Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 37
MINNINGAR
/T
OLOF
JÓNSDÓTTIR
+ Ólöf Jónína
Kristbjörg Jóns-
dóttir fæddist í
Litlu Ávík í
Strandasýslu 22.
september 1909.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
30. maí síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kirkju 5. júní.
Hversu víða tendr-
ast ekki töfrandi lit-
brigði þessa lífs okkar
hér á jörð. Tilbrigði þess svo marg-
ræð og megna svo oft að bregða
yfir för okkar þeim ljóma, sem
leiftrandi skín langt fram á veg.
Eins er það með kynni okkar og
samskipti öll við samferðafólk okk-
ar, þegar bezt lætur auðga þau og
gleðja, gefa frá sér gnótt birtu og
hlýju, veita yndi og afl til góðra
verka. Tilviljanirnar leika oft veiga-
mikið hlutverk í lífi okkar, sumar
hveijar aðeins sem fugl sem flýgur
hjá, aðrar taka sér varanlegan ból-
stað í bijósti manns. Einskær tilvilj-
un réði því að fundum okkar Ólaf-
ar bar saman, sameiginleg vinkona
var þar að verki og tilefnið afar
hversdagslegt. En hún Ólöf var
ekkert hversdagleg, öldruð kona
þegar ég kynntist henni, átti hún
æskuþrótt andans, ljómaði af lífs-
þrótti, gaf frá sér geislandi per-
sónutöfra og þar ofan í kaupið var
hún svo falleg og glæsileg kona.
Ég átti hjá henni Ólöfu ágætar
stundir, þar sem hún las mér ljóð-
perlur sínar eða þá ræddi hinar
margbreytilegu hiiðar mannlífsins
og oft bar þjóðmálin á góma, þar
hafði hún sínar fastmótuðu og
meitluðu skoðanir, enda harla vel
með hræringum þjóðlífsins fylgzt
og af skarpskyggni var þess frei-
stað að kryfja sem bezt eðli og
orsakir hinna ýmsu þátta þess.
Um ótrúlega margt fóru skoðan-
ir saman og lífsviðhorf svo lík að
Ólöf sagði oft að við værum and-
lega skyld og það tók ég sem hrós
mér til handa. Við áttum einnig
mörg samtöl gegnum síma og þar
bar margt á góma og gjarnan á
létta strengi slegið sem eyddu
gráma hversdagsins og yljuðu vel
REYNIR
ÖRN
KÁRA-
SON
+ Reynir Örn Kárason fædd-
ist í Reykjavík 28. mars
1993. Hann lést af slysförum
í Bakkagerði, Borgarfirði
eystra, 12. júní síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Bakka-
gerðiskirkju 17. júní.
í erli daganna. Ég mat
vináttu hennar mikils
og taldi mér til umtals-
verðra tekna á ævileið,
svo óvenjulega vel
gerð sem þessi gjörvu-
lega kona var, hæfi-
leikarík og heilsteypt
í senn.
Ólöf var mikilvirkur
rithöfundur og sendi
frá sér mörg hin mæt-
ustu verk sem rituð
voru af ærnu listfengi
og hagleik, full af
hlýju og ást á lífinu
og höfðu ætíð ein-
hvern hollan boðskap að flytja,
Bækur hennar sem til barna höfð-
uðu áttu greiðan aðgang að hugar-
heimi þeirra, enda Ólöfu eiginlegt
að setja sig í annarra spor og færa
í sem beztan búning. Þó hygg ég
að ljóð hennar beri af öllu er hún
samdi um dagana, þar er sem líði
fram lindir tærar, sem bera með
sér ljós og líf, hjartahlýjan yljar
alls staðar, hvort sem lífið er lofað
eða að harmræmum efnum hugað
og ástin, þetta töfraorð, fær sinn
verðuga sess í verkum hennar. Af
djúphygli er horft til leyndardóma
lífsins og litríkri fegurðinni er lof
sungið með listrænum tilþrifum.
Hún Ólöf átti gnótt góðra ljóða
sem aldrei hafa fyrir almennings-
sjónir komið og ósk hennar æðsta
vissi ég þá að þau mættu ná augum
og eyrum þeirra sem unna ís-
lenzkri ljóðlist. Ljóð hennar voru
bæði í hefðbundnu sem óhefð-
bundnu formi en hrynjandi tung-
unnar hvarvetna og kunnáttan
mikil í meðferð íslenzks máls.
í útvarpsþætti er ég annaðist
fékk ég samstarfskonu mína sem
er listaupplesari til að lesa ljóð
Ólafar og fékk ég sem hún miklar
þakkir margra fyrir. Lítill þakkar-
vottur fyrir ljúf kynni. Eðlilega
sótti elli kerling að Ólöfu þó hún
verðist vel og síðustu samfundir
okkar voru uppi í Norðurbrún á
liðnu ári. Það voru fagnaðarfundir
og enn hélt hún Ólöf sínu andlega
atgervi og útgeislun. Og nú er hún
Ólöf horfin til þeirra heima sem
hún hugleiddi svo mjög hvert ból
þeir mundu búa okkur að jarðlífi
loknu. Gengin er hugsjónakona
hollra lífsgilda, veitul samfélagi
sínu. í huga mínum er hlý þökk til
þessarar gjöfulu og góðu vinkonu
minnar sem lék af listfengi á svo
marga mannlífsstrengi. Ólöf mun
áfram lifa í ágætum verkum sínum
sem hún veitti okkur aðgang að
og vonandi mega óbirt afbragðsljóð
hennar koma fyrir okkar sjónir sem
gleðja munu alla þá er unna ljóð-
rænni fegurð. Kvödd er hæfileika-
rík kona með kærri þökk fyrir
margar mætar stundir. Megi hún
yndis sem unaðar njóta á ljóssins
löndum.
Helgi Seljan.
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
4*
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
I HOTEL LOFTLEIÐIR
I C t L A *l O A I R H O
LE6STE1NAE
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
MOSAIK
Hamarshöfdi 4 - Reykjavifc
sími: 587 1960 -fax: 587 1986
!
L'. .. ;
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast,
það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal.)
Elsku litli vinur!
Aðeins örfá orð.
Við erum svo þakklátar fyrir að
hafa fengið að kynnast þér og
fylgjast með þér. Þakka þér alla
gleðina sem þú gafst okkur. I hug-
um okkar geymum við ætíð allar
fallegu minningarnar um þig.
Hvíl í friði.
Elsku Helga Björg, Kári, Óttar,
Steinunn og aðrir aðstandendur,
innilegustu samúðarkveðjur.
Ólína, Halla og Herdís.
mmimi
HMI: 533 6050
Dofraborgir 26 og 34
Opið hús í dag milli kl. 15.00 og 18.00.
Sérlega vel skipulögð 154 fm raðhús á tveimur
hæðum á þessum mikla útsýnisstað. Möguleiki á
4 svefnherbergjum. Innbyggður bílskúr fylgir eign-
unum. Eignirnar eru til afhendingar strax og eru
þær fullbúnar að utan og tilbúnar til innréttinga að
innan.
Verð 10,3 millj., tilb. til innréttinga, en einnig er
hægt að fá eignirnar fokheldar að innan og full-
búnar að utan, er þá verðið 8 millj. Hér eru frá-
bær greiðslukjör í boði, því útborgun má greið-
ast vaxtalaus til 2ja ára.
Möguleiki er á 7 millj. kr. húsbréfaláni.
Ásmundur, sölumaður á Höfða, býður ykkur vel-
komin í dag. Hann mun vera með teikningar á
staðnum og allar upplýsingar á reiðum höndum.
FASTEIGNA
fjdi MARKAÐURINN ehf
%
S. 551-1540 F. 562-0540
SKERJAFJÖRÐUR
Nýlegt einbýli á tveimur hæðum, 250 fm, með innbyggðum
40 fm bílskúr. Á neðri hæð er góð stofa með útgangi út á
afgirta lóð, eldhús, gestasnyrting og þvottaherb. Á efri hæð
eru 4 stór svefnherb., fataherb., sjónvarpshol og baðherb.
Vandaðar innréttingar. Flísar á gólfum.
%
Jón Guðmundsson lögg., fasteignasali
Ólafur Stefánsson lögg., fasteignasali
ÓÐINSGATA 4-101 REYKJVÍK
FASTEIGN ASALAN
FINNBOGI KRISTJANSSON LOGG. FASTEIGNASALI
Síðumúli 1, sími 533 1313
■■■■■
OPIÐ HUS I DAG
Rekagrandi 10. opið hus r dag
á milli kl. 13 og 16. Um 53 fm mjög
vel útfærð íbúð á jarðhæð (slétt við
jörð), parket á gólfum og listar í loft-
um f stofu, falleg sértimburverönd.
Sameign snyrtileg. Guðrún Kaldal
býður ykkur velkomin I dag. Sú besta
á Gröndum sem ég hef séð. (V.ö.)
Áhvílandi Byggingarsjóðslán 4 millj.
FífUSel Opið hús í dag. Um 102 fm
ibúð á 1. hæð með sér herb. i kjallara,
gengt á milli. Nýtt parket, góðar innrétt-
ingar og suðursvalir. Stæði í bilskýli
fylgir með. Afh. fljótlega. Áhv. 5,3 miilj.
húsbr. Komdu við hjá Árna og
Ragnheiði á milli ki. 13 og 16.Marmari
á gólfum. Eign í sérflokki. 0454
Þinghólsbraut Kóp. 282 fm
sérstaklega vandað hús. Möguleiki að
útbúa aukaíbúð á jarðhæð. Gróðurhús á
lóð. Stór tvöfaldur bílskúr. Húsið snýr í
suður við götu með sjávarútsýni. Getur
losnað fliótleaa. Eign í sérflokki! 0332
KÉi
Vesturbær. Vorumaðfá130fm,fal-
lega og sérstaka hæð i Vesturbæ. Hátt
til lofts og vítt til veggja. Munsturlistar í
loftum og rósettur. Marmari á gólfum.
Eign i sérflokki. 0454
_____________________________________________
Opið hús, glæsieign.
Hrísmóar 7,3h.th.Garðabæ.
Stórglæsileg „penthouse“ íbúð í mjög vel staðsettu húsi í Garðabæ.
Hús og sameign í mjög góðu lagi og íbúðin má heita ný að innan.
Nýtt eikarparket á gólfum, baðherb. flísalagt í hólf og gólf með inn-
réttingu, nýjar innihurðir, ný eldhúsinnrétting og fataskápar. Mikil loft-
hæð í stofu gerir íbúðina einstaklega glæsilega og bjarta. Tvennar
svalir, stórfenglegt útsýni. Innbyggður bílskúr. Þetta er íbúð sem
margir vildu eignast og því viðbúið að hún seljist fljótt. Opið hús í
dag kl 17-19 eða eftir nánara samkomulagi s. 892 0010.
ATH íbúðin er laus til afhendingar STRAX.
SKOÐIÐ MYNDAGLUGGANN
Opið frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl. 11-14.
Sunnudaga frá kl. 12-14
Gjöríð svo vel að líta inn!
valhus@islandia.is
FASTEIGNASALA
BÆJARHRAUNI 10
Sími5651122
Ólafur Ólafsson, sölustjóri.
Vaigeir Kristinsson hrl.