Morgunblaðið - 24.07.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 21
Leita
Cunanans
norðar
LEITIN að Andrew Cunanan,
sem grunaður er um að hafa
myrt ítalska tískuhönnuðinn
Gianni Versace, nær nú út fyr-
ir Flórídaríki, þar sem morðið
var framið, og í gær var hans
leitað í New Hampshireríki, í
norðausturhluta Bandaríkj-
anna. Að sögn lögreglumanna
fengu þeir vísbendingu frá
verslunarmanni í bænum West
Lebanon í New Hampshire um
ferðir manns, sem svaraði til
lýsingarinnar á Cunanan, á
grárri Bens bifreið með skrán-
ingarnúmerum frá Flórída. Auk
morðsins á Versace er Cunanan
grunaður um fjögur morð í
norðausturhluta Bandaríkjanna
frá þvi í apríl.
Fagna við-
horfi Jeltsíns
VATÍKANIÐ fagnaði í gær
þeirri ákvörðun Borís Jeltsíns,
forseta Rússlands, að hafna
umdeildu lagafrumvarpi um
trúfrelsi, og segir í yfirlýsingu
frá Vatíkaninu að vonast sé til
þess að nýr texti geti orðið
grundvöllur að bættum sam-
skiptum við Rómversk-
kaþólsku kirkjuna. Jóhannes
Páll páfi hafði áður ritað Jeltsín
bréf þar sem hann varaði for-
setann við því, að ef frumvarp-
ið yrði að lögum gæti kaþólsku
í Rússlandi verið hætta búin.
Leiðtogar á
Kýpur funda
LEIÐTOGAR Grikkja og
Tyrkja á eynni Kýpur munu í
næstu viku hittast í fyrsta skipti
á kýpversku landi í nærri þrjú
ár. Munu þeir ræða neyðarað-
stoð vegna deilunnar milli
gríska meirihlutans og tyrk-
neska minnihlutans á eynni.
Fundur þeirra mun fara fram
í bústað sendimanns Samein-
uðu þjóðanna á eynni. Leiðtog-
arnir hittust á fundum í Banda-
ríkjunum fyrr í mánuðinum og
munu hittast aftur í Sviss í
næsta mánuði.
Arafat og
Levy greinir á
DAVID Levy, utanríkisráð-
herra ísraels, og Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna,
eru ósammála um pólitískan
árangur fundar síns í Brussel
í fyrradag. Sagði Arafat að
enginn árangur hefði orðið af
fundinum, en Levy sagði að nýr
grundvöllur fyrir friðarviðræð-
ur hefði verið lagður. Sögðu
leiðtogarnir þetta hvor í sínu
lagi eftir að hafa átt fundi með
Eric Derycke, utanríksiráð-
herra Belgíu, í gær.
Þurrkar og
flóð í Kína
GÍFURLEG flóð í suðurhluta
Kína og alvarlegir þurrkar í
norðurhlutanum hafa valdið
útbreiðslu smitsjúkdóma og
gætu orðið til þess að farsóttir
breiddust út, að sögn kínver-
skra fjölmiðla. Haft er eftir
heilbrigðismálaráðherra lands-
ins að slæmar aðstæður á flóða-
svæðunum ógni heilsu íbúa þar.
Samtök Suðaust-
ur-Asíuríkja
Kamb-
ódía
bíður
Kuala Lunipur. Phnoni Penh. Reuter.
SAMTÖK Suðaustur-Asíuríkja veittu
Burma og Laos formlega aðild á ráð-
stefnu samtakanna í Kuala Lumpur
í Malasíu í gær. Aðildarumsókn
Kambódíu hefur ekki verið sam-
þykkt, þrátt fýrir að stjórnvöld hafi
fallist á að samtökin reyni að koma
á sáttum í landinu.
Til stóð að Kambódía fengi inn-
göngu í samtökin um leið og Laos
og Burma, en fallið var frá því vegna
ótryggs ástands í landinu í kjölfar
valdaráns forsætisráðherrans Huns
Sens. Ung Huot, utanríkisráðherra
Kambódíu, sendi utanríkisráðherrum
aðildarríkjanna bréf í vikunni, þar sem
hann óskaði eftir endurskoðun á af-
stöðu samtakanna. Utanríkisráðherra
Malasíu, Abdullah Ahmad Badawi,
sagði fréttamönnum í gær að ekki
hefði verið fallist á það, og að samtök-
in viðurkenndu enn Ranariddh prins
sem annan af forsætisráðherrum
Kambódíu.
Ung Huot situr ráðstefnuna sem
áheyrnaraðili, og tilkynnti við komuna
til Kuala Lumpur að stjómvöld í
Kambódíu hefðu fallist á að samtökin
hefðu forgöngu um að koma á sáttum
í landinu. Yfirlýsingin kemur á óvart
þar sem Hun Sen hefur hafnað allri
íhlutun erlendra aðila, og henni var
fagnað af sendimönnum Asíuríkja.
Pavarotti
kveðst lesa
nótur
Róm. Reuter.
ÍTALSKI tenórinn Luciano Pava-
rotti hefur brugðist ókvæða við
fréttum af meintu ólæsi hans á
nótur, sem vakið hefur heimsat-
hygli. Sagði söngvarinnar við
fréttamenn í gær að frásögnin
væri uppspuni.
Pavarotti viðurkennir að hann
kjósi að nota eigin nótur með
athugasemdum en segir ástæð-
una þá að honum hætti til að
gleyma texta laganna sem hann
syngur. Hins vegar hafi blaða-
menn látið óskina um að birta
æsifréttir hlaupa með sig í gönur
og að fréttin um ólæsi sitt á nót-
ur sé hlægileg. Það var eitt
stærsta dagblað Italíu, Corríera
della Sera, sem fyrst birti frétt-
ina.
Útiskilti
Vatnsheld og vindþolin
Allar stærðir og gerðir
Margir litir - gott verð
JCL'
dQhOfnasmiöjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100
Ýmsir létu þó í ljós tortryggni og
gáfu í skyn að Hun Sen hefði spilað
út þessu peði til að telja samtökin á
að fallast á aðildarumsókn Kambódíu.
Bardagar liggja nú að mestu niðri í
landinu, eftir að hersveitir hliðhollar
Ranariddh náðu borginni Samrong á
sitt vald á mánudag.
Samtök Suðaustur-Asíuríkja höfðu
að engu mótmæli mannréttindasam-
taka og ríkisstjóma á Vesturlöndum
gegn inngöngu Burma, vegna ítrek-
aðra mannréttindabrota og herstjóm-
ar í landinu. fjórir mótmælendur tóku
sér í gær stöðu gegnt hótelinu sem
hýsir ráðstefnuna, en strangar reglur
í Malasíu gera ráð fýrir að sækja
verði um sérstakt leyfi fyrir mótmæl-
um ef þátttakendur em fimm eða
fleiri. Mótmælendurnir sögðu í yfirlýs-
ingu sinni að innlimun Burma væri
„smánarblettur í augum fólks sem
hefur í heiðri mannréttindi, réttlæti,
lýðræði og frið.“
Samtökin hafa starfað í 30 ár og
aðildarríki eru Malasía, Indónesía,
Tæland, Singapúr, Víetnam, Filipps-
eyjar og Brunei, ásamt Laos og
Burma.
Reuter
INNGONGU Burma í Samtök Suðaustur-Asíuríkja var mótmælt
í Kuala Lumpur í gær. Annar mótmælendanna á myndinni klæð-
ist bol með mynd af Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar í landinu.
sidasii
Örfá heimabíótæki
eftir á tilboðsverði
sem leitun er að!
PHILIPS 29“ PT 722
aðeins kr.
stgr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
umboðsmenn um land allt
• Svartur, flatur Black Line Super myndlampi
sem gefur allt að 35% meiri skerpu
• 70w Pro Logic hljóðkerfi með bassahátalara
• CTI (Colour Transit Improvement) litstýring
• 2 Scarttengi, Super VHS inntak að framan
• Comb Filter aðgreiningarkerfi
• Easy Logic skjástýrikerfi
• Útgangur fyrir heyrnartól
• Textavarp og barnalæsing