Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ1997 41 FRETTIR BSRB lýsir vanþóknun á vinnubrögðum Kjaradóms „STJÓRN BSRB lýsir algjörri vanþóknun á þeim vinnubrögðum sem Kjaradómur viðhefur þegar hann skammtar æðstu embættismönnum þjóðarinnar mun meiri kjarabætur en samið var um í síðustu kjarasamningum. Hækkanir upp á 9-20% þegar almennt launafólk fær 4,7% hækkun ná engri átt og eru til marks um það siðleysi sem virðist ríkja hjá sjálftöku- liði þjóðarinnar," segir í fréttatilkynningu. Ennfremur segir: „í forsendum úrskurðarins eru teknar inn sérstakar hækkanir sem samið var um að færu einungis til lægst launuðu hópanna í þjóðfélaginu. Þegar ríkisvaldið ákvarðaði hækkanir til bótaþega voru þessar hækkanir til lægstu hópanna ekki hafðar með. Að hálaunahópar fái síðan þessar hækkanir á silfurfati nær ekki nokkurri átt. Stjórn BSRB krefst þess að bætur almannatrygginga og atvinnuleysissjóðs verði þegar leiðréttar í ljósi þessa. Kjaradómur nú er einungis skipaður lög- mönnum og vekur það því óneitanlega athygli að gerð er sérstök leiðrétting hjá héraðsdómur- um, þannig að hækkanir hjá þeim nema allt að 20%. Það vekur sérstaka athygli að í for- sendum fyrir þessari aukahækkun til héraðs- dómara er gefið í skyn að íslenskir dómarar séu falir fyrir fé. Sú spurning gerist því enn ágengari hvort þetta fyrirkomulag sé á nokk- urn hátt réttlætanlegt. Frekari hækkanir boðaðar Þá vekur það furðu að formaður Kjaradóms hefur verið með yfirlýsingar í kjölfar þessa úrskurðar um frekari hækkanir til þingmanna og æðstu embættismanna þjóðarinnar með haustinu og um næstu áramót. Sú spurning hlýtur að vakna í umboði hvers hann talar, er það a) Hæstiréttur, b) fjármálaráðherra, c) Alþingi. Stjórn BSRB mótmælir vinnubrögðum og úrskurði Kjaradóms harðlega og hvetur stjórn- völd til að grípa þegar í taumana til að koma í veg fyrir þær alvarlegu afleiðingar og þann trúnaðarbrest sem úrskurður þessi veldur.“ Morgunblaðið/Jim Smart KVARTETT gefur út tímaritið Hamhleypu sem er ætlað ungu fólki. Frá vinsti: Þórður Heiðar Þórar- insson, Þórlindur Kjartansson, Davíð Guðjónsson og Eggert Þór Aðalsteinsson. Kvartett gefur út ' Hamhleypu fyrir unglinga KOMIÐ er út tímaritið Ham- hleypa sem útgáfufélagið ( Kvartettgefur útenaðþví standa fjórir ungir piltar; Davíð Guðjónsson, Eggert Þór Aðal- steinsson, Þórður Heiðar Þór- arinsson og Þórlindur Kjartans- son. Blaðið er gefið út í sjö þúsund eintökum og er því dreift ókeypis til unglinga á höfuðborgarsvæðinu. Hamhleypa flytur meðal ann- ars efni um tónlist, kvikmyndir, leiklist og íþróttir og sögðu fjórmenningarnir að hér væri um skemmtirit að ræða fyrir ungt fólk og því væri ætlað að draga úr neikvæðri umfjöllun um þann hóp. Dregin væri upp jákvæð mynd af fólki sem væri að gera það gott á ýmsum ofan- greindum sviðum. Blaðinu verður dreift til unglinga í vinnuskólum á höfuðborgarsvæðinu og hægt verður að nálgast eintök í Hinu húsinu í Reykjavík. Piltarnir töldu óvíst að um framhald yrði að ræða á útgáfunni. Menn með reynslu Fjórmenningarnir sem gefa út Hamhleypu voru samferða í Menntaskólanum í Reykjavík JÓN Reynir Magnússon, forstjóri SR-mjöls, segir að fyrirtækið hafi gert áætíun um framkvæmdir til að draga úr mengun frá loðnu- verksmiðjunni í Siglufirði innan þriggja ára. Líklega verði hægt að ljúka framkvæmdunum á tveimur árum en alls ekki á einu ári. Tillaga bæjarstjórnar Siglu- fjarðar til Hollustuverndar ríkisins hljóðar hins vegar þannig að fyrir- tækinu verði ekki veitt starfsleyfi og útskrifuðust þaðan í fyrra. Stunda tveir þeirra nú nám í vélaverkfræði, einn í sögu og einn í eðlisfræði. Þeir hafa allir fengist við blaðamennsku og ritstjórn í ein- hverjum mæli og tveir þeirra nema til eins árs verði ekki gerðar úrbætur og fullkomnum mengun- arvarnarbúnaði komið upp. „Við ætlum m.a. að skipta um þurrkara og setja upp búnað við hann sem kemur í veg fyrir sjón- mengun. Það er þó aldrei hægt að gera þetta þannig að engin mengun verði af starfseminni,“ segir Jón Reynir. „Ég býst við að hægt verði að koma búnaðinum upp innan undirbúa útkomu bókar í haust. Þeir segja hugmyndina að blað- inu hafa fæðst seint á síðasta vetri og þeir síðan ákveðið að hafa þetta sem sumarvinnu sína í sumar. Fengu þeir aðstöðu hjá Hinu tveggja ára en alls ekki innan eins árs,“ sagði Jón Reynir. Nýtt hús verður reist Byggt verður nýtt hús norðan við núverandi verksmiðju til þess að koma vélbúnaðinum fyrir. Jón Reynir kveðst ekki eiga von á öðru en að framkvæmdirnar verði komnar það langt áleiðis að starfs- leyfi verksmiðjunnar verði end- urnýjað. „Kröfurnar sem gerðar húsinu og önnuðust sjálfir rit- stjórn og skrif í blaðið ásamt söfnun auglýsinga. Berglind Jóna Hlynsdóttir annaðist ljós- myndun og Sigurður Sveinn Halldórsson uppsetningu. Prentmet sá um prentvinnslu. eru til verksmiðjunnar eru í sjálfu sér ekki strangar. Sömu kröfur eru gerðar til annarra verksmiðja. En úrbæturnar eru dýrar. Framkvæmdirnar kosta líklega um hálfan milljarð króna. Verið er að hanna þessar breytingar núna og allur undirbúningur er hafinn. Stjórn fyrirtækisins samþykkti fyrr á þessu ári að hefja undirbúning að verkinu," sagði Jón Reynir. Verkamanna sambandið Urskurður Kjaradóms fordæmdur FRAMKVÆMDASTJÓRN Verka- mannasambands íslands fordæmir endurtekna úrskurði Kjaradóms sem eru úr öllu samhengi við þá kjarasamninga sem gerðir hafa ver- ið, segir í samþykkt VMSÍ. Ennfremur segir: „Með úrskurði Kjaradóms hafa laun æðstu emb- ættismanna, dómara, ráðherra og alþingismanna hækkað langt um- fram það sem hefur verið að gerast á vinnumarkaðnum. VMSÍ minnir á að Kjaradómur er skipaður af Alþingi, ríkisstjórn og Hæstarétti og bera þessir aðilar pólitíska ábyrgð á honum. Framkvæmda- stjórn Verkamannasambands ís- lands telur að dagar Kjaradóms séu liðnir og þetta fyrirkomulag hafi dæmt sig ónæthæft. Alþingi og ríkisstjórn hljóta því að axla opinberlega ábyrgð á þess- um ákvörðunum í stað þess að skjóta sér á bak við stjórnsýslu- nefndir skipaðar af meirihluta af þessum sömu aðilum.“ ----» ♦ ♦-- V erslunarmannahelgin Takniarkaður aðgangur að tjaldstæðum Búða Á BÚÐUM á Snæfellsnesi verður takmarkaður fjöldi tjaldstæðagesta um verslunarmannahelgina. Miðað verður við hámark 300 tjaldstæða- gesti og verður mögulegt að kaupa tjaldstæði með fyrirvara til að tryggja sér aðgang. Þessi háttur var hafður á í fyrra og reyndist vel, því nauðsynlegt er að stemma stigu við þeim mikla fjölda sem sækir á staðinn um verslunar- mannahelgar og hefur stundum verið langt umfram það sem við- kvæm náttúran þolir. Forsala tjaldstæða verður á Hót- el Búðum og einnig á veitingastaðn- um Einari Ben við Ingólfstorg í Reykjavík. Gjald fyrir hvern tjald- stæðagest er 1.500 kr. yfir helgina, hvort sem dvalið er eina nótt eða fleiri. ---♦ ♦ 4-- Útifundur á Lækjartorgi „VIÐ krefjumst réttlætis" er yfir- skrift útfundar sem haldinn verður vegna niðurstöðu Hæstaréttar þess efnis að Geirfinns- og Guðmundar- mál verði ekki tekin upp. Fundurinn verður á Lækjartorgi á morgun, föstudag, mílli kl. 16-17. Á fund- inum koma fram Bubbi Morthens, KK, Quarashi, Radís-bræður, Dida og Bragi Ólafsson. Ávörp flytja Svavar Gestsson alþingismaður, 111 ugi Jökulsson, Sigríður Kristins- dóttir, réttarritari á Eskifirði, og Sævar Ciesielski. ---» ♦ ♦-- Kvöldvaka í Þingvalla- kirkju STAÐARHALDARI á Þingvöllun efnir til kvöldvöku í kvöld kl. 20.30 í Þingvallakirkju. Fjallað verður ur.i sögu Þingvalla og sérstöðu, ljóð verða lesin og flera gert til dægra dvalar. Loðnuverksmiðja SR-mjöls í Siglufirði Hægt að koma búnaðinum upp á tveimur árum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.