Morgunblaðið - 24.07.1997, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Rabarbari
með fiski
Líklega borða fáir rabarbara með fiski, segir
Kristín Gestsdóttir, sem býður upp á
það í þessum þætti.
EINHVER segir sjálfsagt fiskur
með rabarbara - ab-a-ba - er
það ekki eins og saltfiskur með
sultu? En rabarbarinn er ekki í
sultuformi, heldur súr eins og
hann kemur fyrir, en flestir vita
að nær öll sýra hentar vel með
fiski. Þegar ég kom fyrst með þá
hugmynd að nota mysu með fiski
í matreiðslubók minni 220 góm-
sætir sjávarréttir árið 1981, varð
fólk hissa og ég var kölluð mysu-
konan, en nú er mysukonan
gleymd sem slík og íslendingum
þykir sjálfsagt að nota mysu með
fiski og flestir halda að íslending-
ar hafi gert það frá ómuna tíð.
Mysan er súr og það er rabarbar-
inn líka. Kannski verður eins
sjálfagt eftir nokkur ár að nota
rabarbara með fiski eins og mysu,
edik, sitrónusafa eða þá hvítvín.
Ég fór í fískbúð til að kaupa sköt-
usel, lúðu og silung en rakst þar
á makríl og bætti honum við.
Skötuselur er mjög dýr, lúða og
silungur nokkuð dýr en makríll
hræódýr. Makríl fáum við sjaldan,
þarna var hann. seldur heill og
flakaður. Ég keypti flök. Gróf
bein liggja eftir endilöngu flakinu.
Skerið þau úr og skerið fiskinn
úr roðinu til hliðar frá þeim. Roð-
ið má borða, ef hellt er á það sjóð-
andi vatni og það skafið. Rabar-
barinn er afhýddur og soðinn í
örlitlu vatni í 4-5 mínútur. Þá er
honum smurt á fiskinn.
Steiktur makríll
með rabarbara
4 makrílsflök
2 tsk. salt
Skötuselur eða lúða
með rabarbara
750 g skötuselsflak (ef svo má að
orði komast) eða lúða
2 ‘A tsk. salt
'A tsk. pipar
1 lítill rabarbaraleggur
1 'h dl jógúrt án bragðefna
(súrmjólk)
1 'h dl rasp
1 dl hveiti
’/z dl matarolía + 1 msk. smjörtil
að steikja úr
1. Fjarlægið allar himnur af
skötuselnum, skerið í 2 sm þykkar
sneiðar. Ef þið notið lúðu, er roðið
skafið og uggar skornir af. Síðan
er blóð skolað af sneiðunum. Stráið
salti og pipar yfir sneiðarnar. (Held-
ur minna af salti á lúðuna.)
2. Blandið saman hveiti og raspi.
Smyijið rabarbaramauki á fískinn
(sjá hér að framan) og veltið upp
úr jógúrt og síðan rasp-hveiti-blönd-
unni.
3. Setjið oiíu og smjör á pönnu,
hafið meðalhita og steikið á hvorri
hlið, skötusel í 2-3 mínútur en lúðu
í 3-4 mín.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og hrá-
salat.
Salat með lúðu,
silungi, gúrku
og radísum
400 g silungsflök
400 g stórlúða
1 'A msk. salt
nýmalaður pipar
Vz tsk, engiferduft
1 msk. sykur
10 sm biti rabarbari + 2 msk. vatn
1 dl jógúrt án bragðefna
1 dl haframjöl
'h dl hveiti
3 msk. matarolía
1 msk. smjör
smábiti ferskur rabarbari
1. Hreinsið flökin, sjá hér að of-
an. Stráið á þau salti, pipar og engi-
feri. Látið bíða í 10 mínútur.
2. Smyijið rabarbara á flökin,
notið líka safann, sjá hér að ofan.
Veltið upp úr jógúrt. Blandið saman
hveiti og haframjöli, veltið síðan
flökunum upp úr því.
3. Setjið matarolíu og smjör á
pönnu og steikið flökin á
hvorri hlið í 3 mínútur.
4. Skreytið með örþunn-
um rabarbarasneiðum.
Meðlæti: Soðnar
kartöflur, gúrkur
og hrásalat.
1 tsk. fennikufræ (nota má kúmen)
2 meðalstórir rabarbaraleggir
1 'h dl vatn
1 meðalstór gúrka
6-8 radísur
1. Þvoið og hreinsið báðar fisk-
tegundirnar, skerið hvort tveggja í
teninga á stærð við sykurmola.
Blandið saman sykri, salti og fenn-
ikufræi og stráið yfir. Veltið við svo
að þeki allan fiskinn. Látið standa
í kæliskáp í 4 klst.
2. Afhýðið rabarbarann, skerið í
sneiðar og sjóðið í vatninu í 5 mínút-
ur. Síið vel og kælið. Hellið fískinum
á sigti, setjið síðan í skál og
hellið rabarbaraleginum yfír,
látið hylja fiskinn vel og
standa í kæliskáp í allt
að 10 klst. Hellið þá á
sigti.
3. Skerið gúrkuna
í teninga og radísum-
ar í þunnar sneiðar,
setjið í skál ásamt
fiskinum.
Meðlæti: Ri-
stað brauð
eða
rúg-
brauð og
smjör.
ÍDAG
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn
2.785 krónur. Þau heita í efri röð frá vinstri Lo-
vísa Dröfn Hansdóttir og Egill Örn Þórarinsson.
Fyrir framan eru þeir Bjartur Ari Hansson og Óli
Hreiðar Hansson.
ÞESSI duglegu börn söfnuðu kr. 2.100 til styrktar
Rauða krossi íslands. Þau eru Grétar Andri Rík-
arðsson, Alma Dóra Ríkarðsdóttir, Ingibjörg Lára
Sveinsdóttir og Unnur Rún Sveinsdóttir.
HEILRÆÐI
Göngugarpar!
Sýnið aðgát í
gönguferðum.
Veljið leiðir við
hæfí.
KOMUM
HEIM
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Athugasemd
MAÐUR hafði samband
við Velvakanda og vildi
hann koma því á
framfæri að á blaðsíðu
51 í Morgunblaðinu í gær
var mynd af manni að
tala í farsíma. Undir
myndinni stóð að bændur
hefðu riðið suður til að
mótmæla komu símans
1905. Vildi hann gera
athugasemd við þetta,
hann segir að bændur
hafí ekki verið að
mótmæla komu símans
heldur hvemig að því
væri staðið, þeir hafí
viljað fá þráðlaus
fjarskipti í stað þess að
leggja línur og sæstrengi.
Þessi maður sem er á
myndinni er að nota
tækni sem er sambærileg
við þá tækni sem bændur
vildu fá á sínum tíma.
Dýrahald
Kolsvört læða
DIMMALIMM er týnd.
Hún hvarf að heiman úr
Háskólahverfinu þann 8.
júlí. Hún er með
rauðköflótta tauól og
rautt plastmerkisspjald.
Dimmalimm er sex ára
gömul, fremur stór læða.
Eigandi biður þá sem
gætu gefíð upplýsingar
um ferðir læðunnar að
hringja í síma
551-5301.
Páfagaukur
fannst
PÁFAGAUKUR, blár og
lítill, fannst í
Smárahverfi í Kópavogi
sunnudaginn 20. júlí.
Uppl. í síma 554-5184.
Tapað/fundið
Yankees-
hafnarbolti
fannst
Yankees-hafnarbolti
fannst rétt hjá
leikskólanum
Sunnuborg. Uppl. í síma
581-1312.
SKAK
Umsjón Margcir
Pctursson
STAÐAN kom upp á stór-
móti Credit Suisse bank-
ans, sem hófst í Biel í Sviss
á mánudaginn. Indveijinn
Vyswanathan Anand
(2.765) var með hvítt og
átti leik gegn Frakkanum
Joel Lautier (2.660).
Svartur var að enda við að
drepa peð á h6, lék 21. —
g7xh6? Anand fann nú
ótrúlegan og glæsilegan
vinningsleik:
21. Bg6!! — Re7 (Svartur
verður mát ef hann þiggur
drottningarfórnina:
21. - Dxdl 22.
Hxe6+ - Kf8 23.
Bh6+ - Kg8 24.
Bxf7 mát. 21. — Df6
22. Bxf7+ - Dxf7
23. Hxf7 - Rxe3 24.
Dxd8+ - Kxd8 25.
Bxe3 var einnig von-
laust) 22. Dxd4 —
Hxd4 23. Hd3 -
Hd8 24. Hxd8+ -
Kxd8 25. Bd3 og
Lautier gaf. Sex
skákmenn tefla tvö-
falda umferð. Þeir
Karpov, Anand og
Gelfand hafa einn og hálf-
an vinning eftir tvær um-
ferðir, en Lautier og Sviss-
lendingarnir Milov og Pel-
letier hafa hálfan vinning
hver.
Skemmtikvöld skáká-
hugamanna er annaðkvöld
kl. 20 í Heillisheimilinu,
Þönglabakka 1.
HVÍTUR leikur og vinnur
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI las með athygli við-
töl við forystumenn í húsvísku
athafnalífi hér í blaðinu á sunnu-
daginn. Þetta eru ungir menn sem
bryddað hafa upp á margvíslegum
nýjungum í framleiðslu, útflutningi
og ferðamamennsku. Störfum hefur
fjölgað og ferðamannastraumur
hefur stóraukist. Húsavík er vax-
andi bær eftir margra ára stöðnun.
Það er athyglisvert að lesa hvern-
ig hinir ungu athafnamenn hafa
notað náttúruauðlindir Þingeyjar-
sýslu þegar þeir skipulögðu nýjung-
ar í ferðamennskunni. Hvalaskoðun
hefur slegið í gegn og ganga má
út frá því sem vísu að hvalaminja-
safnið og ferðamannafrystihúsið
muni einnig ná miklum vinsældum.
Þess má víða sjá merki á lands-
byggðinni að tímabil framfara sé
að ganga í garð. Góður árangur
Húsvíkinga mun eflaust verða for-
ystumönnum annarra byggðarlaga
hvatning og fordæmi á næstu árum.
xxx
UMMÆLI Páls Þórs Jónssonar
hótelstjóra um að núverandi
byggðastefna hafi gengið sér til
húðar vakti sérstaka athygli Vík-
verja. Páll segir að sú byggðastefna
sem rekin hefur verið í landinu sé
í raun ölmusustefna stjórnvalda
sem drepið hafi niður alla sjálfs-
bjargarviðleitni og ftjóa hugsun.
Sjálfsbjargarviðleitnin hafi átt að
koma að sunnan, bæði hugmyndir
og íjármagn. Landsbyggðin eigi
ekki að vera rekin á ábyrgð stjórn-
málamanna eða fjárveitingavalds
og vera ofurseld atkvæðaveiðum
og vináttuböndum. Peningastreym-
ið eigi að liggja í auknum mæli til
sveitarfélaganna og ábyrgðin eigi
að liggja hjá einstaklingum og fyrir-
tækjum.
xxx
NÝR goifvöllyr var formlega
opnaður í landi Korpúlfs-
staða á þriðjudagsmorgun af Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borgar-
stjóra. Víkverji hefur leikið þennan
völl í nokkur skipti í sumar og
getur fullyrt að hann verður einn
skemmtilegasti golfvöllur landsins.
Völlurinn var ansi hrár í byrjun
sumars en hefur tekið ótrúlega vel
við sér í hlýindunum undanfarna
daga.
Félagar í Golfklúbbi Reykjavíkur
hafa afnot af vellinum og klúbbur-
inn hefur fengið aðstöðu í austasta
hluta Korpúlfsstaða. Sá hluti húss-
ins hefur verið endurbyggður að
utan sem innan og hefur endur-
byggingin tekizt sérdeilis vel. Er
Víkverji ekki í vafa um að ráðist
verði í endurbyggingu alls hússins
þegar menn sjá hve vel hefur verið
staðið að verki.
xxx
AÐ LOKUM vill Víkverji koma
lítilli ábendingu á framfæri
við forráðamenn Pósts og síma hf.
Áður fyrr var í símaskránni upp-
talning á öllum sveitabæjum á Is-
landi og fyrir aftan stóð í hvaða
hreppi þeir væru, sýslu getið og
loks birt póstnúmerið. Þessum kafla
hefur verið sleppt úr skránni síð-
ustu ár, illu heilli. Er ekki mögulegt
að birta þessar upplýsingar í næstu
skrá, enda aðeins rúmlega 20 blað-
síður?