Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 11
FRÉTTIR
Breytingar á Melasveitarvegi
Overuleg áhrif á
gróður og dýralíf
BREYTINGAR á Melasveitarvegi
um Skorholt og Mela eru taldar
hafa óveruleg áhrif á gróður og
dýralíf á svæðinu samkvæmt niður-
stöðu skipulagsstjóra ríkisins. Um
Skorholt verður lagður 3 km langur
vegur frá hringvegi, þar sem núver-
andi vegur um Skorholt verður
lækkaður og legu breytt. Um Mela
verður lagður 500 metra langur nýr
vegur.
I niðurstöðu skipulagsstjóra ríkis-
ins kemur fram að vegurinn liggur
um svæði, þar sem gróðri hefur
verið raskað, framræsta mýri og
tún. Nokkuð ræktað land fari undir
nýja vegarkafla í landi Skorholts
og Mela, en samkvæmt frummats-
skýrslu eru landeigendur meðmæltir
vegalagningunni.
Tekið er fram að ný lega Mela-
sveitarvegar muni bæta aksturs-
öryggið á svæðinu, þar sem hann
verði snjóléttari, liggi fjær opinni
námu í landi Skorholts, auk þess
sem umferð færist fjær íbúðarhúsi
við Mela.
Skipuiagsstjóri fellst á fyrirhug-
aða lagningu Melasveitarvegar eins
og henni er lýst í framlagðri frum-
matsskýrslu. Kæra má úrskurð
skipulagsstjóra til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 13. ág-
úst 1997.
Þyrlur Landhelgis-
gæslunnar
Þriðji flug-
stjórinn
tiltækur
næstu daga
NÝR flugstjóri á þyrlur Landhelgis-
gæslunnar er nú á lokaspretti þjálf-
unar og verður útskrifaður næstu
daga, að sögn Helga Hallvarðsson-
ar, yfirmanns
gæslufram-
kvæmda. Hann
heitir Pétur Stein-
þórsson og hefur
verið flugmaður
hjá Gæslunni um
árabil. Verða þá
þrír flugstjórar til-
tækir og stefnt er
að því að búið
verði að þjálfa
fjórða flugstjórann fyrir árslok.
Tveir flugmanna Landhelgisgæsl-
unnar, Páll Halldórsson og Benóný
Ásgrímsson, eru í dag flugstjórar á
þyrlunum en nýlega lét Bogi Agnars-
son af því starfi og flutti sig til
Atlanta flugfélagsins. Nýr maður
hefur verið ráðinn í hans stað en
meðal umsækjenda um starf flug-
manns hjá Gæslunni voru sjö flug-
menn með þyrluréttindi og var ráð-
inn einn úr þeim hópi.
Helgi Hallvarðsson segir að þriðji
flugstjórinn fyrir þyrlurnar muni
ljúka þjálfun einhvern næstu daga
og verði þá þrjár áhafnir tiltækar
til flugs á báðum þyrlum Gæslunn-
ar. Gert er ráð fyrir að fjórði flug-
stjórinn verði kominn með réttindi
kringum næstu áramót. Páll Hall-
dórsson er flugrekstrarstjóri Land-
helgisgæslunnar og yfirflugstjóri og
segir Helgi þau störf hans orðin það
umfangsmikil að nauðsynlegt sé að
minnka vaktskyldu hans á þyrlun-
um. Alls starfa 9 flugmenn hjá
Gæslunni og eru auk þyrluáhafn-
anna tvær áhafnir á Fokker-vélina.
Umræður urn útboð
Aðspurður um hvort til tals hefði
komið að bjóða út einhveija verk-
þætti hjá Landhelgisgæslunni, t.d.
leit og björgun með þyrlum, sagði
Helgi Hallvarðsson að slíkt hefði
verið rætt, m.a. vegna fyrirspurna
frá einkaaðilum um að annast
sjúkraflug. Hann taldi hins vegar
ekki líklegt að hægt yrði að koma
slíku við og taldi einnig ólíklegt að
einkaaðilar gætu látið slíkan rekstur
bera sig.
Pétur
Steinþórsson
Morgunblaðið/Arnaldur
Margt að
skoða við
Tjörnina
ÞESSI hjón tóku kíkinn með
í göngutúrinn í Hljómskála-
garðinn. Það fylgir ekki sög-
unni hvað þau voru að skoða
þegar myndin var tekin.
Eflaust hefur það verið eitt-
hvað mjög áhugavert í fugla-
lífinu.
Hún er byrjuð að slá
sér upp með fuglunum
eftir að hún fékk nýj a Shell-bensímð
sem er umhverfisvænna
www.shell.is
_______________
Nú fæst umhverfisvænna bensín
á Shellstöðvunum á höfuðborgar-
svæðinu.
Umhverfisvænna bensín er nýjung
sem markar timamót í
umhverfisvernd.
Það er án mengandi efna, brennur
betur og fer því betur með náttúruna
og vélina.
Umhverfisvænna bensín er fyrir
sláttuvélar og aðrar loftkældar
tvígengisvélar.
Umhverfisvænna bensín
- náttúrunnar og okkar vegna.