Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkaer dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA SIGURÐARDÓTTIR handavinnukennari, Miðtúni 54, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 25. júlí kl. 15.00. Svava Oddsdóttir, Gunnar Víkingsson, Sigurður Víkingsson, Eiríkur Víkingsson, Þór Örn Víkingsson, tengdadætur og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir afi, MAGNÚS AÐALBJARNARSON, Kirkjuvegi 26, Selfossi, andaðist laugardaginn 19. júlí sl. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 26. júlíkl. 13.30. Þórdís Frímannsdóttir, Aðalbjörn Þór Magnússon, Guðbjörg Erla Kristófersdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Hermann Árnason, Steinunn Hrefna Magnúsdóttir, Guðjón Stefánsson, Jóhann Frímann Helgason, Elsebeth E. Elíasdóttir og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, VILBORG ÁMUNDADÓTTIR, Tjarnargötu 35, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja Keflavík 22. júlí. Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 30. júlí kl. 14.00. Huxley Ólafsson, Ámundi H. Ólafsson, Ólafur H. Ólafsson. + Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, tengda- faðir og afi, HALLGRÍMUR BJÖRNSSON efnaverkfræðingur, fyrrv. forstjóri Nóa og Siríus, sem lést laugardaginn 19. júlí, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 25. júlí kl. 15.00. Ingrid Björnsson, Bjarni Jónsson, Marianne Olsen, Inga Birna, Anna María, Linda Björk og Bjarni Hallgrímur. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR, Álfabyggð 9, Akureyri, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 13. júlí. Jarðarförin fór fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks C-deildar á dvalarheimilinu Hlíð. Bjarndís Indriðadóttir, Þórir Guðmundsson, Eygló Indriðadótttir, Reynir Frímannsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur tengdasonur okkar, GEORGE J. DONEGAN, andaðist 8. júlí síðastliðinn. Jarðsett var í Arlington kirkjugarði 16. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Hulda Magnúsdóttir, Jóhannes Bjarnason. HLOÐVER JOHNSEN + Jón Hlöðver Johnsen fæddist í Frydendal í Vest- mannaeyjum 11. febrúar 1919. Hann Iést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju 19. júlí. Súlli á Saltabergi í Vestmannaeyjum er látinn 78 ára að aldri. Ég man eftir honum, þegar hann vann í Út- vegsbankanum í Eyjum. Þangað kom ég nær daglega sem peyi að erindast fyrir föður minn. Einhvern veginn fannst mér hann Súlli aldrei passa almennilega þarna innan við afgreiðsluborðið, enda kom síðar í ljós að hann átti allt annan mann að geyma en þann, sem unir á bak við afgreiðsluborð í banka. Kynni okkar Súlla hófust fyrir alvöru örlagaárið mikla 1973, þegar eldgosið í Vestmannaeyjum hófst. Þá voru ýmsir kallaðir til margvís- legra starfa. Ég og tvíburabróðir minn vorum fengnir til þess að sjá um útvarpsþættina Eyjapistil, og það kom í minn hlut að vera nær vikulega í Eyjum frá því í apríl og fram á haustið það árið að afla efnis. Ástandið í bænum var alveg ólýsanlegt. Menn lifðu ekki sam- kvæmt klukkunni, unnu, sváfu, unnu, sváfu og ef tækifæri gafst, þá skemmtu menn sér dulítið. Sum- arið 73 var alveg einstakt, sól og biíða næstum á hveijum degi. Ég var í Eyjum oftar en ekki með góð- um vini mínum, Lárusi Sigurðs- syni, algjörum Reykvíkingi, sem heillaðist af staðnum og var mín hægri hönd. Saman röltum við með níðþung segulbandstæki á öxlun- um, tókum menn tali og það kom iðulega í hlut Lárusar að rölta upp á símstöðina, sem þá var til húsa í Gagnfræðaskólanum og senda efnið suður. Þrátt fyrir að ég hefði leiðst út í ijölmiðlun, þá þjáðist ég af óbærilegri feimni og átti oft mjög erfítt með að taka fólk tali. En Lárus vann það á vissan hátt upp, hann var og er mjög opinn og átti gott með að spjalla við fólk. Einn þeirra, sem ég kynntist þama úti í Eyjum upp á nýtt var hann Súlli. Hann vann ef ég man rétt eitthvað á vegum Raunvísinda- stofnunar eða bæjarins við gasmælingar, en gas streymdi út frá hrauninu og varð þess vart í lægðum og dæld- um, og inni í yfirgefn- um húsum. Súlli hafði það hlutverk að fylgj- ast með gasinu og mæla útstreymið og meta hvort óhætt væri að vera á tilteknum svæðum. Við Súlli spjölluðum margt þetta sumar og leiðin lá oft upp að Saltabergi, þar sem glatt var á hjalla og mjög gestkvæmt. Og stundum var Ási í Bæ þar raulandi á gítarinn sinn og Súlli tók undir. Eina helgina hafði komist svolítið af söngolíu til Eyja og ég hafði mælt mér mót við Súlla á Saltabergi föstudagskvöld. Og við Lárus mættum á svæðið. Þá var Ási í bæ þar og við félagar gleymd- um stað og stund og sátum langt fram eftir nóttu við söng og spjall og ekkert varð úr viðtali. Daginn eftir gerði ég aðra atrennu. Asi í Bæ var þar enn ásamt fleirum og Árni Johnsen, systursonur Súlla, rak inn nefið. Þá var farið að ræða um heima og geima og auðvitað beindist umræðan að söng. Súlli hélt því blákalt fram að Árni frændi sinn héldi illa lagi. Árni mótmælti og færði mikil og sterk rök fyrir söngmennt sinni. Súlli færðist allur í aukana og klykkti út með því að Árni væri ekki kórtækur, ekki einu sinni í kirkjukór. Umræðurnar end- uðu á því að Árni sagðist skyldi sýna það og sanna að hann væri tækur í kirkjukór og gott betur og svo fór hann. Ekki veit ég hvort Árni hefur komist í kór, en hann heldur líklega fjölmennustu ein- söngstónleika einu sinni á ári hveiju á ágústkvöldi og mættu eflaust margir öfunda hann af áheyrenda- skaranum. Súlli hafði orð á að það væri svo gaman að stríða honum frænda sínum og sagði svo: „Ég þakka almættinu fyrir að þú skulir ekki getað sungið, Gísli minn, þá yrði aldrei friður fyrir ykkur tveim- + Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ÞORSTEINSSON fyrrverandi leigubílstjóri, Háaleiti 5, Keflavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 17. júlí. Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju á morgun, föstudaginn 25. júlí, kl. 15.00. Vordís Inga Gestsdóttir, Þyrí Magnúsdóttir, Ásbjörn Carlson, Ella Sesselja Magnúsdóttir, Þorsteinn Magnússon, Magnea Inga Magnúsdóttir og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINAR KRISTINSSON bóndi, Reistarnesi á Melrakkasléttu, verður jarðsunginn frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 26. júlí kl. 14.00. Sesselja Steinarsdóttir, Anna Steinunn Steinarsdótttir, Helga Steinarsdóttir Vilhelm Steinarsson, Aðalheiður Steinarsdóttir, Kristinn Benedikt Steinarsson, Hulda Valdís Steinarsdóttir, Gísli Sigmundsson, Árný Jónsdóttir, Svavar H. Pétursson, Þóra Jósefsdóttir, Kristján Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ur,“ og svo lauk umræðum og við Lárus hurfum á braut án þess að ná viðtali. Það var svo ekki fyrr en á mánu- deginum eftir laugardaginn um- rædda að viðtalið var tekið, en þar lýsti Súlli hvernig gasmælingarnar fóru fram. Ef ég man rétt, þá not- uðu þeir einhveijar túpur með sér- stöku litarefni, sem sýndi hættu-' mörkin. En Súlli sagði að þeim á „gosvaktinni“ hefði verið uppálagt að spara túpurnar og það helsta sem þeir notuðu og tækju mark á væri ákveðið líffæri á milli fótanna. Ef það hitnaði um of, þá væri gasið yfír hættumörkum. Súlli bætti því við í lok viðtalsins að það kæmi hins vegar í ljós hvort verulegur skaði hlytist af þessu, því að konan hans elskuleg kæmi til Eyja um kvöldið og þá yrði að reyna á hvort allt draslið þarna undir væri heiit eða ónýtt. Ég sendi viðtalið suður og það var birt í fréttum útvarps og vakti heilmikla athygli. Menn höfðu á orði hve Súlli hefði sagt greinilega frá og áttu ekki orð yfir húmornum hans. Sá mikli snillingur, Sveinbjörn Jónsson í Ofnasmiðjunni, kom fram með þær hugmyndir að nýta ætti hitann úr hrauninu til að verma upp hús bæjarins. Súlli fylltist miklum áhuga á þessu, var vakinn og sofinn yfir hraunhitaveitunni og reyndist Sveinbirni vel. Árið 1983, á 10 ára afmæli goss- ins, áttum við Arnþór bróðir minn leið til Eyja. Súlli var okkar hjálpar- hella að ná í menn til þess að taka tali. Það var eitt af síðustu skiptun- um, sem ég hitti hann fyrir utan lundaball, sem ég spilaði á fyrir nokkrum árum, en einhverra hluta vegna man ég lítið eftir því. Þá hafði Súlli nýlega misst konuna sína. Þegar ég hugsa til hans Súlla, þá vakna ljúfar minningar um góð- an dreng, sem vildi öllum vel og reyndist þeim haukur í horni, sem þurftu að eiga hann að. Ég dáðist að því hversu gott hann átti með að umgangast fólk á öllum aldri. Hannn leit á alla sem jafningja sína og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Stundum velti ég fyrir mér hvernig það verði, þegar við flytj- umst til annars heims. Skyldum við halda því, sem við höfðum eða nut- um í þessari jarðvist? Skyldu draumarnir þá rætast? Ætli ég fái að sitja á kletti, spila fyrir fuglana og fiskana, dýfa tánum í sjóinn og þá biti á? Skyldi hann Súlli hitta alla lundana, sem hann veiddi um ævina og fá að veiða þá aftur bara svona að gamni, bæði þeim og hon- um til skemmtunar? Eða skyldi hann ennþá vera að velta fyrir sér undursamleik náttúrunnar? Þessu fær enginn svarað fyrr en að enda- lokunum dregur. Blessuð sé minningin um hann Súlla á Saltabergi. Gísli Helgason. TOKum b o«4iua flt> iJí ym 41ÓT-CL m(i MiTflUfillNT • (IKÍ Upplýsingar i s: 551 1247 H H H H H H H H H Erfidrykkjur L A N H H H H H H H H H

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.