Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVIK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARÍ)AGUR 10. MAÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK ASÍ og VSÍ óska eftir að afgreiðslu lífeyrisfrumvarps verði frestað til hausts Telja unnt að ná víðtækri sátt um aukinn sveigjanleika FORSVARSMENN ASI og VSI óskuðu eftir því við ríkisstjórnina í gær að afgreiðslu frumvarps um starfsemi lífeyrissjóða yrði frestað til hausts svo ráðrúm gæfist í sumar til að vinna að út- færslu á ákveðnum breytingum á frumvarpinu í samstarfí efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, aðila vinnumarkaðarins og annarra hagsmunaaðila og jafnframt að kynna málið. ASÍ og VSÍ telja eftir viðræður undanfarna daga að mögulegt sé að ná víðtækri sátt um aukinn sveigjanleika í kerfínu fyrir almennu lífeyris- sjóðina og séreignarsjóði. Fulltrúar ASI og VSÍ hafa á seinustu dögum kynnt hugmyndir um að í stað þess að lágmarks- viðmiðun fyrir samtryggingu lífeyrisréttinda verði ákveðin krónutala á mánuði verði miðað við svokallaða lágmarkstryggingavemd. Forsvars- menn samtakanna áttu fund með forsætis-, ut- anríkis- og fjármálaráðherra vegna málsins í gær. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis held- ur umfjöllun sinni um frumvarpið áfram á mánu- dag. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, segir að fulltrúar ASÍ, VSÍ og lífeyrissjóða og forsvarsmenn úr séreignarumhverfinu hafi ræðst við undanfarna daga og séu þeirrar skoð- unar að unnt sé að fínna lausn á málinu. Til að svo megi verða þurfi þó tryggingafræðilegar at- huganir að fara fram og kynna þurfí þau sjónar- mið sem nú eru uppi og afla þeim stuðnings. Ríkisstjórnin svarar eftir helgi Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir að undanfarið hafi verið unnið að breytingu á frumvarpinu og víðtækt samkomulag náðst um breytingartillögur sem efnahags- og viðskipta- nefnd hafi nú til umfjöllunar. „Það er að sjálf- sögðu fagnaðarefni að ASÍ og VSÍ skuli vilja opna fyrir meiri sveigjanleika fyrir einstaklinga í lífeyrismálum og vilji taka þátt í því að móta slíkar reglur. Þeir sögðust í samtali við okkur ráðherrana í morgun hins vegar þurfa tíma til þess annars vegar að kanna tryggingafræðileg- an grundvöll breytingartillagnanna og hins veg- ar að kynna tillögurnar í baklandinu hjá sér. Osk- uðu þeir þess vegna eftir fresti í málinu, þannig að það yrði skoðað í sumar og tekið aftur upp í haust og afgreitt fyrir áramót. Við munum að sjálfsögðu skoða þá ósk og ég geri ráð fyrir að henni verði svarað eftir helgi,“ segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. Enn grundvallarágreiningur um aðildarákvæðið Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýðu- sambandsins, segir að eftir viðræður seinustu daga séu aðilar vinnumarkaðarins þeirrar skoð- unar að skynsamlegast sé að vinna að málinu í sumar í samvinnu þingnefndar og þeirra aðila sem eigi hagsmuna að gæta, þannig að hægt verði að ná sátt um málið. Ari segir að þrátt fyr- ir þetta sé enn grundvallarágreiningur um 2. grein frumvarpsins, sem fjallar um aðild að líf- eyrissjóðum, því að með þeim tillögum sé ver- ið að ráðast á tilverurétt stéttarfélaga. „For- sendan fyrir því að hægt sé að ná sátt um sam- hengið á milli einkaspamaðar og sameiginlegs sparnaðar er að tillögunum um aðild í 2. grein verði breytt," segir Ari. Sátta- fundur á ísafirði SÁTTAFUNDUR hefúr verið boð- aður í dag á Isafirði í deilu Alþýðu- sambands Vestfjarða og vinnuveit- enda en engar viðræður hafa farið fram á síðustu tíu dögum. Geir Gunnarsson vararíkissátta- semjari fór til ísafjarðar í gær en hann mun stjórna sáttaumleitunum og kanna hvort grundvöllur sé fyr- ir því að koma viðræðunum í gang. Ekkert áþreifanlegt hefur þó kom- ið fram á seinustu dögum sem gefur sérstakt tilefni til að ætla að deilan muni leysast á næstunni, að sögn Þóris Einarssonar ríkissáttasemj- ara. Stjórnir Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Verkamannafélags- ins Hlífar hafa samþykkt að félags- menn þeirra megi hvorki ganga í störf verkfallsmanna á Vestfjörðum né vinna við afgreiðslu skipa sem að öðrum kosti hefðu landað á Vest- fjörðum. Samtök vinnuveitenda telja aðgerðirnar ólögmætar. ■ Verkfallsvarsla/6 Menntamála- nefnd Alþingis Háskóla- frumvarpi frestað MENNTAMÁLANEFND Al- þingis samþykkti á fundi sín- um í gær að fresta frekari um- fjöllun um frumvarp til laga um háskóla. Málið verður tek- ið upp að nýju á hausti kom- anda og segir Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður nefnd- arinnar, að samkomulag sé innan hennar um að afgreiða málið fyrir áramót. Frumvarpið miðar að því að sett verði rammalöggjöf um menntastofnanir sem veita æðri menntun. Þessir skólar hafa sent menntamálanefnd umsagnir sínar um frumvarp- ið. Skólarnir eru sammála um nauðsyn rammalöggjafar en benda á að skammur tími hafi gefist til að fara jafnítarlega yfir frumvarpið og nauðsyn krefji. ■ Háskóli íslands/32 Breskir kafarar kafa niður að flaki skelfiskbátsins Æsu IS Morgunblaðið/Ásdís KAFARARNIR Graham Murr og Alan House eru rúma klukkustund frá botni að yfirborði sjávar. Sex kafarar, tveir og tveir í senn, skiptast á um að kafa niður á 80 metra dýpi. Líftaugin bláa og rauða flytur loft, heitt vatn, símasamband, mynd og ljós. Uggeyingar á skátaþingi „ÍBÚAR Uggeyjar", átta ára bekkur úr ísaksskóla undir stjórn Herdísar Egilsdóttur kennara, komu fram við setn- ingu norræns skátaþings, sem hófst á Hótel Loftleiðum í gær. Uggeyingar hafa stofnað eigið lýðveldi og sungu þjóðsöng sinn á esperantó, klæddir þjóðbún- ingi Uggeyjar. Lýðveldisstofn- uninni er ætlað að búa unga fólkið undir að verða nýtir borgarar í alvöruþjóðfélagi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Tíu ferðir farnar niður á hafsbotn KAFARAR, sem fóru niður að skel- fiskbátnum Æsu IS, sem fórst í Arnarfirði í fyrrasumar, hafa fest taug í bátinn. Tilgangur köfunarinn- ar er að finna lík tveggja skipverja sem fórust með Æsu og að grafast fyrir um orsakir þess að báturinn sökk, að sögn Kristins Ingólfssonai’ verkeftiisstjóra og fulltrúa Siglinga- stofnunar. Kafai’amir eru sex og skiptast fjórir á að kafa niður að botni, tveir og tveir í einu, tvær ferðir á dag. Fyrsta ferðin var farin á uppstign- ingardag og festu þeir þá taug í skipið. Tveir þeirra fóru aðra ferð af tíu fyrirhuguðum niður að botni í gærmorgun. Athuguðu þeir um sex feimetra rými í vistarverum bátsins. í fyrstu ferð sinni í gærmorgun losuðu kafaramir olíutunnu sem var til trafala við athugunina og jafn- framt bjarghring sem aldrei kom upp á yfirborðið. Kafað verður niður að flakinu snemma í dag og athugun haldið áfram á vistarverum bátsverja. Æsa liggur á 80 m dýpi. ■ Kafað/4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.