Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Framkvæmdasljórn ESB fellst á samruna Boeing og McDonnell Douglas Eftirgjöf Boeing kom í veg fyrir viðskiptastríð ESB FELLST A SAMRUNA BOEING Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins (ESB) lagði í gær til að fallist yrði á samruna bandarísku fiugvélaverksmiðjanna Boeing og MeDonnell Douglas en sérfræð- inganefnd þess um varnir við hringamyndun lagði í síðustu viku til að komið yrði í veg fyrir hann þar sem hann gæti skaðað evrópsk- an iðnað. Með þessu er vonast til að komið hafi verið í veg fyrir við- skiptastríð Bandaríkjanna og ESB. Bandaríska alrikisviðskiptaráðið (FTC) hefur nú þegar samþykkt 15 milljarða dala, 1.000 milljarða ísl. kr. samrunann án skilyrða. Evr- ópusambandið verður einnig að samþykkja hann vegna þess hversu mikil viðskipti Boeing á við ríki í sambandinu. Framkvæmdastjórnin ákvað að leggjast ekki gegn sam- runanum eftir að Boeing féllst á tilslakanir varðandi hann. Vísar framkvæmdastjórnin málinu til fyrrnefndrar sérfræðinganefndar um varnir við hringamyndun, sem fer yfir málið í næstu viku. Miklar tilslakanir Boeing ESB óttaðist að aukin hlutdeild Boeing í hergagna- og geimiðnaði myndi koma Boeing til góða við smíði farþegaflugvéla, auk þess sem samningsstaða fyrirtækisins myndi eflast. Frakkar lýstu því m.a. yfir að samruni fyrirtækjanna gæti reynst evrópskum iðnaði „hættulegur“. Að sögn Karel van Miert, sem fer með samkeppnismál í framkvæmdastjórninni, ríkti ein- hugur um ákvörðunina nú enda hefði Boeing fallist á að margar efasemda ESB væru réttmætar. Bandarísk yfirvöld voru æf vegna tregðu ESB og höfðu hótað við- skiptaþvingunum, kæmi sambandið í veg fyrir samrunann. Boeing hættir við sérsamninga sem gerðir höfðu verið við American Airlines, Continental Airlines og Delta Air Lines, sem fólust í því að félögin keyptu allar sínar vélar hjá fyrirtækinu næstu tvo áratug- ina, sem hefði útilokað aðalkeppi- naut Boeing, hinar evrópsku Air- bus-verksmiðjur, frá stórum kaup- endum. Féllst Boeing á að gera ekki slíka samninga næstu tíu árin. Þá hefur Boeing heitið því að auka aðgang annarra fyrirtækja Framkvæmdastjórn ESB lagði í gær til að fallist yrði á samruna Boeing og McDonnell Douglas flugvélaverk- smiðjanna, sem hljóðar upp á um 15 milljarða dala, um 1.000 milljarða ísl. kr. Sameinaða fyrirtækiö starfar undir nafni Boeing og er sala þess á þessu ári áætluð um 3.360 milljarðar ísl. kr. Pantanir eru metnar á um 7.000 milljaröa, og hefur fyrirtækið yfirburðastöðu á helsta keppninautinn, hið evrópska Airbus. Markaðshlutdeild framleiöanda farþegaflugvéla I september 1996 Boeing 54% Fyrlrtæki Árleg velta* Pantanir* Starfsmenn* Boeing 1.365 milljarðar kr. 2.280 milljaröar kr. 105.500 McDonnell Douglas 1.000 milljaröar kr. 350 milljarðar kr. 68.500 Airbus 670 milljaröar kr. 490 milljaröar kr. 37.700 ‘Árié 1995 Skipting framleiöstu ' í'. . i ; _ Boeing Farþega- Slwv flugvélar Vamar- mál og geimllug ... McDonnell Douglas Herflug- vélar Airbus Farþega- llugvélar Annaé Heimild: Boeing. The Airline Monitor Flugskeyti, geimflaugar, rafeindatæki Farþega- tlugvélar AnnaO að einkaleyfum McDonnell Dou- glas á sviði hergagnaframleiðslu en ESB óttaðist að Boeing myndi nýta sér ríkisstyrki til hergagna- framleiðslu við smíði farþegavéla. Ennfremur heitir Boeing því að misnota ekki yfirburðastöðu sína á markaðnum til að hafa áhrif á framleiðendur hreyfla og annarra vélarhluta. Ástralía Dýrkeypt- ur upplýs- ingaleki Canberra. Reuter. KLÍPA Ástrala vegna leka á leyni- legum skjölum yfír gagnrýni ráða- manna á nágrannaríkin á Kyrra- hafí versnaði enn í gær þegar upp- víst varð um nýjan upplýsingaleka, meðal annars á reiðilegu tölvu- skeyti frá utanríkisráðuneytinu. Stjórnvöld hafa nýverið gert gangskör að því að grafist verði fyrir um ástæður þess að smáatriði í 93 síðna skýrslu, sem innihélt niðr- andi dóma yfir hagkerfum og leið- togum ríkja í Suður-Kyrrahafí, voru gerð opinber. Skýrslan var merkt „AUSTEO", sem er skammstöfun fyrir „Australian Eyes Only“, eða „Einvörðungu fyrir Ástrali“, og er til marks um að skýrslan sé háleyni- leg. Fréttamaður Reuters fann hana á svæði sem öllum var heimill um- gangur um á ráðstefnu fjármála- ráðherra í þessum heimshluta sem haldin var fyrr í mánuðinum. Greindi Reuters frá innihaldi skýrsl- unnar í síðustu viku. Alþjóðleg gagnrýni vegna þessa axarskafts hefur aukist að undan- förnu, og í gær syrti enn í álinn þegar fram kom í því sem virtist vera tölvuskeyti frá utanríkisráðu- neytinu gangrýni á „öryggiskrata“ í forsætisráðuneytinu sem tryðu á „myrkari veruleika" í nágranna- löndum Ástralíu. Það bætti svo gráu ofan á svart í gær, að annarri skýrslu merktri „AUSTEO" var lekið til fjölmiðla. I henni var sagt að ráðamenn í Canberra væru óhressir með það hversu útgjöld Nýsjálendinga til varnarmála væru lítil. Þætti Áströl- um þeir bera hitann og þungann af sameiginlegu varnarkerfi í heimshlutanum. Var gerð nákvæm grein fyrir áætlun um það, hvernig ástralskir ráðherrar gætu þrýst á starfsbræður sína á Nýja Sjálandi um að útgjöldin yrðu aukin. ÞESSI mynd frá yfirborði plán- etunnar Mars, sem bandaríska geimvisindastofnunin, NASA, sendi frá sér í fyrradag sýnir steinhnullunginn Jóga, sem vís- indamenn nefna svo, og Mars- jeppann Sojourner upp við hann. Greina má hjólför jeppans frá geimfarinu Pathfinder að stein- inum. Komið hefur í Ijós, eftir athuganir á steinum á plánet- unni, að sumir þeirra eru tvílit- TVílitt gijót áMars ir, og á myndinni hafa litaskilin á Jóga verið ýkt. Sjá má að steinninn er að hluta til rauðleit- ur, en einnig eru á honum blá- leitir fletir. Hafa geimvísinda- Reuter menn ekki glögga hugmynd um hvernig á þessum litaskilum stendur. Rúmlega hálfur mánuð- ur er nú síðan geimfarið lenti á Mars, og í siðustu fréttatilkynn- ingu frá stjórnstöð leiðangursins í Pasadena í Bandaríkjunum seg- ir að flestum áætluðum verkum Pathfinders ogjeppans Sojourn- er sé nú Iokið, en farið haldi áfram að virka eins og vænst hafi verið. Afganistan Konur gangi hljóð- lega um Kabúl. Reuter. LÖGREGLA Talebanhreyfingar bókstafstrúaðra múslima, sem sitja við stjórnvölinn í mestum hluta Afganistans, hefur gefið út nýja reglugerð, sem takmarkar möguleika kvenna á að leita sér aðstoðar, og kveður á um að þær skuli forðast að valda hávaða með skóm sínum þegar þær eru á gangi. Lögreglan heitir formlega Dygðaboðunar- og lastahindrun- ardeildin og sendi hún frá sé tvö minnisblöð í síðustu viku, annað til alþjóðlegra hjálparstofnana sem hafa starfsemi í höfuðborg Afganistans, Kabúl, og hitttil sjúkrahúsa. Þar segir: „Reglu- gerðir í islömsku landi okkar byggir á því að konur séu ekki ráðnar í vinnu á alþjóðlegum eða staðbundnum skrifstofum, og út- gáfa takmarkana á réttindum kvenna til að fara að heiman frá sér er islömsk skylda sem erlend- ar og staðbundnar stofnanir verða að hlýta.“ Reglugerðirnar eru byggðar á túlkun Talebana á islömskum lög- um, sem eiga sér m.a. forsendur í trúarriti islam, Kóraninum. Islömsk lög eru að því leyti frá- brugðin lögum á Vesturlöndum, að þau eru ekki talin vera manna- setningar heldur eiga sér rætur í guðlegri opinberun. Mikill hluti þeirra hjálparáætl- ana sem reknar eru í Kabúl er ætlaður konum, og þá sérstaklega þeim þúsundum ekkna sem búa í borginni og hafa margar orðið bláfátækar vegna þess að Tale- banar banna þeim að vinna. Reglugerðin sögð óraunhæf Starfsmaður hjálparstofnunar í Kabúl segir að reglugerðin sé óraunhæf og verði henni fram- fylgt til hins ítrasta yrði enn erf- iðara fyrir þá, sem veita neyðar- aðstoð, að hjálpa hinum verst settu. Bann er lagt við andlitsfarða, skartgripum og skóm með hælum sem valda hávaða þegar gengið er. „Tískufatnaður og skraut á konum á sjúkrahúsum er bannað. Konum ber skylda til að hegða sér siðsamlega, ganga rólega og forðast að skella skóm sínum í götuna, þar sem slikt veldur há- vaða,“ segir í reglugerðinni. Löggæsla Talebana á konum hefur valdið hörðum mótmælum frá þeim, er beita sér fyrir rétt- indum kvenna á Vesturlöndum. Talebanar segja hins vegar að þeir séu að reyna að koma á hreinu, islömsku þjóðskipulagi og reglugerðirnar séu nauðsynlegur þáttur í því. Tæknileg mistök reynast Frökkum dýrkeypt í arabalöndunum Dubai. Reuter. ARABÍSKI gervihnattastjórnandinn Arabsat mun ekki endurskoða bann sitt á útsendingar franskrar sjón- varpsstöðvar sem braut islömsk lög um velsæmi, að því er framkvæmda- stjóri Arabsat, Ahmad al-Badnah, greindi frá í gær. Arabsat, sem hefur aðsetur í Riy- ad í Saudi-Arabíu, stöðvaði útsend- ingar frönsku sjónvarpsstöðvarinnar Canal France International, sem er ríkisrekin, á laugardag vegna þess að þá var sýnd klámfengin kvik- mynd, sem stangast á við islamskar velsæmisreglur. Fulltrúi CFI segir útsendinguna hafa orðið fyrir tækni- leg mistök sem símafyrirtækið France Telecom beri ábyrgð á. CFI hafí ekki átt neinn þátt í því að kvikmyndin var send út. Al-Badnah sagði í viðtali við tíma- ritið al-Eqtisadiah að ákvörðun Utsendingabann vegna kláms Arabsat hefði verið tekin og ekki yrði aftur snúið. „Við viljum ekki eiga allt okkar undir tæknilegum mistökum,“ sagði hann. Franskir stjórnarerindrekar í Saudi Arabíu hafa reynt að bæta úr málinu, sem gæti haft mjög slæm áhrif á tilraun- ir Frakka til að fá áhorfendur í arabaríkjunum, þar sem megnið af vestrænu sjónvarpsefni er banda- rískt. Arabsat sér um gerfíhnatta- samskipti í arabalöndunum, þar á meðal sjónvarps- síma- og gagna- sendingar, og er í eigu 21 arabaríkis. Fulltrúar CFI í París sögðu að riftun útsendingasamningsins við Arabsat myndi kosta fyrirtækið um 50 milljónir franka (tæplega 600 milljónir ísl. króna) á ári vegna glat- aðra auglýsingatekna og vegna dagskrár sem þegar hefði verið seld. „En skaðinn á opinberri ímynd okk- ar er meiri en orð fá lýst,“ sagði fulltrúi CFI. „Okkar dagskrá og dagskrá [bandaríska sjónvarpsins] CNN var eina dagskráin sem Árabs- at sendi út sem ekki var arabísk. Þetta þýðir að Frakkar hafa helst úr lestinni eftir að hafa í mörg ár reynt að ná til almennings í araba- löndunum." Fulltrúinn kvaðst ekki vita um nein tengsl milli þessa máls og fyrri ágreinings um útsendingar á trúar- legri dagskrá múslima á frönskum kapalsjónvarpsstöðvum. Franska innanríkisráðuneytið er sagt hafa lagt hart að stjórnendum slíkra stöðva í Frakklandi að senda ekki út dagskrá frá löndum eins og Saudi Arabíu, þar sem trúarlegar predik- anir væru meðal efnis. Er ráðuneyt- ið sagt óttast aukin áhrif bókstafs- trúar meðal múslimskra íbúa lands- ins, en þeir eru fjórar til fimm millj- ónir talsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.