Morgunblaðið - 22.06.1997, Qupperneq 56
MORGVNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Kosið um sameiningu
KOSIÐ var um sameiningu Kjalar-
neshrepps og Reykjavíkur í gær. Á
kjörskrá í Reykjavík voru 77.514
manns og á hádegi höfðu 1.147 kos-
ið eða 1,48 prósent þeirra sem voru
á kjörskrá. Á Kjalarnesi höfðu 29
manns kosið á hádegi, eða 0,8 pró-
sent, en alls eru 353 á kjörskrá.
Jónas Vigfússon, sveitarstjóri,
mætti á kjörstað Kjalarneshrepps
um kl. 10 í gærmorgun. í kjörstjórn
hreppsins eru f.v. Kolbrún Guð-
mundsdóttir, Páll Ólafsson, formað-
ur, og Svala Árnadóttir.
Fjögur verkalýðsfálög í Húnavatnssýslu sameinast
Til verður 800
manna félag
FÉLAGSMENN í fjórum verka-
lýðsfélögum á Blönduósi, Hvamms-
tanga og Skagaströnd ætla að
stofna nýtt verkalýðsfélag í dag. í
þessum félögum eru 800 félags-
menn. Valdimar Guðmannsson, for-
maður Verkalýðsfélags A-Húnvetn-
inga, segir að með sameiningunni sé
stefnt að því að veita félagsmönnum
betri þjónustu og spara í rekstri.
Félögin sem standa að stofnun
hins nýja félags eru Verkalýðsfélag-
ið Hvöt á Hvammstanga, Verslunar-
mannafélag Húnvetninga á Blöndu-
ósi, Verkalýðs- og sjómannafélag
Skagastrandar og Verkalýðsfélag A-
Húnvetninga á Blönduósi. Þrjú
fámennustu verkalýðsfélögin á
svæðinu kusu hins vegar að vera
ekki með í sameiningunni, en þau
eru Verslunarmannafélag V-Hún-
vetninga á Hvammstanga, Verka-
lýðsfélag Hrútafjarðar og Iðnsveina-
félag Húnvetninga. I þessum þrem-
ur félögum er samtals innan við 100
manns. Félagsmenn í Verslunar-
mannafélagi V-Húnvetninga felldu
tillögu um sameiningu á jöfnu at-
kvæðamagni á félagsfundi.
Spamaður og bætt þjónusta
Valdimar sagði að verkalýðsfélög
á litlum stöðum ættu í erfiðleikum
með að halda uppi eðlilegri þjónustu
við félagsmenn vegna smæðar og
þessi sameining væri því jákvætt
skref í sínum huga. Hann sagði að
með sameiningu næðist nokkur
sparnaður í bókhaldi, endurskoðun
og fundakostnaði. Þjónusta við fé-
lagsmenn myndi hins vegar batna.
Samkomulag væri milli félaganna
um að höfuðstöðvar hins nýja félags
yrðu á Blönduósi, en skrifstofm- yrðu
einnig opnar á Hvammstanga og
Skagaströnd hluta úr degi.
Valdimar sagði að með sameiningu
félaganna fengju félagsmenn fjöl-
breyttaii kosti varðandi orlofshús.
Með sameiningu yrði einnig til sterk-
ur sjúkrasjóður. Hann sagði að þó að
sjúkrasjóðir félaganna ættu einhverja
peninga væru þeir fljótir að fara ef
eitthvað alvarlegt kæmi upp á.
Valdimar sagðist telja að það væri
ekkert vandamál að sameina versl-
unarmenn, fískvinnslufólk og sjó-
menn í eitt félag. Hann sagði að í
sínu félagi væru þessir hópar og því
fylgdu ekki vandamál. Nýja félagið
yrði deildaskipt.
Valdimar sagði að lögð yrði tillaga
fyrir stofnfundinn, sem hefst á
Blönduósi í dag kl. 14, um að bráða-
birgðastjórn yrði kosin og ný stjórn
kosin á framhaldsstofnfundi í haust.
Flugþjónusta
í Evrópu
Flug-
þjónust-
an ehf. í
sjötta sæti
FLUGÞJÓNUSTAN ehf. á
Reykjavíkurflugvelli lenti í
sjötta sæti yfir þjónustuaðila á
flugvöllum í Evrópu í könnun
tímaritsins Aviation
International News, fréttablaði
um alþjóðleg flugmál. Könnun-
in fór fram meðal flugmanna í
síðasta mánuði.
Árlega hafa um 1.200 vélar
viðkomu á Reykjavíkurflug-
velli, einkaþotur og minni vélar
á ferð vestur eða austur um,
svo og þeir sem eiga erindi til
landsins. Flugþjónustan ehf.
annast gerð flugáætlana, út-
vegar veðurspár og eldsneyti
og skipuleggur þjónustu sem
erlendar einkavélar og áhafnir
þurfa á að halda, en slíkar flug-
þjónustur eru reknar á öllum
helstu flugvöllum. í efstu sæt-
um könnunarinnar voru meðal
annars aðilar á flugvöllunum í
Hamborg, Brussel og París. í
könnuninni voru gefnar ein-
kunnir fyrir þessa mismunandi
þætti í þjónustu við vélarnar.
B j ör gunaræfingar
TÍU björgunarsveitir SVFÍ við
Faxaflóa og frá Snæfellsnesi æfðu í
Hvalfirðinum í gær m.a. björgun úr
sjó og úr klettum og niður í báta.
Um 90 manns tóku þátt í æfingunni.
Að sögn Jóns Ólafs Magnússonar
björgunarsveitarmanns var mark-
mið hennar að æfa samstarf á milli
björgunarsveita og kenna nýliðum
m.a. björgun úr sjó. Þá voru tveir
leitarhundar SVFÍ notaðir, en
markmiðið með því var ekki síst, að
sögn Guðmundar Arnar Jenssonar
þjálfara, að sýna björgunarsveita-
mönnum hvers megnugir þeir eru,
til dæmis við líkleit og sjóbjörgun.
*
Morgunblaðið/Porkeli Þorkelsson
Verkfalli Sleipnis frestað
Samningsupp-
kast liggur fyrir
NEAFC verði á Islandi
RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
♦þykkt tillögu Þorsteins Pálssonar
"isjávarútvegsráðherra um að ísland
bjóðist til að skrifstofa Norðaust-
ur-Atlantshafsfískveiðinefndarinn-
ar (NEAFC) verði á íslandi. Skrif-
stofa NEAFC hefur verið í breska
landbúnaðarráðuneytinu, en verið
er að breyta skipulagi stofnunar-
innar.
„Það eru ýmsar hugmyndir um
' staðsetninguna. Evrópusambandið
hefur lagt til að skrifstofan verði í
Edinborg. Það verður fundur í
neftidinni sem er að undirbúa skipu-
lagsbreytingarnar fyrir næsta árs-
fund hér í byrjun júlí. Mín tillaga
var sú að við munum fyrir þann
fund leggja fram tilboð um stað-
setningu hér og leggja þá til hús-
næði og nauðsynlega aðstöðu og
gistisamning fyrir þessa stofnun
sem alþjóðastofnun. Ríkisstjórnin
féllst á þessa tillögu. Það er auðvit-
að ekkert útséð hvernig það mál
fer,“ sagði Þorsteinn.
Á vettvangi NEAFC er út-
hafskarfastofninum á Reykjanes-
hrygg skipt og sinnt er eftirliti með
veiðunum. Stofnunin hefur einnig
komið nærri samningum um stjórn
veiða úr Norður-Atlantshafssfldar-
stofninum. Þorsteinn sagði að það
yrði fengur að því að fá þessa stofn-
un til íslands. Hann sagði að ríkis-
sjóður kæmi til með að hafa ein-
hvern kostnað af skrifstofunni en á
móti kæmi að NEAFC fylgdu tals-
verð fundahöld og tekjur.
VIÐRÆÐUR fulltrúa Sleipnis og at-
vinnuveitenda eftir sólarhrings lang-
an fund leiddu til þess að samnings-
uppkast lá fyrir um kl. 13.30 í gær.
Verkfall hófst aðfaranótt laugardags
og í gær var felld niður fjölmenn
hópferð frá skemmtiferðaskipi í
Reykj avíkurhöfn.
Hugmyndir gengu í fyrrinótt og
gær milli deiluaðila og nálguðust
þeh- hratt þegar leið fram á morgun-
inn en fundur hafði þá staðið frá
klukkan 14 á föstudag. Óskar Stef-
ánsson, formaður Sleipnis, segir að
með breytingum á launaflokkaskip-
an, m.a. var bætt við 18 ára starfs-
aldursþrepi, hafi náðst nokkur
grunnkaupshækkun. Samið er til 15.
febrúar árið 2000 og eru áfanga-
hækkanir þær sömu og í öðrum
samningum. Útlit var því fyrir að
verkfalli yrði frestað síðdegis í gær.
Stefnt er að félagsfundi hjá Sleipni í
kvöld eða annað kvöld til að kynna
samninginn. Kvaðst Óskai- þokka-
lega sáttur við niðurstöðuna þó að
hann hefði gert sér vonir um meiri
hækkun.
Milli 400 og 500 manna hópferð
með farþega af skemmtiferðaskipinu
Vistafjord var felld niður í gærmorg-
un, en þar áttu 8-9 hópferðabflar að
koma við sögu. Már Sigurðsson, hót-
elstjóri á Hótel Geysi, sagðist þar
með hafa misst 200-300 manns í mat.