Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Athyglisverðir staðir og fjölbreytt þjónusta á Jökuldal og norðurhéraði
Dýragarður og
lummur í
gömlum torfbæ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
ÚR Dimmugljúfrum.
Vaðbrekku. Jökuldal.
Á JÖKULDAL og norðurhéraði eru
margir athyglisverðir staðir að
skoða og ýmis þjónusta í boði. Ef
við lítum fyrst á þjónustuna og för-
um norður frá Egilsstöðum um
Fellabæ komum við fljótlega að
Útimarkaðnum Við-Bót þar sem á
boðstólum er allskonar handverk
og heimabökuð brauð og kökur
ásamt ýmsu smálegu svo sem
minjagripum allskonar framleidd-
um á svæðinu að mestu. Þegar
komið er norður að Jökulsá er hægt
að fara út í Húsey, þar er farfugla-
heimili og fjölskrúðugt dýra- og
fuglalíf. Norðan við Jökulsá er
Ferðaþjónustan í Brúarási og litlu
utar er Hótel Svartiskógur. Þessir
staðir eru reknir af sömu aðilum
og hægt að fá gistingu og fæði á
þeim báðum. Lengra úti í Hlíðinni
er síðan bændagisting í Bakkagerði
undir Hellisheiðinni.
Vísir að dýragarði
Uppá Jökuldal er síðan Dalakaffi
ásamt bensínsölu á Skjöldólfsstöð-
um. í Dalakaffi er seld gisting og
fæði og á Skjöldólfsstöðum er einn-
ig ný sundlaug þar sem hægt er
að fá sér sundsprett og slaka á í
heitum nuddpotti. í Klausturseli er
rekin handíðavinnustofa þar sem
hægt er að fá muni unna úr hrein-
dýraleðri og ull. Þar er einnig vísir
að dýragarði þar sem hægt er að
sjá flest villt dýr íslensk. A Brú er
bensínsala og salgætisverslun.
Uppá Jökuldalsheiðinni er Sæ-
nautasel þar sem hægt er að fá
kaffi og lummur í gömlum endur-
byggðum torfbæ. I Möðrudal er
Fjallakaffi þar sem hægt er að fá
kaffi og með því ásamt ýmsu smá-
iegu. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
rekur síðan sæluhús við Snæfell og
í Kverkfjöllum þar sem seld er gist-
ing og önnur aðstaða fyrir ferða-
menn.
Ef við rennum aðeins yfir nokkra
áhugaverða staði á Jökuldal þá er
þar fyrst að telja Kverkfjallasvæðið
sem er um margt einstakt með
náttúrufegurð sína og jarðhita.
Snæfellssvæðið er líka vert að skoða
en hægt er að fara á flestum fjór-
hjóladrifsbílum upp úr Fljótsdal inn
að Snæfelli og niður í Hrafnkelsdal
og út Jökuldal en hafa verður vara
á þegar farið er yfir óbrúaðar ár á
þessari leið.
Hægt er að komast frá Vað-
brekku í Hrafnkelsdal nýlegan veg-
arslóða inn og vestur að Dimmu-
gljúfrum en það eru dýpstu og hrika-
legustu gljúfur á íslandi. Einnig er
hægt að komast að ytri hluta þeirra,
sem stundum eru kenndir við Hafra-
hvamma, með því að fara inneftir
frá Brú og um Brúardali og koma
við á Laugarvöllum þar sem hægt
er að baða sig í volgri laug.
í Jökuldalsheiðinni eru silungs-
vötn, Ánavatn og Sænautavatn,
og Sænautasel þar sem er endur-
gerður torfbær eins og áður sagði,
þar er líka Skessugarður sem er
jökulruðningur gerður úr stórgrýti
eins og hann sé hlaðinn af trölls-
kessum. Á Jökuldal eru sex brýr
yfir Jökulsá, margar þeirra áhuga-
verðar og sérstakar, svo er einnig
um brýrnar á nokkrum þveránna.
Brúar- og Möðrudalsöræfi eru eitt-
hvert stærsta ósnortna víðerni á
landinu, víða gróðursnauð með
söndum og hraunum, en með grón-
um vinjum á milli svo sem Arnar-
dal, Grágæsadal og Hvannalind-
um.
Sumarhús á bökkum Ytri-Rangár
ÞAÐ er þægilegt vel búið
eldhús í hverju húsi.
í SUMARHÚSUM Rangárflúða geta um 30 manns gist í þriggja
til átta manna húsum. Húsin standa við Þykkvabæjarveg um 2
kílómetra frá Hellu.
Nýr kostur í gistingu
FYRIRTÆKIÐ Rangárflúðir ehf.
hóf starfsemi í vor með opnun sum-
arhúsa á vesturbakka Ytri-Rangár
skammt frá Hellu. Að fyrirtækinu
standa Einar Ólafsson á Ægissíðu
í Djúpárhreppi og synir hans Guð-
I Skálholti um helgina 26.-27. júlí
Sinnartónleikar í Skálholtskirkju
laugardag kl. 15 og kl. 17, sunnudag kl. 15. Messa kl. 17
Flytjendur: Bachsveitin í Skálholti ásamt Jaap Schröder
fiðluleikara og Ólafi Kjartani Sigurðarsyni baritón.
Aðgangur ókeypis
17. aldar kvöldverður í Skálholtsskóla
laugardag kl. 18:30. Matseðillinn byggirá því sem
Þórður Þorláksson biskup pantaði með vorskipinu 1693
Borðapantanir í síma 486 8870
KRISTNITAKA í Skálholti-sýning á 17 úlilistaverkum
mundur og Ólafur, auk Þórs Þor-
steinssonar sem býr í Reykjavík.
Að sögn þeirra feðga var farið út
í þennan rekstur til að leysa að ein-
hverju leyti úr skorti á gistingu fyrir
veiðimenn sem stunda veiðar í Ytri-
Rangá, en mikil aukning hefur verið
á veiði í ánni nokkur sl. ár eða síðan
var farið að stunda reglubundið eldi
og seiðasleppingar. Er áin nú mjög
vinsæl meðal veiðimanna, jafnt inn-
lendra sem og erlendra. Frá opnun
Með Baldriyfir
Breiðafjörð
Frá Stykkisbólmi kl. 10:00 og 16:30
Frá Brjánslœk kl. 13-00 og 19:30
Ávallt viökoma
íFlatey
FERJAN BALDUR
Síinar 4381120 í Stykkishólmi
_____4562020 á BtjánsUek
húsanna í júní hefur verið mjög mik-
ið að gera meðal annarra gesta en
veiðimanna, aðallega íslendinga sem
hafa notið dvalarinnar á árbakkan-
um. Frá svæðinu er stutt í allar helstu
náttúruperlur Suðurlands. Þannig er
hagstætt að dvelja í húsunum og
fara þaðan í dagsferðir, s.s. í Land-
mannalaugar, Þórsmörk, Gullfoss og
Geysi eða austur í Skóga og Dyrhóla-
ey svo fátt eitt sé talið. Húsin eru
til útleigu allt árið, en í hveiju þeirra
eru öll þægindi, s.s. uppbúin rúm í
herbergjum, velbúið eldhús, stofa og
baðherbergi með sturtu.
*
Odýr gisting á
Akureyri
Leisjum út 2-4 manna íbúðir
á besta stað í bænum.
Studio - íbúðir
Strandgötu 13, sími 461 2035
Líf og
fjora
Dalahelgi
Búðardalur. Morgunblaðið.
NÆSTA helgi, 25. til 27. júlí, er síð- I
asta Daladagahelgin. Þá verður ýmis-
legt skemmtilegt hægt að gera í
Dalasýslu. Síðdegis á föstudag hefst
„föstudagskryddið" sem er uppá-
koma í Búðardal. Þar verða teiknaðar
andlitsmyndir af gestum, spákona
sem spáir í spil og bolla, Afurðastöð-
in grillar og gefur smakk og flutt
verður tónlist að hætti Dalamanna.
Um kvöldið er „Eiríksstaðagleði“
en þá verður farið að Eiríksstöðum
í Haukadal frá Upplýsingamiðstöð |
ferðamála í Búðardal kl. 20. Krist- 1
mundur Jóhannesson segir frá
staðnum og hefst leiðsögn í rút-
unni. Danskur víkingur og fornleifa-
fræðingur „Erik rede“ verður á
staðnum, klæddur sem fornkappi og
flytur fyrirlestur sem túlkaður verð-
ur jafnóðum. Fulltrúi frá Eiríks-
staðanefnd kynnir fyrirhugaða upp-
byggingu á Eiríksstöðum í tengslum
við 1000 ára Vínlandsfund. Boðið
verður uppá reykta og grafna bleikju
úr Haukadalsvatni og snaps. Síðar
um kvöldið og fram á nótt skemmt-
ir Hörður G. Ólafsson á veitinga-
staðnum Bjargi í Búðardal.
Á laugardag kl. 14 er söguganga
á Laugum undir leiðsögn Birnu Lár-
usdóttur og eftir gönguna fá þátttak-
endur frítt í sund í Sælingsdalsiaug.
Kl. 18 er sölva- og kræklingaferð í
Fagradalsfjöru á Skarðsströnd. Leið-
sögn veitir Steinólfur Lárusson, bóndi
í Ytri-Fagradal. Um kvöldið er dans-
leikur í Dalabúð þar sem hjómsveitin
Sixties leikur fyrir dansi.
Á sunnudag bjóða Dalabændur
heim að Kvennabrekku í Dölum frá
kl. 14 til 21. Mjaltatími er á milli
18 og 20.
Ferð í Ljárskógarsel í Dölum verð-
ur farin frá Upplýsingamiðstöð
ferðamála í Búðardal kl. 14. Sagt
verður frá örnefnum og síðustu íbú-
um selsins. Jóhannes skáld úr Kötl-
um ólst upp í Ljárskógarseli. Leið-
sögumenn í ferðinni verða Ragnar
og Elís Þorsteinssynir en foreldrar
þeirra Þorsteinn Gíslason og Alvilda
Bogadóttir voru síðustu ábúendur
þar og er Ragnar fæddur og alinn
upp í selinu.
Frítt verður í veiði sama dag í
Ljárskógarvötnum.Um kvöldið er
kvikmyndasýning í Dalabúð, Búð-
ardal, 0g lýkur þar Daladögum 1997.
------♦ ♦ ♦------
í fótspor Guð-
mundar góða
Hólabiskups
LAUGARDAGINN 26. júlí kl. 13.30
verður skipulögð gönguferð í Gvend-
arskál á vegum Ferðaþjónustunnar á
Hólum. Leiðin er nokkuð á brattann
en gönguhraða verður stillt í hóf
þannig að allir fái notið sín. Gera
má ráð fyrir 3 klst. rólegri göngu-
ferð. Nauðsynlegt er að fólk sé vel
skóað og klætt eftir veðri. Staðar-
kunnugir fararstjórar útdeila fróð-
leiksmolum og léttu nesti á leiðinni.
Þegar heim er komið er upplagt
að bregða sér í sund og slökun í
heita pottinum. Klukkan 17.30 verð-
ur _svo grillað fyrir svanga.
Á meðan pabbi og mamma eru í
göngunni geta yngstu börnin (8 ára
0g yngri) unað sér við leiki og létt
gaman heima á Hólastað í umsjón
starfsmanna ferðaþjónustunnar.
Gvendarskál er í miðri Hólabyrðu,
íjallinu sem gnæfir yfir Hólastað.
Þangað á Guðmundur góði Hólabisk-
up (1203-1237) að hafa gengið dag-
lega og flutt bænir sínar við steina-
ltari í skálinni. Gvendarskál er í u.þ.b.
600 m hæð yfir sjávarmáli og þaðan
er mikil og fögur útsýn á góðum degi.
Æskilegt er að fólk skrái sig í
gönguferðina fyrir kl. 12 laugardag-
inn 26. júlí hjá starfsfólki Ferðaþjón-
ustunnar á Hólum.