Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 28
cna a Tcn/TTr>^TO»i^ 'ftS TCfir ÍAM nr HUOAOÍIAOUA T 28 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 AÐSEIMDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ Sneypuför ÞEIR fóstbræður Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra og Kristján Ragnarsson, hinn launaði áróðurs- stjóri útgerðarmanna, hafa ákveðið að efna til krossferðar gegn kröfu almennings um gjaldtöku fyrir einkaaf- not af fiskimiðunum. Skoðanakannanir benda til að um 75% þjóðarinnar styðji kröf- una um gjaldtöku fyrir einkaafnot af auðlind- inni. Krafan um réttlátari skiptingu arðsins en nú er, virðist vera framborin af vax- andi þunga. Krafan um gjaldtöku í almannaþágu fyrir einkaafnot af auðlindum í sameign þjóðarinnar verður fyrirsjáanlega stærsta málið í næstu kosningum. Þeir fóstbræður virðast gera sér grein fyrir þessu. Ýmislegt bendir til að þeir hafí ákveðið að beijast til seinasta manns gegn veiðileyfagjaldinu. Seinasti maðurinn verður líklega Bjami Hafþór Helgason, fjölmiðl- ungur, sem nýlega hefur verið ráðinn sem áróðursstjóri útvegs- manna Norðurlands. Karl Marx afturgenginn Þrautalending þeirra fóstbræðra virðist vera í því fólgin að leita í smiðju Karls Marx og freista þess að gefa arðránskenn- ingu hans nýtt líf með því að setja hana í nýjan búning. Sett er samasemmerki milli veiðileyfagjalds á út- gerð og arðráns á landsbyggðinni. „Peningamir fara suður“ - segir Bjami Hafþór. Þar með er blásið í glæður borgarastyrj- aldar sem á að reyna að vekja upp milli landsbyggðarfólks og höfuð- borgarbúa. En sjaldan verður hönd höggi fegin. Með því að vekja upp umræð- ur um tengsl veiðileyfagjalds á út- gerðaraðila og skattalækkunar í þágu almennings hefur þeim tekist að sanna, að tekjuskattur yfír land- ið allt gæti lækkað frá 22 þúsund kr. á íbúa og upp í 60 þúsund kr. á íbúa, eftir því hversu hátt veiði- leyfagjaldið væri. Landsmenn allir myndu njóta tekjuskattslækkunar- innar, hvar svo sem þeir em búsett- ir á landinu. Þannig hafa vopnin snúist í höndum þeirra fóstbræðra, eins og gjaman fer um menn sem grípa til örþrifaráða og sjást ekki fyrir. Það var satt að segja allt annað sem vakti fyrir sjávarútvegsráð- herra. Hann sneri sér til tveggja kennara við Háskóla íslands, sem báðir vom yfirlýstir andstæðingar veiðileyfagjalds. Ráðherrann bað þá um skýrslu um „Áhrif veiði- gjalds á skattbyrði einstakra lands- hluta“. Hagfræðingar hafa að sönnu af margvíslegum lærdómi að miðla um skattbyrði einstaklinga og fyrirtækja. En hitt mun teljast til nýjunga, hvort heldur er í hag- fræði eða skattalögum, að „lands- hlutar“ axli skattbyrði. Og þrátt fyrir góðan vilja til að þóknast verk- kaupanum með reiknikúnstum um landshlutaskatta, féllust háskóla- kennumnum hendur þegar kom að því að skilgreina niðurstöðurnar. Jón Baldvin Hannibalsson Sjálf niðurstaðan er nefnilega eftir- farandi, með þeirra eigin orðum. „Hins vegar er rétt að vara við því að túlka þessar niðurstöður sem mælikvarða á breytingar á persónu- legri skattbyrði á viðkomandi stöð- um. Væntanlega yrði veiðigjaldið greitt af útgerðarfyrirtækjunum." Og síðan kemur sú niðurstaða höfunda skýrslunnar, sem er óum- deild og fyrirvaralaus: Höfundarnir staðfesta að útgerðarfyrirtæk- in muni borga veiði- leyfagjaldið, en ein- staklingarnir njóta tekjuskattslækkunar, að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar. „Einstaklingar í hópi tekjuskatts- greiðenda myndu yfirleitt njóta skattalækkunar vegna lækkunar tekjuskatts." Afneitun Og leiðarahöfundur Morgun- blaðsins hefur þetta að segja um niðurstöðuna (6.5.97): „Það er ekkert gamanmál fyrir Háskóla íslands, að nafn skólans skuli lagt við plagg, sem er þess eðlis, að höfundar þess sjálfír vara við því að túlka niðurstöðurnar eins og þeir þó gera sjálfir að verulegu leyti.“ Og forstöðumaður Hagfræði- stofnunar Háskólans hefur þetta að segja um niðurstöðurnar í for- mála sínum: „Meðfylgjandi skýrsla getur því ekki falið í sér endanlegar niður- stöður um áhrif veiðigjalds á skatt- byrði eftir landshlutum." Og rektor Háskóla íslands sá sérstaka ástæðu til að árétta að niðurstöðurnar væru einkaskoðan- ir viðkomandi kennara og ekki bæri að leggja nafn háskólans við þær að neinu leyti. Einkaskoðanir kennaranna vora hins vegar vel kunnar áður. Þær em bara endur- prentaðar á kostnað sjávarútvegs- ráðuneytisins - þ.e. skattgreið- enda. Allt fór þetta því á annan veg en til var ætlast í upphafi. Von- andi hafa samt háskólakennararnir fengið sín höfundarlaun. En það verður að teljast lítilfjörlegur her- kostnaður í samanburði við a.m.k. 6 milljarða lækkun tekjuskatts allra einstaklinga i landinu - án tillits til búsetu. Höfundur er alþingismaður. Framtíðarhorfur norræna velferðarsamfélagsins SÍÐASTLIÐIÐ ár hefur undirritaður set- ið í starfshópi innan Norðurlandaráðs sem var falið greinarheitið að verkefni og gengið hefur undir nafninu Velferðarhópurinn". Hópurinn samanstend- ur af norrænum þing- mönnum úr þeim flokkahópunum sem starfa skipulega innan Norðurlandaráðs, emb- ættismönnum og sér- fræðingum. Undirrit- aður er fulltrúi hóps vinstri manna og um leið eini íslenski þing- maðurinn. Drög að áliti starfshóps- ins em nú í smíðum og verður því væntanlega fylgt eftir með funda- og ráðstefnuhaldi á norrænum vettvangi í kjölfarið. Tilhögun starfsins Starfíð hefur farið fram með þeim hætti að kalla eftir upplýsing- um frá öllum Norðurlöndunum um það sem efst er á baugi í velferðarmálum hjá hveiju landi um sig. Einnig hefur hópurinn fengið á fund, eða til að vinna fyrir sig efni, fjölda sérfræðinga frá öllum Norðurlandanna sem vinna við vel- ferðarþjónustu, fást við rannsóknir og kennslu í háskólum eða starfa í stjórn- sýslu. Þar á meðal hef- ur Gestur Guðmunds- son félagsfræðingur unnið greinargerð fyrir hópinn auk þess sem m.a. félagsmálaráðu- neytið íslenska hefur lagt til gögn. Nærri má geta að geysilega fróð- legt hefur verið að taka þátt í þessu starfí og eiga þess kost að hlusta á ýmsa helstu sérfræðinga á Norð- urlöndum íjalla um málið. Helstu niðurstöður Eins og áður sagði hefur starfs- hópurinn ekki enn skilað endanleg- um niðurstöðum. Engu að síður liggja ákveðin meginatriði orðið til- tölulega ljóst fyrir og er ekki úr vegi að nefna nokkur þau helstu: • Þrátt fyrir veralegar hremming- ar, sparnað og niðurskurð á undan- fömum áram, vegna efnahags- þrenginganna sem gengið hafa yfír öll Norðurlönd utan helst Noreg, heldur norræna velferðarkerfið (norræna módelið) enn eðli sínu og sérkennum. Kerfíð tekur til allra, tryggir mönnum jafnan rétt og er í aðalatriðum rekið af hinu opin- bera, greitt af opinberu fé o.s.frv. Þrátt fyrir þónokkur sérkenni í hveiju landi fyrir sig era þessi megineinkenni hins norræna vel- ferðarsamfélags sameiginleg og enn til staðar. • Framtíðarhorfur velferðarsam- félagsins eru tvísýnar. Koma þar til m.a. erfiðleikar í ríkisfjármálum, en þó enn frekar breytt aldurssam- setning (hlutfallslega fleiri aldraðir) á næstu áratugum. Ljóst er að skattbyrði mun þyngjast og/eða útgjöldin verða að takmarkast á komandi áratugum samfara því að Geysilega fróðlegt hefur verið að taka þátt í þessu starfi, segir Steingrímur J. Sigfús- son, en hann hefur setið í „Velferðarhópi“ Norð- urlandaráðs sl. ár. aldurspíramítinn breytist. Jafnvel hinn olíuríki Noregur, þar sem ríkis- sjóður er nú rekinn með talsverðum afgangi, mun samkvæmt þarlend- um kynslóðarreikningum lenda í þessum vanda. Miklu skiptir að vísu hvaða leið þjóðimar hafa valið til að greiða lífeyri, þ.e. leið gegnum- streymis eða sjóðsuppbyggingar. Þar standa íslendingar þjóða best að vígi vegna uppbyggingar lífeyr- issjóðakerfísins hér, sjóðsmyndunar í samtryggingarsjóðum sl. u.þ.b. 30 ár og svo lengi sem þessu kerfí verður þá ekki spillt. • Unga kynslóðin lítur málið nokkuð öðrum augum en þeir sem eldri eru og þekkja af eigin raun eða úr meira návígi krappari kjör fyrr á öldinni. Orð eins og lífs- gæði, frítími, tómstundir o.s.frv. eru algeng meðal ungs fólks en velferð síður, enda tekin sem sjálf- gefin. Spyija má hvort hinn óskrif- aði sáttmáli kynslóðanna, að for- eldrar komi börnum sínum á legg, börnin uppkomin hjálpi öldruðum foreldrum sínum o.s.frv., sé í hættu. • Atvinnuleysið er tvímælalaust alvarlegasta ógnunin sem steðjar að norræna velferðarsamfélaginu. bæði atvinnuleysið í sjálfu sér sem böl þeirra er fyrir verða, en einnig félagsleg áhrif þess og útgjöld fyr- ir hið opinbera. Baráttan gegn at- vinnuleysi og fyrir fullri vinnu er því óaðskiljanlegur hluti varðstöð- unnar um velferðarkerfið. Það hvernig við glímum við atvinnu- leysið meðan það varir er einnig mikilvægt. Tiltekinn forgangur ungs fólks, endurmenntun og þjálf- un, styttri vinnuvika til að dreifa LISTMUNAUPPBOÐ í Gullhömrum, húsi Iðnaðarmannafélagsins Hallveigastíg 1.11. maí kl. 20.30. Sýning uppboðsverka í dag og á morgun kl. 10.00-18.00. BORG Aðalstrætí 6, Sími 552 4211. Steingrímur J. Sigfússon þeirri vinnu sem er til staðar eða skiptivinna (deling af arbejde) eru allt atriði sem eru á dagskrá í þessu sambandi. • Þrátt fyrir almenna velmegun og háar þjóðartekjur á Norðurlönd- um er aukin fátækt, eðli og afleið- ingar til umræðu. Mælt á tiltekna mælikvarða hleypur hlutfallsleg fátækt (relativ) á tölum nálægt því frá 5 til 10-12%. Þessar tölur end- urspegla að einhveiju leyti vaxandi tekjumun en einnig áhrif atvinnu- leysis (t.d. Finnland) og niðurskurð velferðarþjónustunnar. • Þó að Norðurlönd hafí verulega sérstöðu í velferðarmálum era þau ekki eyland. Þegar gætir áhrifa af inngöngu eða aðlögun landanna að Evrópureglum á þessu sviði. Utanaðkomandi pólitískir straum- ar hafa áhrif, innflytjendur, mót- taka flóttamanna og glíman við fleiri vandamál samtímans sem ekki virða landamæri, allt hefur þetta sitt að segja. Norræna velferðarsamfélagið hefur gengið í gegnum þrengingar undanfarin ár. Það hefur glímt við innri jafnt sem utanaðkomandi vandamál. Það hefur tekið breyt- ingum og það stendur frammi fyr- ir erfiðum úrlausnarefnum á næstu áram og áratugum eins og vax- andi hlutfallslegum fjölda aldraðra. En norræna velferðarkerfið (mód- elið) er enn til staðar og heldur að mestu sérkennum sínum. Um mikilvæga grundvallarþætti þess virðist, enn sem komið er a.m.k., vera tiltölulega breið pólitísk sam- staða og vonandi verður svo áfram. Ýmsir hafa þó áhyggjur af vax- andi sérhyggju og minni sam- ábyrgðartilfínningu gagnvart þeim sem orðið hafa undir í samfélag- inu. Stjórnmálabaráttan hafi þró- ast í átt til miðlægari áherslna, einkum frá vinstri og spyija megi, hver ætlar að verða málsvari hinna óskólagengnu, atvinnulausu og fá- tæku, jafnvel aldraðra á næstu öld? Eru að verða til útlægir, gleymdir hópar í samfélaginu á sama tíma og allir vilja tala máli þeirra sem era vel menntaðir, á góðum aldri, heilsuhraustir o.s.frv.? Vonandi þora Norðurlönd áfram að fara eigin leiðir í þessum efnum og vera öðrum fyrirmynd, góð fyrirmynd. Höfundur er alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið & Norðurlandi eystra, situr í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og á jafnframt sæti ístarfshópi Norðurlandaráðs um velferðarmál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.