Morgunblaðið - 10.05.1997, Síða 6
» vefir iam .nr HUOAnflAOHAJ
6 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997
FRÉTTIR
nxrFA trwtio#om
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
LOKA þurfti Vesturlandsvegi í meira en eina klukkustund á upp-
stigningardag vegna slyssins. Fólksbifreiðin gjörónýt.
Harður árekstur á
Vesturlandsvegi
TVÆR bifreiðar, fólksbifreið og
vöruflutningabifreið, rákust harka-
lega saman á Vesturlandsvegi
skammt frá Korpu um klukkan 13
í fyrradag. Grunur leikur á að önn-
ur bifreiðin hafi farið yfir á rangan
vegarhelming, samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu.
Kalla þurfti til tækjabíl slökkvi-
liðs til að losa ökumann fólksbifreið-
arinnar úr flakinu, sem var mjög
illa farið. Þrír voru fluttir með
sjúkrabíl á slysadeild, en meiðsli
þeirra voru ekki talin alvarleg.
Fólksbifreiðin var flutt með dráttar-
bíl af vettvangi, enda talin gjörónýt.
Hæstiréttur um flutning grunnskólans
Störf kennara voru
ekki lögð niður
HÆSTIRETTUR sýknaði í gær
íslenska ríkið af kröfum tveggja
kennara sem töldu að sér bæru
bætur fyrir ólögmæta uppsögn eða
þá biðlaun vegna þess að starf
þeirra hefði verið lagt niður þegar
rekstur grunnskólans var fluttur
frá ríki til sveitarfélaga, án þeirra
samþykkis.
Annar kennaranna hafði starfað
við Húnavallaskóla en hinn var
skólastjóri Breiðagerðisskóla í
Reykjavík og létu þau af störfum
eftir gildistöku laga um réttindi
og skyldur kennara og skólastjórn-
enda grunnskóla haustið 1996,
sem voru sett vegna verkefnatil-
flutningsins og kváðust telja það
jafngilda uppsögn úr starfí að
staðan og þar með réttindi þeirra
hefðu verið flutt frá ríki til sveitar-
félaga.
Kennararnir unnu málið fyrir
héraðsdómi þar sem varakrafa
þeirra um biðlaun var tekin til
greina. Því hafnaði Hæstiréttur í
gær.
Í dómi Hæstaréttar segir að for-
senda fyrir þeirri breytingu að
flytja rekstur grunnskóla milli
tveggja greina hinnar opinberu
stjórnsýslu, frá ríkisvaldi til stað-
bundinna sveitarstjórna, hafí verið
sú að kennarar og skólastjórnendur
skyldu halda öllum kjörum og rétt-
indum, sem þeir áður höfðu. Frá
þessu hafi verið gengið með löggjöf
sem nái jafnt til allra sem þessum
stöðum gegndu áður.
„Þeim er tryggt áframhaldandi
sama starf með sömu réttindum
og áður. í 14. grein laganna [um
réttindi og skyldur kennara og
skólastjómenda grunnskóla] eru
þeim tryggð biðlaun, ef staða þeirra
yrði lögð -niður, ásamt forgangs-
rétti til starfa á vegum sveitarfé-
laga. í málinu hefur ekki verið sýnt
fram á að starfsöryggi viðkomandi
starfsmanna verði raskað með
hinni nýju skipan. Verður ekki á
það fallist með [kennurunum] að
með ákvæðinu hafi verið brotin á
[þeim] jafnræðisregla íslensks rétt-
ar eða gengið gegn ákvæði 75. gr.
stjómarskrár lýðveldisins íslands,"
segir Hæstiréttur. „Önnur ákvæði
stjórnarskrár og alþjóðlegra sam-
þykkta, sem byggt er á af hálfu
kennaranna verða heldur ekki talin
hafa verið brotin með löggjöf þess-
ari,“ segir Hæstiréttur, sem sýkn-
aði því ríkið en gerði hvomm aðila
að bera sinn kostnað af rekstri
málsins.
Fyrsti hópurmn á Everest varð frá að hverfa
íslendingamir reyna næstir
ISLENSKU Everestfararnir
verða næstir til að reyna við tind-
inn þar sem hópurinn sem klífa
átti tindinn á undan varð að snúa
frá vegna veðurs. Björn Ólafs-
son, einn leiðangursmanna, segir
að ný veðurspá komi á morgun
en núverandi spá gerir ráð fyrir
hvassviðri fram á þriðjudag.
„Menn eru ekki mikið að hugsa
sér til hreyfings meðan þessi spá
stendur. Þeir sem reyndu við
tindinn á undan okkur eru komn-
ir aftur til okkar í grunnbúðir
en þeir gátu ekki beðið lengur
betra veðurs uppi í fjalli,“ sagði
Björn Ólafsson. Fyrsti hópurinn
þarfnast nú hvíldar og tveir
þeirravoru veikir og þess vegna
verða Islendingamir næstir.
Veðurspá næstu daga sem kemur
frá Bretlandi og er sérstaklega
unnin fyrir þetta svæði gerir ráð
fyrir 70 til 100 hnúta vindi og
35 til 40 stiga frosti yfir daginn
sem Björn sagði að væri heldur
svalt og hvasst.
„Ef ný veðurspá á sunnudag
gerir ráð fyrir batnandi veðri á
miðvikudag eða fimmtudag mun-
um við leggja af stað á mánu-
degi og fikra okkur ofar í fjallið,
við erum tilbúnir um leið og út-
lit er fyrir að veður batni,“ segir
Björa ennfremur. Hann sagði
einnig að aðrir leiðangrar sem
stefndu á fjallið væru orðnir
óþolinmóðir, menn þar væru
orðnir knappir á tima og ein-
hverjir hefðu því snúið frá. Björn
sagði að íslenski leiðangurinn
hefði enn nægan tíma, þeir
myndu ekki fara að ókyrrast
fyrr en eftir næstu viku.
Rólegt í gær
í gær var rólegur dagur hjá
leiðangursmönnunum íslensku.
Björn sagði að þeir hefðu aðstoð-
að við að koma veikum sherpa
úr leiðangri Malaysíumanna í
þyrlu sem sótti hann upp í
grunnbúðir. Þeir hefðu gengið
um 300 m vegalengd og ekki
afrekað annað þann daginn.
Everestsíða Morgunblaðsins:
http://www.mbl.is/everest/
Ágreiningur er um lögmæti aðgerða Dagsbrúnar og Hlífar vegna verkfalls AS V
VERKAMANNASAMBANDIÐ
hefur beint því til aðildarfélaga
sinna að vinna ekki við afgreiðslu
fiskiskipa, sem gerð eru út frá
Vestfjörðum, meðan á verkfalli
verkalýðsfélaga á Vestfjörðum
stendur. Sl. fimmtudag samþykktu
stjórnir Dagsbrúnar og Hlífar í
Hafnarfirði svo tvíþættar aðgerðir
til stuðnings baráttu félaga sinna á
Vestfjörðum. Er annars vegar um
að ræða bann sem tók gildi sam-
dægurs við því að hafnarverkamenn
í félögunum gangi í störf verkfalls-
manna á Vestfjörðum. Hins vegar
var ákveðið að viðhafa atkvæða-
greiðslu næstkomandi mánudag um
samúðarverkfall í samræmi við
ákvæði laga um stéttarfélög og
vinnudeilur. „Leitað verður eftir
afstöðu félagsmanna í atkvæða-
greiðslu strax á mánudag hjá
starfsmönnum Eimskipa, Samskipa
og Löndunar um boðun samúðar-
vinnustöðvunar á athafnasvæði
Reykjavíkurhafnar," segir í sam-
þykkt stjómar Dagsbrúnar.
Ekki er að finna bein ákvæði um
samúðarverkföll í nýju vinnulög-
gjöfinni sem tók gildi á síðasta ári.
Ekki er þó ágreiningur um að heim-
ilt sé að grípa til þeirra
að ákveðnum skilyrðum
uppfylltum. I 17. grein
laganna segir að óheimilt
sé að hefja vinnustöðvun
til styrktar félagi, sem
hafið hefur ólögmæta vinnustöðv-
un. Er talið heimilt að hefja samúð-
arvinnustöðvanir með gagnályktun
frá þessu ákvæði, ef þær eru til
styrktar félagi sem hafíð hefur lög-
mæta vinnustöðvun. Er því litið svo
V erkfallsvarsla
eða vinnustöðvun?
*
Grundvallarágreiningur er á milli VSI og
verkalýðsfélaga innan VMSÍ um lögmæti
banns við afgreiðslu skipa sem stjómir Dags-
brúnar og Hlífar hafa samþykkt til stuðn-
—
ings verkfalli félaga á Vestfjörðum. I grein
Omars Fríðríkssonar kemur einnig fram
að deilt er um fyrirhuguð samúðarverkföll.
„Rétturtll aö
verja verkfall
og viðhalda"
á að boðun slíkra aðgerða verði að
lúta sömu reglum og þegar um
aðrar verkfalls- eða verkbannsboð-
anir er að ræða. Þarf þá að fara
-------- fram leynileg atkvæða-
greiðsla meðal félags-
manna um verkfallsboð-
un og tilkynna um nið-
urstöðuna 7 sólarhring-
um áður en vinnustöðv-
unin hefst. Hafa bæði Dagsbrún
og Hlíf ákveðið að láta fara fram
atkvæðagreiðslur meðal starfs-
manna á mánudaginn og miða við
að samúðarvinnustöðvanir hefjust
þá 21. maí.
VSÍ telur hvers kyns aðgerðir
stéttarfélaga sem ætlað er að
þvinga atvinnurekendur á Vest-
fjörðum í yfirstandandi vinnudeil-
um, sem ekki eru ákvarðaðar skv.
reglum vinnulöggjafarinnar, ólög-
mætar og hefur skorað á Verka-
mannasambandið að afturkalla
þær. „Vinnuveitendasambandið vill
ennfremur láta koma fram að það
eru því sérstök vonbrigði að Verka-
mannasambandið skuli í framhaldi
af samningum sínum við Vinnuveit-
endasambandið um kaup og kjör
fiskvinnslufólks styðja við verkfalls-
aðgerðir sem beinlínis hafa það að
markmiði að bijóta niður þá samn-
inga,“ segir í bréfi sem VSÍ sendi
VMSÍ vegna málsins.
Verkalýðsfélögin líta ekki svo á
að að ákvörðun stjórna félaganna
um bann við afgreiðslu skipa sem
að öðrum kosti hefðu landað á Vest-
fjörðum sé samúðarvinnustöðvun,
heldur grípi stéttarfélögin til þessa
ráðs til koma í veg fyrir að lög-
mætt verkfall sé brotið niður.
í svarbréfí VMSÍ til VSÍ eru rök-
in fyrir þessu rakin: „Almennt er
litið svo á að í verkfallsrétti felist
einnig rétturinn til að verja verk-
fall og viðhalda því með öllum lög-
legum aðgerðum, ella væri þessi
réttur lítils virði. Þetta viðhorf er
að hluta til lögfest í 18. grein vinnu-
löggjafarinnar. Þar segir
m.a. að þeim sem vinnu-
stöðvunin beinist gegn sé
óheimilt að stuðla að því
að afstýra henni með
aðstoð einstakra meðlima
þeirra félaga eða sambanda sem
að henni standa. Ákvæði 18. gr.
vinnulöggjafarinnar eru frá 1938
og hafa með stoð í norrænum rétti,
réttarvitund og venju, verið túlkuð
svo og framkvæmd frá upphafi að
VSI vill aftur-
köllun að-
gerða
óheimilt sé með öllu að ganga inn
í störf þeirra sem eru í verkfalli. I
þessu felst sú regla að verkfalls-
mönnum sé heimilt að koma í veg
fyrir að aðrir gangi í störf þeirra.
í reglunni er einnig talið felast að
atvinnurekanda sé óheimilt að af-
stýra verkfalli með því að flytja
starfsemi sína annað á meðan,“
segir m.a. í bréfinu.
Vinnuveitendur eru ósammála
þessum sjónarmiðum og benda á
að með þeim breytingum sem gerð-
ar voru á vinnulöggjöfinni í fyrra
sé nú skilgreint hvað sé átt við með
vinnustöðvun. Þar segi m.a. að um
vinnustöðvun sé að ræða þegar
launamenn leggja niður störf sín
að einhveiju eða öllu leyti. Sam-
þykktir stjórna verkalýðsfélaganna
um bann við afgreiðslu skipa frá
Vestfjörðum séu ólöglegar því
ákvarðanir um samúðaraðgerðir
þurfi að taka skv. sömu reglum og
gilda um verkföll. VSÍ efast raunar
einnig um að Dagsbrún og Hlíf sé
heimilt að boða til samúðarvinnu-
stöðvunar, þar sem þau hafi sjálf
lokið samningum um þá kauptaxta
sem deilt er um í kjaradeilunni á
Vestfjörðum og félögin séu því
-------- bundin friðarskyldu.
„Ef vestfirsk fyrirtæki
verða fyrir tjóni af þess-
um sökum er það ósköp
einfalt að sækja aurana
vegna þess beint til Dags-
brúnar og Hlífar og hugsanlega til
Verkamannasambandsins, sem hef-
ur hvatt til aðgerðanna," segir
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ.