Morgunblaðið - 22.06.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 22.06.1997, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Höskuldur tryggði sér sæti HÖSKULDUR Jónsson var fyrstur til að tryggja sér og hesti sínum, Þyti frá Krossum, sæti í landsliði íslands í úrtökukeppninni að Varm- árbökkum í gær. Urðu þeir efstir öðru sinni í fjór- gangi og skipa þeir því fjórgangs- sætið í liðinu. Þeir hlutu 7,7 í einkunn en Páll Bragi Hólmarsson á Hranni frá Þóreyjarnúpi varð ann- ar með 6,83. Vignir Jónasson á Þokka frá Bjarnanesi varð þriðji með 6,63 og Þóra Brynjarsdóttir fjórða á Kjarna með 6,30. Höskuldur er langefstur með sam- anlagt 15,23 stig, Páll Bragi annar með 13,40 stig og Vignir þriðji með 13,26 stig. ♦ ♦ ♦ Fíkniefni gerð upptæk LÖGREGLAN í Reykjavík fór í gær- morgun í kjallara á iðnaðarhúsnæði og leysti upp fíkniefnasamkomu. Níu manns voru á staðnum og voru þrír handteknir. Fíkniefni og áhöld til fíkniefnaneyslu voru gerð upptæk. Á Hafnarfjarðarvegi kviknaði í leigubíl í gærmorgun. Bílstjórinn var einn í bflnum þegar byrjaði að rjúka úr vélarhúsi og varð bíllinn alelda á svipstundu. Enn logaði í bílnum þeg- ar slökkviliðið mætti á staðinn en ökumaður slapp ómeiddur. ♦ ♦ ♦---- Eyrarbakki Drengur fyrir bíl ÁTTA ára drengur á reiðhjóli varð fyrir bíl á Eyrarbakka síðdegis á föstudag. Að sögn lögreglu á Sel- fossi virðist sem drengurinn hafi ekki séð bílinn, þar sem hann hjól- aði í veg fyrir hann. Drengurinn var fluttur á slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að sögn Þengils Oddssonar, læknis á vakt, er hann ekki í lífshættu en höfuðkúpu- og handleggsbrotinn. -----♦ ♦ ♦---- Bílvelta á Suð- urlandsvegi BÍLVELTA varð í gærmorgun laust fyrir klukkan níu á Suðurlandsvegi skammt frá Rauðhólum. Fjórir voru f bílnum og voru þeir fluttir á slysa- deild en meiðsli reyndust minnihátt- ar. Ökumaður er grunaður um ölvun. Opinber heimsókn forseta Ítalíu Starfsaðstaða fjölmiðla takmörkuð UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur sent fjölmiðlum upplýsingar vegna heimsóknar Ítalíuforseta, sem hefst í dag. Þar kemur m.a. fram að RÚV annist eitt myndatökur í veislu for- seta íslands í kvöld, sem og í mót- töku borgarstjóra í Höfða. „Aðrar stöðvar geta fengið efni hjá Sjón- varpinu." Ekkert er minnst á hvaðan dagblöð eiga að fá myndefni. Einnig segir í bréfinu að myndatökur verði hvorki leyfðar í Granda né Stofnun Áma Magnússonar. Morgunblaðið leitaði skýringa á þessum reglum hjá Bjarna Sig- tryggssyni, upplýsingafulltrúa utan- ríkisráðuneytisins. Hann sagðist senda út reglur samkvæmt fyrirmæl- um annars vegar frá húsráðendum á þeim stöðum, sem heimsóttir yrðu, og hins vegar frá forsetaembættinu. Bjami sagði að vinnureglan sem hann hefði vanist væri sú að fjölmiðl- ar kæmu sér saman um hver eða hveijir þeirra fylgdust með atburðum og hvernig efni væri dreift. „Núna em settar reglur sem greinilega tak- markast af mjög litlu og þröngu plássi. Þetta er ekki það sem ég hef vanist en ég hef sætt mig við það vegna þess að rökin sem ég fæ em að það sé mjög þröngt þama inni,“ sagði Bjarni. Þegar Kornelíus Sigmundsson for- setaritari var í gær spurður um regl- ur um aðgengi. fjölmiðla að dag- skrárliðum í heimsókn ítaliuforseta sagðist hann aldrei hafa séð þær og ekkert vita um þær. Hann sagði blaðafulltrúa utanríkisráðuneytisins hafa á sinni könnu samhæfingu fjöl- miðla, íslenskra og ítalskra. Reglurnar voru bornar undir Pál Magnússon, fréttastjóra Stöðvar 2 í gær. „Það er eins og skrifstofa forsetaembættisins átti sig ekki al- veg á í hvaða landi þeir eru. Þetta tíðkast í stórum löndum þar sem eru tugir og hundruð sjónvarpsstöðva að beijast um aðgengi að stórvið- burðum en þessi framgangsmáti á ekki við íslenskar aðstæður," sagði Páll. Hann sagði að ekkert samráð hefði verið haft við Stöð 2. Hann sagðist myndu lýsa skoðun sinni á því sem hann kallaði gerræðislega tilkynn- ingu við skrifstofu forseta íslands bréflega eftir helgi. Morgunblaðinu var boðið að senda ljósmyndara á Bessastaði í veisluna í kvöld, eftir að hafa spurst fyrir um hveiju þessar reglur sættu. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson FORSETAHJÓNIN skoða baðstofu frá Leikskálum í Haukadal frá árinu 1887, á Laugum. Með þeim á mynd er Magnús Gestsson safnvörður og Olafur Stefán Sigurðsson sýslumaður. Forsetinn skoðar byggða- safnið á Laugum ÓL AFUR Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir byijuðu daginn í gær á því að skoða byggðasafnið á Laugum, en opinberri heimsókn forseta- hjónanna í Dalasýslu lauk {gær. Magnús Gestsson safnvörður fylgdi forsetahjónunum um byggðasafnið, sem var formlega opnað í apríl árið 1977, en Magnús hefur safnað munum í það í tæp 30 ár og alfarið séð um uppsetn- ingu þess. Eftir að hafa skoðað byggða- safnið fylgdi Birna Lárusdóttir leiðsögumaður forsetahjónunum um heimaslóðir Guðrúnar Ósvíf- ursdóttur, aðalsöguhetju Lax- dælu. Að því loknu sagði Ólafur Ragnar í samtali við Morgun- blaðið að heimsóknin til Dala- sýslu hefði sannfært sig enn frek- ar um þá auðlegð sem Islending- ar eiga í helstu söguslóðum landsins. Hítará á Mýrum Selur truflar lax- veiðimenn SELUR gerði sig heimakominn í bestu veiðihyljum Hítarár á Mýrum á föstudaginn og hefur veiðiskapur stangaveiðimanna nánast legið niðri síðan. Veiðimenn „opnuðu" ána, sið- degis á fimmtudaginn og veiddu strax vel. En morguninn eftir kom babb í bátinn. Selurinn sást fyrst í morgunsárið í svokölluðum Húshyl sem er beint framundan veiðihúsinu Lundi. Síðan flutti hann sig undir Brúarfoss sem er beint undir brúnni á aðalþjóðveg- inum á þessum slóðum. Varð uppi fótur og fít, hinn óboðni gestur var klagaður og þrír menn með alvæpni voru sendir á staðinn. Bergur Steingrímsson fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem er með ána á leigu, staðfesti þetta í samtali við blaðið og sagði hann stjórn SVFR óhressa og undrandi, því skotmaður hefði verið ráðinn til að kemba ána síðan í vor, einmitt til að stugga við sel. Selir hafa oft áður gert sig heima- komna í umræddum hyljum Hítarár þó þeir séu um 5 kílómetra frá sjó. Síðast gerðist það í fyrrasumar og þrisvar á síðustu fjórum sumrum hefur selur elt lax og sjóbleikju á þennan hátt. ■ Lífleg/23 Þingmenn á Vesturlandi um ákvörðun bóndans á Stóra-Kroppi • • Omurleg niðurstaða „Ég vænti þess að reynt verði af hálfu umhverf- isráðherra og skipulagsyfírvalda að hraða málinu þannig að niðurstaða fáist á eins skömmum tíma og kostur er,“ sagði Sturla Böðvarsson alþingis- maður á Vesturlandi aðspurður um þá ákvörðun Jóns bónda Kjartanssonar að flytja frá Stóra- Kroppi vegna deilna um vegarstæði eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Gísli S. Einarsson þingmaður sagði þessa niðurstöðu fyrir hjónin ömurlega. Sturla Böðvarsson segir að þingmenn geti ekki komið að málinu að sinni, þeir hafí beitt sér fyrir að fundin væri sáttaleið sem samgöngu- ráðherra hafi orðið við. „Framkvæmdir við veg- inn bíða og fjármunir, sem búið er að ráðstafa í brúargerð á Flóku og í vegagerðina, nýtast ekki á meðan,“ sagði Sturla og sagðist aðspurð- ur ekkert geta sagt um þau ummæli Jóns Kjart- anssonar að búið væri að ákveða niðurstöðuna. „Þarna togast á sjónarmið og það verður ekki til að auðvelda málið ef svona grunsemdir eru uppi. Hins vegar er mjög auðvelt að bregðast við því ef umhverfisráðherra gefur yfirlýsingu um að viðkomandi starfsmaður í umhverfísráðuneyt- inu komi ekki nálægt málinu vegna persónulegra tengsla. Ég harma að þetta skuli hafa í för með sér þessa miklu röskun fyrir fjölskylduna en málið er í ákveðnum farvegi," sagði Sturla að lokum og minnti á að það varðaði einnig hags- muni íbúa í Flókadal. Bændur þar hefðu lagt ríka áherslu á að fá úrbætur sem svokölluð neðri leið leysi alls ekki. Tekur of langan tíma „Þetta er ömurleg niðurstaða og ég tel að koma þurfí fram yfírlýsing um það að vegurinn fari ekki yfir túnið á Stóra-Kroppi,“ segir Gísli S. Einarsson alþingismaður. Gísli segir að sá farvegur sem málið er í nú, umhverfismat sem skipulagsstjóri verður að aug- lýsa með fresti til athugasemda og kærufresti, taki of langan tíma sé allur tími notaður til hins ýtrasta. „Þessi dráttur er mjög til óhagræðis fyr- ir bóndann því mér er kunnugt um að hann ætl- ar sér stærri hluti á jörðinni, stækka fjós og fleira en nú eru honum allar bjargir bannaðar. Hann fær enga fyrirgreiðslu banka eða annarra meðan hann getur ekki sagt hvar slíkt fjós má rísa. Mér finnst þetta því ömurleg niðurstaða ef hjónin þurfa að fara af bænum. Eg tel að gefí samgöngu- ráðherra yfirlýsingu um að vegurinn fari ekki yfir þetta tún sé það nægilegt og umhverfisráð- herra þyrfti einnig að gefa yfirlýsingu. Ég skil ekki hvaða hvatir liggja að baki því og hvaða hagsmunir íbúa í Flókadal krefjast þess að ætla sér að troðast yfír ræktað tún - fyrir utan það að ég dreg í efa kostnaðaráætlanirnar." i! endurlífguð ►Vinnukonustéttin birtist á ný á heimilum landsmanna eftir ára- tuga fjarveru í árslok 1994 þegar settar voru skýrar reglur um au- pairvistaskipti. /10 Fóru kjarorkuvopn um ísland? ►í nýrri bók um samskipti Noregs og Bandaríkjanna 1954-60 þar sem ísland kemur við sögu er talið sennilegt að kjarnorkuvopn hafí farið um íslenskt landsvæði á þess- um tíma. /15 ímynd stöðugleika í landi óreiðu ►Oscar Luigi Scalfaro, forseti ít- alíu, kemur í opinbera heimsókn til íslands f dag. Fjallað er um forsetann og samskipti þjóðanna. /18 Alltaf heppinn ►Á Jónsmessunni fyrir 80 árum leit Kristinn Olsen flugstjóri dags- ins ljós ogævi hans varð samstiga flugsögu íslands. /20 Póstkort eru gífur- leg landkynning ►í Viðskiptum/Atvinnulífí á sunnudegi er rætt við Rafn Hafn- fjörð í Litbrá /26 B________________________ ► l-32 Vorferð á Vatnajökul ►Undanfarið hefur Jökiarann- sóknarfélag íslands verið í árlegri vorferð á Vatnajökul. Meðal leið- angursmanna voru Freyr Jónsson og Jón Svanþórsson sem fara í haust á Suðurskautslandið með tvo breytta Toyota Land Cruiser- jeppa. /1-2&16-17 Þá var orðið alkóhólisti ekkitil ►Steinar Guðmundsson á fjöl- skrúðugt líf að baki, kannski þekktastur fyrir brautryðjanda- starf sitt í áfengismálum en hefur nú snúið sér að rekstri eigin golf- vallar í Mosfellssveit. /4 Ungu tenórljónin ►Jóel Pálsson og Óskar Guðjóns- son hafa vakið athygli djassáhuga- manna og eru komnir í fremstu röð íslenskra saxófónleikara þrátt fyrir ungan aldur. /10 FERÐALÖG ► 1-4 Galapagoseyjar ►Þrettán eyjar og tugir skeija með Ijölskrúðuga flóru og fánu. /3 Forn menning vakln ► Alþjóðleg víkingahátíð er nú haldin í Hafnarfirði. /4 BÍLAR_____________ ► 1-4 Best búnu Defender- bílar Evrópu? ►íslandsflakkarar láta sérútbúa sex slíka Land Rover til ferða um landið. /2 Reynsluakstur ►Gran Move er fjölhæfur fjöl- skyldubfll. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42 Leiðari 28 Skák 42 Helgiapjall 28 Fólk í fréttum 44 Reykjavíkurbréf 28 Bió/dans 46 Skoðun 31 Útv./sjónv. 50,64 Minningar 24&32-37 Dagbók/veður 55 Myndasögur 40 Gárur 8b Bréftil blaðsins 40 Mannlífsstr. 8b Ídag 42 Brids 42 Dœgurtónl. 12b INNLENDARFF 2-4-8-BAK ÉTTIR: ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 I; ttsfi***

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.