Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 2

Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 2
2 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ólögleg þátttaka sjó- manna í kvótakaupum Gefur rétttil verkfalls ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra segir að ef sjómenn séu látnir taka þátt í kvótakaupum á skjön við kjarasamninga og lög séu þeir sjálfir óbundnir af því að efna ákvæði samninga. Stjómar- andstæðingar á Alþingi túlkuðu svar hans sem að sjómönnum væri heimilt að boða til verkfalls ef gengið væri á rétt þeirra á þennan hátt. Þetta kom fram í utandag- skrárumræðum á Alþingi í gær. Sighvatur Björgvinsson, þing- flokki jafnaðarmanna, var upp- hafsmaður umræðunnar. Hann sakaði forystumenn Landssam- bands íslenskra útvegsmanna um að hvetja félagsmenn til að ganga gegn dómsniðurstöðu Félagsdóms um kvótakaup sjómanna. Vísaði hann í því sambandi til greinar Jónasar Haraldssonar, lögmanns LÍÚ í fréttabréfi samtakanna, þar sem Sighvatur sagði að fram kæmu leiðbeiningar um hvemig væri hægt að komast framhjá dómnum. Kristinn H. Gunnarsson, Al- þýðubandalagi, sagði að besta leið- in til að koma í veg fyrir þátttöku sjómanna í kvótakaupum væri að draga úr framsali veiðiheimilda. Hann sagði einnig að ef veiðileyfa- gjaldi væri komið á mætti búast við því að sjómenn yrðu einnig látn- ir taka þátt í að greiða það og þannig ykist vandinn enn. ---» ♦ ♦-- Hljómar vel í göngunum KARLAKÓR Reykjavíkur próf- aði hljómburðinn í Vestfjarða- göngunum þegar hann var á ferð um norðanverða Vestfirði í gær og sagði Friðrik S. Kristinsson stjórnandi að hann væri feikn góður. Kórinn söng víða og kom m.a. að Gerðhömrum þar sem stofnandi kórsins, Sigurður Þórðarson, var fæddur. Ríó tríó dæmt til bótagreiðslu í Hæstaréttí Leikkona fær bætur vegna samningsrofs HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavík- ur og dæmdi félagana í Ríó tríói til þess að greiða Ólafíu Hrönn Jónsdóttur leikkonu 390 þúsund króna skaðabætur með dráttar- vöxtum frá því í apríl 1995, auk 150 þús. kr. í málskostnað fyrir uppsögn á samningi sem þau höfðu gert um að Ólafía Hrönn kæmi fram í skemmtidagskrá Ríó tríós- ins á Hótel Sögu veturinn 1995. Samningur hafði verið gerður milli tríósins og hótelsins um skemmtidagskrá frá 18. febrúar til 13. maí með möguleika á fram- lengingu og lauk sýningum 31. maí. Eftir að Ólafía Hrönn hafði tekið þátt í tveimur sýningum var henni tilkynnt 9. mars að ákveðið hefði verið að hún yrði ekki leng- ur með. Af hálfu tríósins var haldið fram að uppsögnin hefði byggst á því að nauðsynlegt hefði reynst að hefla sýninguna fýrr um kvöldið en áætlað hafði verið, eða á sama tíma og Ólafía Hrönn var að leika í Þjóðleikhúsinu í leikritinu Taktu lagið Lóa. Leikkonan krafðist bóta og taldi sig hafa samið um þátttöku í dag- skránni allan umsaminn tíma og að fýrirfram hefði verið vitað um leik hennar í Þjóðleikhúsinu og hefði stjómandi sýningarinnar á Sögu m.a. fengið sýningum Þjóð- leikhússins flýtt um hálftíma vegna þátttöku Ólafíu Hrannar í sýningu Ríó tríósins. Ólögmæt slit samnings Héraðsdómur féllst á kröfu Ólafíu Hrannar og Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms í gær. í dóminum segir að tríóið hafi ekki sannað þá staðhæfingu sína að samningur þess við Ólafíu Hrönn hafi einungis verið til reynslu eða að heimilt væri að slíta honum með tilteknum fyrir- vara. Telur Hæstiréttur að leggja verði til grundvallar að leikkonan hafi mátt gera ráð fyrir að taka þátt í dagskránni til maíloka og því hafi tríóið með ólögmætum hætti slitið samningi sínum við hana. Niðurstaða héraðsdómara um 390 þús. króna skaðabætur var staðfest en auk þess voru Óiaf- íu Hrönn Jónsdóttur dæmdar 150 þús. kr._ í málskostnað úr hendi þeirra Ágústs Atlasonar, Helga Péturssonar og Ólafs Þórðarson- ar, meðlima Ríó tríós. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson Tugir heimila og fyrirtækja í Keflavík símasambandslausir Undanþágu fyrir Good Moming America synjað Á FJÓRÐA tug heimila og tugir fyrirtækja í Keflavík, þar á meðal hótelið þar og fiskvinnslur, hafa verið símasambandslausir frá því um miðjan dag á fimmtudag eftir að símastrengur slitnaði við jarð- vegsframkvæmdir. Ekki hefur fengist undanþága hjá verkfalls- nefnd Rafiðnaðarsambands ís- lands og Félags símsmiða til við- gerða. Á meðal annarra fyrirtækja sem eru símasambandslaus er versl- unarmiðstöð í Hafnarfirði eftir skemmdarverk sem unnið var á símatengingum, auk nokkurra staða til viðbótar. Hætta hugsanlega við Verkfallsnefndin hefur heimilað undanþágur fyrir ýmsar stofnanir og einstaklinga, þar á meðal sím- kerfi Sjúkrahúss Reykjavíkur og hjúkrunarfræðing á Borgarfirði eystra. Beiðni um undanþágu vegna beinnar útsendingar bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC sem stefnt var að í næstu viku var hins vegar synjað, en stöðin ætlaði að senda út hinn vinsæla þátt Good Moming America frá Bláa lóninu og Reykjavík. Hrefna Ingólfsdóttir blaðafull- trúi Pósts og síma segir að fyrir- tækið muni að sjálfsögðu annast miðlun á efni þáttarins til áhorf- enda í Bandaríkjunum ef verkfallið leysist tímanlega, en forráðamenn ABC séu annars vegar að kanna möguleika á að flytja búnað hingað til lands sem geri kleift að senda þáttinn út án milligöngu P&S og hins vegar að hætta við komuna hingað til lands. Útsending fyrir milljarð „Póstur og sími myndi undir eðlilegum kringumstæðum taka við merkjum frá þáttargerðar- mönnum og senda áfram upp í gervihnött en haldi verkfallið áfram er möguleiki á að tvær gervihnattastöðvar verði fluttar hingað á vegum ABC, önnur til sendingar og hin til móttöku. Hætti þeir aftur á móti við að koma verður P&S ekki fyrir neinu fjárhagslegu tapi, en öðru máli gegnir um landkynninguna sem þátturinn hefði í för með sér,“ seg- ir hún. Fyrirhuguð útsending Good Moming America er tveggja tíma löng og þykir hafa mikið landkynn- ingargildi. Norðmenn hafa metið verðmæti samsvarandi útsending- ar frá Noregi á um einn milljarð íslenskra króna. Hrefna segir verkfallið hafa haft víðtæk áhrif og þar vegi þyngst óþægindi fyrir símnotend- ur. Til dæmis hafi myndast langir biðlistar eftir flutningi á síma og einnig hafi símar i heimahúsum bilað sem ekki sé gert við. Hins vegar hafí ekki komið upp alvar- legar bilanir sem valdi vanda, að biluninni í Keflavík undanskilinni. Vandi að reikna út hækkun bóta HÆKKUN'á bótum almanna- trygginga í samræmi við launa- breytingar á vinnumarkaði er í undirbúningi, en að sögn Þór- is Haraldssonar, aðstoðar- manns heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra liggur ekki ljóst fyrir hvenær málið verður afgreitt frá ríkisstjórninni. Hann segir að verið sé að gera útreikninga á þeim kjarasamn- ingum sem þegar hafa verið gerðir og reyna að heimfæra breytingarnar inn í almanna- tryggingakerfið, en það sé hins vegar ekki auðvelt. „Það eru mörg atriði í þessum samningum sem passa alls ekki inn í greiðslukerfi almanna- trygginga, t.d. að færa laun nær töxtum, vinnutímasamningar o.s.frv. Þetta er metið til launa- hækkana, en það er hins vegar spuming hvemig hægt er að meta þetta inn í almannatrygg- ingakerfið," sagði Þórir. Væntanlegar hækkanir á greiðslum almannatrygginga verða, að sögn Þóris, afturvirk- ar frá þeim tíma sem nýir kjarasamningar gilda. Hættað sjónvarpa á breiðbandi PÓSTUR og sími hætti í gær- kvöldi dreifingu efnis Stöðvar 2 og Sýnar á breiðbandinu, en þá rann tímabil áskriftar að sjónvarpsrásunum út. Eitthvað var um að áskrifendur, sem voru tengdir breiðbandinu, væm ekki búnir að fá sér loft- net til að taka við hefðbundnum útsendingum og sætu því við myndlausan sjónvarpsskjá. Hannes Jóhannsson, tækni- stjóri Stöðvar 2, segir að aug- lýst hafí verið að breiðbands- sendingum yrði hætt og bréf send til þeirra, sem búi á svæð- um þar sem breiðbandið sé tengt. Margir hafí snúið sér til fyrirtækisins og fengið loftnet til að ná hefðbundnum útsend- ingum. Gengfu þvert fyrir flugvél TVEIR ölvaðir menn voru handteknir í gærmorgun fyrir að ganga þvert yfir flugbraut á Reykjavíkurflugvelli. Menn- irnir gengu þvert á stefnu flugvélar frá Islandsflugi sem var að undirbúa flugtak, en starfsmenn í flugturni náðu að stöðva vélina. Mennimir fóru inn á völlinn um hlið aftan við Hótel Loft- leiðir. Að sögn starfsmanns flugstjómar ætluðu þeir að stytta sér leið að innanlands- deild Flugleiða. Við hliðið er skilti þar sem öll óviðkomandi umferð um flugvöllinn er bönnuð. Mikil hætta stafar af fótgangendum á flugbrautum og segir starfsmaður flug- stjórnar að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. MEÐ Morgunblaðinu í dag er dreift 24 síðna blaðauka um húsið og garðinn, sem fylg'r sunnudagsútgáfu Morgun- blaðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.