Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 17 VIÐSKIPTI ÚRVERINU Unilever selur ICI deildir fyrir 8 milljarða dollara London. Reuter. ENSK-hollenzka matvæla- og neytendavörufyrirtækið Unilever Plc/NV hefur skýrt frá því að það muni selja alþjóðleg sérefnavöru- fyrirtæki sín risafyrirtækinu Im- perial Chemical Industries Plc fyr- ir 8 milljarða dollara. Aðalframkvæmdastjóri ICI, Charles Miller Smith, sagði að með þessum samningi mundi fyr- irtækið gerbreytast og verða óháðara sveiflukenndum sam- drætti þungra efna. Stjórnarformaður ICI, sir Ron- ald Hampel, sagði að með samn- ingnum yrði komið á fót „nýju ICI fyrir næstu öld“. Verð hlutabréfa í ICI komst í tæplega 760 pens, en þau seldust að lokum á 747 72 pens, sem er 33 pensa hækkun. Unilever sagði að hagnaður fyrirtækisins af sölunni fyrir skatta og kostnað yrði rúmlega 5 milljarðar dollara og mundi af- nema skuldir þess. Fyrirtækin, sem verða seld, eru National Starch & Chemical Co í Bandaríkj- unum, Quest International, Unic- hema International og Crosfield. Málið kannað í 12 mánuði Miller Smith, fyrrum fjármála- stjóri stjórnarformanns Unilever, Niall Fitzgerald, sagði að ICI hefði ekki kynnt sér sérefnavörugeirann fyrr en fyrir réttum 12 mánuðum. Kaupin væru „kjörið tækifæri til að breyta ICI og skapa mikil verð- mæti“. „Jafnvel þegar samdrátturinn stóð sem hæst skiluðu þessi fyrir- tæki hagnaði,“ sagði Miller Smith. Hann benti á að fyrirtækin væru mjög sérhæfð og einbeittu sér að svæðum í heiminum, sem væru í örum vexti, svo sem Asíu og Róm- önsku-Ameríku, og hefðu mikið úrval söluvöru á boðstólum. BERGUR G. Gíslason, sölustjóri hjá Ljósmyndavörum, Gísli Gests- son, framkvæmdastjóri, Júlíus S. Olafsson, forstjóri Rikiskaupa og Jón H. Asbjörnsson, verkefnastjóri hjá Rikiskaupum. Ríkið semur við Ljósmyndavörur NÝLEGA undirrituðu Ríkiskaup og Ljósmyndavörur ehf. ramma- samning um sölu á ljósmyndavél- um, ljósmyndavörum, myndbands- spólum og framköllunarþjónustu til nærri þrjú hundruð fyrirtækja og stofnana ríkisins, sem eru áskrifendur að rammasamningsút- boðum Ríkiskaupa. I frétt frá Ljósmyndavörum ehf. kemur fram að fyrirtækið telur að rammasamstarf við Rikiskaup geti leitt til lægra vöruverðs bæði fyrir áskrifendur að rammasamningun- um og aðra viðskiptavini, þar sem svo umfangsmikill samningur auð- veldi stærri innkaup og öflun magnafslátta hjá erlendum birgj- um fýrirtækisins. Ljósmyndavörur ehf. voru stofn- aðar árið 1974 og er m.a. umboðs- fyrirtæki Fuji Photo Film á ís- landi. Fyrirtækið er næst stæsti innflutningsaðili á íslandi á sviði ljósmyndatækni og hefur ennfrem- ur sérhæft sig í þjónustu við fram- köllunarfyrirtæki, segir ennfremur í frétt fyrirtækisins. Námskeið um markaði í Tævan og Kína ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskólans efnir til námskeiðs'um markaði fyrir sjávarafurðir tæki og tækni í Tæwan og Kína þann 12. maí nk. kl. 13-18. Námskeiðið verður haldið í samstarfi við Sjávarútvegsstofnun HÍ., matvæla- fræðiskor HÍ, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Útflutningsráðs íslands. Aðalfyrirlesari verður prófessor Bonnie Sun Pan sem er einn fremsti sérfræðingur Tæwan í matvæla- fræði sjávarafurða. Hún hefur um árabil stjórnað matvælafræðideild National Taiwan Ocean Unversity. Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um: Sjávarafurðir í matarmenningu Kína og Tæwan. Veiðar og vinnslu sjávarfangs. Þróun markaða fyrir sjávarafurðir. Innflutningsreglur, hömlur og leyfí. Gæðakröfur og eftirlit. Markaðsstarf og reynslu íslend- inga. Nýja möguleika á vöruþróun íslensks sjávarfangs fyrir Kína og Tæwan. Skráning og nánari upplýsingar veitir Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands 525-4923. Síldveiðar ganga enn erfiðlega Morgunblaðið/HMÁ SÚLAN EA var einna fyrst íslensku skipanna til að fá síld á þessari vertíð og er hér með nótina á síðunni á miðunum um siðustu helgi. Miklu landað af slöttum ÍSLENSKI nótaflotinn er nú að síld- veiðum í Síldarsmugunni en veiðar hafa aðailega verið innan færeysku lögsögunnar frá því þær hófust um síðustu helgi. Veður truflaði veiðarn- ar nokkuð nú í vikunni og þurftu mörg skip að fara í Iand með slatta. Síldin er enn nokkuð stygg og erfið viðureignar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins höfðu um sex skip landað fullfermi í annað sinn í gærmorgun. Slæmt veður gerði á miðunum eftir helgina og fóru þá flest skipin í land með slatta og því mörg skip sem enn hafa ekki fengið góðan afla. Arney KE var á leið inn á Djúpa- vog í gær með fullfermi, um 550 tonn, þegar Morgunblaðið hafði samband um borð. Karl Óskarsson, skipstjóri, sagði aflann hafa fengist í þremur köstum. „Við fengum þetta nær allt í einu kasti en búmmuðum tvisvar. Síldin er ennþá mjög stygg, stingur sér við minnsta rask og skip- in eru að beija í fullfermið með mörgum köstum. Hún er auk þess grindhoruð, er nær alveg átulaus en það má búast við að hún fari að fitna verulega á næstu dögum. Síldin sem fékkst um mánaðamótin maí-júní í fyrra var til dæmis mjög stór og falleg. Þetta er okkar önnur löndun, við lönduðum um 500 tonnum á mánudag og því má segja að við höfum verið nokkuð heppnir," sagði Karl. Mestu landað á Seyðisfirði Samkvæmt yfirliti Samtaka fisk- vinnslustöðva var í gær búið að landa samtals 14.400 tonnum úr norsk-íslenska síldarstofninum á vertíðinni. Gera má þó ráð fyrir að enn hafi ekki borist tilkynningar um einhveijar landanir. Langmest hefur verið landað hjá verksmiðju SR Mjöls á Seyðisfirði, 5.443 tonn- um, en um 2.100 tonnum hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan „ Sj ómannaafslátturinn hluti af kjörum sjómanna“ AÐALFUNDUR Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar, sem haldinn var í Reykjavík fyrir skömmu, mótmælir harðlega öllum áformum um niðurfellingu sjó- mannaafsláttar og varar við afleið- ingum þess. „Sjómannaafslátturinn er ótvL rætt hluti af kjörum sjómanna. í mörgum tilvikum hafa sjómenn í kjarasamningum sætt sig við lakari niðurstöður annarra mála vegna hans. Sjómenn hafa ennfremur, m.a. vegna sjómannaafsláttarins, verið undanskildir við afgreiðslu svokallaðra almennra félagsmáia- pakka sem allt annað launafólk í landinu hefur notið. Flest af því sem einstakir stjórnmálamenn hafa notað til réttlætingar þess að fella sjómannaafsláttinn niður er rök- leysa og lýsir oftast vanþekkingu viðkomandi," segir í ályktun um þetta efni. Fundurinn fagnar skýrslu Sigl- ingastofnunar Islands um stöðug- leika íslenskra fiskiskipa og því átaksverkefni sem samgönguráðu- neytið hefur sett af stað í kjölfar skýrslunnar og væntir þess að verk- efninu verði hraðað svo sem kostur er. Fótum troðnar skoðanir Skorað er á stjórnvöld að taka tillit til skoðana og reynslu þeirra manna, sem með áratuga vinnu sinni á fiskimiðum við ísland hafa meiri og betri þekkingu á ástandi fiskistofna og hafsvæða en nokkrir aðrir, m.a. með tilliti til samanburð- ar frá ári til árs. „Stjórnvöld hafa árum saman fótum troðið skoðanir þessara aðila hvort sem þeir hafa látið í ljós álit sitt um ástæðu til að auka við veiðiheimildir einstakra tegunda eða sett fram varnaðarorð um að draga beri úr veiðum ann- arra tegunda," segir m.a. í ályktun. Skorað er á stjórnvöld að heimila hvalveiðar að nýju þegar á þessu ári og skorað er sömuleiðis á sjávar- útvegsráðherra að auka þorskveiði- heimildir á yfirstandandi fiskveiði- ári, m.a. með tilliti til brottkasts á þorski. Hæsta mögulega verð Fundurinn skorar á alþingismenn að styðja framkomið frumvarp um afnám frjáls og óhefts framsals á veiðiheimildum ef ekki er um svoköll- uð jöfn skipti að ræða og virða þar með vilja mikils meirihluta þjóðarinn- ar sem fram kom í skoðanakönnun nýverið. Fundurinn skorar ennfrem- ur á þingmenn að beita sér fyrir því með öllum tiltækum ráðum að verð- myndunarkerfi á ferskum físki verði með þeim hætti að tryggt verði að ávallt fáist hæsta mögulegt verð fyrir fiskinn. Þá er skorað á mennta- málaráðherra að hraða sem mest má verða endurskipulagningu á skip- stjómamámi til samræmis við nú- tímakröfur. Jafnframt verði tryggt fjármagn til viðhalds og endurbóta á húsnæði Sjómannaskólans í Reykjavík í samræmi við úttekt sem gerð var á húsinu nýverið. „Við nú- verandi aðstæður á skipulagi náms- ins og ástandi skólahúsnæðisins er næsta víst að ungt fólk sýnir náminu ekki áhuga,“ segir í ályktun. Engey RE hætt veiðum við Falklandseyjar „Ekki verið ferð til fjár“ BRYNJÓLFUR Bjarnason, stjórnar- formaður Island Fisheries Holdings Ltd., sem gerði út skipin Tjald og Engey við Falklandseyjar, segir að líklega verði nokkurt tap á útgerð skipanna. Bæði skipin hafa hætt veiðum vegna aflabrests, að sögn Brynjólfs. Tjaldur er nú á leið til íslands en Engey RE á leið til Vigo á Spáni þar sem afli skipsins verður seldur en verðmæti hans er á bilinu 15-20 milijónir króna, að sögn Brynjólfs. „Heildardæmið verður síðan gert upp þegar skipið kemur heim og fyrr verður ekki ljóst hver heildar- kostnaður við þetta verkefni verður. En það er ljóst að eitthvert tap er á þessari útgerð, þetta hefur ekki segir stjórnar- formaður IFH verið ferð til fjár,“ segir Brynjólfur. Óviðunandi afli Tjaldur fór fjóra línuróðra við Falklandseyjar og Engey tvo róðra á smokkfisk. Smokkfiskvertíðin við Falklandseyjar hefst að fullum krafti í mars og stendur fram í lok maí. Brynjólfur segir að nú hafi heldur dregið úr veiðinni. „Aflinn var ekki nægur að okkar mati til að halda veiðunum áfram. Upphaflega var hugmyndin að Engey kláraði smokk- fiskveiðarnar en kannaði síðan möguleika á hvítfiskveiðum í júní. Við sáum hinsvegar enga ástæðu til að leggja út í slíkar tilraunaveiðar að svo stöddu og köllum skipið heim.“ Brynjólfur segir að veiðin hafi verið mun minni en gert var ráð fyrir og það sé meginástæða þess að nú hafi þeim verið hætt. „Við byggðum að miklu leyti á upplýsing- um, sem við höfðum frá spænskum togurum og línuskipum. Við náðum hinsvegar ekki sama árangri og það þýðir einfaldlega að tekjurnar verða ekki miklar. Því tókum við ákvörðun um að hætta veiðunum, meta stöð- una upp á nýtt og skoða vandlega hvert framhaldið verður," segir Brynjólfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.