Morgunblaðið - 24.07.1997, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 43
BREF
HL BLADSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Útileikhús
í Saltvík
Frá Kjartani Helgasyni:
LEIKLIST og leikhús, að ekki sé
minnst á „leikaraskap" hefur færst
mjög í aukana sl. ár. Risið hafa upp
ný leikhús, eiginlega i hverri vík og
landsmenn flestir orðnir frambæri-
legir leikarar. Enda segir fyrrv. leik-
ari Davíð Oddsson og núverandi
forsætisráðherra, að lífið sé leikur
einn í landi okkar. Færð hafa verið
upp ýmist alvöruþrungin leikrit eða
gamanmál og á stundum blandast
saman alvara og háð. Þannig varð
sællar minningar gamanleikurum
það á, að blanda saman háalvar-
legri guðstrú og gamanmálum sl.
vetur. Hefur lítið til þeirra heyrst
síðan. Ekki einu sinni í auglýsingum
„SS-manna“. Svona getur alvara
lífsins orðið mögnuð. Við skulum
samt vona að þessir öðlingar sjáist
aftur á skjánum, þegar myrkur
færist yfir þjóð að nýju á komandi
vetri.
Slík er uppsveiflan á leiksviði
„Thalíu" að utanríkisráðherra hefur
séð sitt óvænna og ætlar sér nú
mikla leiksýningu þessa dagana.
Dugar honum þar ekki minna en
útileikhús. Viðfangsefnið er stórt í
sniðum eins og hans var von og
vísa, svo stórbrotin „önd“, sem hann
er. Setja á á svið hvorki meira né
minna en „suðurlandsskjálfta", sem
þjóðin hefur að vísu beðið eftir allt
frá því þeir léku forfeður okkar
grátt á sl. öld. Verða leikarar ekki
af verri endanum. Sóttir til „guðs
eiginlands" og bræðraþjóðanna á
meginlandinu. Má því segja að þetta
sé nokkurs konar gestaleikur. „Sen-
an“ hefur verið valin í úthverfí
Reykjavíkur, Kjalamesi, en leiksvið
Esjan og reyndar allt Reykjanes.
Er gjafafé óðum að renna í fjárhirsl-
ur bankanna úr ýmsum áttum. Þetta
verður sem sé „víkingahátíð“ ríkis-
stjórnarinnar á þessu sumri. Á þess-
um tíma árs er von á að fjöldi ferða-
manna geri sér ferð til Reykjavíkur
til að sjá dýrðina. Ekki veitir af.
Má segja að n'kisstjóminni sé ekki
alls varnað í að bjarga okkur íbúum
þessa lands. Að því er sagt er hefur
allur undirbúningur gengið eftir
áætlun og er ætlun að leiksviðið
standi um framtíð alla, ef leikhópar
utan af landi vilja æfa sig á leiksvið-
inu. Allt em þetta æfingasýningar.
Fmmsýningin verður vonandi aldr-
ei, enda stjórna Davíð og co. ekki
þeirri atburðarás, sem betur fer. Þó
er ætlast til þess, ef svo ólíklega
myndi vilja til, að slík framsýning
kæmi upp á, að gestaleikendur verði
kallaðir hið óðara til landsins. Ekki
er með neinni vissu hægt að gera
sér grein fyrir hvemig slík fmmsýn-
ing kæmi upp á, að gestaleikendur
verði kallaðir hið óðasta til landsins.
Ekki er með neinni vissu hægt að
gera sér grein fyrir hvernig slík
frumsýning myndi birtast almenn-
ingi. Hitt kemur mér samtímis í
huga. Hvernig forfeður okkar hafi
bmgðist við 6 eða 7 á Richter? En
þeir bjuggu, jú, í moldarkofum eða
bara hellum? Þannig kallar nýjásta
tækni og vísindi á aukin umsvif.
Útileikhús er framtíðin. Ekki veit
ég hvar frumsýningargestum verður
komið fyrir. Eflaust verða þeir færð-
ir í tilheyrandi búninga er henta
slíkum leiksýningum, færðir í „nato-
galla“ 91. herdeildar eins og hjá
Zveik. Makaðir í lit í framan o.s.frv.
Því eflaust á að taka þarna upp
nýjustu tækni í leiksýningum þar
sem áhorfandinn á að era með um
leið þátttakandi í leiknum. Sparast
þar dýrmætur gjaldeyrir við kjóla-
kaup, að ekki sé talað um smygl.
Ég bíð spenntur að fá mynd af
Halldóri, utanríkisráðherra, upp-
færðan í slíkan búnað með allar
Natóorðurnar og „korðu“ sér við
hlið. Eða lögðu þeir „korðann" niður
1944? Bóndinn á Bessastöðum verð-
ur væntanlega heiðursgestur á leik-
sýningunni. Eða hvað? Væri ekki
vel viðeigandi að ráðuneytið birti
hvað úr hverju leikskrána, svo þeir
sem vildu forðast mengunina, sem
af þessari leiksýningu kann að hljót-
ast, til þeirra staða í landinu, þar
sem íslenskt rok ræður ríkjum.
KJARTAN HELGASON,
Langholtsvegi 184,104 Reykjavík.
Hvernig bragðast
kampavínið?
Frá Sveini Kristinssyni:
SEM kunnugt er hélt Atlantshafs-
bandalagið nýlega mikla halelúja-
samkomu í Madrid. Þar munu flest-
ir forystumenn Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna hafa mætt, fallist í
faðma, eins og lög gera ráð fyrir,
dáðst að eigin afrekum og skálað í
klára kampavíni. Sagt var frá því í
fréttum, að bæði Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson hefðu mætt á
samkomu þessa. Meðal ríkja í
bandalagi þessu er eitt, sem heitir
Tyrkland, ef ég man rétt. Hvort það
lenti í bandalaginu vegna landfræði-
legrar legu sinnar eða fagurra sið-
gæðishugsjóna man ég nú ekki leng-
ur gjörla. Líklega vegna þess síðar
talda, að minnsta kosti í bland.
Við íslendingar höfum átt í dálít-
ið sérstæðum „milliríkjaviðskiptum"
við Tyrkland undanfarið. — Tyrk-
neskur maður rændi fyrir nokkrum
árum tveimur íslenskum þegnum
og neitar ítrekað að skila ránsfeng
sínum. Ekki mun ég rekja það mál
í smærri atriðum. Bæði er það sárs-
aukafullt og flest atriði þess vel
kunn og í fersku minni. En í sem
fæstum orðum, þá er nýleg og —
að því er virðist — endanleg niður-
staða æðsta dómstóls þessara
bræðra okkar í réttlætinu sú, að
ræninginn skuli halda ránsfeng sín-
um. — Svo einfalt var það.
Þá er aðeins eftir ein spuming:
Hvemig bragðaðist íslensku ráð-
herrunum kampavínið, þegar þeir
skáluðu við fulltrúa Tyrklands á
hátíðarsamkomunni í Madrid?
SVEINN KRISTINSSON,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Dýraglens
/'fapjœ ERHTr/#) \ZE1&\
SÍMST! MeOLVHUR
útdauþrar. VVRAiæ-!
fséesfAkiBsA 'a
mÖTUAA^Srk
Tommi og Jenni
i M 6ETTIN6 YOUR
5UPPER A5 FA5T
A5 I CAN!
I KNOW YOU RE HUN6RV,
BUT WU PON'T HAVE TO
BREAK THE POOR POWN!
Ég næ í kvöldmatinn Ég veit að þú ert svangur,
þinn eins fljótt og en þú þarft ekki að
ég get! brjóta upp dyrnar!
BiniBQj pepun /661 O