Morgunblaðið - 22.06.1997, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 22.06.1997, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA IDAG um Amesþing ii Sunnudaginn 29. júní verður farin pílagrímsferð um Árnes- þing. M.a. verða sóttir heim þrír þeirra staða, er beinlínis varða minningu kristnitökunnar á Þingvöllum við Öxará árið 1000. Menn munu koma víðar við og ljúka ferðinni í Skálholti. Tíminn, sem valinn er til ferðarinnar, tengist sögu Alþing- is hins forna, en það var háð um þetta leyti sumars. Sunnudaginn 29. júní fer fólksflutningabifreið frá Um- ferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 12.00 á hádegi. Hugmyndin er sú, að þeir pílagrímar frá Reykjavík, sem ekki koma á einkabifreiðum, noti þetta tæki- færi til að slást í förina. Far með fólksflutningabifreiðinni er ókeypis og í boði Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þeir sem koma á einkabifreiðum, geta að sjálf- sögðu slegizt í förina hvar og hvenær sem þeim hentar. Klukkan 13 munu menn safn- ast saman við Vellankötlu í Vatnsviki við Þingvallavatn austarlega í Þjóðgarðinum. Vell- ankatla kemur við sögu kristni- tökunnar, en þar komu kristnir menn saman og riðu þaðan á Þingvöll kristnitökusumarið. Þarna mun sóknarprestur á Þingvöllum hafa orð fyrir mönn- um. Frá Vellankötlu verður ekið á Þingvöll og gengið á Lögberg. Þar mun séra Hjalti Hugason prófessor í kirkjusögu flytja stutt erindi um kristnitökuna. Síðan halda pílagrímar áfram ferð sinni, unz þeir koma að Vígðulaug á Laugarvatni um eða eftirkl. 15.00. Við Vígðulaug mun sér Rúnar Þór Egilsson á Mosfelli fagna gestum. Því næst tekur Kristinn Kristmundsson skólameistari til máls og segir frá lauginni, en í henni voru menn skírðir eftir kristnitökur árið 1000. Frá Vígðulaug leggja ferða- langar leið sína að Marteinslaugu í Haukadal. Þar mun séra Guð- mundur Óli Ólafsson í Skálholti bjóða menn velkomna og greina frá sögu laugarinnar. Um eða eftir kl. 17.00 koma pílagrímar í Skálholt. Þar mun séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup taka á móti gestum og eiga við þá orðastað í dóm- kirkjunni. Lýkur svo pílagríms- ferð um Árnesþing. Gjört er ráð fyrir, að fólksflutningabifreiðin verði komin aftur að Umferðarm- iðstöðinni í Reykjavík seint á 19. tímanum. Sú er von undirbúningsmanna, að ferð þessi geti orðið þátttak- endum alit í senn til skemmtun- ar, fróðleiks og uppbyggingar. Jafnframt er ferðin hugsuð sem eins konar andlegur undirbúning- ur Kristnihátíðar árið 2000. - Nánari upplýsingar um ferðina er að fá í síma 482-2675. í dag er fjórði sunnudagur eftir Þrenningarhátíð. Tvö af guðspjöllum dagsins eru úr Fjall- ræðunni, Matt. 5:38-48 og 7:1-5, en hið þriðja úr hliðstæðu efni Lúkasar 6:36-42. í fyrsta nefnda guðspjallinu er m.a. þessi orð Jesú að finna: „Þér hafið heyrt, að sagt var: „Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn.“ En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður, svo að þér reynist böm föður yðar á himnum, er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfír réttláta sem rangláta. Verið þér því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn." Síðast liðinn sunnudag lagði ég sérstaklega út af orðum Páls postula í bréfínu til Efesus- manna: „Því að af náð eru þér hólpnir orðnir fyrir trú“ (Ef. 2:8). Nú er vert að íhuga, hvemig þau ummæli koma heim og saman við hin afdráttarlausu orð Fjall- ræðunnar. III Líf kristins manns er stöðugt ferli frá iðran til fyrirgefningar og þaðan út á meðal manna með kærleiksboðskap Krists, kröfuna um að elska óvinina og vera full- kominn eins ogfaðirinn himneski er fullkominn. í kjölfar kröfunnar sprettur iðrunin fram á ný og þannig koll af kolli. Við hveija hringferð þroskast maðurinn og færist nær Guði. En í þessum heimi lýkur ferlinu aldrei. Hversu mjög sem maðurinn kappkostar að betra líferni sitt verður hann ætíð jafn þurfandi fyrir þá náð, sem veitist í trú. Og hversu mjög sem maðurinn hvílir í trúnni knýr kærleikskrafa Krists án afláts dyra í launkofa hjarta hans og sendir hann aftur út til góðra verka meðal systra og bræðra. Kristinn dómur er á marga Iund þverstæðukenndur. Hér er ein af mörgum þversögnum hans. Sá sem fagnaðarerindið flytur hefur ekki leyfi til að draga úr þversögnunum. Hann má hvorki slá af kærleikskröfunni né skyggja á náðina. Hins er þó að minnast, að sú náð sem veitist fyrir trú er upp- spretta elsku til bræðra og systra: Guð elskar oss að fyrra bragði. Þess vegna elskum vér samferðamenn vora. Elska Guðs og manns upphefur þversögnina og lyftir manninum „hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín“, unz hann verður fullþroska og nær „vaxtartakmarki Krists fylling- ar“ (Ef. 4:13). Sunnudaginn 29. júní fer fólks- flutningabifreið frá Umferðar- miðstöðinni í Reykjavík kl. 12.00 á hádegi. Séra Heimir Steinsson. JEw0rmlW«í»ií> - kjarni málsins! VELVAKANDI Svarað I síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Övandaður þáttur í sjónvarpinu í GÆR, 18. júní, var í sjón- varpinu þáttur sem hét „Þótt þú langförull legðir" um vesturferðir íslendinga fyrr og nú. Reyndar var þessi þáttur mest um ferðir tveggja kóra vestur um haf en ekki um vesturferðir íslendjnga en látum það nú vera. í þættinum var maður nefndur Áskellsson þótt vitanlega eigi að skrifa það Áskelsson. Borgin Winni- peg var skrifuð Vinnipeg. Verst af öllu var þó að þjóðskáldið Grímur Thom- sen fékk ekki nafn sitt rétt ritað. Það var skrifað Tomsen og hafa menn aldrei séð það fyrr. Það er leitt til þess að vita að sjónvarpið skuli senda frá sér svona óvandaðan þátt. Ingvar. Laugvetningar hittast í MARS-mánuði sl. hittust nokkrir Laugvetningar af árgöngum 1946-48 í þeim tilgangi að hóa saman skólafélögum frá þessum árum til að minnast 50 ára skólavistar þar. Ákveðið var að halda makalausa samkomu 28. júní nk. á Laugarvatni. Vonast er eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. Þeir sem vilja geta komist með rútu frá Umferðarmiðstöðinni sem fer kl. 13 sama dag. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Gunnar í síma 568-5822 eða sent honum símbréf 568-5439. Ekki flaggað á 17. júní KONA hringdi og var hún að velta því fyrir sér hvers vegna ekki hafi verið flagg- að á KR-húsinu við Kapla- skjólsveg 17. júní. Flagg- stöngin var auð og enginn fáni uppi. Eiga KR-ingar ekki íslenska fánann? Tapað/fundið Regnhlífin er fundin MAÐUR kom inn í „Svarta Svaninn" sl. miðvikudag, til að spyijast fyrir um regnhlíf, er hann taldi sig hafa tapað á þjóðhátíðar- daginn. Enginn kannaðist þá við málið, en síðar kom í ljós að hún var á staðnum. Um er að ræða svarta veglega regnhlíf, og er eig- andinn vinsamlega beðinn að koma og ná í hana. Gult kvenhjól KONAN sem gaf upplýs- ingar um gult kvenhjól sem tapaðist frá Dunhaga er vinsamlega beðin að gefa nánari upplýsingar í síma 551-7527. (Símsvari). Gleraugu töpuðust LÍTIL brún kvengleraugu töpuðust í miðbæ Reykja- víkur að kvöldi 17. júní sl. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 554-6988. Hnakkur tapaðist HNAKKUR tapaðist í Réttinni við Þjórsárbrú sl. laugardag. Finnandi vin- samlegast hafi samband við Höllu í síma 565-4206. Veski fannst Veski fannst í síðustu viku. Uppl. í síma 552-3289. Bolti tapaðist Á föstudag tapaðist rauður barnakörfubolti merktur Chicago Bulls á fótbolta- vellinum við Hlíðaskóla. Boltinn var afmælisgjöf og er hans sárt saknað. Skil- vís finnandi vinsamlega hringi í síma 552-4767. Dýrahald Kettlingar fást gefins Kettlingar fást gefins. Uppl. í síma 586-1485. Kettlingar óska eftir heimili ÞRÍR kettlingar, kassa- vanir, fást gefins. Uppl. í síma 555-3403. Kisi í vanda ÉG heiti Mikki (refur) og er greindur, fallegur og skemmtilegur og geldur 5 ára gamall fress. Er ekki einhver góðviljaður sem getur bjargað mér annað hvort í sveit eða í bænum. Einn á heimilinu þolir mig ekki vegna þess hve loðinn ég er, hóstar bara og græt- ur. Mikið væri ég þakklát- ur ef þið vilduð hringja í síma 552-9044 og tala við Helgu. bestu kveðjur Mikki. Tík fæst gefins ÁTTA mánaða svarta blendingstík bráðvantar nýtt heimili. Hún er hlýðin og gæf. Upplýsingar í síma 567-0887. Kettlingar fást gefins TVEIR kettlingar óska eft- ir góðu heimili. Uppl. í síma 568-7234. Páfagaukur fannst í Kópavogi PÁFAGAUKUR, gulur og grænn á bringu með svart- ar doppur í fjöðrum, fannst í Vallargerði, Kópavogi. Uppl. í síma 554-1099. Tumi hvarf í Hlíðunum TUMI, sem er gulbröndóttur fress, með hvíta bringu, hvíta snoppu og hvítt á loppum, hvarf föstudaginn 13. júní í Safamýri en hann á heima í Drápuhlíð. Hann er eyrnamerktur R-7H096. Þeir sem hafa orðið varir við kisa eru beðnir að láta vita í síma 893-0507, 553-4233, 551-2281 eða 562-6466 (símsvari). Víkveiji skrifar... SÓLMÁNUÐUR, þriðji mánuður sumars, hefst á morgun, 23. júní, að fornu tímatali. Þá voru og vorvertíðarlok. Jónsmessunóttin er aðfaranótt 24. júní. 24. júní, Jónsmessudagur, er talinn fæðingardagur Jóhannesar skírara. Þann dag er og talið að Islendingar hafi tekið kristinn sið á Þingvöllum við Öxará árið 1000. Þetta er því mikill merkisdagur í hugum kristinna manna hér á landi. 25. júní er og kunnur fyrir sitt hvað. Þá stóð Flóabardagi árið 1244. Og þennan dag árið 1809 tók Jörundur hundadagakonungur völd á íslandi. Á hans skamma „konungsferli" var fyrsti sérís- lenzki fáninn dreginn að hún, þrír hvítir þorskar á bláum feldi, og „allur danskur myndugleiki upp- hafinn á ísiandi." 26. júní á einnig sinn sess í Is- lands sögu. Þann dag var sett Al- þingishátíð á Þingvöllum árið 1930. Tilefnið var að þá voru þús- und ár liðin frá stofnun Alþingis, allsheijarþings hins forna þjóðveld- is. Ásgeir Ásgeirsson flutti hátíðar- ræðuna, en hann varð síðar forseti lýðveldisins, annar í röðinni. Þann 27. júní árið 1855 kom fyrsta gufuskipið til íslands. Það voru vissulega tímamót í sögu ey- þjóðar. Vélknúin skip gjörbreyttu lífi far- og fiskimanna. Vikan, sem í hönd fer, minnir okkur sum sé á sjálfan sólmánuð- inn sem og ýmis merk tíðindi: fæð- ingu Jóhannesar skírara, stofnun Alþingis, kristnitöku íslendinga, upphaf vélskipaaldar, svo eitthvað sé nefnt. Það státa ekki allar vikur af jafnmörgum merkisdögum. XXX FJARSKIPTA- og samgöngu- tækni nútímans hefur fært þjóðir heims í nábýli. Það tekur inn- an við eitt dægur að fljúga til fjar- lægustu heimshoma. Átburðir hin- um megin á hnettinum geta sést á sjónvarpsskjánum okkar samtímis og þeir gerast. Erlendir fjölmiðlar, blöð, útvarp og sjónvarp, era í hvers manns ranni. Ferðalög landa á milli era og nánast hluti af hvunndegi nútímamannsins. Við tengjumst æ nánar öðrum þjóðum og öðram menningarheim- um. Þessi þróun hefur fjölmarga kosti í för með sér - og fáeina galla. Suma alvarlega, eins og fjölþjóðleg- an eiturlyfjavanda. Fámennar þjóðir eiga og á hættu að týna sérkennum sínum og sjálfum sér í þessum fjöl- þjóðagraut. Oft var þörf en nú er nauðsyn fyrir litla þjóð, eins og okk- ur íslendinga, að rækta og varðveita menningararfínn og móðurmálið. xxx MENNINGARLEGT sjálfstæði er ein meginforsendan fyrir stjórnarfarslegu fullveldi. Menning- arlegt sjálfstæði okkar byggist á móðurmáli og bókmenntaarfi. Það er váboði þegar afturför segir til sín í málkennd landsmanna, eins og dæmin sanna nú um stundir. Við þurfum öll, að mati Víkverja, að leggja aukna rækt við móður- málskunnáttu og málvöndun. Þetta á bæði við um talað mál og ritað. Við þurfum ekkert síður að varð- veita réttan framburð en rithátt. Við þurfum að átta okkur á því að íslenzkunám hefst um leið og mál- taka barna og stendur meðan ævin endist. Lestur fyrir börn á mótunar- skeiði skiptir mjög miklu máli. Sjónvarp og útvarp glymja í eyr- um svo að segja allan sólarhring- inn. Það er beinlínis hættulegt þeg- ar illa talandi fólk lætur móðan mása á öldum ljósvakans. Ljósvaka- miðlar þurfa að gera mun strang- ari kröfur um móðurmálskunnáttu og góðan framburð en nú er gert. Heimili, skólar og fjölmiðlar þurfa að leggja allar árar út um málrækt og málvernd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.