Morgunblaðið - 24.07.1997, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Akureyri
- iðandi
list og líf
Sumarlöng listahátíð er nú haldin í fímmta
sinn á vegum Gilfélagsins og Akureyrar-
bæjar. Sverrir Páll ræddi við Ragnheiði
-------------------------
Olafsdóttur er framkvæmdastjóra Lista-
sumars 1997 og skyggndist inn í viðamikla
dagskrá hátíðarinnar.
FRÁ sýningu Kötu saumakonu í Listasafni Akureyrar. Morgunblaðið/GoUi
AÐ SUMARLAGI er Akur-
eyri eins og kraumandi
pottur menningar og lista.
Alla daga ber eitthvað fyr-
ir augu eða eyru, myndlist, leiklist,
tónlist og jafnvel bókmenntir. Höfð-
að er jafnt til Akureyringa og bæj-
argesta, ungra jafnt og aldinna.
Segja má að bæjarbragurinn hafí
breyst til mikilla muna við þetta
mikla menningarstarf á sumri, en
meginhluti listadagskrárinnar er á
vegum Listasumars á Akureyri eða
tengist því að einhverju leyti.
Listasumar á Akureyri er listahá-
tíð, sem er um margt óvenjuleg í
samanburði við aðrar slíkar. Hún
stendur lengi, hefst á Jónsmessu,
24. júní, og lýkur á afmælisdegi
Akureyrarbæjar, 29. ágúst. Að sögn
Ragnheiðar Olafsdóttur er dagskrá-
in afar viðamikil. Dagskráratriði á
Listasumri 1997 eru milli 70 og 80,
en það er svipaður fjöldi og á undan-
förnum árum, og gestir á Lista-
sumri sldpta tugum þúsunda, Akur-
eyringar og nágrannar og ferðafólk
lengra að komið, innlent sem erlent.
Ragnheiður segir að Listasumar á
Akureyri hafi fest rætur í bæjarlíf-
inu. Þó telji hún tíma til kominn að
líta yfír farinn veg og taka ákvarð-
anir um það hvort halda skuli áfram
með sama eða svipuðu móti eða
breyta einhverju í fyrirkomulaginu.
,Að mínu áliti er það form sem nú er
á Listasumri í raun og veru ágætt,“
segir Ragnheiður, „en jafnvel þó að
það verði niðurstaðan er nauðsyn-
legt að breyta ýmsu svo þetta starf
verði mögulegt í framtíðinni.
Aðstandendur Listasumars eru
Gilfélagið og Akureyrarbær. Gilfé-
lagið leggur til húsnæði og aðstöðu
af ýmsu tagi, en einu peningarnir
sem við höfum úr að moða eru fram-
lag bæjarins og það dugir ekki til að
standa straum af þessum rekstri
þótt öllum kostnaði sé haldið í lág-
marki. Þess vegna væri meðal ann-
ars nauðsynlegt að fá einhverja
styrktaraðila til að hátíðin geti stað-
ið örugglega undir sér.
Annars konar listahátíð
Listasumar á Akureyri er ólíkt
öðrum listahátíðum, til dæmis Lista-
hátíð í Reykjavík, svo við höfum ein-
hvern samanburð. Við kaupum eng-
in atriði, höfum ekki til þess neitt fé,
heldur bjóða listamenn fram krafta
sína. Hlutverk mitt sem fram-
kvæmdastjóra er að taka við hug-
myndum listamanna sem vilja koma
hingað, setja saman dagskrána og
sjá til þess að allt rúmist innan þess
ramma sem við höfum. Við aðstoð-
um listamennina á ýmsan hátt, út-
vegum húsnæði fyrir atriðin, sjáum
um kynningar og svo framvegis.
Þetta er umfram allt skipulagsvinna
en ekki eiginlegur rekstur.
Formið er líka mjög afslappað að
því leyti að dagskráin er ekki niður-
negld fyrirfram. Á útmánuðum ligg-
ur fyrir töluverð beinagrind, því
margir hafa samband með góðum
fyrirvara, sem er auðvitað afar gott.
Hins vegar getur lengi bæst við og
reyndar er ekki endanlega ljóst
hvað í boði er fyrr en við gefum út
síðustu dagskrá Listasumars, í byrj-
un ágúst.“ Dagskrá Listasumars er
nú í sumar birt í Listanum, frétta-
og kynningarblaði sem Aksjón á
Akureyri gefur út.
Um viðtökur Listasumarsgesta
segir Ragnheiður að þær séu afar
vinsamlegar og undartekningarlítið
sé mjög góð aðsókn að því sem í boði
sé. Hún segir ennfremur að aðgang-
ur sé ókeypis að öllum sýningum
Listasumars, öllum djasstónleikum
og kirkjutónleikum sem haldnir séu
á vegum Sumartónleika á Norður-
landi í samstarfí við Listasumar.
Einungis sé á þessu sumri seldur
aðgangur að fáeinum klassískum
tónleikum. Vonandi sé að fólk setji
það ekki fyrir sig í ljósi þess að allt
annað sé í boði án endurgjalds.
Veggjakrot og götuleikhús
Dagskrá Listasumars er að
nokkru leyti útidagskrá og ekki hef-
ur gleymst að taka yngri kynslóðirn-
ar með í leikinn. Við opnun Lista-
sumars ‘97 marseraði lúðrasveit 55
stúlkna frá Randers í Danmörku um
bæinn og upp Listagilið að Deigl-
unni þar sem opnuð var samsýning
43 akureyrskra listamanna. Þá voru
í júnílok námskeið fyrir börn og
unglinga, annars vegar í drekagerð
og hins vegar í veggjakroti, og vakti
það starf mikla athygli.
Um verslunarmannahelgina er
stefnt að því að hafa opna verkstaði
fyrir börn og unglinga og jafnvel fyr-
ir alla fjölskylduna, meðal annars
kofabyggingar og fleira í þeim dúr.
Um þá helgi verða á Akureyri á veg-
um Listasumars ‘97 Götuleikhúsið á
Akureyri og samnorrænt leikhús
ungs fólks, Stormen i Nord, sem
mun sýna í íþróttaskemmunni undir
leikstjórn Kára Halldórs og vera auk
þess mjög áberandi í miðbænum.
Bókmenntir á Listasumri
Ragnheiður segir að á Listasumri
‘97 beinist athyglin meira að bók-
menntum en verið hefur áður. „Það
má segja að bókmenntaþátturinn sé
nýr hjá okkur. Við ætlum að vera
með námskeið hér innan dyra um
verslunarmannahelgina, 1. - 4.
ágúst, sem heitir Skapandi skrif, í
umsjá Bjargar Árnadóttur blaða-
manns. í tengslum við það verður
upplestur, norski barnabókahöfund-
urinn Torill Haugen mun lesa upp á
Aksjón Café laugardaginn 2. ágúst
og í Deiglunni verður bókmennta-
vaka sunnudagskvöldið 3. ágúst.
Þangað kemur Þórarinn Eldjárn og
ef til vill fleiri aðkomnir rithöfundar
og les úr verkum sínum ásamt fjölda
skálda og rithöfunda á Akureyri, en
þar í hópi er PLP, hópur ungra fjöl-
listamanna sem meðal annars hefur
fengist við skriftir. Mál og menning
tekur þátt í þessu með Listasumri.
Þann 9. ágúst er síðan stefnt að
því að halda málþing um kvenlýsing-
ar í Vefaranum mikla frá Kasmír eft-
ir Halldór Laxness, þar sem ýmsir
aðilar sem hafa sérhæft sig í bók-
menntum Nóbelsskáldsins koma
fram.“
Tónaflóð
Ef litið er yfír tónleikaþátt Lista-
sumars ber margt fyrir augu. Á
hverju fimmtudagskvöldi eru djass-
tónleikar í Deiglunni í samstarfi
Jazzklúbbs Akureyrar, og Tuborg á
Islandi. Þar hafa meðal annarra
komið fram tríó Sunnu Gunnlaugs-
dóttur og kvartett Tómasar R. Ein-
arssonar. Djasshljómsveitin
NANÚNA frá Akureyri leikur þar í
kvöld og kvartett Ómars Einarsson-
ar leikur 31. júlí. Sænsk-íslenska
djasshljómsveitin Cirrus leikur í
Deiglunni 7. ágúst og síðan koma
kvartett Björns Thoroddsen, kvart-
ett Ólafs Stolzenwald og djasshljóm-
sveit Atla Örvarssonar.
Sumartónleikar á Norðurlandi
eru alla sunnudaga klukkan 17 í
Akureyrarkirkju. 20. júli léku þar
Arnaldur Arnarson á gítar og Ásdís
Arnardóttir á selló. Þann 27. júlí
verða orgeltónleikar finnska org-
anistans Sixten Enlund og 3. ágúst
verða í kirkjunni tónleikar kamm-
erkórsins Schola cantorum frá Hall-
grímskirkju undir stjórn Harðar
Askelssonar.
Á Aksjón Café verða nokkrir tón-
leikar. Jazzbandið Uppvakningar
leikur 26. júlí og 1. ágúst og um
verslunarmannahelgina verða þar
sveitirnar Bad Moon og Betl.
Klassískir tónleikar á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar verða í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju 30. júlí,
en þar leika Auður Hafsteinsdóttir á
fíðlu og Guðrún St. Sigurðardóttir á
píanó. Þá mun Manuela Wiesler
koma og leika á flautuna sína í
Deiglunni 17. ágúst.
Myndlist
Myndlistarsýningar eru stöðugt
haldnar á Listasumri, í Deiglunni, í
Galleríi Svartfugli handan götunnar
og á Café Karólínu. Á kaffihúsinu
stendur nú sýning á verkum Bryn-
dísar Arnardóttur og 9. ágúst verð-
ur opnuð þar sýning Joris Radema-
ker. Þá má nefna nýopnaða sýningu
John Hopkins í Deiglunni og Mari-
anne Shoiswool frá Austurríki opnar
sýningu þar 30. júlí.
f Galleríi Svartfugli opna Sólrún
Friðriksdóttir og Ríkarð Valtingojer
sýningu 26. júlí. Þann 2. ágúst verð-
ur opnúð sýning Hlyns Helgasonar í
Ketilhúsinu í Gilinu, en þar verður
hann með innsetningar og rýmis-
verk og lokasýning Listasumars
verður málverkasýning Guðnýjar
Kristmannsdóttur. Þá eru stöðugt
sýningar í Alþjóðlegu galleríi
Snorra Ámundssonar í Gilinu.
í Listasafninu á Akureyri stendur
nú sumarsýning þar sem annars
vegar eru verk Finns Jónssonar list-
málara og hins vegar verk Katrínar
Jósepsdóttur, Kötu saumakonu, sem
ánöfnuð voru safninu að henni lát-
inni.
Söngkvennasyrpa
í ágústmánuði segir Ragnheiður
Ólafsdóttir að verði mikil innrás
söngkvenna. Þar kemur fram dúett
Guðrúnar Jónsdóttur og Önnu Sig-
ríðar Helgadóttur með létta og
skemmtilega dagskrá. Þá mun
Björg Þórhallsdóttir halda tónleika
við píanóundirleik Daníels Þor-
steinssonar og síðar mun Rósa
Kristín Baldursdóttir koma fram og
syngja við undirleik Kristjáns Eld-
járns gítarleikara. Loks er að nefna
tónleika þar sem Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir syngur óperutónlist við píanó-
undirleik Bjarna Jónatanssonar.
Þjóðlegar nótur og
gönguferðir
í samstarfi Listasumars og
Minjasafnsins á Akureyri eru á
þriðjudags- og fimmtudagskvöldum
tónleikar í Minjasafnskirkjunni þar
sem Rósa Kristín Baldursdóttir og
Þórarinn Hjartarson flytja íslensk
sönglög aftan úr fomeskju og fram
til okkar daga. Þá eru á vegum
Minjasafnsins annan hvern sunnu-
dag farnar gönguferðir með leið-
sögn, ýmist um Oddeyrina eða um
Fjömna og Innbæinn. 3. ágúst
verður gengið um Fjöruna og Inn-
bæinn.
Hér hefur verið tæpt á fáu einu
sem Listasumar á Akureyri felur í
sér, en til nánari glöggvunar er fólki
bent á kynningarblaðið Listann og
skrifstofu Listasumars í Deiglunni á
Akureyri.
Ótaldar eru sýningar í fjölmörg-
um söfnum bæjarins, blóma- og
trjálistin í Lystigarðinum, högg-
myndirnar vítt og breitt um bæinn,
meðal annars samnorrænt verk
unglinga, úr steindröngum, eir-
myndum og tjörn, sem afhjúpað fyr-
ir skemmstu við Göngugötuna og
tónleikar í hinum mörgu kaffihúsum
bæjarins oft í viku hverri. Það má
því vera ljóst að á Akureyri er ið-
andi list og menning í allt sumar.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
RAGNEIÐUR Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Listasumars ‘97 á Akureyri.
Morgnnblaðið/Bjöm Gíslason
JOHN Hopkins setur upp sýningu sína í Deigl-
unni á dögunum.