðar- teppa við Gullinbrú er sívaxandi vandamál fyrir íbúa þessa fjölmenna borgarhveifis." Höfundur er læknir og varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Ólafur F. Magnússon AÐ UNDANFÖRNU hefur í íjölmiðlum farið fram nokkur umræða um táknmálstúlkaþjón- ustu. Nokkuð hefur borið á ókunnugleika hvað varðar skipulag " þessara mála og fjár- mögnun þjónustunnar. Með lögum nr. 129 frá 1990 um Samskipt- amiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra var ákveðið að Samskipt- amiðstöðin yrði undir stofnun menntamála- ráðuneytisins en ekki félagsmálaráðuneytis- ins. Samskiptamiðstöð- inni var í lögunum falið m.a. að annast táknmálstúlkun og k menntamálaráðherra að setja gjald- skrá fyrir þjónustuna að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar. Alþingi ákveður við gerð fjárlaga fyrir hver áramót hve miklu fé skuli varið á komandi ári til einstakra verkefna kostaðra af ríkinu. Rétt er að undirstrika að fjárlög eru lög og að sumu leyti m.a.s. rétthærri öðrum lögum. Alþingi ákvað í fjárlögum fyrir árið 1997 að til Sam- skiptamiðstöðvar færu 19 milljónir, þar af færu 9 milljónir í „nám táknmalstúlka" í Há- skóla íslands. Af þess- ari upphæð eru 1,5 milljónir sértekjur. Þar að auki ákvað mennta- málaráðherra að veija 6 milljónum af sér- kennslukvóta þeim sem skipt er af mennta- málaráðuneyti til skólatúlkunar í fram- haldsskólum. Þannig fara á árinu 1997 sam- tals 25 milljónir til Samskiptamiðstöðvar og táknmálstúlkunar. Þeir sem hafa þörf fyrir táknmál- stúlkun eru um 200. í síðustu kosningabaráttu ákvað þáverandi félagsmálaráðherra, Rannveig Guðmundsdóttir, að veita 2 milljónum úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til táknmálstúlkunar. Þótt fordæmið væri hæpið var sama upp- hæð veitt til táknmálstúlkunar 1996. Við síðustu fjárlagagerð var ákveðið að Framkvæmdasjóður fatlaðra yrði einungis tii framkvæmda eins og Betur þarf að skilgreina hlutverk Samskiptamið- stöðvarinnar. Páll Pét- ursson segir ekki standa á félagsmála- ráðuneytinu að taka þátt í því. honum var upphaflega ætlað og þar sem hann kostar ekki rekstrarverk- efni lengur er ekki unnt að taka þaðan peninga á þessu ári til tákn- málstúlkunar. Samkvæmt 7. gr. laganna um Samskiptamiðstöðina ber að endur- skoða þau innan fjögurra ára. Við þá endurskoðun sem menntamála- ráðherra mun hafa frumkvæði að tel ég að betur þurfi að skilgreina hlutverk Samskiptamiðstöðvarinnar, hver eigi að vera forgangsröðun verkefna og deiling fjármagns eftir verkefnum. Ekki mun standa á fé- lagsmálaráðuneytinu að taka þátt í þeirri vinnu. Mér er ljóst að aðstaða þeirra sem táknmálstúlkunar þurfa að njóta er örðug og þjóðfélaginu ber samfé- lagsleg skylda til þess að aðstoða þá eftir föngum. Einnig ber okkur skylda til að sjá svo um að fjármun- ir nýtist sem best. Höfundur er félagsmálaráðherra. Nokkur orð um táknmálstúlkun Páll Pétursson Tími jafnræðis þarf ekki að vera liðinn! RÆÐA undirritaðs á BSRB- þingi er varð tilefni Reykjavíkur- bréfs hinn 27. apríl var í raun tví- skipt. I fyrri hluta ræðunnar kom fram að á árunum 1967- 1990 hafi efnahagsleg- ur aðbúnaður fólks batnað mjög - en samf- ara þeim breytingum tvöfaldaðist kvörtun- artíðni um vinnustreitu og heildan'innutími kvenna iengdist veru- lega. Enn fremur kom fram að árangur, gæði og framleiðni heilbrigð- isþjónustunnar á Is- landi stæðist fyllilega samanburð við heil- brigðisþjónustu á hin- um Norðurlöndunum. Þá kom fram í ræð- unni að ýmsar aðgerðir væru í gangi á vegum heilbrigðisyf- irvalda til þess að halda því sæti. Mætti t.d. benda á að við værum „Evrópumeistararí' á sviði forvarna að dómi Heimsheilsunnar (WHO). í öðru lagi komu. fram skýr dæmi þess að þjónustugjöld (læknisað- sókn og lyfjakaup) væru of há mið- að við tekjur margra. Langir biðlist- ar hefðu myndast í kjölfar hraðrar tækniþróunar. Fjárveitingavaldið hefur ekki nægilega tekið mið af þessari þróun þrátt fyrir ábendingar heilbrigðis- ráðherra og undirritaðs. Að lokum voru færð rök fyrir því og meðal annars stuðst við spár Heimsheils- unnar (WHO) bresku og bandarísku heilbrigðisstjórnanna að vænta mætti stöðnunar á kostnaði við heilbrigðisþjónustu og líklega lækk- unar vegna tækniþróunar á næstu 5-10 árum. Erfiðleikar okkar eru því líklega tímabundnir. Lagt var til að þjónustugjöld vegna barna væru lögð af og önnur þjónustugjöld alfarið sniðin eftir fjárhagsgetu fólks. Enn fremur að nokkru viðbótarfjármagni, þ.e. 1-2% aukningu, yrði varið til þess að mæta tímabundnum erfiðleikum og bæta mönnun sérgreinasjúkra- húsanna í því skyni að stytta bið- lista. Morgunblaðið virðist vera sam- mála undirrituðum um margt, með- al annars há þjónustugjöld, en nokkuð ber á milli varðandi frekari úrræði. I. Undirritaður telur ekki líklegt að einkavæðingin bæti ástandið. Til þess að svo megi verða skortir nægjanlegt neytenda-(sjúklinga)- aðhald, einfaldlega vegna þess að fólk almennt hefur ekki nægilega þekkingu á læknisfræði. Benda má á að fleiri OECD skýrslur sýna að heildarkostnaður við heilbrigðis- þjónustu er lægri meðal þjóða sem búa við samfélagslegan rekstur en þeirra sem reka þjónustu með einkatryggingum og einkaþjónustu, samanber t.d. Sviss og Bandaríkin. II. í öðru iagi þýða kaup fjár- sterkra einstaklinga á biðlistapláss- um brot á grundvallarreglum og líklega lögum. 1) í lögum nr. 97/1990 um heil- brigðisþjónustu er gert ráð fyrir að allir hafi jafnan rétt á bestu heilbrigðisþjónustu og aðbúnaði sem völ er á. 2) Samkvæmt siðalögmálum lækna ber þeim að láta læknis- fræðileg sjónarmið ráða um meðferð sjúklinga en ekki ijár- hag. 3) Hætta er á að hefðbundið jafnræði um aðgengi hverfi en það samræmist varla ríkri sam- kennd íbúa landsins. 4) Vart er þess að vænta að framleiðni aukist því að mann- afli og tæki virðast nýtast vel. Veruleg aukning fjarvista heil- brigðisstarfsfólks vegna streitu og þreytu gefur slíkt til kynna. III. Dæmin hræða. Gjarnan er vitnað í s.k. nýsjálenskt dæmi. Ékki kann ég skil á frásögnum stjórn- málamanna en treysti vel úttekt breska læknablaðsins. Þar kemur fram að 1991 hafi verið sett á stofn sjúkratrygging í fjór- um landshlutum Nýja- Sjálands. Mynduð voru fyrirtæki stóru sjúkrahúsanna sem áttu að sjá fólki fyrir þjónustu. Aðgerðirnar fólust í að: 1) Verðleggja þjón- ustu eins og sam- keppni við einkageir- ann leyfði. 2) Ná sem mestum tekjum frá öðrum en ríkinu. 3) Hámarka afköst starfsmanna og bún- aðar. 4) Hætta að veita þjónustu sem ekki gæti til fram- búðar staðið undir kostnaði! 5) Varast að gera meira en sam- ið hafði verið um að greiða fyrir. Hver hefur efni á, spyr Ólafur Ólafsson, að greiða milljón krónur fyrir kransæðaaðgerð? Afleiðingar þessarar stefnu voru slæmar. • Kostnaður vegna stjórnunar og rekstrarráðgjafar varð til þess að kostnaður við heilbrigð- isráðuneytið hækkaði um 70% frá 1991-1996. • Sjúklingum á biðlistum fjölg- aði um 50% á árunum 1993- 1996. • Tafir á læknishjálp vegna slysabóta og tekjutengdra bóta hafa valdið miklum útgjöldum. • Þau svið læknisþjónustunnar sem minni áhugi er á s.s. að- hlynning aldraðra og geðsjúkra hafa orðið harðast úti. Enda fylla þessir hópar ekki flokk kröfugerðarhópa. Líklegt er að þessir aðilar falli undir lið 4-5 hér að framan! • Nær 41% Ný-Sjálendinga hafa keypt sér einkatryggingar og helst þeir sem búa við bestu efnin. Ljóst má því vera að Ný-Sjálend- ingar hafa ekki haft erindi sem erfiði og aðgerðir þeirra eru ekki til eftirbreytni. Þess skal og getið að sums staðar á Norðurlöndum og jafnvel á íslandi (axlaraðgerðir) hefur einkarekstur skotið upp koll- inum án þess að hafa valdið straum- hvörfum. Hver hefur efni á greiða tæpa milljón fyrir kransæðaaðgerð eða ‘/z milljón fyrir liðskipti? Gæði læknisþjónustunnar hafa vissulega ekki rýrnað en ójöfnuður í þjónustunni og aukinn heildar- kostnaður hefur fylgt í kjölfarið. Við megum þó ekki gleyma að lög um almannatryggingar voru sam- þykkt fyrir 50 árum til þess að stuðla að jafnræði í þjónustunni og að þeir hefðu forgang sem mesta þörf hefðu fyrir þjónustuna. Niður- stöður margra kannana sýna að almenningur kýs slíkt fyrirkomulag og jafnframt að meira íjármagni sé varið til þjónustunnar. Grund- vallarreglurnar eru enn hafðar í hávegum þó að biðlistar bafi mynd- ast. Þeir veikustu hafa forgang til meðferðar. 01' langt mál yrði að ræða um breytingar í heilbrigðisþjónustu er verða í kjölfar hratt vaxandi tækni- og samskiptaþróunar á næstu 5-10 árum. En flest bendir til þess að við eigum við tímabundna erfiðleika að etja og við þeim verðum við að bregðast. Höfundur er landlæknir. Ólafur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.