Morgunblaðið - 22.06.1997, Page 53

Morgunblaðið - 22.06.1997, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 53 MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/SJÓIMVARP-ÚTVARP Tímalaus sam- mannleg vandamál Þeir kalla sig Fóstbræð- ur og grínið er þeim í blóð borið. Hildur Morgunblaðið/Ásdís SIGURJÓN Kjartansson, Benedikt Erlingsson og Jón Gnarr skeggræða örlög grínistans. Loftsdóttir sperrti upp eyrun er hún heyrði þá skeggræða sam- vinnuna. NÆSTA haust verða á dag- skrá Stöðvar 2 grínþættir Fóstbræðra. Jón Gnarr, Siguijón Kjartansson, Benedikt Erl- ingsson og Hilmir Snær Guðnason eru bræðurnir, og Helga Braga Jóns- dóttir gekk til liðs við þá. Helgu Brögu þáttur Jónsdóttur „Það er frábært að Helga skuli vera ein af okkur,“ segir Siguijón strax. Benedikt Erlingsson: Það er stór- kostlegt, en þá finnst mér nafnið ekki alveg passa. SK: Já, þér finnst það, en við Jón vissum alveg frá upphafi að þetta frábæra nafn myndi ná langt. Jón Gnarr: Við voða heimskir, kölluðum hópinn Fóstbræður, svo komumst við að því að Helga Braga er ekki bróðir okkar. SK: Hún er mamma okkar allra. BE: Upphaflega áttum við fjórir að skrifa og leika í þessum átta þáttum. Til að endurspegla þjóðfé- lagið, skrifum við um konur og ætl- uðum að fá ýmsar leikkonur á móti okkur, en að lokum fengum við Helgu Brögu til að leika konuna í öllum atriðunum. SK: Helga er ekki bara ein kona. JG: Helga er svo stórbrotin mann- eskja. Hún er svo frábær leikari, að hún getur leikið allar konur. SK: Og menn líka. BE: Þess vegna tókum við hana inn í hópinn. Ást við fyrstu sýn SK: í upphafi komum við Jón að máli við eiginlega guðmóður okkar Laufeyju Guðjónsdóttur á Stöð 3. Hún stakk upp á því að mynda grínhóp. Við vorum afskaplega hrifnir af þeirri hugmynd og höfðum samband við Benna og Hilmi, þar sem við höfðum séð þá troða upp í leikarapartýjum. Það vildi svo skemmtilega til að þeir voru tilbúnir með fullt af frábærum atriðum sem voru nákvæmlega eins og við vildum sagt hafa. JG: Samt ólíkt, en það gefur meiri breidd. Við Siguijón komum með efni sem er einkennandi fyrir okkur °g þeir sömuleiðis. Svo skiptumst við líka á að skrifa saman. BE: Þótt við gerum mjög ólíkt efni, þá „fílum“ við hver annan mjög vel. SK: Það má segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn. Ólíkir bakgrunnar SK: Jón þarf alltaf að vera að tala um áhrifavalda. Ég þoli það ekki. Ljósmynd/Eyþór Ámason POLKAKARLARNIR Sigur- jón og Jón á góðri stundu. JG: Við Siguijón erum nefnilega aldir upp á ensku og bandarísku grínefni, sem við höfum sogað í okkur í gegnum árin. Það er annað með félaga okkar sem eru t.d. aldir upp á menningarheimili á Laufás- veginum. SK: Við bókmenntir og sjaidgæf vín, þar sem Tarkovsky og Chekov koma í mat. JG: Það eimir enn af gamla Iðnó andanum í Benna. Hann er með hann í blóðinu. SK: Þetta er fallegt. BE: Munurinn á okkur kristallast í því að við Hilmir búum báðir í Þing- holtunum, og höfum alltaf gert, en þessir drengir búa í Grafarholtinu við hliðjna á Korpúlfsstöðum! JG: Ég er nyög stoltur af því. BE: Þessi samsetning er nefnilega skemmtileg. Hún gefur af sér margt gott. SK: Þrátt fyrir þetta erum við ein þjóð. JG: Og ótrúlegt en satt, þá eigum við ýmislegt sameiginlegt. Tvær bíómyndir á 19 dögum JG: Við leitumst við að hafa atrið- in sígild svo að fólk geti horft á þættina eftir tíu ár og haft jafngam- an af þeim og í dag. Við drögum ekki dám af líðandi stund, heldur tökum fyrir sammannleg vandamál eins og Sókrates. BE: Eins og leikhúsið gerir. SK: Nema það að við tökum flest allt upp á vettvangi. JG: Það er svolítið skemmtilegt að við tókum upp tvo þætti fyrir Stöð 3. Þegar Stöð 2 frétti af þátt- unum, ákvað hún að kaupa Stöð 3. Þegar á Stöð 2 var komið, skrifuðum við sex þætti í einni lotu. Síðan voru tökur frá níu á morgnana til tvö á nóttunni. BE: Þetta eru 150 mínútur, næst- um tvær bíómyndir, teknar upp á 19 dögum! JG: Þess vegna viljum við að það komi fram að það er fjöldinn allur af fólki sem kemur að þessum þáttum. SK: Og það vann svakalega mikla vinnu á stuttum tíma. BE: Helga Rún Pálsdóttir bún- ingahönnuður og Styrmir Sigurðs- son leikstjóri eru snillingar og Styrmir er álíka höfundur að þessu og við. SK: Hann klippir þetta allt til og er eiginlega sjötti fóstbróðirinn. JG: Þetta gekk allt svo vel af því við vorum með frábært fólk. Förð- unarmeistarinn okkar hún Ingibjörg hefur sminkað fræga leikara í Þýskalandi! BE: Ég spurði hana hvemig henni fyndist að sminka Fóstbræður miðað við Þjóðverjana, og hún sagði „þokkalegt". JG: Sem þýðir „frábært“ miðað við höfðatölu. Ekki fyndið! JG: Já, það gekk mikið á í þess- ari samvinnu. SK: Muniði þegar ég datt á rass- inn? BE & JG: Ha, ha, ha! JG: Já, við getum sagt eina skemmtilega sögu af Benna sem er leikhúsmaður og vandur að virðingu sinni. Við skrifuðum atriði sérstak- lega fyrir hann sem var Kanínan með ljáinn sem sækir fólkið yfir móðuna miklu. Benna fannst þetta svolítið niðurlægjandi. BE: Mér fannst þetta ekki fyndið. Ferlega ömurlegt. En svona gengur þetta. Við Hilmir skrifuðum atriði sem okkur fannst voða fyndið. En við vildum láta Jón og Siguijón leika það af því maður þurfti að vera i sundskýlu allan tímann! JG: Svo tókum við atriði í sundlaugasturtunum, sem fjallaði um samviskusaman baðvörð. Allir voru mættir í sturturnar nema Siguijón og við komum okkur saman um það að segja við Sigur- jón að það mætti ekki nota heitt vatn, því þá kæmi móða á myndavélarnar. Sigurjón stóð undir ískaldri sturt- unni í nokkrar sekúndur, svo stökk hann öskrandi út þv( hann bara gat þetta ekki. Þá fórum við að hlæja! SK: Það er svona Hemma Gunn stíll á þessari sögu hjá þér. JG: Einhver særindi í gangi? Fjórar mil\jónir! JG: Þetta er búið að vera alveg æðislega skemmtilegt samstarf, og það er... SK:.. .ömurlegt að það skuli vera búið, og að það verði aldrei aftur. BE: Það er ofsalega mikill kær- leikur á milli okkar. Við hælum hver öðrum mikið og það skilar sér. Því í svona hóp getur myndast neikvæð- ur húmor, sem er ekki húmor þegar til lengri tíma er litið, heldur bara niðurbijótandi afl. JG: Við höfum stutt hver annan á erfiðum stundum og erum mjög ánægðir með árangurinn. BE: Kannski verður þetta ömur- legt. SK: Ef grínisti efast um að hann sé skemmtilegur, þá er hann það ekki. BE: Við fengum samt íjórar millj- ónir úr Menningarsjóði útvarps- stöðva eftir að hafa sent inn efni. JG: Fjórar milljónir! Við fengum meira eða jafnmikið og Sunnudags- leikhús Sjónvarpsins og það segir sína sögu. Við erum bæði stoltir og þakklátir. HILMIR Snær sem framliðinn mað- LEIKARARNIR Benedikt, Sigurjón ur, fangaður af kanínunni með ljá- og Jón spjalla við aðdáendur sína, inn Benedikt Erlingssyni. Hilmi Snæ og Helgu Brögu. ELGO' MÚRFLEX á svalir og þök ELGO-MÚRFLEX er notað til vatnsþéttingar á byggingum úr steinsteypu og er sérstaklega hentugt varnarlag bæði á svala- gólf og slétt þök. í 25 ár hefur Steinprýði ehf. selt og framleitt ELGO-MÚRVÖRUR og verið í fararbroddi í viðgerðum og viðhaldi húsa. Verið velkomin og leitið ráðlegginga. ■■ ■I steinprýði Stangarhyl 7, Reykjavík, sími 567 2777 íslenskt já takk Hundrað félagar á Menntabraut hafa fengið senda miða, i boði íslandsbanka, á stórtónleika með Sting i Laugardagshöll, n.k. rniðvikudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.