Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C 11 STOFNAÐ 1913 103. TBL. 85. ARG. LAUGARDAGUR 10. MAI 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Mektardaga sovéska hers- ins minnst 5.000 rússnesk liðsforingjaefni gengu með sovéska fána á her- sýningu á Rauða torginu i Moskvu í gær þegar Rússar minntust sigursins á þýskum nas- istum í síðari heimsstyrjöldinni. „Hersýningin á Rauða torginu á sigurdeginum er tákn um holl- ustu rússneskra hermanna við hefðir hetjanna í föðurlandsstríð- inu mikla,“ sagði Borís Jeltsín, forseti Rússlands, þegar hann ávarpaði hermenn, gamlar stríðs- hetjur og fleiri gesti á torginu. „Það er heilög skylda rússneska hersins að varðveita og efla þess- ar hefðir." Fyrrverandi hermenn, sem börðust í stríðinu, klæddust sov- éskum herbúningum á sýning- unni, prýddir orðum sem þeir voru sæmdir fyrir þjónustu við sovéska herinn. Hermenn sem fóru fyrir fylkingunum á sýning- unni héldu á sovéskum borðum með vígorðum frá stríðinu. Að minnsta kosti 15.000 manns tóku einnig þátt í göngu á vegum kommúnista í miðborg Moskvu og mótmæltu áformum um að þjóðir, sem sovéski herinn frelsaði úr höndum þýskra nasista, fengju aðild að Atlantshafsbandalaginu. „Evrópuþjóðirnar standa í ævar- andi þakkarskuld við Sovétríkin," sagði Vasilí Golubev, 85 ára Rússi sem var sæmdur orðu fyrir hetju- lega framgöngu í orrustunni um Leníngrad, sem heitir nú Péturs- borg. Reuter Háttsettur bandariskur embættismaður Gegn, hagsmun- um Islands að hefja hvalveiðar MARSHALL P. Adair, varaaðstoð- arutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að bandarísk stjómvöld teldu að það þjónaði ekki hagsmunum íslands að hefja aftur hvalveiðar. Efnahags- lega væru Islendingar mun ber- skjaldaðri en Norðmenn þar sem ol- ía væri uppistaðan í utanríkisverslun þeirra síðamefndu. „Já, ég geri ráð fyrir því að við munum ræða um hvalveiðar við ís- lenska ráðamenn. Ég geri mér grein fyrir því að þessi mál hafa stundum snert snöggan blett í samskiptum okkar og einnig í samskiptum ykkar við önnur ríki,“ sagði Adair. ,Að okkar mati var það rétt ákvörðun af hálfu Islendinga að hætta hvalveiðum í atvinnuskyni og við vonum að Island gangi aftur til liðs við Alþjóðahvalveiðiráðið og noti þann vettvang til að takast á við þessi mál á uppbyggjandi hátt.“ Adair sagði að Bandaríkjamenn gerðu sér grein fyrir því að hvalveið- ar væra mikilvægt mál í augum Is- lendinga. „En við teljum það ekki þjóna hagsmunum Islands að hefja aftur hvalveiðar," sagði hann. „AÚt er breytingum undirorpið og á al- þjóðavísu hefur afstaða til hvalveiða breyst, sem jafngildir því að hval- veiðar í atvinnuskyni era ekki jafn- vænlegar og þær voru. Það er kalt mat mitt að ákvörðun um að hefja aftur hvalveiðar gæti haft áhrif á af- stöðu annarra ríkja og þjóða til ís- lands, a.m.k. til skamms tíma. Það gæti skipt sköpum fyrir viðskipta- hagsmuni þjóðarinnar. Ég er ekki að taka afstöðu til þess hvort veiðar séu réttlætanlegar eða ekki, um það era skiptar skoðanir, en við eram þeirr- ar skoðunar að mikilvægt sé að taka á málinu af raunsæi." Því hefur verið haldið fram að sú ákvörðun Norðmanna að hefja aftur veiðar hafi ekki bitnað á þeim og ekki hafi dregið úr útflutningi norskra sjávarafurða. „Við eram ekki sammála Norð- mönnum um lögmæti vísindaveiða og málið er stöðugt til umfjöllunar í gagnkvæmum viðræðum okkar. Þótt afleiðingar vísindaveiðanna kunni að hafa reynst minni en ætla mátti myndi dæmið hugsanlega líta allt öðravísi út ef um hvalveiðar í at- vinnuskyni væri að ræða. Og ég held að íslendingar séu miklu berskjald- aðri en Norðmenn þar sem olía er uppistaðan í utanríkisverslun þeirra síðarnefndu,“ sagði Adair. ■ NATO verður/22 Reuter Mobutu og Kabíla til viðræðna á ný Vangaveltur um að forsetinn muni ekki snúa aftur til Zaire Genf, Libreville. Reuter. MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire, og Laurent Kabila, leiðtogi upp- reisnarmanna, féllust í gær á að ræðast við í suður-afrísku herskipi á miðvikudag fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna. Búist var við að Mobutu flygi brott frá Gabon af fundi leiðtoga Mið-Afríkuríkja í gær, en vél hans stóð kyrr á flugbrautinni og haft var eftir stjórnarerind- rekum að hann mundi halda kyrru fyrir í Libreville í nótt. Krydd í tilveru Karls KARL Bretaprins hitti bresku popphljómsveitina „The Spice Girls“ við konunglega tónleika til söfnunar í sjóð prinsins í Óperuhúsinu í Manchester á Englandi í gærkvöldi. Tilefnið var að sjóðurinn var stofnaður fyrir 21 ári. Viðstöddum þótti mikið til koma þegar prinsinn ávarpaði stúlkurnar fimm í hljómsveitinni með gælunöfn- um þeirra áður en þær kysstu hann á kinnina. Þær voru ófeimnar við Karl og veittist þeim auðvelt að fá hann til að roðna, sérstaklega þegar ein þeirra sagði að hann væri sér- lega kynþokkafullur. Dæmdur fyrir að birta dagbækur Reuter. T0GER Seidenfaden, ritstjóri danska blaðsins Politiken, var í gær dæmdur í tuttugu daga fangelsisvist fyrir að hafa birt dagbækur Ritt Bjerregaard, sem situr í fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins, án samþykkis hennar, og er dómur- inn skilorðsbundinn. Seidenfaden var hins vegar ekki dæmdur til að greiða sekt, og kemur það dönskum lagasérfræðingum á óvart. Hyggst ritstjórinn áfrýja dóminum. Politiken hafði fengið birtingarrétt á kafla úr dagbókunum, sem átti að gefa út, en þegar hætt var við útgáf- una á síðustu stundu, vegna óvar- legra ummæla Bjerregaard um ýmsa evrópska stjórnmálamenn, ákvað ritstjó'n blaðsins að prenta bókina í heild sinni sem aukablað með Poiitiken. Kvaðst Seidenfaden hafa haft til þess „þögult samþykki" Bjerregaard. Því neitaði hún og höfðaði ásamt útgefanda sínum, Aschehoug, mál á hendur Seidenfaden, þar sem krafist var hálfs árs fangelsisvistar hið minnsta fyrir brot á höfundarrétti. Þá hefur Bjerregaard höfðað einka- mál á hendur Seidenfaden og krefur hann um 6,5 milljónir danskra ki'óna, um 70 milljónir ísl. kr., í bætur fyr- ir brot á útgáfurétti. Það mál hefur enn ekki verið tekið fyrir. Sögusagnir um að Mobutu hygð- ist ekki snúa aftur til Kinshasa fengu byr undir báða vængi þegar hann hélt ekki á brott frá Gabon, en sonur forsetans og talsmaður, Nzanga Mobutu, hélt því fram að hann færi heim í dag. Haft var eft- ir heimildarmönnum innan Sa- meinuðu þjóðanna að Frakkar hefðu samþykkt að veita Mobutu hæli, en frönsk stjórnvöld vildu engin svör gefa um málið. Thabo Mbeki, varaforseti Suður- Afríku, kom til Gabon í gærkvöld til að ræða við Mobutu, en fyrr í gær ræddi hann við Kabila í Lu- bumbashi í suðausturhluta Zaire. Engar tryggingar Hvorki Mobutu né Kabila gáfu neinar tryggingar fyrir því að fundurinn mundi eiga sér stað, en fyrri fundur þeirra bar engan árangur. Mobutu ræddi á fimmtudag við fimm Afríkuleiðtoga í Gabon. Að loknum viðræðunum var gefið út skjal þar sem Mobutu hvatti her Zaire til að undirbúa kosningar. Einnig var tekið fram að Mobutu, sem er með ristilkrabbamein, væri of veikur til að sækjast eftir kjöri sjálfur. í skjalinu var hins vegar hvergi minnst á Kabila, né að Mobutu mundi segja af sér og leyfa bráðabirgðastjórn eins og uppreisnarleiðtoginn hefur kraf- ist. Mobutu rændi völdum árið 1965 og hefur setið síðan. Árið 1990 lof- aði hann að haldnar yrðu kosning- ar. Það er hins vegar fyrst nú að hann hyggst efna loforðið, þegar skæruliðar hafa lagt undir sig þrjá fjórðu hluta landsins. Sameinuðu þjóðirnar sökuðu skæruliða í gær um að koma í veg fyrir að sérfræðingar samtakanna rannsökuðu ásakanir um að framið hefði verið fjöldamorð á flótta- mönnum Tútsa frá Rúanda í Zaire. Hútúar eru í meirihluta hjá skæru- liðum. Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að hefja rannsókn eftir að vitnisburður kom fram um að skæruliðar hefðu myrt 50 þúsund manns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.