Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 46

Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 46
46 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Leikgleðin í fyrirrúmi HESTAR Sö r1a vc11 i r í II a í n a r fi r ö i HRÓA HATTAR-MÓT SÖRLA Í HAFNARFIRÐI, á vegum hesta- mannafélagsins Sörla, hefur um ára- bil verið haldið Hróa hattar-mót fyr- ir börn, unglinga og ungmenni og var eitt slíkt haldið fyrir skömmu. Mót þetta hefur vaxið og dafnað með hveiju árinu og keppendum farið fjölgandi. Að keppni lokinni hafa keppendur fengið fría pítsu og pepsí með í boði Hróa hattar. Keppnin sem að venju var haldin að Sörlavöllum var fjörleg og spenn- andi og keppnis- og leikgleðin í fyr- irrúmi. Úrslit Hróa hattar-mótsins urðu annars sem hér segir: Ungmenni Glæsilegasta parið: Sigríður Pjet- ursdóttir, Sörla, á Rómi. 1. Jóhanns Ármannsson, Sörla, á Kolbaki. 2. Hulda Jóhannssdóttir, Andvara, á Aski. 3. Unnur 0. Ingvadóttir, Sörla, á Ými. 4. Davíð Friðjónsdson, Sörla, á Hugin. 5. Bima Káradóttir, Sörla, á Gusa. Ásetuverðlaun: Hrafnhildur Guð- rúnardóttir. Unglingar Glæsilegasta parið: Daníel I. Smárason, Sörla, á Seið frá Sig- mundarstöðum. 1. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á ísak. 2. Ingólfur Pálmason, Sörla, á Glóa. 3. Hinrik Þ. Sigurðsson, Sörla, á Þokka. 4. Kolbrún Skagfjörð, Mána, á Úa. 5. Pétur Sigurjónsson, Sörla, á Kilj- an. Ásetuverðlaun: Gunnar Ö. Einars- son, Mána, á Halifax. Börn Glæsilegasta parið: Berglind R. Guðmundsdóttir, Gusti, á Fjöður frá SIGRÍÐUR Pjetursdóttir á Rómi en þau voru valin glæsilegasta parið í ung- mennaflokki. Svignaskarði. 1. Margrét Guðrúnardóttir, Sörla, á Muggi. 2. Þórunn Hannesdóttir, Andvara, á Fáfni. 3. Berglind K. Sigurðardóttir, Sörla, á Hugin. 4. Ingi H. Hilmarsson, Andvara, á Krumma. 5. Bylgja Gauksdóttir, Andvara, á Goða. Ásetuverðlaun: Svandís D. Einars- dóttir, Gusti, á Ögra. Pollar Glæsilegasta parið: Ómar Á. The- ódórsson, Sörla, á Rúbín. 1. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Árvakri. 2. Birkir R. Þorvaldsson, Sörla, á Dímoni. 3. Viðar Hauksson, Herði, á Dís frá Helgafelli. 4. Linda R. Pétursdóttir, Herði, á Árvakri. 5. Sandra L. Þórðardóttir, Sörla, á Spaða. Ásetuverðlaun: Hreiðar Hauksson, Andvara, á Kuida. Valdimar Kristinsson BMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG <§) ÍSLANDS MfíRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Laugardagur 10. maí kl. 10.00 Fuglaskoðunarferð á Suður- nes. Verö 1.800 kr. Sunnudagur 11. maí kl. 10.30 Þingvallavatn, lífríki, fuglar, fiskar. Ekið kringum vatnið, stansað á vel völdum stöðum. Leiðbeinandi: Sigurður Snorra- son, líffræðingur. Verð 1.500 kr. Brottför í ferðirnar frá BSÍ, aust- anmegin og Mörkinni 6. Sjá textavarp bls. 619. Gerist félagar ( F.í. á afmælisári! Dalvegi 24, Kópavogi Almenn samkoma í dag kl 14.00. Allir hjartanlega velkomnir. Lærið ensku í sumarfríinu Bournemouth International School. Viðurkenndur skóli — dægilegt umhverfi. Upplýsingar hjá Sölva Eysteins- syni í síma 551 4029. TILKYNNINGAR Auglýsendur athugið breyttan skilafrest! Auglýsingatexta og/eða tilbún- um atvinnu-, rað- og smáauglýs- ingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaöinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudag. Fjallasyrpa Útivistar Spennandi dagsferðir sunnu- daginn 11. maí. Fjallganga. Gengið er á Mó- skarðshnjúka upp frá Hrafnhól- um. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Árganga. Gengið er frá Leirv- ogsvatni og niður með Leirv- ogsá. Brottför er frá BSÍ kl. 10.30. Netslóð: http://www.centrum.is/ Útivist Auglýsingadeild Sími 569 1111 simbréf 569 1110 netfang: augl@mbl.is YMISLEGT Leiklistar- stúdíó Eddu og Gísla Vornámskeið í framsögn og tjáningu eru að hefjast. Símar 5812535 og 5882545. FRETTIR Handverkssýning á Garðatorgi Stóð- hestar á mynd- bandi Kvikmyndafélagið Sleipnir hefur gefið út myndbands- spólur sem hafa að geyma sýningar stóðhesta sem fram komu á fjórðungsmótinu á Gaddstaðaflötum annarsveg- ar og hinsvegar nýafstaðinni sýningu á stóðhestastöðinni. Kvikmyndasljóri á báðum myndunum er Bjarni Þór Sig- urðsson og fyrrnefnda spólan er 130 mínútur, en tímalengd hins síðarnefnda er ekki gefin upp en 35 stóðhestar koma þar fram. ÚTKOMU og vinnslutími þessara tveggja mynda er ólíkur, fjórðungsmótsmyndin kemur út um tíu mánuðum eftir að móti lauk en stóð- hestastöðvarmyndin kemur út kvöldið sama dag og sýningin er haldin. Að vísu eru mynd- skotin ekki tekin á laugar- dagssýningunni. Fyrra dæmið er að sjálfsögðu mjög slæmt, sér í lagi fyrir framleiðandann sem þarf að selja sína vöru en einnig fyrir hestaunnendur sem vilja stúdera stóðhestana sem fram komu á fjórðungs- mótinu. I báðum tilvikum eru myndskotin frá einstaklings- dómum en í stóðhestastöðvar- myndinni er skotið inn mynd- skeiðum frá yfirlitssýningu í þeim tilvikum sem hestarnir hafa verið að bæta einkunnir sínar. Þannig á að vera tryggt að seinni myndin sýni þau augnablik sem hæfileikaein- kunnir grundvallast á. Þá eru hestarnir sýndir hnakklausir í kyrrstöðu sem gefur mögu- leika á að velta byggingu fyr- ir sér. Að sjálfsögðu gefur það misjafnlega góða mynd af sköpulagi hrossanna en betra en ekki neitt. í báðum myndum er þuli gefið frí en aðeins leikin létt bakgrunnstónlist auk þess sem kynnt er með texta þegar nýr hestur birtist á skjánum. Með fylgir handhægt rit með öllum upplýsingum, nafn, fæðingarstaður, eignarhald, ætt, einkunnir og kynbóta- matseinkunnir hestanna. Fyrst í stað virtist þetta hálf- strípað að hafa engan þul en eftir smáskoðun virðist það koma betur út þótt ekki virð- ist það koma fram í lægra söluverði myndanna því vissu- lega hlýtur þetta fyrirkomu- lag að minnka kostnað. Mikill fengur er að útgáfu á spólum sem þessum. Má þar nefna að þeim sem ekki auðn- ast að sjá hestana í dómi geta þarna séð þá á mynd. Útgáfa sem þessi veitir dómurum mikið aðhald, sérstaklega ef snaggaralega er staðið að út- gáfunni eins og í seinna tilvik- inu. Viðbrögð manna á sýn- ingum eru oft óvægin saman- ber frammistöðu Gusts frá Grund á stóðhestastöðvarsýn- ingunni og háar einkunnir sem hann fékk. Þegar svo grannt er skoðað á myndinni má glöggt sjá að töltið var ekki eins gallað og margir vildu vera láta. Þá geta mynd- ir sem þessar gegnt mikil- vægu hlutverki í vali manna á stóðhestum fyrir hryssur sínar. Af þessum sökum eru þær mjög kærkomnar hjá þeim mikla fjölda sem fylgist með og hefur áhuga á hrossa- rækt og kynbótastarfi. Valdimar Kristinsson HANDVERKSFÓLK verður með sýningu á Garðatorgi í dag og á morgun, en hefð er komin á sýn- ingar þess þar aðra helgina í hveijum mánuði. Þar má finna margvíslegan handunninn varn- ing svo sem málverk, leirvörur, Tilnefndur til umhverfisverð- launa Norður- landaráðs EINAR Einarsson vélstjóri, Stuðla- seli 31, Reykjavík, hefur verið til- nefndur til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Var hann til- nefndur fyrir vinnu sína að þróun dekkjanagla sem valda umtalsvert minna sliti á malbiki en hefðbundn- ir naglar. Umhverfisverðlaun Norður- landaráðs hafa tvisvar verið veitt áður. í fyrra hlutu þau grænlensk umhverfissamtök en árið 1995 hlaut þau sænskur líffræðingur. í ár verða verðlaunin veitt fyrir þróun framleiðsluferlis eða vöru sem hefur í för með sér verulega umhverfis- bætandi áhrif. Naglar þeir sem Einar hefur þró- að slíta malbiki aðeins að einum ijórða á við þá nagla sem nú eru notaðir. Jafnframt virðist hávaði af þeirra völdum vera minni. Þeir skapa þó sambærilegt viðnám á ís og hefðbundnir naglar, a.m.k. við allar venjulegar aðstæður. Með því að tilnefna Einar til umhverfisverðlaunanna vill Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur leggja sitt af mörkum til að flýta því að dregið verði úr mengun af völdum nagladekkja. Afmælishátíð í Ævintýra- Kringlunni HALDIÐ er upp á tveggja ára af- mæli Ævintýra-Kringlunnar í dag. Opið verður frá kl. 10-16 og frítt inn allan daginn. Farið verður í leiki, sungið og dansað. Allir sem vilja geta látið mála sig. Boðið verður upp á sælgæti og síðast en ekki síst verð- ur frítt inn á leiksýningu kl. 14.30. Það verður Sjónleikhúsið sem sýnir barnaleikritið Bangsaleikur. Höfundur er Illugi Jökulsson. Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Edda Björnsdóttir. Höfundur tónlist- ar er Guðni Franzon. Búningahönn- uður er Helga Rún Pálsdóttir. Leik- arar eru Stefán Sturla Siguijónsson og Jakob Þór Einarsson. Sýningar- tími er rúmar 30 mínútur og allir eru velkomnir. Kaffisöludagur Kvenfélags Grensáskirkju HIN árlega kaffisala Kvenfélags Grensáskirkju verður sunnudaginn 11. maí kl. 15 og er í safnaðarheimil- inu við Háaleitisbraut. Messa dags- ins er kl. 11 í nýju kirkjunni. Allt safnaðarfólk og aðrir velunn- arar Grensáskirkju eru hvattir til að mæta. ýmis konar trévörur, postulín, glervörur, vefnað og ýmislegt fleira. Opið verður frá klukkan 10-18 í dag, laugardag, og 12-18 á morgun sunnudag. Kvenfélag Garðabæjar sér um kaffiveiting- ar. Messukaffi * Arnesinga- félagasins í Askirkju MESSA verður í Áskirkju sunnudag- inn 11. maí kl. 14. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, sóknarprestur, predikar og kór og organisti kirkj- unnar annast tónlistarflutning. Eftir messuna er messukaffi í boði Árnesingafélagsins í Reykjavík. Undir borðum verður sitthvað sér til gamans gert í tali og tónum. Árnesingum í Reykjavík og öðrum velunnurum félagsins er bent á að nota þetta tækifæri til að hitta gamla sveitunga, frændur og vini. Fyrirlestur um handverk KRISTIN Boström, landsráðunautur í heimilisiðnaði fyrir böm og unglinga í Svíþjóð, flytur fyrirlestur á vegum Heimilisiðnaðarfélags íslands um uppeldislegt gildi handverks fyrir böm og unglinga í Norræna húsinu laugardaginn 10. maí kl. 14. Kristin hefur starfað sem ráðu- nautur frá 1992. Hún hefur stýrt og haft frumkvæðið að fjölbreyttu og vinsælu starfi með börnum og unglingum. Aðgangur er ókeypis. Opið hús í Ijarnarskóla TJARNARSKÓLI, einkaskólinn við Tjörnina, hefur nú starfað í 12 ár. Skólinn var stofnaður árið 1985 af kennurunum Margréti Theodórs- dóttur og Maríu Solveigu Héðins- dóttur. Nemendur eru alls um 75 í þremur bekkjardeildum; 8., 9. og 10. bekk. Starfsmannafjöldi er 9, þar af 7 kennarar. Laugardaginn 10. maí munu kennarar og nemendur hafa opið hús til kynningar á starfsemi skólans, námsgreinum og vinnu nemenda. Sérstök áhersla er lögð á að kynna námið í 8. bekk næsta skólaár. Nem- endur í árgangi 1984 sem langar til að taka þátt í skólastarfi í litlum skóla eru sérstaklega boðnir vel- komnir með fjölskyldum sínum. Heitt kaffi verður á könnunni fyrir þá fullorðnu og safi fyrir þá yngri. Tjarnarskóli er til húsa í gamla Búnaðarfélagshúsinu við hliðina á Iðnó að Lækjargötu 14b. Opið verð- ur frá kl. 13-17. ■ KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir börn og unglinga eru í Norræna húsinu alla sunnudaga kl. 14. Sunnudaginn 11. maí kl. 14 verður sýnd mynd um Emil í Kattholti. Þetta er sænsk kvikmynd fyrir alla fjölskylduna byggð á sögum Astrid Lindgren. Sýning myndarinn- ar tekur um eina og hálfa klst. og er með sænsku tali. Allir eru vel- komnir og aðgangur er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.