Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B/C
165. TBL. 85.ÁRG.
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bresk og írsk stjórnvöld bíða ósigur í atkvæðagreiðslu í Belfast
Tillögnmum afvopnun
á Norður-írlandi hafnað
Belfast, London. Reuter, The Daily Telegraph.
FLOKKAR norður-írskra sambands-
sinna höfnuðu í gær tillögum breskra
og írskra stjórnvalda um að samið
yrði um afvopnun skæruliða sam-
hliða viðræðum um framtíð Norður-
írlands. Sinn Fein, stjórnmálaflokk-
ur írska lýðveldishersins (IRA), sem
lýsti yfir vopnahléi um helgina, var-
aði við j)ví að átök gætu hafist á
Norður-Irlandi á ný.
„Tillögum stjórnarinnar hefur
verið hafnað. Allir sambandssinna-
flokkarnir þrír greiddu atkvæði á
móti þeim,“ sagði David Adams,
fulltrúi Lýðræðislega sambands-
flokksins (DUP), í friðarviðræðunum
í Belfast.
Breska stjórnin hafði búist við
þessum ósigri og ljóst var að tillög-
urnar næðu ekki fram að ganga
þegar stærsti flokkur norður-írskra
mótmælenda, Sambandssinnaflokk-
ur Ulster (UUP), snerist á sveif með
Formaður Sinn Fein varar við því
að átök geti hafist að nýju
hinum flokkunum tveimur og lagðist
gegn áformunum.
„Okkur tókst það sem við ætluð-
um okkur - að koma í veg fyrir til-
lögur um það sem hefur verið kallað
afvopnun en er í raun engin afvopn-
un,“ sagði Ian Paisley, leiðtogi Lýð-
ræðislega sambandsflokksins.
„Menn eru að reyna að beita neit-
unarvaldi í friðarferlinu," sagði
Mitchell McLaughlin, formaður Sinn
Fein. „Við það verður ekki unað og
það leiðir til þeirra átaka sem við
vonuðumst til að geta losnað við.“
Tillögurnar fólu í sér þá málamiðl-
un að samið yrði um afvopnun í
áföngum á meðan friðarviðræðurnar
færu fram, en ekki fyrir eða eftir
þær. Flokkar sambandssinna höfn-
uðu tillögunum vegna þess að þeir
töldu að í þeim fælust engar trygg-
ingar fyrir því að skæruliðarnir af-
hentu vopn sín.
Líkur á viðræðum Sinn Fein
og sambandssinna minnka
írski lýðveldisherinn lýsti yfir
vopnahléi um helgina til að greiða
fyrir því að Sinn Fein fengi að taka
þátt í friðarviðræðunum. Flokkur
Paisleys kvaðst ætla að hætta þátt-
töku í viðræðunum eftir atkvæða-
greiðsluna í gær til að mótmæla því
sem hann kallar „leynisamning" til
að fá IRA til að lýsa yfir vopnahléi.
„Þetta er ekki meiriháttar áfall,"
sagði Mo Mowlan, sem fer með
málefni Norður-Irlands í bresku
stjórninni, eftir að Ijóst var að tillag-
an næði ekki fram að ganga. „Þetta
er greinilega bakslag en enginn hef-
ur sagt að þetta yrði auðvelt.“
Mowlan sagði að bresk og írsk
stjórnvöld stefndu enn að því að við-
ræðurnar um framtíð Norður-írlands
hæfust 15. september. Stjómmála-
skýrendur sögðu þó að deilan um
hvenær og hvemig skæruliðarnir
ættu að láta vopn sín af hendi drægi
mjög úr líkunum á því að hægt yrði
að koma sambandssinnum og Sinn
Fein að samningaborði.
Breskir og írskir ráðherrar koma
saman í næstu viku til að ræða
hvernig haga eigi viðræðunum ef
sambandssinnar neita að ræða við
Sinn Fein. M.a. kemur til greina að
sambandssinnar haldi áfram viðræð-
unum við bresk og írsk stjórnvöld
meðan þau og flokkar þjóðernissinna
á Norður-írlandi ræða við Sinn Fein.
Reuter
Milosevic
í nýju
forseta-
embætti
SLOBODAN Milosevic varð
í gær forseti Júgóslavíu,
sambandsríkis Serbiu og
Svartfjallalands. Milosevic
hefur verið forseti Serbíu í
tvö kjörtímabil og sam-
kvæmt stjórnarskránni get-
ur hann því ekki gefið kost
á sér til endurkjörs í forseta-
kosningunum 21. septem-
ber. Hann greip því til þess
ráðs að láta júgóslavneska
þingið kjósa sig forseta
Júgóslavíu. Það hefur verið
valdalítið embætti til þessa
en búist er við að Milosevic,
sem hefur haft tögl og
hagldir í júgóslavneskum
stjórnmálum, haldi taki sínu
á stjórnkerfinu, fjölmiðlun-
um, hernum og Iögreglunni.
Milosevic veifar hér til
stuðningsmanna sinna, eftir
að hafa tekið við forseta-
embættinu.
Fallist á samrun
ann við Boeing
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJORN Evr-
ópusambandsins (ESB) lagði í
gær til að fallist yrði á samruna
Boeing og McDonnell Douglas
flugvélaverksmiðjanna banda-
rísku og afstýrði þar með við-
skiptastríði Bandaríkjanna og
ESB. í síðustu viku lagði ráðgjafa-
nefnd ESB til að lagst yrði gegn
samrunanum, þar sem hann kynni
að reynast evrópskum iðnaði
„hættulegur".
Ástæða þess að ESB skiptir um
skoðun er eftirgjöf Boeing, sem
féllst m.a. á að afturkalla samn-
inga um flugvélakaup, veita öðr-
um fyrirtækjum aðgang að einka-
leyfum McDonnell Douglas og
misnota ekki yfirburðaaðstöðu
sína á markaðnum.
Bandaríska alríkisviðskipta-
ráðið hafði fallist á samrunann
og höfðu bandarísk yfirvöld hótað
að hindra viðskipti ESB-ríkja við
bandarísk fyrirtæki, kæmu þau í
veg fyrir samrunann.
■ Eftirgjöf Boeing/22
Söfnum
bjargað
SLÖKKVILIÐI Parísar tókst í
gær að slökkva eld í einni af
þekktustu byggingum borgarinn-
ar, Chaillot-höll, sem hýsir bygg-
ingarlistasafn og helsta kvik-
myndasafn Frakklands. Um 100
verk skemmdust í eldinum en
eyðilögðust ekki og siökkviliðinu
tókst að bjarga öllum kvikmynd-
unum 30.000 sem geymdar eru í
byggingunni.
„Tjónið var mun minna en ótt-
ast var,“ sagði Nathalie Bondil,
forstöðumaður byggingarlista-
safnsins.
Talið er að eldurinn hafi kvikn-
að fyrir slysni þegar verið var að
gera við þak byggingarinnar.
Reuter
Fyrsti fundur nýja þingsins í Albaníu
Berísha læt-
ur af embætti
Tirana. Reuter.
SALI Berisha, forseti
Albaníu, sagði af sér í
gær, skömmu áður en
nýtt þing landsins kom
saman í fyrsta sinn.
Berisha kvaðst segja
af sér til að geta sest
á þing fyrir Lýðræðis-
flokkinn, sem beið mik-
inn ósigur fyrir sósíal-
istum í þingkosningun-
um 29. júní. Boðað var
til kosninganna til að
binda enda á óeirðir og
glundroða í landinu
eftir gjaldþrot vafa-
samra ávöxtunarsjóða
sem urðu til þess að margir Alban-
ar glötuðu öllu sparifé sínu.
Líklegt þykir að Rexhep Mejd-
ani, framkvæmdastjóri Sósíalista-
flokksins, verði kjörinn forseti í at-
kvæðagreiðslu á þinginu. Sósíalist-
ar og bandamenn þeirra eru með
118 þingmenn af 155 og flokkur
Berisha aðeins 24.
Þingið sniðgengið
„Fyrrverandi kommúnistar not-
færðu sér fjármálakreppuna vegna
ávöxtunarsjóðanna ... sem átyllu
til að skipuleggja vopnaða upp-
reisn,“ sagði Berisha þegar hann
tilkynnti afsögn sína. Hann bætti
við að með setningu nýja þingsins
hefði „síðasta kommúníska forrétt-
indastéttin komist til valda að
nýju“.
Þingmenn Lýðræðisflokksins
mættu ekki á þingfundinn í gær til
að mótmæla framkvæmd kosning-
Reuter
SÓSÍALISTINN Rex-
hep Mejdani ásamt
Marisu Lino, sendi-
herra Bandaríkjanna.
anna, sem var „viðun-
andi“ en langt frá því
að vera fullkomin að
mati eftirlitsmanna
Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu,
ÖSE.
Andstæðingar Ber-
isha fögnuðu afsögn
hans með því að hleypa
af byssuskotum í Tir-
ana og fleiri borgum.
Berisha var hjarta-
skurðlæknir á valda-
tíma kommúnista og
var lofsamaður á Vest-
urlöndum fyrir að
koma á markaðsumbótum fyrst eft-
ir að hann komst til valda. Stuðn-
ingurinn við hann minnkaði þó síðar
vegna einræðistilburða hans og
efnahagsóstjórnar.