Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 23
SóHjöl'l
Samruni
ólíkra efna
MYNPLIST
G a 11 c rí
Ingólfsstræti 8
MÁLVERK
Tumi Magnússon. Opið finuntudaga-
sunnudaga kl. 14-18 til 81. júlí, að-
gangur ókeypis.
„HEILAVEFUR og rauðvín"
nefnist sýning Tuma Magnússonar
og samanstendur af 21. málverki.
Myndimar hanga í samfelldri röð
á gagnstæðum veggjum rýmisins
og eru staðsettar fyrir ofan sjón-
línu áhorfanda. Tumi blandar liti
sem komast næst upprunalegum
efnum fyrrnefndra heita og lætur
þá renna saman. Litafletimir bera
síðan heiti þeirra efna sem hann
vinnur með.
Litur heilavefs er táknmynd
fyrsta málverksins og er lit rauð-
víns frá Rioja-héraði á Spáni
blandað jafnt og þétt saman við
grunnlitinn. Smátt og smátt renna
litirnir tveir saman, frá grábrúnum
tón yfir í vínrauðan lit. Framsetn-
ing verksins er túlkun á samruna
ólíkra efna og er líkt við lífeðlis-
fræðilegt ferli heilans sem á sér
stað við víndrykkju. í málverkum
Tuma mettast hlutlaus litur heila-
ve§a af lit rauðvínsins þar til hann
Bítlasin-
fónía sam-
in á tölvu
London. The Daily Telegraph.
BÍTILLINN Paul McCartney hefur
lokið við 75 mínútna langa sinf-
óníu með aðstoð tölvu, en þetta
er fyrsta sígilda verkið sem hann
semur án aðstoðar. Hann hefur
gripið í tónsmíðarnar undanfarin
ijögur ár en McCartney getur
hvorki lesið né skrifað nótur. Bítill-
inn fyrrverandi segir verkið „sin-
fónískt ljóð“ en hann skrifaði verk-
ið að beiðni EMI-útgáfunnar.
Verk McCartneys nefnist
„Standing Stone“ og er undir
greinilegum keltneskum áhrifum.
Lundúnasinfónían og kór, alls um
300 tónlistarmenn, munu flytja
verkið í Royal Albert Hall þann
14. október nk.
McCartney notaði tölvuforrit við
tónsmíðarnar, lék laglínu á hljóm-
borð, ýtti á takka og tölvan út-
setti hana, t.d. fyrir strengi eða
þau hljóðfæri sem hann kaus.
Hann afhenti hljóðfæraleikurunum
útprentun tölvunnar en hafði litla
sem enga hugmynd um hvernig
verkið myndi hljóma fyrr en hljóm-
sveitin lék það í fyrsta sinn.
Verkið hefur verið tekið upp og
stýrði McCartney upptökunum.
Verður geisladiskurinn gefinn út
29. september. Að sögn Geoff
Baker, talsmanns McCartneys, má
ganga að því vísu að verkið hljómi
„öðruvísi" enda sé McCartney ekk-
ert venjulegur maður. „Hann er
þeirrar skoðunar að muni hann
ekki laglínu, sé hún líklega ekki
nógu góð. Hann hefur aldrei getað
lesið nótur. Hann myndi ekki einu
sinni þekkja nóturnar að „Yest-
erday“ og er ákaflega feginn því
að tæknin gerir honum kleift að
semja sígild verk án aðstoðar.“
Fyrsta sígilda verkið sem Paul
McCartney samdi, „Liverpool óra-
tórían“ var gerð með aðstoð tón-
skáldsins Carl Davis en hann út-
setti verkið eftir laglínum sem
McCartney lék á píanó.
verður ekki greinanlegur í síðustu
myndunum.
Kímni einkennir hugmynda-
fræði Tuma eins og heiti verka
hans bera með sér. Leikur með
tengsl lita og efna á myndfleti er
án allrar upphafningar og áhorf-
andanum leyfist því að sleppa öll-
um hátíðleika þegar hann skoðar
sýninguna.
Hulda Ágústsdóttir
TUMI Magnússon; „Heilavefur og rauðvín“ 1997.
„Loft“
einungrunar-
dýna
Mjúk eins og vindsæng en tekur mun
minna piáss. Þegar dýnunni er rúllaö
út fyllist hún sjálfkrafa af lofti og þegar
henni er rúllað saman aftur tæmist
loftiö aftur úr henni. Bráðsniöug lausn.
Stærð 180x50 sm.
1.990,-
Einangrunardýna
Fyrir svefnpoka. 50x190 sm.
Þétt og hlý. Mjög lótt.
590,-
Skeifunni 13
108 Reykjavík
568 7499
Noröurtanga 3
600 Akureyri
462 6662
Reykjavíkurvegi 72
220 Hafnarfjöröur
565 5560
Holtagörðum
v/Holtaveg
104 Reykjavík
588 7499