Morgunblaðið - 22.06.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
iKRINGLUBÍ# KRINGLUBÍCl KRINGLUBléí KRlNGLUBIvj KRINGLUBfcl!
S í M I .5 8 8 0 8 0 0 K B I N G L U N N 1
S I M I .5 8 8 0 8 O 0
K R I N G LU.N N.14-6, SÍMI 588 0800
Samansafn
af seiðum
TÓNLIST
Gcisladiskur
POLYDISTORTION
Fyrsta geislaplata listahópsins
Gus Gus. Lagahöfundar eru sveitar-
menn og meðlimir hljómsveitarinnar
Slowblow ásamt erlendum lista-
mönnum. Upptökustjóm, útsetning-
ar og hljóðblöndun vom í höndum
Páls Borg og hljómsveitarinnar
sjálfrar. 4AD 1.999 kr. 61 mínúta.
ÞAÐ ER alltaf skemmtilegt þeg-
ar frumlegir listamenn bijóta niður
fordóma Islendinga með því að slá
í gegn erlendis. Þá fara menn að
hlusta. „Hvað ætli sé svona gott
við þessa tónlist?“ spyrja þeir sjálfa
sig, en segjast að sjálfsögðu hafa
verið aðdáendur viðkomandi lista-
manna frá upphafi.
Geislaplatan Polydistortion með
Gus Gus er einfaldlega afbragðs-
góð. Liðsmenn þora að fara eigin
leiðir og eru greinilega ekki að
hugsa um að þóknast neinum. Tón-
listinni má lýsa sem samansafni
af seiðum, dáleiðandi tripphoppi
með viðkomu í ýmsum tónlistar-
stefnum.
Niu manns skipa þennan fjöl-
listahóp og það sem vekur athygli
er að allir hafa eitthvað fram að
færa. Daníel Ágúst Haraldsson og
Magnús Jónsson eru atkvæðamest-
ir í lagasmíðum, Daníel með tvö lög
einn, kemur að tveimur öðrum og
Magnús með þijú lög. Sigurður
Kjartansson, Páll Garðarsson, dú-
ettinn Slowblow, Birgir Þórarins-
son og nokkrir erlendir tónlistar-
menn koma einnig við sögu.
Daníel Ágúst „á“ fyrri hluta plöt-
unnar, enda eru ijögur fyrstu lögin,
Oh, Gun, Believe og Polyesterday
öll eftir hann, einn eða með öðrum.
Þessi fyrri hluti plötunnar er geysi-
sterkur, hvert lagið öðru betra.
Daníel hefur þama fundið taktinn
og vonandi byijar hann ekki aftur
í Nýdönsk, þótt sú sáluga sveit hafi
verið ágæt á sínum tíma.
Magnúsar þáttur Jónssonar sem
lagasmiður er misjafn, allt frá því
að vera frábær í að vera sæmileg-
ur, en hann semur lögin Barry,
Why og Remembrance. Why sting-
ur nokkuð í stúf á plötunni, einfalt
og frekar hefðbundið popplag sem
er fínt við fyrstu hlustun en venst
ekki of vel. Emiliana Torrini fer
þó vel með sönginn eins og við var
að búast. Remembrance er besta
lag Magnúsar á plötunni og reynd-
ar eitt besta lag plötunnar.
Hafdís Huld syngur lagið Cold
Breath ’79 eftir Sigurð Kjartansson
og Pál Garðarsson. Lagið er gott
og Hafdís syngur vel. Hún mætti
þó huga aðeins betur að ensku-
framburðinum.
Slowblow-bræður spytja hinnar
áleitnu spurningar Is Jesus Your
Pal? og koma sterkir inn. Einhvern
veginn hefur maður á tilfinning-
unni að lagið hafi ekki alltaf hljóm-
að eins og á plötunni.
Rétt er að minnast á hljóm plöt-
unnar, en hann er óvenju góður og
ber vitni um fagmennsku hljóð-
mannsins Páls Borg.
Velgengni Gus Gus er ekki tilvilj-
un. Tónlistin er áræðin og flutning-
ur er framúrskarandi. Með Polydi-
stortion í plötusafninu er maður
nokkuð vel staddur og sér meðvit-
andi um það besta sem íslenskir
tónlistarmenn bjóða upp á.
Ivar Páll Jónsson
SV. MBL
HELD AÐ JAFNVEL SVÆSNUSTUjf
FÝLUPOKAR KOMIST EKKI HJÁ ÞVÍ
AÐ HAFA NOKKURT CAMAN AÐ ÞEIM
MAKALAUSU HUNDAKÚNSTUM SEM
rÞESSI FITUHLUNKUR NÆR ADTÖFRA,
> FRAM ÚR ERMINNI"
CHRIS FARLEY
BEVERLY HILLS