Morgunblaðið - 06.08.1997, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997 57
1
M YN DBÖN D/KVIKM YN Dl R/ÚTVARP-S JÓN V ARP
BÍÓIN I BORGIIMNI
Sæbjöm VaJdimarsson / Amaldur Indríðason / Anna Sveinbjamardóttir
BÍÓBORGIN
Grosse Pointe Blank -k-k'k
Þétt og vönduð skemmtun í dekkri
kantinum þar sem söguhetjan
(Cusack) er leigumorðingi sem held-
ur til heimaborgarinnar til að hitta
æskuástina sína og dæla blýi í nýj-
asta viðfangsefnið. Yndislega kald-
hæðin, vel leikin og skrifuð. í hæsta
máta óvenjuleg enda gerð af frum-
legri hugsun sem er fágæt í Holly-
wood.
Morð í Hvíta húsinu kk'/\
Wesley Snipes heldur samsærissögu
úr Hvíta húsinu hressilega á floti í
misjafnri en líflegri og vandaðri
spennumynd.
Fangaflug kkk
Bráðskemmtileg og spennandi
hasarmynd með úrvalsliði leikara.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Batman & Robin k
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
fjórða innlegginu um ævintýri hans.
Einni leikarinn sem virkilega nýtur
sín í þessari mynd eru Uma Thur-
man sem náttúrverndarsinninn,
Poison Ivy. George Clooney er
hreint út sagt vonlaus í aðalhlut-
verkinu.
Menn í svörtu kkk'A
Sumarhasar sem stendur við öll
loforð um grin og geimverur. Smith
og Jones eru svalir og töff og
D’Onfrio fer skelfilegum hamför-
um.
Fangaflug kkk
Sjá Bíóborgin.
Private Parts k k'Á
Sjálfsævisaga útvarpsmannsins
Howards Sterns sögð á gamansam-
an hátt og alvörulausan og mærir
viðfangsefnið útí það óendanlega.
Körfuboltadraugurinn k
Óttaleg endaleysa um draug í
körfuboltaliði. Lítið fyndin.
HÁSKÓLABÍÓ
Klefinn kk
Lítt áhugavert lögfræðidrama um
dauðadæmdan fanga og sonarson
hans sem reynir að bjarga honum
undan gasklefanum.
Elskunnar logandi bál kkk
Yngissveinn með glerkuntuhýjung
og fullþroskuð kennslukona með
gleraugu. Ekki fyrir klámhunda
heldur gesti sem kunna að meta
fagmannleg vinnubrögð Wider-
bergs sem fer oftast vel með við-
kvæmt efnið, alvarlegt og gaman-
samt í senn. Vel leikin og skrifuð
- á köflum.
Horfinn heimur k k'A
Steven Spielberg býður uppá endur-
tekið efni. Það nýjasta í tæknibrell-
um og nokkrir brandarar ná ekki
að breiða yfir algeran skort á
skemmtilegri frásögn.
Skotheldur kk
Skemmtilegur samleikur á milli
Wayans og Sandlers í algjörri form-
úlumynd um tvo skapstirða félaga
í bófahasar.
Kolya k k k'A
Töfrandi og hlý mynd sem yljar
bíógestum um hjartaræturnar.
KRINGLUBÍÓ
Batman & Robin k
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Ýktir endurfundir k
Ýkt og klúðursleg gamanmynd.
Lisa Kudrow og Mira Sorvino eru
ny'ög mistækar.
Frumskógafjör k
Endurgerð á franskri gamanmynd
sem hefði heppnast ágætlega ef hún
hefði verið um eitthvað allt annað
en lítinn indjánastrák sem kemur
til borgarinnar.
Fangaflug kkk
Sjá Bíóborgin.
LAUGARÁSBÍÓ
Horfinn heimur k k'A
Sjá Háskólabíó.
Jackie Chan’s First Strike k k
Jackie býður að venju uppá flott
hasar- og áhættuatriði en myndin
dettur svo gjörsamlega niður á milli
að henni tekst engan veginn að
halda uppi grín- og spennustemmn-
ingunni.
Treystið mér kkk
Carrey fer á kostum sem lögfræð-
ingur sem hættir að geta logið.
Meinfyndin og ærslafengin
skemmtun fyrir alla, ekki síst
hlunnfarin fórnarlömb lögmanna-
stéttarinnar!
REGNBOGINN
Batman & Robin k
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Otrúlegur dagur k k
Michelle Pfeiffer leikur vel og
George Clooney er sætur í þessari
ósköp snyrtilegu mynd.
Scream k k
Unglingahryllingsmynd sem reynir
að vera frumleg en er frekar tilgerð-
arleg. Á þó gfóða spretti inná milli.
Fimmta höfuðefnið kkk
Snyrtilegá innpakkaður sumar-
glaðningur frá franska kvikmynda-
leikstjóranum Luc Besson. Inni-
haldið rýrt en skemmtanagildið
ótvírætt.
STJÖRNUBÍÓ
Menn í svörtu k k k'A
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
4 vilwía ð&abð
Qfli IpÖJftMj iMéiiHWste
4 sjfWÍHff* íj XÍtHé
Pallar
Vaxtarmótun
20/20/20
Stöðvaþjálfun
Pallahringir
• Teygjur
• Fræósla
• Fitumæling
• Markmióssetning
• Útitímar
Leióbeinandi: Takmarkaður fjöldi 5613535
Védís Grönvold,
íþróttakennari
Skráning I sima:
Aukakílóin / f júka af I
f FROS'
- LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ
FROSTASKJOLI 6
TVÖFALDUR
POTTUR
< Víkins«lo«''>im,!
Hvad mundir þú gera
ef þú ynnir
100 milljónir í kvöld?
Til mikils að vinna!
gööisgn
GJALDFBJÁL9T ÞJÓNUSTUNÚMER
Alla miðvikudaga
fyrir kl. 16.00
V