Morgunblaðið - 31.08.1997, Side 31

Morgunblaðið - 31.08.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997 B 31 ERLENT Könnun á áfengisneyslu norskra ungmenna Tengsl milli áfengisneyslu og sálfræðilegs þroska Ósló. Morgunblaðið. NIÐURSTÖÐUR norskrar rann- sóknar benda til að það sé eðiilegur hluti af þroskaferli ungra drengja að fikta við áfengi og „detta í það“ á táningsárunum. Ef drengir byija hins vegar mjög snemma, eða mjög seint að neyta áfengis eykst hættan á sálfræðilegum vandamálum síðar á ævinni. Þetta er að finna í doktorsritgerð norsku vísindakonunnar Hilde | Pape, „Drinking, getting stoned or i staying sober“ er hún varði í síð- ustu viku. Ritgerðin fjallar um þýð- ingu áfengis á þroskastigið milli þess að vera barn og fullorðinn. Kemst Pape að þeirri niðurstöðu að skýr tengsl séu á milli þess hve- nær áfengisneysla hefst á ævinni og sálfræðilegum vandamálum. Strákar og stúlkur er byija að , drekka áfengi snemma á unglings- aldri eiga síðar meir við hlutfallslega mikil sálfræðileg vandamál að stríða. Hvað stráka varðar á það sama við um þá er bytja seinna en jafnaldrar sínir að neyta áfengis. Meðalaldur unglinga er þeir hefja áfengisneyslu er í kringum 15-16 ára. „Einstaklingar sem ekki neyta áfengis á unlingsárunum fara á mis við ýmsa þroskaþætti sem tengjast áfenginu óbeint. Rann- sóknir hafa leitt í ljós að hófleg áfengisneysla á miðjum tánings- aldri tengist þáttum á borð við auknu sjálfstrausti og betri geð- heilsu á fullorðinsaldri," segir Pape í samtali við Aftenposten en hún starfar hjá norsku uppeldisstofnun- inni. Hún segist gera sér fyllilega grein fyrir að niðurstöður hennar muni kalla á mjög sterk viðbrögð og fordæmingu bindindishreyfing- arinnar. „Til þessa höfum við vanist „góð- um“ vísindamönnum er hafa stutt sjónarmið bindindishreyfingarinn- ar,“ segir hún. Rannsóknin náði til 2.000 ung- menna er könnuð voru á þremur aldursstigum. Fyrst er þau voru 19-22 ára og síðast er þau voru 25-28 ára. í niðurstöðum Papes kemur fram að hófleg áfengisneysla geti haft jákvæð sálfræðileg áhrif þar sem að hún geti verið lykill inn í ungl- ingaheiminn og það að hljóta viður- kenningu meðal jafnaldra. Þeir sem byija mun fyrr en með- altalið eiga hins vegar á hættu að missa tök á neyslu sinni síðar á ævinni. Þá kom í ljós að karlar er aldrei höfðu „dottið í það“ og þeir sem byijuðu áfengisneyslu mun síðar en meðaltalið virtust eiga erfiðara með að ijúfa tengslin við foreldrana. Þeir áttu ekki jafnauðvelt og jafn- aldra að axla fullorðinshlutverkið, til dæmis með því að flytja að heim- an og eignast kærustu. Að auki virt- ust vera tengsl á milli bindindis og vinaleysis. Jógastöðin Heimsljós kynnir Qi Gong/Tai Ji námskeið með Karl-Heinz Knebel dagana 5.sept.—7. sept. Kripalujóga byrjendanámskeið 1. sept.—17. sept. mánud.—miðvikud. U. 19.30—21.30. Lb.: Guðrún Hvönn Sveinsdóttir. 9. sept.—25. sept. þriðjud.—fimmtud. kl. 20.00—22.00. Lb.: Aslaug Höskuldsdóttir. Nýjung eftirmiðdagsnámskeið 15. sept.—1. okt. mánud.—miðvikud. kl. 16.30—18.30. Lb.: Sesselja K. Karlsdóttir. Upplýsingar og skráning: Jógastöðin Heimsljós, Ármúla 15, 2.h., sími 588 4200, kl. 13.00—19.00 virka daga. Ath. Kripalu reykelsin komin aftur Jógastöðin Heimsljós er móðurstöð Kripalujóga d fslandi. Allir jógakennarar okkar eru með kennararéttindi jrd Kripalumiðstöðinni i Massachusetts, USA. JÓGASTÖÐIN HEIMSLJÓS J Noregur Hugmynd að nýrri eyju BYGGING nýrrar eyju skammt frá Ósló er meðal þeirra hugmynda sem lagðar hafa verið fram um hvernig leysa megi vanda er hlýst af um- framjarðvegi frá bygginga- og fram- kvæmdasvæðum í borginni og grennd, að því er Aftenposten greindi frá 1 gær. Samkvæmt upplýsingum _ frá skipulags- og byggingastofnun Ósló- í ar má reikna með að á næstu 15-20 árum verði á ári hveiju um hálfri milljón rúmmetra af jarðvegi ofaukið vegna ýmissa framkvæmda, og þar af verði að finna um 400 þúsund rúmmetrum annan, varanlegan stað þegar til lengri tíma sé litið. I tillögunni segir að ný eyja á Bunnefirði, við botn Óslóarfjarðar, gæti orðið áhugavert útivistarsvæði og myndi lengja baðstrendur til muna. Þessir tveir firðir eru vinsæl- asta útivistarsvæði 1 Noregi og um ein og hálf milljón manna koma þangað árlega. Stjórnmálaleiðtogar í Ósló hafa tekið hugmyndinni vel, og hefur meðal annars verið bent á að flestar eyjanna á firðinum séu þéttsetnar sumarhúsum og skortur sé á eyjum sem allir geti notið. ---------♦ ♦ ♦--- Kim Jong-il hampar langskotinu Tókýó. Reuter. KIM Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, tók sér nýlega hlé frá því að beijast gegn hungursneyðinni í landi sínu til að gefa landsliðinu í körfuknatt- leik góð ráð. Hann sagði að þar sem Norður- Kóreumenn hefðu tilhneigingu til að vera fremur lágvaxnir ættu norður- kóreskir körfuknattleiksmenn að ein- beita sér að langskotum ætluðu þeir að sigra á alþjóðlegum mótum, að þvl er fréttastofan Radiopress, sem fylgist með íjölmiðlum í Norður- Kóreu, greindi frá. Vitnað var í dagblaðið Minju Jo- son, málgagn norður-kóresku stjóm- arinnar, og sagt að Kim hefði nýver- ið flutt fyrirlestur fyrir helstu körfu- knattleiksmenn landsins hvemig þeir ættu að komast á sigurbraut. IMYTT IMYTT IMYTT IMYTT IMYTT DAIMSIMÁMSKEIÐ FYRIR BÖRIM/UIMGLIIMGA Jassleikskólinn, barnadansar og samkvæmisdansar Hópkennsla og einkatímar Stutt og löng námskeid Kántrý dansar annýdamarmegM f ' a a ’S" Auðvelt að byrja, Stepp og rokk ij UPPL ÝSINGAR & IIMIMRITUIM í SÍMA 561 9797 VI© L #1 Hagnýtir dansar M lCUnSAAAYV Bömin njóta sín í fyrir unga sem aldna. y (i m a n jassleikskólanum. Danssmiðja Hermanns Ragnars og Auðar Haralds Skipholt 25, 105 Reykjavík <f> 561 9797 & 561 7580 hausverk augtýsingaforstofa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.