Morgunblaðið - 22.06.1997, Síða 9

Morgunblaðið - 22.06.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 9 FRÉTTIR Ný skýrsla um umfang mengunar á norðurskautssvæðinu „Þörf á skjótum aðgerðum“ HELSTA umhverfisógnunin sem steðjar að heilbrigði manna á norð- urskautssvæðinu er mengun af vöidum þrávirkra lífrænna efna, til dæmis ýmissa efna sem notuð eru sem skordýra- og illgresiseit- ur. Magn slíkra efna getur verið tvöfalt til tífalt meira í nýfæddum börnum á norðurskautssvæðinu, en á tempi-uðum svæðum fyrir sunnan það. Þetta kemur m.a. fram í niður- stöðum skýrslu vinnunefndar, svo- kallaðrar AMAP-nefndar (Arctic Monitoring and Assesment Pro- gramme), sem umhverfisráðherrar norðurheimskautsríkjanna átta skipuðu árið 1991, í þeim tilgangi að gera ítarlega úttekt á umfangi mengunar á norðurskautssvæð- inu. Skýrsla þessi var kynnt á fundi umhverfisráðherra og embættis- manna ríkjanna og sagði Guð- mundur Bjarnason umhverfisráð- herra við það tækifæri að þörf væri á skjótum aðgerðum til þess að takast á við þetta alvarlega vandamál. Guðmundur vitnaði í niðurstöð- ur skýrslunnar og sagði að þessi mengun kæmi að mestu leyti frá stöðum sem væru langt utan norð- urskautssvæðisins, en í sumum tilfellum mætti þó rekja hana til staða sem væru innan þess. „Það er í okkar höndum að leita lausna á þeim vanda sem stafar af starf- semi á norðuslóðum, þar höfum við enga afsökum fyrir aðgerða- leysi.“ Verða gróðurhúsaáhrifin meiri á norðurskautssvæðinu? í skýrslunni kemur m.a. fram að flest hinna þrávirku lífrænu efna berast með haf- og loft- straumum sunnan að, en þau eiga það til að gufa upp og berast með loftstraumum til kaldari svæða þar sem þau falla niður sem úrkoma eða snjór. Auk þess hafa efnin þá eiginleika að safnast fyrir í fæðuk- eðjunni og er virkni þeirra mest í fitumiklum dýrum, til dæmis hvítabjörnum, ýmsum fuglum og selum. I skýrslunni er einnig fjallað um mengun af völdum fleiri efna og kemur til dæmis fram í niður- stöðunum að íbúar norðurheim- skautslandanna verði að meðaltali fyrir meiri áhrifum af geislavirk- um efnum en íbúar í heittempruðu löndunum og að veðurfarsbreyt- ingar af völdumn gróðurhúsa- áhrifa geti valdið meiri röskun á norðurskautssvæðinu en víða ann- ars staðar á næstu áratugum. Doktor í fé- lagsfræði •ÞORGERÐUR Einarsdóttir varði doktorsritgerð sína í félags- fræði við háskólann í Gautaborg í Svíþjóð 6. júní sl. Heiti ritgerðar- innar er „Lákaryrket i förándring. En studie av den medicinska pro- fessionens het- erogenisering och könsdiffer- entiering." Leið- beinandi Þor- gerðar var Inga Hellberg pró- fessor og and- mælandj var El- ianne Riska prófessor við Abo Aka- demi í Finnlandi. Í rannsókninni er leitast við að skýra kynbundið sérgreinaval lækna með hliðsjón af læknastétt- inni sem sundurleitum starfshóp. Viðteknar skýringar á sérgreina- vali kynjarina eru dregnar í efa, svo sem að konur velji ,fjölskyldu- vænar“ sérgreinar með litla vakta- byrði eða sérgreinar þar sem „kvenlegir eiginleikar" þeirra fái notið_ sín (félagsmótunarkenning- ar). í ritgerðinni er stuðst við sk. félagslegar lokunarkenningar (raktar til félagsfræðingsins Max Weber) sem gera ráð fyrir sam- keppni og baráttu milli sérsviða læknisfræðinnar, og jafnframt að önnur og átakameiri öfl en félags- mótun og fjölskylduábyrgð stýri konum (og körlum) inn á tiltekin sérgreinasvið. I rannsókninni er m.a. sýnt fram á að sérgreinar efst í virðingarstiganum séu umluktar karllægri orðræðu og þær virðing- arminni kvenlægri orðræðu. Ein meginniðurstaða rannsóknarinnar er að þessar orðræður eigi stóran þátt í að beina konum inn á sér- greinasvið sem njóta lítillar virðing- ar eins og öldrunar-, geð- og heimil- islækningar og körlum inn í sér- greinar sem njóta mikillar virðingar eins og skurðlækningar. Þorgerður fæddist 31. maí 1957 og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á ísafirði 1977 og fil. kand.-námi frá Gautaborgarhá- skóla 1982. 1985-1988 kenndi Þorgerður við Fjölbrautarskólann í Breiðholti og starfaði á Iðntækni- stofnun með hléum frá 1988-1993. Samhliða doktorsnáminu stundaði Þorgerður rannsóknir í samvinnu við prófessor Ritu Liljeström við Gautaborgarháskóla. Foreldrar Þorgerðar eru Jenný Sigrún Sigf- úsdóttir skrifstofumaður og Einar G. Bjarnason (látinn). Eiginmaður hennar er Guðlaugur Pálmi Magnússon sagnfræðingur og eiga þau þijú börn. Edinborg Kjörgarði, Laugavegi Dömur - golftreyjurnar og jakkapeysurnar komnar aftur. Nýir litir. Herrar — ný sending af terelinebuxum, Ijósir litir. Stelpur - vorum að taka upp Spice Girls boli og buxur. Gotfm°uuT ' UO/a Munið, allt á Edinborgarverði. Kaffi- & matarhlaðborð ALLA SUNNUDAGA Sumardagskráin 19 9 7 Sunnudaga Kaffihlaöborö frá kl. 14-17 og matarhlaöborö frá 18:30. Mánudaga, þribjudaga og mibvikudaga Veitingasalir lokaöir nema pantaö sé fyrir hópa. Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga Nyr oq spennandi SÉRRÉTTA-SEÐILL oa réttir dagsins. Fimmtudaga og föstudaga er opnab kl. 16, laugardaga og sunnudaga kl. 12. Skíðaskálinn Hveradölum Veitingahús og veisluþjónusta Irá 193S. Boröapantanir ísíma 567-2020, fax 587-2337. Þekkt og rótgróið veitingahús til leigu eða sölu Eitt þekktasta veitingahús borgarinnar er til leigu eða sölu Á efri hæð er glæsilegur matsölustaður og í kjallara er rekinn einn vinsælasti barinn (pubb) borgarinnar. Veitingahúsið leigist/selst með vönduðum húsgögnum, bæði í veitingasal og kjallara, ásamt fullbúnu eldhúsi á efri hæð. Staðurinn er með fullu vínveitingaleyfi. Miklir möguleikar fyrir rétta aðila. Upplýsingar veitir Arnar eingöngu á skrifstofunni. Stóreign ehf., Austurstræti 18, sími 551 2345. Nú bjóðum við 20% afslátt af öllum peysum og leggings út næstu viku. Athugiö peysur og leggings í öllum stærðum. Eddufelli 2, sími 5571730. Sértilboð til Costa del Sol 9. og 16. júlí frá kr. 29.932 Við höfum fengið viðbótarsæti í brottförina 9. og 16. júlí til Costa del Sol sem við getum nú boðið á hreint ótrúlegum kjörum. Timor Sol, aðalgististaður okkar býður frábæran aðbúnað í fríinu. Hér ert þú staðsettur í hjarta Torremolinos, gengur úr garðinum beint á ströndina og ert innan við 5 mínútur að ganga á glæsilega snekkjubátahöfnina þar sem þú fínnur glæsilega veitingastaði og skemmtistaði. Studioíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi, baði, eldhúsi og svölum. Verð kr. 29.932 Verð m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Timor Sol í viku, 9. og 16. júlí. Verð kr. 39.960 M.v. 2 í studio, Timor Sol, 9. og 16. júlí í viku. Verð kr. 49.960 M.v. 2 í studio í 2 vikur, Timor Sol, 9. og 16. júlf. •7" •< , fPSft m HEIMSFERÐTRJ e y™ 1992 C 1997- Austurstræti 17,2. hæð • Simi 562 4600 - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.