Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hæstiréttur meinar sakborningum að kynna sér gögn fyrir yfirheyrslur Fer ekkí í bága við jafnræði og réttláta dómsmeðferð HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að sakborningum í stóra fíkniefnamálinu svokallaða væri heimilt að kynna sér framlögð gögn í málinu áður en þeir yrðu yfirheyrðir fyrir dómi. Hæstiréttur vísar til þriggja ára gamals dóms síns um að það fari ekki í bága við sjónarmið um jafnræði og réttláta dómsmeðferð, að sak- borningur verði yfirheyrður um sakarefni fyrir óháðum dómstóli áður en hann kynnir sér skjöl málsins, þar á meðal framburði annarra ákærðu, enda standi réttmætar og efnislegar ástæður til þess. Morgunblaðið/Arnaldur Nýju kartöflumar mnnu út FYRSTU íslensku kartöflurnar í ár komu í verslanir Nóatúns í gær. Kartöflurnar eru af tegund- inni Premier. Að sögn Jóhanns Ólasonar verslunarstjóra sýndu viðskiptavinir mikinn áhuga og streymdu í verslanir til að ná sér í nýjar kartöflur í soðið. Jóhann sagði ekki ljóst hversu lengi þessi sending mundi endast en það verður ekki fyrr en um mánaða- mótin sem kartöfluuppskeran fer að berast í einhverju magni. Þá er fyrirsjáanlega lækkun á kart- öflum en þessi fyrsta sending er seld á 249 kr. kg. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu hinn 9. júlí sl. að ákvæði laga um meðferð opinberra mála um aðgang að málsskjölum sam- ræmdist ekki lengur ákvæðum stjórnarskrár og Mannréttinda- sáttmála Evrópu. Af hálfu ákæru- valdsins var úrskurðinum þegar áfrýjað. I greinargerð ákæruvaldsins til Hæstaréttar kom fram að ekki væri vefengdur réttur varnaraðila til að kynna sér öll gögn málsins eftir að þeir hefðu gefið skýrslu og áður en málið gengi til dóms. Yrði þeim hins vegar heimilað að kynna sér gögn málsins að vild byði það heim hættu á að þeir Iegðu mat á sönnunarstöðu málsins og löguðu framburð sinn að gögnum málsins eftir því sem þeim þætti henta. Staða ákæruvalds og sakbornings jöfn Hæstiréttur segir lög um með- ferð opinberra mála reist á þeirri grundvallarreglu, að staða ákæru- valds og sakbomings fyrir dómi sé jöfn. „Samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, eins og hún hljóðar eftir breytingu með stjórn- skipunarlögum nr. 97/1995, skal sá sem ákærður er fyrir refsiverða háttsemi eiga rétt til réttlátrar málsmeðferðar innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dóm- stóli, sbr. og 1. mgr. 6. gr. mann- réttindasáttmála Evrópu, sem veitt var lagagildi á íslandi með lögum nr. 62/1994. Hvert aðildarríki sáttmálans fyr- ir sig getur sett lög í samræmi við og til fyllingar ákvæðum 6. gr. hans. Dómur Hæstaréttar 19. apríl 1994 var meðal annars reistur á því að það fari ekki í bága við sjón- armið um jafnræði og réttláta dómsmeðferð, að sakborningur verði yfirheyrður um sakarefni fyr- ir óháðum dómstóli áður en hann kynnir sér skjöl málsins, þar á meðal framburði annarra ákærðu, enda standi réttmætar og efnisleg- ar ástæður til þess. Ekkert í 1. eða 3. mgr. 6. gr. mannréttindasátt- málans eða 70. gr. stjórnarskrár- innar breytir þessu eða leiðir til þess að jafnræði aðila sé skert, eða um óréttláta málsmeðferð sé að ræða, þótt ákærða sé ekki heimilað að kynna sé gögn máls til hlítar fyrr en hann hefur gefið skýrslu sína fyrir dómi, og áður en mál verður sótt og varið. Verjendur ákærðu eiga ætíð rétt til að kynna sér gögn málsins á hveiju stigi þess, og gæta þeir þannig lögvar- innar hagsmuna skjólstæðinga sinna,“ segir í úrskurði Hæstarétt- ar. Þá segir að vegna þessa og með vísan til fordæmis Hæstaréttar árið 1994 verði á það fallist að sóknarað- ili hafi fært fram réttmætar og efn- islegar ástæður fyrir kröfu sinni. „Verður því hafnað aðalkröfu varnaraðila um að þeir fái að kynna sér að vild skjöl málsins áður en þeir hafa verið yfirheyrðir fyrir dómi.“ Varakröfur varnaraðila lutu að því að þeir fengju takmarkaðan aðgang að öllum skjölum, sam- kvæmt ákvörðun dómsins, eða ótakmarkaðan eða takmarkaðan aðgang að hluta skjalanna. Um þetta segir Hæstiréttur að vamar- aðilar hafi á engan hátt skýrt að hvaða skjölum varakröfur þeirra beindust og af þeirri ástæðu yrði þeim ekki sinnt. Skautahöll- in á að rúma 1.600 áhorfendur BORGARRÁÐ fjallar á þriðjudag um tillögu íþróttabandalags Reykjavíkur, IBR, um að gengið verði til samninga við Istak um byggingu 3.277 fermetra húss yfir skautasvellið í Laugardal. Þá hefur erindið farið fyrir fund umhverfis- og skipulagsnefndar. Samþykki borgarráð bygging- una fyrir sitt leyti geta fram- kvæmdir hafist upp úr næstu mánaðamótum og áætluð verk- lok eru í febrúar á næsta ári. Heildarkostnaður við fram- kvæmdina er 185-190 milljónir króna. I hönnun hússins er tekið tillit til þess að það stendur innan eins helsta útivistarsvæðis Reykvík- inga ásamt öllum helstu þjóðar- leikvöngum landsins. Burðar- virki hússins er úr límtré á steyptum undirstöðum. Veggir eru steinsteyptar einingar upp í 240 sm hæð. Efri hluti veggja er klæddur lituðum stálplötum að utan en sementsbundnum tijáullarplötum að innan. Aðalanddyri hallarinnar er í norðausturhorni hússins og stað- sett þannig að núverandi bíla- stæði nýtast en þau eru um 170. Gert er ráð fyrir að núverandi hús nýtist að mestu í óbreyttri mynd fyrir sljórnun, starfsfólk og félagsaðstöðu. í nýja húsinu er gert ráð fyrir 144 fermetra búningsherbergi með sturtum og geymslum fyrir skautafélög og rekstur verður á alls um 72 fer- metra gólffleti. Þá verða í húsinu verslun og skautaleiga og 130 fermetra veitingasalur þar sem útsýni verður yfir skautasvellið. Áhorfendastæði rúma 600 manns í sæti og 1.000 manns standandi. Teiknistofa Halldórs Guð- mundssonar teiknaði húsið. Skólaári framhaldsskólanna flýtt Nemendur áhyggjufullir ÓEÐLILEGT er að heimild til að flýta skólaárinu í framhaldsskólun- um um viku taki gildi með aðeins mánaðar fyrirvara strax í haust að mati Hjálmars Blöndals Guðjóns- sonar, forseta Nemendafélags MH. Hann sagði að nemendur hefðu haft samband við sig og lýst yfir áhyggjum sínum af því að fram- haldsskólamir nýttu sér heimild í samningi HÍK og ríkisins um að hefja skólaárið viku fyrr en venja væri eða 25. ágúst. Nemendur hefðu ráðið sig í vinnu og skipulagt ferðir erlendis í samræmi við hefbundið upphaf skólaársins. Nú væru allt skipulag í lausu lofti því skólamir hefðu enn ekki tilkynnt hvort þeir ætluðu sér að nýta heimildina I ár eða ekki. Hjálmar sagði að ekki væri aðeins um óhagræði að ræða fyrir nemend- ur því viku vinnulaun væra í húfi. Ef svo ólíklega vildi til að allir fram- haldsskólar nýttu sér heimildina og nemendur væra með um 20.000 kr. vikulaun væri um 300 milljóna króna tap að ræða. Ekki mætti heldur gleyma því að breytingin hefði í för með sér erfíðleika fyrir vinnuveitend- ur enda misstu þeir starfsmenn viku fyrr en áætlað hefði verið. Tvöföld ánægja MEÐ KREMI Á MILLI 'trön* MEST SELDA KEX Á ÍSLANDI SKAUTAHÖLLIN í Laugardal verður rúmlega 3.000 fermerar að stærð. Bjarni Tryggvason út í geiminn 7. ágúst Forsetahjónunum boðið til geimskotsins ÍSLENZKU forsetahjónunum hefur verið boðið að verða viðstödd geim- skot bandarísku geimfeijunnar Discovery 7. ágúst næstkomandi, er vestur-íslenzki geimfarinn Bjarni Tryggvason fer í sína fyrstu geim- ferð. Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Islands, segir að standi dagsetn- ingin sé sennilegt að þau þekkist boðið. „Það hefur verið rætt um að við verðum við geimskotið, meðal ann- ars vegna þess að Bjarni er fæddur á íslandi," segir Ölafur Ragnar. Hann segir að búizt sé við að forsæt- isráðherra Kanada verði einnig við skotið, en Bjarni er kanadískur ríkis- borgari. Ólafur Ragnar segir að í ferð sinni um Is- lendingabyggðir Norð- ur-Ameríku muni hann meðal annars leggja áherzlu á íslenzka landkönnuði í Vestur- heimi og mikilvægi þess að viðhalda ís- lenzkri hefð landkönn- unar. „í tengslum við þúsund ára afmæli fundar Ameríku gæti verið við hæfi að tengja það ferð fyrsta íslend- ingsins út í geiminn. Það gæti verið í góðu samræmi við könn- Bjarni Tryggvason unarhugarfarið og mikilvægi þess að kanna ókunnar slóðir, sem hefur fengið góð- an hljómgrunn hér ' samræðum mínum við forseta og varaforseta Bandaríkjanna og aðra,“ segir forseti. Hann segir að stand- ist dagsetning geim- skotsins liggi vel við að þau hjónin fari beint frá Islendingabyggðunum í Kanada og verði við- stödd. Frestist skotið hins vegar eigi þau þess tæplega kost.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.