Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Ferdinand
Smáfólk
SOMEWHERE IN THIS
6REAT CITY THERE HAS
TO BE A MAILBOX LOITH
A LOVE LETTER FOR ME
Einhvers staðar í þessari En það er ekki þessi... Heimski póstkassi!
stórborg hlýtur að vera póst-
kassi með ástarbréf til mín
Til varnar vinum vor-
um, Norðmönnum
Frá Ólati Ásgeirssyni:
ÞAÐ HEFUR mikið gengið á í sam-
skiptum gamalla vinaþjóða, íslend-
inga og Norðmanna, undanfarið.
Margt hefur verið sagt á opinberum
vettvangi og margt verið skrifað
sem heldur hefði verið ósagt og
óskrifað.
Ráðamenn þjóðarinnar hafa látið
hafa eftir sér orð sem síðan eru
spiluð nánast í beinni útsendingu í
norskum ijölmiðlum, og þeirra orð
og athafnir hafa í mörgum tilfellum
spillt fyrir okkur hinum sem telja
Norðmenn til okkar vina.
Ég hef verið tengdasonur Noregs
í 28 ár. Ég á því mína tengdafjöl-
skyldu í því landi og mikinn fjölda
vina og kunningja. Eg hef átt þess
kost að ferðast um þeirra fagra land
og á þeim ferðum mínum notið ein-
stæðrar gestrisni og velvilja, sér-
staklega þegar vitað er að gesturinn
er íslendingur. Þá hef ég einnig
starfað um skeið í landinu.
Á sínum tíma var sagt að norsk-
ir víkingar hefðu flúið frá Noregi
til íslands til að flýja skatta og
skyldur Norðmanna. Ennþá er sá
munur á þessum þjóðum að Norð-
menn eru a.m.k. mikið löghlýðnari
en íslendingar, þrátt fyrir að þeir
séu af öðrum þjóðum taldir nokkuð
frjálslyndir á lög og reglur. Við ís-
lendingar erum ekki taldir löghlýðn-
ir fremur en forfeður okkar og af-
skipti löggæslumanna þykja oft
smásmuguleg, en í stuttu máli þyk-
ir okkur oft nægilegt að lög og regl-
ur séu svona næstum því haldnar.
Almenningur í Noregi er hins vegar
ágætlega löghlýðinn og norskir lög-
gæslumenn vilja að lög og reglur
séu í hávegum hafðar.
Fyrir nokkrum árum var ég að
aka á norskum þjóðvegi og var þar
hámarkshraðinn 60 km á klst. Veg-
ur þessi iá yfir túnfót á bóndabýli,
og þar var hraðinn því tekinn niður
í 50 km á klst. Ég hægði hins veg-
ar ekki á mér í túnfætinum og var
tekinn í „radar" hjá norskum lög-
gæslumönnum. Ég taldi mig nokkuð
öruggan með áminningu þar sem
ég var aðeins 10 km yfir leyfðan
hámarkshraða. Það varð hins vegar
ekki svo, því ég þurfi að borga sjö
þúsund krónur ísl. í sekt. Enginn
íslenskur löggæslumaður hefði sekt-
að mig á þessum hraða.
Þeir sem aka 26 km yfír leyfðan
hámarkshraða í Noregi eru sviptir
ökuleyfi á staðnum, en hér á íslandi
þurfa menn að fara nánast helmingi
hraðar til að verða sviptir við slíkar
aðstæður. Til undantekninga telst
ef norskir ökumenn og farþegar
þeirra nota ekki öryggisbelti, og
sýnir þetta okkur nokkuð afstöðu
þeirra til iaga og reglna.
Norðmenn eru auðug þjóð og
velferð þar mikil. Landið er stórt,
en mikill munur á búsetu í Suður-
og Norður-Noregi. í raun má segja
sem svo að fólk í Suður-Noregi
þekki ekkert til fiskjar, en í Norður-
Noregi er lífíð fiskur.
Það er því ekki að undra þótt
fólk í norðurhéruðum Noregs sé
reitt okkur íslendingum og fleirum,
sem eru á veiðum á þeim stöðum
þar sem norskir sjómenn telja að
séu uppeldisstöðvar fyrir þann fisk
sem þeir ætla að veiða síðar. Skert-
ar aflheimildir í Noregi koma jafn
illa við þá og okkur íslendinga.
Fiskveiðar Norðmanna skipta þá
ekki eins miklu máli fyrir heildar-
þjóðarhag og okkur íslendinga, en
eins og áður segir skiptir það íbúa
í norðurhéruðum Noregs miklu máli,
sem eiga allt sitt undir fiski.
Við Islendingar áttum þess kost
fyrir skemmstu að fylgjast með þeg-
ar norskir strandgæslumenn tóku
skipið Sigurð og færðu það til hafn-
ar í Noregi. Þá vorum við íslending-
ar ekki ánægðir og töldum að skip-
ið hefði verið tekið fyrir litlar sakir.
Ég vil taka það fram að hvorki ég
né flestir aðrir vitum nákvæmlega
um hvað var deilt, en eitt er víst
að skipstjórinn fékk sekt, en það
eitt veit ég að norskir dómstólar eru
ekki síðri en þeir íslensku, og a.m.k.
mundi ég treysta þeim fyrir velferð
minni. Ummæli margra íslendinga
um lög og reglur í Noregi eru oft
kyndugar, því margir tala eins og
þar séu hvorki til hæfir lögfræðing-
ar né hæfir dómarar og því síður
sé nokkuð vit í þeirra lögum og
reglum. Eins og okkar dómstólar
eru norskir dómstólar sjálfstæðir og
láta ekki undan þrýstingi ráða-
manna, og því síður láta þeir um-
mæli þeirra um þá hafa áhrif á nið-
urstöður sínar.
íslensk stjórnvöld töldu nauðsyn-
legt að leggja mikinn þunga á þetta
mál og fóru með ráðuneytisstjóra
tveggja ráðuneyta, lögmenn o.fl. í
einkaflugvél og m.a. virðist útgerð-
armaður bátsins hafa fengið að
fljóta með, sennilega á kostnað okk-
ar skattborgara. Þessi uppákoma
þótti nokkuð skondinn, bæði hjá
okkur íslendingum og ekki síður hjá
Norðmönnum, sem gerðu góðlátlegt
grín að flugferðinni og var m.a.
sagt að ferðamönnum til Noregs
hefði fjölgað um farþega einnar
lítillar flugvélar. Alla vega fékk
málið sína meðferð í Noregi þrátt
fyrir þennan þrýsting íslenskra
stjórnvalda.
Ég vil minna á að um sama leyti
eru íslensk stúlkubörn til fjalla í
Tyrklandi í þeim tilgangi einum að
halda þeim frá venjulegum um-
gengnisrétti íslenskrar móður, en
ég tel að flugferðin með ráðuneytis-
stjórana o.fl. hefði betur verið farin
þangað til að þrýsta á tyrknesk yfir-
völd til að framfylgja þarlendum
dómsúrskurðum.
íslenska Landhelgisæslan hefur
oft tekið bæði erlend og íslensk
skip fyrir meintan veiðiþjófnað eða
brot á öðrum reglum um umgengni
okkar mannanna við náttúruauðinn.
Utgerðarmenn bæði erlendir og ís-
lenskir hafa yfirleitt mótmælt slík-
um vinnubrögðum gæslunnar, en
þá hefur okkur Islendingum þótt
lítið um slík mótmæli og hef ég
grun um að svo sé einnig í Noregi
um mótmæli okkar eða svokallaðan
þrýsting ráðamanna.
Ég vona að samskipti okkar ís-
lendinga og Norðmanna eigi eftir
að verða jafngóð og þau voru áður,
þrátt fyrir þessar uppákomur og
ég bið alla Norðmenn afsökunar á
öllum leiðinda orðum sem um þá
hafa fallið síðustu daga, og ég veit
að ég tala fyrir munn flestra Islend-
inga.
Ólafur Ásgeirsson,
Akureyri.
MOHGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborö: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, fþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.