Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 2
2 'FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fornleifauppgröftur hafinn á bæ Eiríks rauða í Haukadal Leifar af eldri torfvegg fundust FORNLEIFAFRÆÐINGAR Þjóðminjasafnsins eru byijaðir að rannsaka rústir Eiríksstaða í Haukadal, þar sem Eiríkur rauði bjó og Leifur heppni er talinn fæddur. Enn sem komið er er ekki mikið um nýjar upplýsingar en þeir telja þó augljóst að tóttin sé nýög gömul. Guðmundur Ólafsson og Ragn- heiður Traustadóttir vinna að uppgreftrinum sem Eiríksstaða- nefnd Dalabyggðar kostar. Til- gangur rannsóknanna er að kanna hvort eitthvað sé eftir af mannvistarleifum í tóttinni, til dæmis hvort þar séu eldri bygg- ingar undir þeirri sem sést og rannsökuð var í lok síðustu aldar og í byrjun þessarar. Langeldur sést greinilega í rústunum Einnig er ætlun þeirra að reyna að ganga úr skugga um það hvað húsið er gamalt, hvað það hefur verið stórt og til hvers það hefur verið notað. Fornfræð- ingar sem áður hafa grafið í rústirnar hafa talið það vera skála og séð leifar af langeldi eftir honum miðjum og eidstæði í báðum endum. Guðmundur og Ragnheiður eru að taka þversnið af skálanum og sést langeldurinn greinilega. Þau te^ja sig einnig hafa fundið eldri torfvegg utan sýnilegra tófta sem ekki hafi verið rannsakaður við fyrri at- huganir. „Okkur sýnist að fá megi itar- legri svör við þeim spurningum sem reynt var að svara við fyrri rannsóknir," segir Guðmundur. Ólafur Ragnar Grímsson for- seti gerði það nýlega að tillögu sinni að Eiríksstaðir fengju það hlutverk sem þeir ættu skilið sem fæðingarstaður landkönnuðarins mikla Leifs Eiríkssonar. Morgunblaðið/Helgi Bjamason GUÐMUNDUR Óiafsson skrifar niður athuganir sínar og Ragnheiður Traustadóttir grefur í gegn- um veggi Eiríksstaðabæjarins. í forgrunni sjást steinar úr langeldinum sem er í miðjum skála. Olíu- mengun í Grafar- vogi VATN og olía rann um ræsi út í Grafarvog í gær þegar losað var úr tankbíl frá Upp- dælingu hf. Tilkynning um óhappið barst til lögreglunnar frá Fosshálsi 1 og kom í ljós að losað hafði verið úr bílnum í ræsið. Taldi innihaldið vatn Ökumaður taldi að inni- haldið ætti að vera 99% vatn en svo reyndist ekki vera. Rann blandan um ræsið niður í Grafarvog þar sem þunn olíbrák myndaðist. Sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni var ekki hægt að hreinsa upp olíuna vegna erf- iðra aðstæðna en starfsmenn Reykjavíkurhafnar reyndu að setja út búnað til að freista þess að ná upp brákinni. Lögreglu- bíl ekið út af vegi LÖGREGLUMAÐUR meidd- ist á baki þegar lögreglubíl var ekið út af Suðurlandsvegi í gærmorgun. Tildrög óhappsins voru þau, að tveir lögregluþjónar á bíl ætluðu að stöðva för ökumanns á Suðurlandsvegi, skammt frá gatnamótum Vesturlandsvegar. Bifreið var skyndilega ekið í veg fyrir lögreglubílinn og sá ökumað- ur hans þann kost vænstan að aka út af og ofan í grasi gróna hvilft milli akreina. Töluvert högg kom á lög- reglubílinn og kvartaði lög- reglumaðurinn í farþegasæt- inu undan eymslum í baki. Kalla þurfti á kranabíl til að draga lögreglubílinn á brott. Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður Rætt um sameiginlega vatnsveitu bæjanna Miðstjórn ASÍ krefst þess að Alþingi ákveði launabreytingar æðstu manna Kjaradómur verði lagður af MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís- lands krefst þess að Kjaradómur í núverandi mynd verði lagður af. í hans stað verði komið á fót sér- stakri nefnd, sem hafí það hlutverk að vera Alþingi til ráðgjafar um launabreytingar þingmanna og æðstu embættismanna og geri til- lögur til þingsins hveiju sinni sem til endurskoðunar kemur. Endan- lega ákvörðun verði síðan tekin á Alþingi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var einróma á miðstjórn- arfundi ASÍ sem haldinn var í gær vegna nýgengins úrskurðar Kjara- dóms um launahækkanir æðstu embættismanna, ráðherra og þing- manna. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir miðstjórnina leggja áherslu á að ríkisstjórn og Alþingi beri pólitíska ábyrgð á Kjaradómi. Enn einu sinni hafí komið í ljós að núverandi aðferð við ákvörðun launa æðstu embættismanna gangi ekki upp og engin sátt sé um hana í þjóðfélaginu. „Það er meginmálið að ríkisstjóm og Alþingi verða að manna sig upp í að takast á við þessa ákvörðun," segir Grétar. Laun æðstu manna hafa hækkað um 133 þús. kr. í samanburðartölum sem lagðar voru fram á miðstjómarfundinum kemur fram að Kjaradómur hafí hækkað laun æðstu embættis- manna um allt að 133 þúsund kr. á mánuði frá árinu 1995 sem sé ekki í neinu samræmi við niðurstöð- ur kjarasamninga. „Á sama tíma hefur ríkisstjórnin ákveðið að hækka elli- og örorkulífeyri í mesta lagi um rúmar 8.000 krónur á mánuði og dæmi eru um að greiðsl- ur til atvinnulausra hafi verið lækk- aðar,“ segir í ályktun miðstjórnar ASÍ. Grétar kveðst reikna með að síð- ar í sumar muni forsetar Alþýðu- sambandsins banka upp á þjá for- sætisráðherra til að ræða þessi mál. SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að viðræður séu í gangi milli Kópavogsbæjar, Hafn- arfjarðar og Garðabæjar um sam- eiginlega vatnsveitu. Arðsemisút- reikningar sýni að sveitarfélögin fengju rúmmetrann af köldu vatni á um sex krónur. Hann segir að Vatnsveita Reykjavíkur, sem sér Kópavogsbúum nú fyrir köldu vatni, hafí í upphafi farið fram á að Kópavogsbær greiddi 18,50 krónur fyrir rúmmetrann. Dóm- kvaddir yfirmatsmenn hafa ákveðið að Kópavogsbær greiði 11,69 krón- ur fyrir rúmmetrann. „Þetta er undarlegt. Þegar ég vissi síðast til var verðið til Mos- fellsbæjar og Seltjarnarness mun lægra. Verðið ætti að vera 6-7 krónur á rúmmetrann eins og hjá öðrum vatnsveitum á landinu. Reksturinn gengur bara ekki betur en þetta hjá Vatnsveitu Reykjavík- ur og fjárfestingarnar eru miklar. Þetta er undarlegt fyrirbrigði því það er þumalputtaregla hjá veitu- stofnunum að einingar fari lækk- andi eftir því sem þær eldast og fleiri einingar eru notaðar. Þess í stað hækkar einingaverðið ár frá ári og það er andstætt allri hag- fræði,“ sagði Sigurður. Hann segir að þetta mál verði ekki sótt frekar og Kópavogsbær eigi ekki annan kost en að greiða uppsett verð. „Þetta er bara gjald- taka af nágrannasveitarfélögunum og þau fá ekki rönd við reist. Þetta er hreint ofbeldi," sagði Sigurður. Hann segir að mjög eðlilegt sé að vatnsskattur Kópavogsbúa hækki nú við hærra vatnsverð frá Vatnsveitu Reykjavíkur. Drög að stofnsamningi sameiginlegrar vatnsveitu Sigurður segir að viðræður hafi verið I gangi um sameiginlega vatnsveitu Kópavogs, Hafnarfjarð- ar og Garðabæjar um nokkurt skeið. Öryggisatriði sé að hafa tvær vatnsveitur á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til náttúruhamfara auk þess sem sveitarfélögin fengju að- gang að mun ódýrara vatni. „Þessir þrír bæir létu reikna út fyrir sig hagkvæmni og arðsemi af sameiginlegri vatnsveitu. Niður- staðan varð sú að ef ráðist yrði í þá framkvæmd kostaði rúmmetrinn af köldu vatni til okkar um sex krónur. Framkvæmdin yrði rpjög fljót að borga sig. Við erum með þetta mál í vinnslu og það hefði haldið áfram hvemig sem verðið frá Vatnsveitunni hefði breyst. Það er löngu orðið nauðsynlegt að taka höndum saman um nýja veitu. Hjá þessum bæjum er starfandi nefnd sem skipuð er bæjarstjórunum þremur. Við höfum verið að semja drög að stofnsamningi um byggðar- samlag um vatnsveitu," sagði Sig- urður. Sigurður sagði að nóg vatn væri til staðar í bæjunum en ódýrast og skynsamlegast yrði að hafa vatns- öflunina I Hafnarfirði þar sem mannvirki til þeirra nota væri fvrir hendi. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.