Morgunblaðið - 06.08.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997 47
BREF
TIL BLAÐSEMS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Dýraglens
Frú Lilja forsljóri
S VR á villigötum
Frá Jóhanni Þorvaldssyni:
í TILEFNI fréttar í sjónvarpi 16.
júlí sl. um SVR þar sem frú Lilja
Olafsdóttir forstjóri SVR talar um
uppsögn fyrrverandi trúnaðarmanns
vagnstjóra. Þar talar hún um upp-
sögn eins og það sé daglegt brauð
hjá SVR að segja upp fólki og að
það sé „frekar leiðinlegt smámál“.
Mér finnst það skrítinn hugsunar-
gangur að finnast það smámál að
segja upp fólki og svifta það um leið
lífsbjörginni. Það er kannski ekkert
skrítið þegar það er frú Lilja for-
stjóri SVR sem á í hlut. Það er eins
og þegar frú Lilja lét færa áður-
nefndan fyrrverandi trúnaðarmann á
fund til sín, lét hún sækja hann með
valdi. Frú Lilja hafði sér til halds og
trausts starfsmannastjóra SVR og
lögfræðing starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, en hafði ekki
fyrir því að kalla til trúnaðarmann
9. deildar St.rv., enda taldi frú Lilja
umræðuefnið ekki alvarlegs eðlis, og
tók það skýrt fram að ekki yrði rætt
um áminningu né uppsögn á þessum
fundi, en annað kom í ljós því frú
Lilja sendi vagnstjórann heim að
loknum fundi og sagði að hann þyrfti
ekki að mæta aftur til starfa. Af
þessum stjórnunarháttum má glögg-
lega sjá að metnaður frú Lilju liggi
ekki í því að hafa góða og örugga
vagnstjóra sem sinna starfi sínu af
alúð, skyldurækni og hafí góða þjón-
ustulund, eins og umræddur vagn-
stjóri hefur gert þau fjórtán ár sem
hann hefur starfað hjá SVR.
Ég undirritaður var einnig fulltrúi
vagnstjóra um tíma og átti þar af
leiðandi nokkra fundi með frú Lilju
vegna ýmissa mála sem snerta vagn-
stjóra. Ég verð að segja að ég fann
fyrir miklum hroka sem bersýnilega
einkenndist af vanþekkingu hennar
á starfi vagnstjóra. Af fyrri reynslu
minni af frú Lilju er ég þess fullviss
að þessi uppsögn er eingöngu vegna
trúnaðarstarfa vagnstjórans og per-
sónuleg óvild frú Lilju í garð hans.
Ég vil minna borgarfulltrúa R-listans
á að þeir bera fulla ábyrgð á þeim
stjómunarháttum sem frú Lilja for-
stjóri SVR notar á starfsmenn sína
því að það voru borgarfulltrúar R-
listans sem réðu frú Lilju sem for-
stjóra SVR. Ef þetta eru þeir stjórn-
unarhættir sem R-listinn aðhyllist
og ætlar að nota við stjórnun borgar-
innar og fyrirtækja hennar á næstu
árum vona ég að R-listinn verði ekki
kosinn aftur til að fara með stjóm
borgarinnar í næstu kosningum. Ég,
sem einn af eigendum fyrirtækisins
(ég vil minna á að SVR er í eigu
allra borgarbúa en ekki einkafyrir-
tæki frú Lilju) og starfsmaður þess,
ber hag þess fyrir bijósti, þess vegna
tel ég það skyldu mína að upplýsa
alla aðra eigendur SVR hvað er að
gerast innan þess fyrirtækis. Ég tel
að frú Lilja hafi takmarkaðan skiln-
ing á rekstri og hlutverki SVR, máli
mínu til stuðnings er t.d. þessi upp-
sögn, því hún er ekki bara alvarleg
fyrir þennan vagnstjóra heldur hefur
áhrif á alla aðra starfsmenn fyrir-
tækisins, því eins og áður er sagt
virðist það ekki vera nóg að skila
starfí sínu vel. Ég sem borgarbúi hef
áhyggjur af ástandi vagnstjóra í
starfi því það ástand sem skapast
hefur veldur þeim spennu sem ekki
er á bætandi í starfi þeirra, þegar
þeir em að aka um götur borgarinn-
ar þar sem ég og mínir nánustu eiga
leið um. Ég vil skora á borgarfulltrúa
R-listans að aðhafast eitthvað í mál-
inu, því að slíkir stjórnunarhættir frú
Lilju geta haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar fyrir SVR og starfsmenn
þess, ég hef öruggar heimildir fyrir
því að frú Lilja er rétt að byija að
hreinsa til, það á að segja fleirum
upp störfum. Það er ólíðandi að það
sé verið að segja upp fólki vegna
skoðana þess sem em á öndverðu
við frú Lilju og eins þegar verið er
að leita réttar síns, þegar brotið er
á fólki eins og með áðumefndan trún-
aðarmann. Slíkir stjómunarhættir
þekkjast aðallega í hörðustu einræð-
isríkjum þar sem kúgun og mannrétt-
indi em þverbrotin, þar sem fólk er
tekið af lífi án dóms og laga. Þess
háttar stjórnun á ekki að eiga sér
stað og allra síst hjá opinberum fyrir-
tækjum sem SVR óneitanlega er.
JÓHANN ÞORVALDSSON,
vagnstjóri,
Frakkastíg 13, Reykjavík.
Tommi og Jenni
Ferdinand
Svar við svari um
orku og iðnað
Frá Árna Björnssyni:
ÞAÐ var ánægjulegt að fá svar frá
fv. og núverandi orkumálastjóra við
grein minni um grein þeirra um orku-
mál í Mbl. 6/7 sl. Svarið var þó á
dálítið öðrum nótum en ég hafði
búist við, en það var svar og það ber
að þakka.
Skiljanlegt er að svo grandvarir
embættismenn bregðist hart við er
þeim finnst vera vegið að embættis-
heiðri sínum. Hafi grein þeirra, sem
mín grein spratt af, verið skrifuð í
þeim fróma tilgangi að fræða al-
menning um vistvæna íslenska orku,
en ekki til framdráttar frekari stór-
iðju og þarmeð enn frekari virkjun
íslenskra fallvatna, með tilheyrandi
röskun á vistkerfí öræfanna, biðst
ég afsökunar á misskilningi mínum.
Hvað það varðar að greinin sé
rætin, skal það játað að reynslan af
orðum og gerðum íslenskra ráða-
manna, þegar stóriðja er annarsveg-
ar, er slík, að hún gefur tilefni til
fyllstu tortryggni. Því tel ég ekki að
ofmælt hafi verið, enda þar hvergi
vegið að embættisheiðri orkumála-
stjóranna, heiður stjórnmálamann-
anna og stóriðjuhölda, læt ég liggja
milli hluta.
Hitt vona ég að fyrirgefist öldr-
uðum hestamanni, sem ungur heill-
aðist af kyrrð og tign íslenskra ör-
æfa, frá Hólaskógi í Arnarfell hið
mikla, og víðar, áður en þögnin var
rofin af vélaöskri stórvirkjananna,
þó honum hitni svolítið í hamsi, þeg-
ar þessum óafturkræfu gæðum er
fórnað til að fíta mengunarpúkann á
fjósbitanum í hagvaxtarfjósi auð-
hyggjusamfélagsins.
Hérmeð er af minni hálfu lokið
þriggja manna tali um vistvæna orku
og orkufrekan iðnað.
ÁRNl BJÖRNSSON,
læknir.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir. fyrirvari hér að lútandi.
Smáfólk
Beethoven hefði
komið meiru í verk
ef hann hefði ekki
þurft að hafa
áhyggjur af frænda
sinum
... Ég fékk ekkert
kalt morgunkorn í
morgun af því að
þessi heimski bróðir
minn kláraði alla
mjólkina!
Um hvað taia bolta-
menn þegar þeir hitt-
ast á hólnum?
Ekki spyija mig!