Morgunblaðið - 24.07.1997, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Eflum miðborgina
og stækkum Reykjavík
til vesturs
Guðmundur G. Örn
Kristinsson Sigurðsson
FORMAÐUR félags
fasteignasala sagði
nýlega að Kópavogs-
bær væri eina bæjarfé-
lagið á höfuðborgar-
wáeðinu sem hefði að
undanfömu boðið upp
á nýtt eftirsóknarvert
íbúða- og atvinnuvæði.
Þessi ummæli gefa til
kynna það framtaks-
og stefnuleysi sem ríkt
hefur undanfarin ár
hjá Reykjavíkurborg
varðandi framboð á
áhugaverðu bygginga-
svæði fyrir íbúa og
fyrirtæki í Reykjavík.
Byggð í höfuborg-
inni hefur undanfarna áratugi
verið að þynnast út til vesturs,
það nýjasta er að stefna upp á
Jíjalarnes og sjálfsagt verður
næsta skref að sameinast Akra-
nesi. I áratugi hefur miðborg-
arsvæðið liðið fyrir algert getu-
leysi borgaryfirvalda til að takast
á við uppbyggingarþörf miðborg-
arinnar og skipulagsmál hafa ver-
ið unnin samkvæmt hentistefnu í
hverri götu eins og nýleg ákvörð-
un um lokun Hafnarstrætis gefur
til kynna. Einnig hefur staðsetn-
ing Reykjavíkurflugvallar á verð-
mætu svæði innan borgarmark-
ffcna og ofuráhersla á ofverndun
gamalla húsa staðið í vegi fyrir
eðlilegri þróun byggðar þar sem
oftar en ekki hefur verið fórnað
meiri hagsmunum fyrir minni.
Niðurstaðan er sú að rótgróin
starfsemi stærri og minni fyrir-
tækja flyst á brott úr borginni og
eftir standa hálftóm og niðurnýdd
hús eins og því miður má sjá víða
í Reykjavík og ekki ekki hvað síst
í Kvosinni, elsta menningar- og
sögusvæði landsins.
Búið er að eyða milljörðum í
mannvirki, götur og torg í mið-
borginni á undanförnum árum án
þess að styrkja um leið uppbygg-
ýjgu á atvinnulífi. Þau tímamót
eru nú í augsýn að verslun leggist
endanlega af í Kvosinni, á sjálfri
Kaupstaðarlóðinni og þar verði
eingöngu veitingahús og risavaxið
safn með stjórnsýslu- og nætur-
lífsívafi. Þessi þróun er verulegt
áhyggjuefni því nauðsynlegt er
að hafa fjölbreytt mannlíf hvort
sem er á daginn, kvöldin eða um
helgar. Það næst ekki nema með
því að blanda hæfilega saman
mismunandi atvinnustarfsemi s.s.
verslunum, veitingahúsum, menn-
ingarumhverfi og þjónustu. Von-
andi mun þessi þróun snúast við,
en undanfarið hefur verslunum
fjölgað á Laugavegi, Skóiavörðu-
stíg, Hverfisgötu og í efri hluta
miðborgarinnar. Þetta gefur til
kynna aukinn áhuga fyrir mið-
borgarsvæðinu og því mjög áríð-
andi að hafa þar ákveðna stefnu
varðandi langtímauppbyggingu.
Miðborgarsamtök Reykjavíkur
hafa í samstarfi við arkitektana
Örn Sigurðsson og Sigurð S. Kol-
beinsson skoðað framtíðarmögu-
leika miðborgarinnar og lögðu
fram eftirfarandi þrjár tillögur til
breytinga á aðalskipuiagi Reykja-
víkur.
Reykjavíkurflugvöll út í
Skerjafjörð
Miðborgarsamtök Reykjavíkur
leggja til að tekin verði sú stefna
að stækka Reykjavík til vesturs
með því að flytja Reykjavíkurflug-
völl á uppfyllingu í Skeijafirði.
Miðborgarsamtökin leggja til að
fallið verði frá öllum fyrirhuguðum
fjárfestingum á núverandi flugvall-
arsvæði og hafist verði handa við
landfyllingu við Löngusker og
I hársnyrtivörur
Veldu það besta
Fjársjóður fyrir hárið úr náttúru íslands
Útsölustaðir: Apótek, heilsuvóruverslanir og
hársnyrtistofur um allt land.
SUMARTILBOÐ
Falleg gæðahandklæði
20% afsláttur
JöL Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
w FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.
FESTINGAJÁRN
fj ^ ■ ■ OG KAMBSAUMUR
' Þýsk gseöavara — traustari festing
HVERGI MEIRA URVAL
Ármúla 29 — 108 Reykjavlk — simar 553 8640 og 568 6100
Hólma á Skeijafirði undir nýjan
flugvöll með sambærilegum flug-
brautum og eru á núverandi velli.
Alls verði um að ræða u.þ.b. 60
hektara af landfyllingum fyrir
brautir, flughlað, flugstöð, bíla-
stæði, flugskýli, flugturn og að-
komuvegi í framhaldi af Suður-
götu. Með því að flytja flugvöliinn
út í Skeijafjörð vinnst margt og
má þar t.d. nefna:
1. Um 140 hektarar lands losna
fyrir íbúabyggð, atvinnustarfsemi
og útivist.
2. Þróunarmöguleikar aðliggj-
andi borgarhluta batna verulega.
3. íbúar losna við neikvæð áhrif
af mengun og slysahættu vegna
núverandi flugvallar.
4. Útivistargildi miðborgarinn-
ar, Öskjuhlíðar og annarra útivist-
arsvæða batnar verulega.
5. Skilyrði skapast til að leið-
Stækkum Reykjavík til
vesturs, segjaþeir
Guðmundur G.
••
Kristinsson og Orn
Sigurðsson. Færum
flugvöllinn á uppfyll-
ingu í Skerjafirði.
rétta og endurbæta austur-vestur
stofnbrautakerfið varðanbdi um-
ferð sem frá upphafi hefur búið
við aðþrengdar aðstæður.
6. Með tilkomu Vatnsmýrinnar
sem nýs borgarhluta í hjarta
Reykjavíkur mun þungamiðja
byggðar færast til vestur á ný tíl
hagsbóta fyrir miðborgina, aðra
borgarhluta og borgina í heild.
Avinnur af staðsetningu nýs
flugvallar í Skeijafirði er margs-
konar og má þar t.d. nefna:
1. Ferðatími farþega og starfs-
manna lengist ekki.
2. Viðskiptahagsmunir verslun-
ar og þjónustu í Reykjavík skerð-
ast ekki, nema síður sé.
3. Flugrekstrarskilyrði breytast
til batnaðar því áfram má stunda
ÍSLENSKAR
Xs É GÆÐA MÚRVÖRUR
Á GÓÐU VERÐI
1972-1997
MÚRKLÆÐNINGI
LÉTT - STERK - FALLÍG
S steinprýöi
* STANGARHYL 7 SÍMI 567 2777
innanlandsflug, leiguflug, sjúkra-
flug, æfinga- og kennsluflug og
að auki bæta við millilandaflugi.
4. Landvinningar með uppfyll-
ingu í Skeijafirði eru hagkvæmir,
u.þ.b. 30 milljónir á hvern hekt-
ara.
Nýtt 400 hektara land í
miðborginni
Miðborgarsamtökin leggja til að
mörkuð verði í aðalskipulagi sú
stefna að byggja upp nýja byggð
á 400 hektara landfyllingu til norð-
austurs umhverfis Grandhólma og
Akurey. Mikill ávinningur er varð-
andi landfyllingu á þessu svæði og
má þar t.d. nefna:
1. Unnt er að skapa um 400
hektara af verðmætu landi fyrir
íbúðir, miðborgar- og athafna-
starfsemi á hagkvæman hátt á
besta stað í borgarlandinu.
2. Þróunarmöguleikar núverandi
miðborgarsvæðis batna með til-
komu nýs baklands í vestri.
3. Efnahagslegur grundvöilur
skapast fyrir öflugum og um leið
vistvænum (t.d. að hluta neðan-
jarðar) stofnbrautatengingum í
austur-vestur.
4. Þungamiðja byggðar færist
til vesturs til mikilla hagsbóta
fyrir borgarheildina. Nýir borgar-
hlutar skapa uppbyggingu til vest-
urs í stað þess að byggja upp til
heiða.
Aðalolíubyrgðastöðina úr
miðborginni
í þriðja lagi leggja Miðborgar-
samtök Reykjavíkur til að fundinn
verði annar staður fyrir aðalolíu-
byrgðarstöð Reykjavíkur en í Ör-
firirsey. Það skapar mikla hættu
að hafa byrgðastöðina á þeim stað
sem hún nú er á og flest sem
mælir með því að hún fari s.s.:
1. Olíustöðin í Örfirirsey er í eða
innan við 1.500 metra ijarlægð frá
mörgum helstu stofnunum stjórn-
sýslu, menningar, viðskipta og
fjármála á íslandi.
2. Mengunar- og sprengihætta
er fyrir hendi og sjónmegnun af
henni er veruleg.
3. Allir landflutningar á elds-
neyti og spilliefnum að og frá stöð-
inni fara um þéttbýl íbúasvæði og
sjálfa miðborg Reykjavíkur.
4. Staðsetning olíustöðvar í
Örfirirsey til frambúðar torveldar
þróun íbúabyggðar og uppbygg-
ingu miðborgarstarsemi til vest-
urs.
5. Rangar fjárfestingar í
hafnarmannvirkjum, olíugeymum
og fleiru gætu tafið löngu tíma-
bærar áætlanir um landfyliingu
við Grandhólma og umhverfis
Akurey fyrir framtíðarbyggð'
Reykvíkinga.
Eins og kemur fram í ofan-
greyndum tillögum þá er mögulegt
að bjóða upp á áhugavert bygg-
ingasvæði á besta stað á höfuð-
borgarsvæðinu og miðborgin í dag
gæti auðveldlega þjónað þessum
nýju byggingarsvæðum varðandi
verslun, veitingasölu og aðra þjón-
ustu. Kostnaður við þessi bygging-
arsvæði væri einnig verulega lægri
en annarstaðar vegna þess að
hægt væri að nýta að miklu leyti
þau umferðarmannvirki sem eru
til staðar.
Guðmundur er formaður
Miðborgarsamtaka Reykjavíkur.
Orn er arkitekt.
IÐIMAÐARHURÐIR
FELLIHURÐIR LYFTIHURÐIR
GÖNGUHURÐIR ELDVARNARHURÐIR
ÍSVAL-BOKGA EHF.
HOÉ DABAKKA 9. 1 12 REYKJAVÍK
SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751
Sýning um samstæður
og andsfæður Norðmanna
og íslendinga á miðöldum.
Þjóðmínjasafn íslands