Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 47

Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 47 FRÉTTIR STJÓRN Kvenfélagsins Hringsins í Hafnarfirði. Blindrabókasafni ís- lands gefin peningagjöf Rúmar 4 milljónir til Barna- spítalans KVENFÉLAGIÐ Hringurinn hélt aðalfund sinn fyrir skömmu. Öll fjáröflun félagsins rennur í Barna- spítalasjóð Hringsins. Sjóðnum bár- ust margar góðar gjafir á síðasta starfsári samtals að upphæð 304.506 krónur. Á starfsárinu gaf félagið Barna- spítala Hringsins hitakassa að verð- mæti 1.417.916 kr. og tæki til litn- ingarannsókna 2.187.000 kr. Aðrir styrkir og gjafir námu 505.977 kr. samtals 4.110.893 kr. Á aðalfund- inum var samþykkt að gefa sónar- deild Kvennadeildar Landspítalans nýtt ómtæki að verðmæti u.þ.b. 6 milljónir króna. Tæki þetta er gefið í þakklætisskyni fyrir stuðning landsmanna við markmið félagsins sem er bygging nýs og fullkomins barnaspítala á Landspítalalóð. Stjórn félagsins skipa nú: Elísa- bet G. Hermannsdóttir formaður, Borghildur Fenger varaformaður, Ragnheiður Sigurðardóttir ritari, Unnur Einarsdóttir gjaldkeri og Herdís Guðmundsdóttir meðstjórn- andi. í varastjórn eru: Ásta Tryggvadóttir, Elín Bachmann, Esther Valdimarsdóttir og Gréta Siguijónsdóttir. KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Hafnarfirði átti 85 ára afmæli 7. mars sl. í tilefni af því færðu Hringskonur Bókasafni Blindra- félagsins 250 þúsund krónur. „Margar stofnanir hafa verið heimsóttar á undanförnum árum og má nefna það að þegar Krísu- víkursamtökin voru 10 ára færðu Hringskonur Krísuvíkursamtök- unum 500 þúsund krónur að gjöf. Hringskonur afla fjár með basar, tískusýningum, kaffisölu og síð- ast en ekki síst með sölu minning- arkorta, sem fást hjá Pennanum í Hafnarfirði, Bókabúð Böðvars. Blómabúðinni Burkna og hjá fé- lagskonum. Formannsskipti urðu 25. febr- úar sl. en þá lét Karin Gústafs- dóttir af formennsku. Ný sljóm tók við en hana skipa Ingibjörg G. Karlsdóttir, formaður, Guð- rún Ósvaldsdóttir, gjaldkeri, Elín Kristbergsdóttir, ritari, með- sljórnendur eru Guðrún Páls- dóttir og Guðfinna Jóhannesdótt- ir,“ segir í fréttatilkynningu. Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins Kristján Guðmundsson endurkjörinn formaður AÐALFUNDUR Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins var haldinn laugardaginn, 26. apríl sl. í Sjálf- stæðishúsinu í Hafnarfírði. Fundurinn var mjög vel sóttur. Málfundafélagið Þór í Hafnarfirði sá um skipulag fundarins. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf. Magnús Gunn- arsson bæjarfulltrúi flutti ávarp og ræður fluttu Geir H. Haarde, alþingismaður og formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, um stjórnmálaviðhorfið og Grétar Þor- steinsson, forseti Alþýðusambands íslands, um málefni verkalýðsfé- laganna í nútíð og framtíð. Fundurinn samþykkti ályktanir um skattamál og atvinnu- og kjaramál. í lok fundarins fór fram stjórnarkjör. Kristján Guðmunds- son var endurkjörinn formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks- ins. Þá var kosin 60 manna stjórn sem mun skipta með sér verkum og kjósa sérstaka framkvæmda- stjóm skv. lögum Verkalýðsráðs. Vann utan- landsferð Á DÖGUNUM var í gangi stimpilleikur meðal viðskipta- vina á ESSO bensínstöðvunum við Gagnveg og Geirsgötu í Reykjavík. Eitt hundrað vinn- ingar voru í boði, þar á meðal utanlandsferð fyrir tvo að eigin vali. Á myndinni sést Kolbrún Héðinsdóttir, starfsmaður ESSO, afhenda tveimur vinn- ingshöfum vinninga sína, þeim Guðnýju Steinsdóttur sem hlaut gasgrill í vinning og er lengst til vinstri á myndinni og Þór- unni Kristinsdóttur sem vann utanlandsferð. ÁSGEIR Haraldsson, yfirlæknir Barnaspítala Hringsins, Karl M. Karlsson frá Oddfellowreglunni, Þóra Karitas Árnadóttir, formað- ur Thorvaldsensfélagsins, Einar Gylfi Jónsson, formaður Barna- heilla, Auður Ragnarsdóttir, deildarstjóri á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur, og Jóhannes Pálmason, forsljóri Sjúkrahúss Reykjavíkur. Barnaheill taka í notkun fyrstu íbúðina Morgunblaðið/Þorkell EIGENDUR Bílaleigunnar Bónus fyrir framan nýja húsnæðið, þau Ágúst Sigurðsson og Helga Sigrún Siguijónsdóttir. Bílaleigan Bónus í nýtt húsnæði BARNAHEILL hafa tekið í notkun fyrstu íbúðina fyrir foreldra barna utan af landi sem þurfa að dveija langdvölum á sjúkrahúsum í Reykja- vík. Verkefnið gegnur vel og er ljóst að almenningur vill aðstoða í þeim vanda sem getur skapast hjá foreldr- um barna sem þurfa að dvelja lang- dvölum flarri heimilum sínum. Undir- búningur er þegar hafinn að kaupum á annarri íbúð vegna þessa verkefnis. I fréttatilkynningu segir: „í tengslum við kaup Bamaheilla á þessari fyrstu íbúð er verið að ganga frá samningum við Sjúkrahús Reykjavíkur um rekstrarlega umsjón hennar. Má vænta þess að slíkir samningar verði gerðir við fleiri sjúkrahús þegar fram líða stundir. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkra- Lýsa vanþókn- un sinni á af- stöðu forystu LÍÚ MORGUNBLAÐINU hefur borist eft- irfarandi ályktun samninganefndar Farmanna- og fiskimannasambands Islands vegna skipstjómarmanna á fiskiskipum: „Samninganefndin lýsir vanþóknun sinni á afstöðu forystu Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, varð- húsunum í Reykjavík búa um 40% þeirra barna sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús borgarinnar úti á landi þannig að með þessu verkefni Barnaheilla er verið að bæta úr brýnni þörf foreldra fyrir aðstöðu í grennd stóm sjúkrahúsanna. Þetta verkefni Bamaheilla mun taka þijú ár og þeir sem taka þátt í því eru fyrst og fremst einstakling- ar. Einnig hafa fyrirtæki lagt því í lið, m.a. Flugleiðir sem reiddu fram rausnarlegt framlag eða 1,1 milljón króna en þar var um að ræða afrakst- ur happdrættis á árlegri ferðahátíð félagsins. Þá má nefna Oddfellow, stúkan Þorfínnur Karlsefni gaf öll húsgögn í íbúðina og Uppeldissjóður Thorvaldsensfélagsins gaf 200.000 kr.“ andi niðurstöður hæstaréttar og fé- lagsdóms um verðlagningu afla til hlutaskipta fískimanna þar sem kvótabrask var notað til að lækka laun sjómanna. Niðurstöður dóma staðfesta að öllu leyti túlkun samtaka sjómanna og byggir á kjarasamning- um og lögum. Þegar afstaða forystu LÍÚ birtist með þessum hætti hlýtur að vakna sú spuming hvort undir- skrift hennar sé einskis virði og þar með kjarasamningar milli sjómanna og LÍU markleysa. Forysta LÍÚ telur sig þar með hafna yfir þær leikreglur sem öðmm þjóðfélagsþegnum er ætl- að að virða og byggja á samningum, lögum og niðurstöðum dómstóla." Verkalýðsráð Sjálf- stæðisflokksins Tekjuskatts- kerfið gerónýtt AÐALFUNDUR Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins telur núver- andi tekjuskattskerfi gerónýtt og krefst þess að þegar verði hafin vinna við að byggja upp nýtt kerfi frá grunni, segir í frétt frá ráðinu. Einnig segir: „Nýtt kerfi verður að byggja á lágum skatthlutföllum, án undanþágna og frádráttarliða. Einungis tekjumyndandi eignir myndi eignarskattsstofn. Að fundnu nýju skattkerfi verði hugað að því hvort minnka beri möguleika á íhlutun stjórnvalda um skattkerfis- eða skatthlutfalls- breytingar með lagaákvæðum þess efnis að aukinn meirihluta, t.d. 3/5, þurfi til slíkra breytinga. Gera verður skýran greinarmun á tekjuskattlagningu ríkis annars vegar og sveitarfélaga hins vegar. Aukið verði forræði sveitarfélaga varðandi öflun tekna til starfscmi sinnar. Hugað verði að hvort ekki sé hægt að bæta ráðstöfun skatt- tekna, um leið og athugaðar séu leiðir til bættra innheimtu þeirra." -----» ♦ ♦ Símennt TVÍ hefur starfsemi SÍMENNT Tölvuháskóla VÍ hefur starfsemi sína mánudaginn 12. maí nk. með tveimur námskeiðum, annað fjallar um tölvuöryggi en hitt er alnetsnámskeið fyrir byrj- endur. Símennt TVÍ, sem er framlag Tölvuháskóla VI til endurmenntun- ar starfsmanna í hugbúnaðariðn- aði, hóf starfsemi sína vorið 1996. Starfsemin felst í námskeiðum á sviði forritunar og kerfisfræði og er aðallega beint til starfandi kerf- isfræðinga en þó eru líka nokkur almenn námskeið, t.d. alnetsnám- skeið. BÍLALEIGAN Bónus flutti nú nýverið í nýtt húsnæði á Klepps- vegi 150. Bílaleigan er nú um þessar mundir 11 ára og hefur að undanförnu bætt við bilaflota sinn. í tilefni af flutningnum gef- ur Bílaleigan viðskiptavinum 10% afslátt. Hátíð á reyk- lausum degi REYKLAUSI dagurinn verður sunnudaginn 11. maí næstkom- andi og af því tilefni mun Tób- aksvarnanefnd halda „karníval“- hátíð í Fjölskyldu- og Húsdýra- garðinum í Laugardal sem stend- ur frá klukkan 13-18. Aðgangur verður ókeypis og boðið verður m.a. upp á Emmessís og Svala. í frétt frá Tóbaksvarnanefnd segir að á þessum degi vilji hún sýna fram á mikilvægi heilbrigðs fjölskyldulífs, en svo skemmtilega vilji til að mæðradaginn beri upp á þennan dag. Krakkar eru hvatt- ir til að mæta í grímubúningum til að skapa skemmtilega „karniv- al“-stemmningu. Auk allra þeirra fjölmörgu leik- tækja sem eru í garðinum verður fjölbreytt skemmtidagskrá og uppátæki. Klukkan eitt hefst skrúðganga frá stúkunni á Laug- ardalsvelli og mun götuleikhópur og lúðrasveitin Svanur vera í fylkingarbijósti. Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra setur hátíðina og í kjölfar þess tekur hvert atriðið við af öðru. Slökkviliðið verður með bíl á svæðinu og leyfir krökk- um að prófa að sprauta. Magnús Scheving kemur sem íþróttaálf- urinn úr Latabæ. Brúðubíllinn verður með leiksýningu og öllum gefst kostur á að prófa veltibílinn og þrívíddarherminn. Fallhlífar- stökk verður sýnt, níu metra há risarennibraut verður á staðnum, hoppkastalar, blöðruskúlptúr og fleira. Landsliðsmenn í knattspyrnu árita nýtt plakat af lansliðinu sem á stendur „Reyklaus knatt- spyrna til sigurs!" Barnakór Austurbæjarskóla mun syngja og rapphljómsveitin Quarashi troða upp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.