Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VERZLUNARMANNAHELGIN
9.000 manns
sóttu Þjóðhátíð
Níu fíkniefnamál og ein nauðgunarkæra
UM NÍU þúsund manns voru á þjóð-
hátíð í Vestmannaeyjum um versl-
unarmannahelgina og fór hátíðin
vel fram að sögn mótshaldara.
Dagskrá hátíðarinnar var að
mestu með hefðbundnu sniði. Setn-
ingarræðuna flutti Þór Vilhjálmsson,
formaður ÍBV, en þetta er í fyrsta
skipti sem ÍBV stendur fyrir þjóðhá-
tíð, j)ar sem Knattspymufélagið Týr
og Iþróttafélagið Þór, sem séð hafa
um hátíðina til skiptis, hafa nú ver-
ið sameinuð undir merki ÍBV.
Að sögn lögreglu í Eyjum, fór
Þjóðhátíðin vel fram og var með
þeim rólegri hvað varðaði afskipti
af hátíðargestum. Þó var lagt hald
á meira af amfetamíni nú um versl-
unarmannahelgina en á sama tíma
undanfarin ár, eða samtals 27
grömm, og 5,5 grömm af hassi.
Alls komu upp níu fíkniefnamál
í Eyjum um helgina, þar sem ellefu
manns komu við sögu. Þrír þeirra
voru teknir saman á föstudag og
voru þeir með samtals 13 grömm
af amfetamíni og 5 grömm af hassi
og því með megnið af þeim fíkniefn-
um sem lagt var hald á um helg-
ina, að sögn lögreglunnar. Skýrsla
hefur verið tekin af viðkomandi
aðilum og að sögn lögreglunnar
teljast málin að fullu rannsökuð.
Þá barst ein nauðgunarkæra til
lögreglunnar í Vestmannaeyjum um
helgina, en þolandinn, kona á 22.
aldursári kærði fjóra karla sem tal-
ið er að hafi tengst meintri nauðgun
aðfaranótt sunnudags. Þrír þeirra
áttu að hafa verið viðstaddir og þar
með samsekir þegar meint nauðgun
átti sér stað. Að sögn lögreglunnar
liggur engin játning fyrir en þrír
karlanna voru yfirheyrðir vegna
málsins í Vestmannaeyjum um
helgina. Málið verður sent til rann-
sóknadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík til frekari rannsóknar, en máls-
aðilar voru gestir á þjóðhátíð.
14 líkamsárásir og 16 þjófnaðir
Samtals voru fjórtán líkamsárásir
kærðar til lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum um helgina, en að sögn
lögreglunnar eru þær flestar minni-
háttar, til dæmis nokkur tannbrot
og eitt nefbrot.
Þá voru sextán þjófnaðir kærðir,
og að sögn lögreglunnar eru þeir
einnig flestir minniháttar. Auk þess
voru átta eignaspjöll kærð, til dæm-
is rúðubrot á bílum og skemmdir á
tjöldum.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
þurfti einnig að hafa sérstök af-
skipti af ölvuðum mönnum á þjóð-
hátíð og var 36 mönnum stungið
inn í fangageymslur lögreglunnar
vegna óspekta og ölvunar á al-
mannafæri. Þá voru fjórir teknir
við ölvun við akstur og voru þrír
þeirra sviptir ökuréttindum.
Mjög sáttur
Birgir Guðjónsson, formaður
þjóðhátíðarnefndar ÍBV, kvaðst í
lok hátíðarinnar vera mjög sátt-
ur. Fólk hafi almennt verið rólegt
og þrátt fyrir slæma veðurspá á
köflum hafi verið ágætis veður á
hátíðinni, þótt ekki hafi sést til
sólar. Hann sagði að þessi góða
þjóðhátíð gæfi nýja sameinaða
íþróttafélaginu, sem að henni
stæði í fyrsta skipti, byr undir
báða vængi og því væri ekki ann-
að hægt en vera sáttur við hvern-
ig til tókst.
Flutningur þjóðhátíðargesta til
lands hófst á mánudagsmorgun en
síðdegis lagðist þoka yfir Eyjar og
viðraði því ekki til flugs eftir það.
Heijóifur fór tvær ferðir á mánu-
deginum með um þúsund manns
og þegar ljóst var að um 400 far-
þegar sem höfðu ætlað sér að fljúga
til lands voru strandaglópar í Eyj-
um, var bætt inn aukaferð aðfara-
nótt þriðjudags til að koma þeim
til síns heima.
VR hélt upp á frídag verslunarmanna í Reykjavík
Morgunblaðið/Arnaldur
STÓRIR jafnt sem smáir gestir VR í Húsdýragarðinum fylgdust með þegar selunum var gefið.
Vopnaskak um verslunarmannahelgi
Þúsund gestir
í góðu veðri
UM ÞÚSUND gestir voru á útihá-
tíðinni Vopnaskaki í blíðskapar-
veðri um verslunarmannahelgina
og er það um helmings fjölgun frá
síðasta ári, að sögn Guðjóns Böð-
varssonar í undirbúningsnefnd
Vopnaskaks.
Veður var mjög gott alla dagana
og gekk hátíðin stóráfallalaust,
þrátt fyrir nokkra ölvun. Guðjón
telur raunar að ölvunin hafi ekki
verið meiri þar en annars staðar
um þessa helgi og að hún hafi ekki
verið til teljandi vandræða. Hann
tók sérstaklega fram í samtali við
Morgunblaðið að unglingarnir
hefðu yfirleitt verið mjög prúð-
mannlegir í framkomu.
Dagskrá Vopnaskaks var íjöl-
breytt og má þar nefna skrúð-
göngu, götuleikhús, leiktæki, grili-
veislu og þrjá dansleiki með hljóm-
sveitunum Greifunum, Todmobile
og SSSól.
Það er menningarmálanefnd
Vopnafjarðar sem stendur fyrir
Vopnaskaki og að sögn Guðjóns,
sem er einn nefndarmanna, er al-
menn ánægja með hvernig til tókst.
Þetta er í þriðja sinn sem Vopna-
skak er haldið á Vopnafirði og hef-
ur gestum fjölgað jafnt og þétt frá
ári til árs, svo Guðjón gerir ráð
fyrir að framhald verði á.
F)olmennasta
útihátíðin
FJÖLMENNASTA útihátíð
nýliðinnar verslunarmannahelg-
ar var í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum í Reykjavík á frídegi
verslunarmanna, að sögn Péturs
A. Maack, varaformanns
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur.
Alls lögðu 12.322 gestir leið
sína í Laugardalinn þann dag,
en VR tók garðana á leigu og
bauð félagsmönnum sínum og
öðrum gestum til fjölskylduhá-
tíðar endurgjaldslaust.
Þetta er í annað sinn sem VR
heldur á þennan hátt upp á frí-
daginn og segir Pétur hátíðina
hafa verið afar vel heppnaða.
„Við vorum líka heppin með veð-
ur. Það var hlýtt og aðeins gola,
þó að það hafi ekki verið sólskin."
í Húsdýragarðinum gátu
börnin til dæmis brugðið sér á
hestbak, fylgst með mjöltum og
öðrum gegningum og klappað
kanínum og í Fjölskyldugarðin-
um skemmtu m.a. Furðuleikhús-
ið og Hljómsveitin Geirfuglarnir,
auk þess sem hægt var að fara
í ýmis nýstárleg leiktæki.
Morgunblaðið/Amaldur
FÓLK á öllum aldri skemmti sér vel í Galtalækjarskógi þrátt fyrir votviðrið.
Bindindismótið
í Galtalækjarskógi
Tókst vel
þrátt fyrir
bleytu
MÓTSHALDARAR í Galtalækjar-
skógi segja að mjög vel hafi tekist
til með bindindismótið sem þar fór
fram um verslunarmannahelgina.
Um 3.700 manns voru í Galtalæk
og þrátt fyrir rigninguna, sem setti
sinn svip á mótið, þurfti ekki að
flytja nema einn dagskrárlið undir
þak.
Að sögn Jóns K. Guðbergssonar
mótsstjóra létu menn bleytuna ekki
á sig fá, enda fastir gestir bind-
indismótsins orðnir ýmsu vanir í
því sambandi og búnir að læra að
klæða sig í samræmi við veðrið.
Jón sagði mótið í heild hafa far-
ið afar vel fram og mjög gott sam-
band hefði yfirleitt verið við for-
eldra. Mótið hefði raunar ekki ver-
ið algerlega áfengislaust en það
hefði ekki verið til teljandi vand-
ræða.