Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ FJÖLÆRAR KRYDDJURTIRII OREGANUM - blómfagnrt og gott pizzukrydd. FJÖLMARGAR tegundir fjölærra kryddjurta er auð- veldlega hægt að rækta í íslenskum görðum. Sumar þeirra hafa nú þeg- ar náð heilmikilli útbreiðslu um land- ið eins og graslauk- urinn og skessujurt- in sem áður hefur verið ritað um. Hér á eftir verður haldið áfram að fjalla um ijölærar kryddjurtir fyrir íslenskar að- stæður. Flestar krydd- jurtir vilja bjartan vaxtarstað og pluma sig ekki vel í skugga. Jarðveg- urinn má gjarnan vera fijósamur og auðugur af lífræn- um áburði. Yfirleitt eru það blöð plantn- anna sem eru notuð sem krydd en í sum- um tilvikum eru fræin og jafnvel blómin ekki síðri til notkunar. Krydd- ræktendur ættu að hafa það í huga að þar sem meng- un er mikil, t.d. af bílaumferð, er nauðsynlegt að þvo blöð plantn- anna vel áður en þau eru notuð, mengunarefnin úr andrúmsloftinu eru ekki eftirsóknarvert krydd. Piparmynta - Menthax piperita Til eru hér um bil óteljandi tegundir af myntum en fæstar hafa þær verið próf- aðar við íslenskar aðstæður. Algeng- asta tegundin hér á landi er piparmynt- an. Hún er mjög harðgerð og afar dugleg við það að breiða úr sér í görð- um. Dugnaður hennar er í raun þvílíkur að nauðsynlegt er að hafa auga með henni því hún á það til að skríða yfír á forboðna staði í garðinum... Piparmyntan er mjög blaðfalleg planta og hún nær sjaldnast að blómstra. Hún verður 30-40 cm há og breiðir úr sér með skriðulum jarðstönglum. Það er mjög auðvelt að fjölga henni með því að klippa af henni grein og stinga beint i mold. Piparmynt- an er aðallega notuð í heilsubætandi og hressandi te og í myntusósu sem borin er fram með t.d. lambakjöti. Fyrir þá sem vilja gjarnan sameina heilsusam- legt lífemi og lifnað- arhætti sælkerans læt ég fylgja með uppskrift að heitri súkkulaðiíssósu með ferskum kryddjurt- um: 1 plata suðusúkkulaði l/z peli ijómi 4-5 greinar fersk pip- armynta Súkkulaðið er brætt við vægan hita og ijómanum og fínt saxaðri piparmyntunni blandað saman við. Þegar sósan hefur hitnað vel (hún má ekki sjóða) er hún tekin af hellunni og látin standa í nokkr- ar mínútur. Þá er hún tilbúin til notkunar, til dæmis er gott að nota hana með vanilluís og fersk- um jarðarbeijum. Oregano/ kjarrmenta - Origanum vulgare Oregano er 30-40 cm há fjölær planta. Hún blómstrar rauðbleik- um blómum síðla sumars og er harðgerð og dugleg við íslenskar aðstæður. Oregano var upphaf- lega notað sem lækningajurt en smám saman hefur notkun þess í matargerð aukist. Oregano er ein aðaluppistaðan í kryddi á pizz- ur en það er einnig gott í pott- rétti og á steikt kjöt. Blöðin má nota ýmist fersk eða þurrkuð. Fyrir þá sem hafa gaman af þurrkuðum blómum er tilvalið að þurrka blómin af oregano, þau halda vel lit sínum og gefa frá sér kryddaðan ilm lengi eftir að þau hafa þornað að fullu. Salvía/lyfj asalvía - Salvia officinalis Salvían er gömul og merk lækningajurt. Nafn hennar er dregið af latnesku sögninni sal- vere, að vera við góða heilsu, að lækna, að bjarga. Salvían verður 40-50 cm há og blómstrar fjólu- bláum blómum. Því miður er hún ekki fyllilega harðgerð við ís- lenskar aðstæður, hún þarf létt vetrarskýli eigi hún að lifa vetur- inn af utandyra. Blöðin má nota ýmist fersk eða þurrkuð. Salvían er notuð sem krydd í kjötfyllingu og hentar vel með bragðmiklu, fítusprengdu kjöti. Timian/garðablóðberg - Thymus vulgaris Garðablóðberg er, eins og nafn- ið gefur til kynna, náskylt íslenska blóðberginu. Garðablóðbergið er ívið grófara en hið íslenska, það verður 10-15 cm hátt, dálítið skriðult og blómstrar bleikum blómum síðla sumars. Öll plantan ilmar og blöðin og stönglarnir eru notuð fersk eða þurrkuð. Ólíkt mörgu öðru kryddi þarf minna af fersku timiani en þurrkuðu. Timi- an passar sérstaklega vel með ís- lenska fjallalambinu, það er næst- um því skylda að nota það á grillað lambalæri. Timian er gott villi- bráðarkrydd og hentar einnig mjög vel með skelfiski, t.d. krækl- ingi. Það má nota í te við kvefi, hálsbólgu og timburmönnum. Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur. BLOM VIKUNNAR 363. þáttur Umsjón Ágústa Bjömsdottir Úr dagbók lögreglunnar Tilkynnt um tvær líkamsárásír 1. til 4. ágiist HELGIN var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Þótt margir borgarbúar hafí farið út úr bænum var fjölmennt á skemmtistöðum í borginni og ölvun nokkur. Þá var lögreglan oft kölluð til vegna ölvun- ar í heimahúsum þar sem gleðskapur stóð yfír. Í nokkrum tilvikum hafði skemmtanahaldið farið úr böndum og komið til átaka milli viðstaddra. Margir sviptir ökuréttindum Lögreglan hafði mikinn viðbúnað vegna umferðar til og frá borginni um helgina. Ekki er annað að sjá en að umferðin hafi gengið vel og að mestu óhappalaust. Ökumenn höfðu almennt að leiðarljósi að þeg- ar umferð er þung og mikil þá sé skynsamlegt að fylgja umferðar- hraða en stunda ekki framúrakstur. Því miður átti það samt ekki við um alla og hafa varð afskipti af 40 öku- mönnum vegna hraðaksturs. Sumir þeirra óku bifreiðum sínum umtals- vert yfir hámarkshraða. Þá voru 17 ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur sem er mun meira en á síðasta ári. Ljóst er því að nokk- uð margir ökumenn verða að sjá af ökuréttindum sínum vegna umferð- arlagabrota um verslunarmanna- helgina. Ekið var á dreng á reiðhjóli á bíla- stæði við verslunarmiðstöð í Vestur- bænum. Drengurinn sem er 8 ára slasaðist á höfði, hálsi og fæti og var fluttur á slysadeild til aðhlynn- ingar. Tilkynnt um 10 innbrot Um helgina hefur lögreglu verið tilkynnt um 10 innbrot sem er tölu- verð fækkun frá síðasta ári er þau voru 22. Lögreglan hafði sérstakan viðbúnað um heigina vegna þessara mála. Þá er það ósk lögreglu að íbú- ar hugi almennt betur að híbýlum sínum og gangi þannig frá þeim áður en haldið er í sumarfrí að þau freisti ekki innbrotsþjófa. Það var ánægjulegt að sjá að borgarar höfðu i auknum mæli samband við lög- reglu til að tilkynna mannaferðir sem þeim þóttu grunsamlegar. Slík samvinna borgara og lögreglu er forsenda þess að hægt sé að vinna gegn fjöigun afbrota. Maður stunginn í lærið Karlmaður var stunginn í lærið í Lækjargötu aðfaranótt sunnu- dags. Maðurinn missti talsvert blóð og var fluttur á slysadeild. Lögregl- an fer þess á leit við þá sem urðu vitni að atburðinum að þeir gefi sig fram. Ráðist var á konu á veitingahúsi við Hlemmtorg. Konan hlaut áverka í andliti og var flutt á slysadeild. Fíkniefnamál Fíkniefni fundust í fórum öku- manns sem lögreglumenn fluttu á stöð vegna gruns um ölvun við akst- ur. Einnig fundust fíkniefni í fórum farþega ökutækis þegar lögreglu- menn höfðu afskipti af ökumanni vegna umferðarlagabrots. Þá hafði lögreglan afskipti af ungum manni fyrir utan veitingahús í miðborginni og kom þá í ljós að hann hafði efni í fórum sínum sem talin eru fíkni- efni. Eldur á þremur stöðum Eldur kviknaði út frá kertaljósi í húsi í austurborginni. Ekki urðu miklar skemmdir en slökkvilið var kallað á staðinn. Kveikt var í rusli í kjallaragangi í Breiðholti. íbúar höfðu slökkt eld- inn áður en lögregla og slökkvilið komu á staðinn. Þá var lögregla kvödd að Faxa- garði þar sem tilkynnt hafði verið um eld í togara sem þar lá. Við skoðun reyndist hafa kviknað í vettl- ingum sem voru í þurrkun. Synti í höfninni Atvinnubílstjóri tilkynnti lögreglu um þjófnað úr bifreið sinni. Höfðu farþegar hans gerst svo bíræfnir að fjarlægja stjórntæki talstöðvar hans og þannig gert hann sambandslaus- an. Skemmdir voru unnar á fjórum bifreiðum í Þingholtunum. Gijóti hafði verið kastað í gegnum rúður bifreiðanna. Þá kom ölvaður maður rennblaut- ur inn á miðborgarstöð lögreglu og óskaði aðstoðar. Hann var nokkuð kaldur eftir að hafa reynt að synda í höfninni. Það er mat lögreglu að ekki hefði mikið þurft til að þetta athæfi mannsins endaði illa. FUIMOIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundarboð Aðalfundur Hjálms ehf. verður haldinn kl. 15.00 laugardaginn 16. ágúst 1997 í kaffistofu frysti- húss Básafells á Flateyri. Dagskrá fundarins verður eftirfarandi: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. TILBOÐ/ÚTBOÐ iUTBOÐ F.h. Byggíngadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í vörulyftu fyrir Laug- ardalshöll, stærð u.þ.b. 4x3 m að flatarmáli. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: Kl 14:00 fimmtudaginn 21. ágúst 1997 á sama stað. bgd 113/7 INNKAUPASTOFNUN LREYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 OO - Fax 562 26 16 n Útboð Selfossbær óskar eftir tilboði í breytingar og innréttingar á fyrirhuguðum bæjarskrifstofum Selfoss á 2. hæð á Austurvegi 2, Selfossi. Verkið felst í niðurrifi á veggjum og uppbygg- ingu á nýjum í þeirra stað, þar með talin upp- steypa á veggjum til jarðskjálftastyrkingar, endurnýjun á lýsingu, tölvulagnir, málun, dúkalögn og smíði á föstum innréttingum. Verklok skulu vera 20. október 1997. Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Selfoss á Austurvegi 10 frá og með þriðjudeg- inum 5. ágúst nk. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 13. ágúst nk. kl. 11.00. Bæjarstjórinn á Selfossi. ATVIIMNUHÚSNÆÐI Verslunar-, iðnaðar-, lager- húsnæði Til leigu 225 fm með ca 5 m lofthæð að mestu og 75 fm skrifstofuaðstöðu. Nýstandsett. Fermetraverð 395 kr. Upplýsingar í síma 564 4482 eða 511 4747. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Orð lífsins, Grensásvegi 8 Samkoma í kvöld kl. 20.00. Vitnisburðir. Fyrirbænir. ÉSAMBAND (SLENZKRA ____' KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58, i kvöld kl. 20.30. Skúli Svavarsson hefur hugleiðingu. Vitnisburðir. Állir eru hjartanlega velkomnir. STOFNM) I«1 - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.