Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997 B 5
vinda. Merki eni um áveitukerfi.
Par er nú skóli, búð og kirkja en þó
fyrst og fremst eitt helsta sauðfjár-
ræktarbú á Grænlandi en sauðfjár-
rækt hefur verið stunduð í landinu
frá því snemma á þessari öld. Eirík-
ur rauði lét ekld að sér hæða í vali á
bæjarstæði! Vönduð vinnubrögð
hans við landkönnun og fyrirhyggja
virðist augljós. Enn í dag eru svæð-
in sem hinir íslensku bændur námu
þau sem helst eru til kvikfjárræktar
fallin. Um tíu mínútna gangur er
upp að rústunum og var Ingvi búinn
að fá eina bílinn á svæðinu, gamlan
jeppa, sem á vantaði aðra fram-
hurðina, en hina var ekki hægt að
opna, til að flytja þá sem áttu erfltt
með gang upp eftir. Skríða þurfti
inn um afturdyrnar og illa gekk
ökumanni að koma bílnum í bakk-
gír, þokaðist hann stöðugt niður
brekku í átt að sjónum. Var fólki
ekki farið að lítast á blikuna er bíll-
inn loksins hrökk í réttan gír og
komst af stað!
Er að rústunum kom hófst Jón
þegar handa við að fræða okk-
ur, rifja upp og benda á hvað
þarna var að sjá og Ingvi hélt tölu
um náttúrufar o.fl. Var mjög fróð-
legt að hlusta á þá. Enn sjást minj-
ar hleðslu húsa og kirkju. Eins og
endranær furðar maður sig á því
hversu stórir steinamir eru sem
notaðir hafa verið í hleðslur. Var í
raun kyngimagnað að vera á þess-
um stað, við bæ Eiríks rauða á
Grænlandi, og hugsa til þess iðandi
mannlífs er þarna hefur verið, en
Brattahlíð var löngum höfðingjaset-
ur. Komu upp í hugann eftirminni-
leg atvik úr Eiríks sögu rauða, svo
sem þegar Þorsteinn sonur hans
vildi fara að leita lands þess er Leif-
ur bróðir hans hafði fundið. Vildi
hann hafa föður sinn með og trúði á
gæfu hans og forsjá eins og segir í
sögunni. Eitthvað hefur Eiríkur
verið svartsýnn á að ferðin gengi að
óskum því hann tók kistil nokkurn
með gulli og silfri og gróf í jörðu til
þess að eiga skotsilfur ef svo færi að
hann lenti í Valhöll! (En fommenn
trúðu því að þeir fengju að njóta
þess í Valhöll eftir dauðann er þeir
hefðu sjálfir grafið í jörðu.) Á leið til
skips féll Eiríkur af baki og fór úr
axlarliðnum. Fékk hann þá sam-
viskubit og sagði konu sinni Þjóð-
hildi frá fjársjóðnum og bað hana að
nálgast hann. Fyrirhyggja Eiríks
kemur einnig fram í frásögninni af
því þegar hann af miklum skör-
ungsskap hafði boðið skipshöfn
Þorfinns Karlsefnis og þeirra
Bjarna Grímólfssonar og Þórhalls
Gamlasonar alls 80 manns til vetur-
setu. Er dró að jólum gerðist Eirík-
ur daufur í dálkinn. Er Karlsefni
gekk á hann hvað ylli kom í ljós að
Eiríkur kveið því að geta ekki veitt
þeim nógu rausnarlega um jól. Bet-
ur fór en á horfðist því Karlsefni
hafði meðferðis bæði malt og korn
þannig að unnt var að gera góða
veislu! Brattahlíðar er einnig getið í
Fóstbræðrasögu er Þormóður Kol-
brúnarskáld hélt til Grænlands til
að hefna Þorgeirs Hávarssonar,
fóstbróður síns. Þá segir sagan að
hann hafi fyrst dvalið hjá Þorkeli
Eiríkssyni, er þá var höfðingi yfir
landinu og bjó í Brattahlíð. Ýmsir
aðrir staðir koma við sögu sem of
langt yrði að rekja.
Minjar hafa fundist um þrjár
kirkjur í Brattahh'ð og gæti sú elsta
verið kirkja er Þjóðhildur kona Ei-
ríks lét reisa samkvæmt sögunni.
Eru tóttirnar smáar, en greinilegar.
Þar hefur verið grafið í kirkjugarð-
inn og fundist líkamsleifar a.m.k.
155 manna frá því um og upp úr
1000. Trúlega hafa sumir verið
fluttir að langar leiðir, því ekki hafa
kirkjur eða grafreitir verið margir í
landinu á þeim tíma. Ein gx-öfin er
fjöldagröf sem í var mikið magn
beina sem ljóst var að hafði verið
nánast hrúgað ofan í gröfina. Við
rannsókn kom í ljós að þarna voru
beinagrindur 12 karlmanna og
u.þ.b. 10 ára barns og virðist meðal-
hæð karlanna hafa verið 177 sm,
nokkrir virtust jafnvel hafa verið
184-185 sm háir! Niðurstöður á
rannsóknum annarra beina benda
til þess að fólkið hafi verið sterklega
byggt, meðalhæð karla hafi verið
um 173 sm og kvenna 160 sm. Tenn-
ur virðast hafa verið góðar, engar
tannskemmdir en þær eru slitnar,
þótt fólk virðist ekki almennt hafa
náð háum aldri. Skýringu á fjölda-
gröfinni höfum við ekki, en í Græn-
lendingaþætti segir frá Sigurði
nokkrum Njálssyni, grænlenskum
manni, og mönnum hans er fundu
dauða menn af tveimur skipum í
veiðiferð. Hleypti hann holdi af
beinum líkanna til að hægara væri
að flytja líkamsleifamar í vígða
mold. Gæti verið um svipað tilvik að
ræða eða að mennimir hafi orðið
sóttdauðir og fólk óttast smit.
Þegar til íslands kom heyrðum
við í fréttum að niðurstöður rann-
sókna í sambandi við uppgröft í
Brattahlíð nú nýverið þykja sanna
að þar hefur verið byggð norrænna
manna fyrir árið 1000. Þannig að
það sem sagt er frá í Islendingabók
Ara fróða um landnám norrænna
manna á Grænlandi 14 eða 15 vetr-
um fyrr en kristni var lögtekin á ís-
landi er ekki fjarri lagi.
Hópurinn hélt nú um borð í bát-
inn og var siglt inn Eiríksfjörð
framhjá stað þar sem verið gæti að
Stokkanes, bær Þorbjarnar Vífils-
sonar, vinar Eii-íks og föður Guðríð-
ar tengdadóttur hans, hafi staðið.
Er Guðríður nú talin hafa verið víð-
förulust kona í öllum heiminum á
þessum tíma og þótt síðar væri.
Hún var fædd á Islandi, flutti til
Grænlands, hélt þaðan til Vín-
lands/Ameríku, ól þar fyrsta hvíta
barnið sem sögur fara af, hélt aftur
til Grænlands, þaðan til íslands,
gekk suður til Rómar og kom aftur
til Islands!
Nálægt fjarðarbotninum var
snúið við og siglt út Eiríksfjörð milli
ísjakanna til Narsaq. Rétt fyrir
austan Narsarsuaq sigldum við fyr-
ir mynni Qooroq, sem er lítill inn-
fjörður með allt að 1000 metra há
fjöll á þrjár hliðar, var þar mikið af
ís. I botni fjarðarins fellur skriðjök-
ull í sjó fram, slíkir jöklar kallast
„lifandi" en þeir „deyja“ er þeir
mæta hafinu. Þeir skriðjöklar sem
ekki ná svo langt að falla í hafið
kallast „dauðir"! Varasamt getur
verið að fara nálægt skriðjöklum
þar sem þeir brotna. Rigningarúði
var og skyggni og útsýni heldur
takmarkað. Ýmsir reyndu þó að
standa úti á dekki og bjóða dumb-
ungnum birginn.
Narsaq (slétta) er að sögn fal-
lega staðsettur bær við ræt-
ur myndarlegs fjalls, sem er
685 m hátt, en vegna rigningar-
sudda sáum við aldrei nóg til að
dæma sjálf! í bænum búa tæplega
1.800 manns, en í sveitarfélaginu
sem tekur yfir 8.500 ferkílómetra
og Brattahlíð, Narsarsuaq og Garð-
ar tilheyra, búa rúmlega 2.150
manns. Sauðfjárrækt er mikilvæg-
asta atvinnugreinin, en í bænum
sem á rætur að rekja til verslunar-
stöðvar er stofnsett var 1830, eru
fiskveiðar og fiskiðnaður mikilvæg
og hann er miðstöð sportveiða í
Suður-Grænlandi. Þar eru einnig
nokkrir skólar og heimavistir. Hér-
aðið er áhugaverður staður fyrir
jarðfræðinga því þar er að finna
margar sjaldgæfar steintegundir
þ.á m. „Narsaqsteininn", hinn eftir-
sótta rauða tuttupit, skrautstein
sem finnst aðeins hér og á Kola-
skaga. Ýmsir málmar finnast í jörðu
á Grænlandi. í Kvanefjalli fyrir
norðaustan Narsaq fannst úraníum
upp úr 1960. Tilraunavinnsla fór
fram en magnið þótti ekki nægjan-
legt til þess að hefja námugröft.
Sögur heyrðum við um áhrif geisla-
virkni á vatn og gróður en ekki
fengum við það staðfest.
Er til Narsaq kom eftir um
þriggja og hálfs tíma siglingu hófst
ganga frá bryggjunni í leit að gisti-
stað okkar, heimavist fyrir skóla-
börn yfir vetrartímann. Rúmur
helmingur hópsins átti að gista þar,
hinn rétt fyrir utan bæinn í Dýr-
nesi. Helgi Jónsson, Islendingur er
búið hefur á Grænlandi um langt
skeið, tók á móti hópnum og sá um
að flytja farangurinn. Dumbungur-
inn óx og rigninguna herti, en
áfram þrömmuðum við og að lokum
komum við á áfangastað blaut og
þi-eytt. Hægt var að hengja upp
fatnað og þurrka skó, svo þetta
bjargaðist allt. Sumir hvildu sig,
hvíldinni fegnir, en aðrir skoðuðu
skinnaverksmiðjuna Eskimo-pels.
Viltu styrkja stöðu þín
Markmið námsins er að útskrifa nemendur
með hagnýta þekkingu á tölvunotkun
og veita þeim innsýn í notkunarmöguleika
í tölvu- og upplýsingaumhverfinu.
Námið er 60 kennslustundir.
Kennt verður á laugardögum
frá kl. 8:30 - 12:00.
Skráning og upplýsingar
í síma 568 5010
Rafiðnaðarskólinn
Skeifunni 11B • Sími 568 5010
J