Morgunblaðið - 22.06.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 15
LISTIR
Hugsýn eða
veruleiki?
Bókmenntir
Ljóöadiskur
POEMS AND MELODIES
FROM ICELAND
íslensk ljóð á ensku
eftir: Stein Steinarr, Matthías
Johannessen, Ólaf Jóhann Sig-
urðsson, Jón úr Vör, Jóhann Sig-
urjónsson, Njörð P. Njarðvík,
Nínu Björk Árnadóttur, Hannes
Pétursson, Þuriði Guðmundsdótt-
ur, Jón Óskar, Snorra Hjartarson
og Jón Dan. Valið og lesið af
Magnúsi Magnússyni. Spor 1997.
ÚRVAL íslenskra ljóða á er-
lendu máli hlýtur að takmarkast
við þær þýðingar sem til eru, nema
sérstaklega sé þýtt fyrir viðkom-
andi útgáfu. Á seinustu árum hafa
íslenskar bókmenntir fengið meiri
útbreiðslu en löngum áður og verið
þýddar á allmörg tungumál, ís-
lenskir höfundar hafa jafnframt
komið fram á mörgum bókmennta-
kynningum vítt, og breitt. Nægir
að nefna kynningar á Norðurlönd-
um, í Þýskalandi, Frakklandi og á
Englandi, þar sem fyrir fáum árum
kom út safn íslenskra nútímaljóða.
Einnig hefur bandaríska tímaritið
Vision birt þýðingar íslenskra ljóða
undanfarin ár.
Magnús Magnússon hefur valið
á þennan disk 17 ljóð í enskum
búningi 6 þýðenda. Flest ljóðin
tekur hann úr þýðingum Álans
Boucher og Sigurðar
A. Magnússonar en
einnig hefur hann
sjálfur þýtt nokkur
ljóðanna, þrjú eru
þýdd af öðrum þýð-
endum.
Eins og nærri má
geta veitir diskurinn
ekki nema ofurlitla
innsýn í íslenska
ljóðagerð undan-
gengna áratugi enda
er honum tæpast
ætlað annað. Með
það í huga sem áður
var sagt um út-
breiðslu íslenskrar
ritlistar síðustu ár, væri ekki síður
hægt að setja saman disk með
efni frá þessum áratug ef menn
hefðu hug á því, nóg er af fram-
bærilegum ljóðum og talsvert úr-
val þýðinga.
Tónlistin
í hugum íslendinga er lag Sig-
valda Kaldalóns, upphafslag
disksins, Nóttin var sú ágæt ein,
fyrst og fremst jólalag, en í huga
útlendings sem lítið þekkir til
jólavenju hér á landi, _ er þetta
aðeins fallegt lag. ísienskum
gagnrýnanda segir þetta hins
vegar það sem reyndar mátti ljóst
vera frá upphafi: að þessi diskur
er umfram allt ætlaður túristum,
e.t.v. líka til gjafa til vina og
viðskiptamanna erlendis. Ekki
verður annað séð en
því markmiði sé
ágætlega náð með
þessum diski.
Það er þó einhver
jólablær yfir tónlist-
inni á diskinum því
auk áðurnefnds lags
Kaldalóns eru þarna
t.d. Óður til jóla og í
musterinu eftir Torfa
Ólafsson og Ave Mar-
ía eftir Sigurð Braga-
son. í heild er músík-
in afar áferðarfalleg
og ljúf, undur vel flutt
af Martial Nardeau,
Tryggva Hubner og
Þóri Úlfarssyni - vekur ekki
ósjaldan hugrenningatengsl við
tóninn hjá Zamphir, rúmenska
panflautuleikaranum víðkunna.
Magnús Magnússon er fyrirtaks
ljóðalesari og flytur ljóðin á diskin-
um með mestu ágætum.
Poems and melodies from Ice-
land er afar áferðarhreinn diskur,
gefur slétta og fellda mynd af lít-
illi þjóð til lands og sjávar, í sveit
og borg, þjóð sem þrátt fyrir allt
unir sátt og jafnvel harla glöð við
sitt. Þetta er a.m.k. sú mynd sem
eftir situr í mínum huga, ekki síst
fyrir áhrif tónlistarinnar, eftir að
hafa heyrt þennan disk. Skyldi
þetta vera íslensk hugsýn eða ís-
lenskur veruleiki?
Kjartan Árnason
Magnús
Magnússon
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HLÍF Siguijónsdóttir fiðluleikari og Karólína Eiríksdóttir
tónskáid.
Nýtt íslenskt verk frumflutt
NÆSTKOMANDI þriðjudags-
kvöld heldur Hlíf Siguijónsdóttir
fiðluleikari einleikstónleika í tón-
leikaröð sumarsins i listasafni
Siguijóns Ólafssonar. Á efnis-
skránni er Partíta nr. II í d-
moll, BWV 1004 og Partíta nr.
III í E-dúr, BWV 1006 eftir Bach.
Að auki mun Hlíf frumflytja nýtt
einleiksverk sem Karólína Ei-
ríksdóttir hefur samið sérstak-
lega fyrir hana. „Verkið hefur
enn ekki hlotið heiti en að svo
komnu máii kalla ég það Hugleið-
ingu,“ sagði Karólína. „Verkið
talar sjálfstæðu máli og erfitt að
tjá inntak verksins með orðum.“
Karólína sagði að munurinn á
því að semja tónverk fyrir ein-
leikshljóðfæri annarsvegar og
kammerhijómsveit hinsvegar
væri nokkur. „Það tekur meira á
að láta eitt hljóðfæri halda uppi
heilu tónverki en mörg saman.“
Verkið var samið i fyrra og
þvi hefur flyljandinn, Hlíf Sigur-
jónsdóttir, haft góðan tima til að
veiyast því, að hennar sögn.
„Þetta er virkilega fínt tónverk
og ég mun spila það oft í kom-
andi framtíð," sagði Hlíf. „Það
er gaman að fá nýsmíði og geta
velt fyrir sér nýjum hliðum þess,
því það eru ekki öll tónverk sem
þola það. Verkið finnst mér vera
mjög þroskað. Það Ijáir ró og
eftirsjá án þess að vera sorg-
mætt.“
Hlíf Iýsti byggingu verksins
sem tilbrigðis án stefs þar sem
grunnhugmynd tónskáldsins
gengur eins og rauður þráður í
gegnum verkið. „Það byijar ró-
lega, æsist og endar rólega aftur
og ég sé hveija einustu nótu
hafa markmið,“ sagði Hlíf að
lokum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Nýjar bækur
•í TILEFNI af ljósmyndasýning-
unni „Reykjavík: Ijósmyndir og
Ijóð" hefur Árbæjarsafn gefið út
ritgerðina „Völundarhús sjón-
línanna: Reykjavík í ljósmynd-
um og Ijóðum á tuttugustu öld"
eftir Garðar Baldvinsson bók-
menntafræðing.
í ritgerðinni greinir Garðar
nokkur meginþemu ljóðskálda á
þessari öld sem fjalla um „borg-
ina“, „myndina" í víðum skilningi
og ekki síst ljósmyndina sem
tækniafurð, segir í kynningu. Og
ennfremur: í ritgerðinni segir m.a.
„Hinn nýi tími borgarinnar, með
nýja sjálfsvitund og nýtt sam-
skiptamynstur mannhafsins
kemst ekki inní ljóðagerðina á
fyrri hluta aldarinnar. Ljóðin
halda í gildi hins gamla og þá
ekki síst goðsögulega sjálfsmynd
samræmis og heildstæðni þar sem
maður og náttúra renna mjög
saman í eitt. Þessi höfnun nýrra
tíma og upphafning gamalla gilda
er mjög í samræmi við þá stöðnun
sem er talin hafa ríkt í flestu til-
liti á íslandi fram á þessa öld og
er stundum tengd við fátækt og
einæðislega dýrkun þjóðarinnar á
gullaldarbókmenntum sínum.“
Til umfjöllunar eru ljóð um þrjá-
tíu ljóðskálda sem sett hafa svip
sinn á íslenska ljóðgerða síðustu
áratugi s.s. eins og Tómas Guð-
mundsson, Steinn Steinarr, Sigfús
Daðason, Einar Bragi, Gyrðir El-
íasson, Sigfús Bjartmarsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Sigurður
Pálsson, Vilborg Dagbjartsdóttir,
Hannes Sigfússon og Þóra Jóns-
dóttir svo nokkur séu nefnd. Rit-
gerðinni er skipt upp í eftirtalda
kafla: „Ljósmyndin í myndinni“,
„Reykjavík í ljóðum fyrr á tíð“,
„Svipmyndir úr borginni", „Ferð
um borgina“, og loks „Mynd í
mynd.“
Ritgerðin er 41 bls. aðlengd
og fæst á Árbjæjarsafni.
VERIO ÞAR
SEM ÉG ER
ALMENNA MÓTIÐ í VATNAS
2 7. - 29. JÚNÍ 1997
Norski tónlistarmaðurinn
Hans-lnge Fagervik kemur til
landsins til að vera á
mótinu. Hann mun
einnig halda tónleika
[ íhúsi KFUMogKFUK
| við Holtaveg 26. júní
| kl. 20:30 ogí
“ Filadelfíukirkjunni,
Hátúni, 30. júní
kl. 20:30.
Biblíufræðsla
Samkomur
Barnastundir
Lofgjörð, sálgæsla og fyrirbæn
Fjölbreytt útidagskrá fyrir alla
aldurshópa
Tvennir tónleikar
Föstudagskvöld kl. 23:00
Hans-lnge Fagervik
ugardagskvöld kl. 23:00
ians-lnge Fagervik ásamt íslenskum
tónlistarmönnum
Ókeypis tjaldstæði
Margskonar leiktæki
Svefnpokapláss
Matsala
Mótsgjald kr. 1500
fyrir 15 ára og eldri,
ókeypis fyrir börn
4i
m
Silkiprent hf.
Allir hjartanlega
velkomnir
Nánari upplýsingar í síma 588 8899
Samband íslenskra
kristniboðsfélaga
Holtavegi 28,124 Reykjavík, sími 588 8899